Morgunblaðið - 22.07.1984, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 1984
t
Eiginkona mín og móöir okkar,
JÓNA SIQRÍÐUR BENÓNÝSDÓTTIR,
Baldursgaröi 8, Kaflavfk,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 20. júlf.
Hallgrfmur Faaraeth og börn.
Móöir okkar,
er látin.
t
eqgertIna m. smith,
Snorrabraut 87,
Karólína Smith, Theódóra Smith,
Magnús Smith, Óskar Smith Qrfmsson.
t
Eiginmaóur minn, faöir og tengdafaöir,
JÓN PÁLSSON,
Ægissíóu 86,
lést í Borgarspftalanum þann 20. júif.
Kristfn Þóröardóttir,
Steinunn E. Jónsdóttir, Sigmundur M. Andrésson.
t
Konan mfn, móöir okkar og tengdamóöir,
JÓHANNA JÓNASDÓTTIR,
Einarsnesi 54,
lést f Borgarspftalanum föstudaginn 20. júlf.
Bjarni Stefánsson,
Vilborg Björgvinsdóttir, Jóhannes Sigurösson,
Birgir Björgvinsson, Edda Svavarsdóttir,
Björk Björgvinsdóttir, Björn Barödal.
Rannveig Guömundsdóttir.
t
Útför
JÓHÖNNU BENÓNÝSDÓTTUR
fré isafirói,
sem lést 15. júlí, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlí
kl. 10.30.
Börn, tengdabörn
og aörir vandamenn.
t
Sonur minn, bróöir okkar og mágur,
JÓN VILBERG JÓNSSON,
Barmahlíð 52,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. þ.m.
Jónfna Margrét Jónsdóttir,
Þorgeröur Jónsdóttir, Þorgeir Þorleifsson,
Auöur Jónsdóttir, Snvar Halldórsson,
Jóhanna Jónsdóttlr, Ólafur Jónsson.
t
Móöir mín,
GUDRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Mévahlfö 4, Reykjavfk,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. júlf kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Hallgrfmskirkju.
Fyrir mfna hönd og annarra aöstandenda,
Garðar Sigurösson.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
SVANHILDUR GISSURARDÓTTIR,
Brasðraborgarstfg 5,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. júlí kl.
15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Ifknarfélög.
Bragi Kr. Guðmundsson,
Elsa U. Guömundsdóttir,
Gissur K. Guðmundsson,
Hjörtur M. Guömundsson,
Margrét Guömundsdóttir,
Valgeröur Guömundsdóttir,
Margrét Hauksdóttir,
Björn Björnsson,
Gerda Guðmundsson,
Guörún Siguröardóttir,
Torfi Ólafsson,
Hallgrímur Jónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Jón Vilberg Jóns-
son — Minning
Fæddur 22. desember 1922
Dáinn 12. júlí 1984
Það eru hartnær fjórir áratugir
frá því, að við þrír félagar norðan
úr Vatnsdal fengum lóð í hinu svo
kallaða Hlíðahverfi í Reykjavfk —
efst við Barmahlíðina. „Landnám"
þar var þá rétt að hefjast, og af
mörgum talið lítt fýsilegt að eiga
heima svo langt frá bænum, eins
og það var nefnt. Við höfðum til
umráða lóðirnar 54 og 56, en hús
nágrannanna voru þegar komin
nokkuð áleiðis.
Við þessir þrír áttum marga
ferðina til að líta á athafnasvæðið.
Bjartsýni og kvíði toguðust á, en
blessunarlega vissum við ekki
nema að takmörkuðu leyti um þá
erfiðleika, sem áttu eftir að mæta
okkur næstu þrjú árin. Það var
gengið til nágrannanna, sem voru
í óðaönn að byggja, og þeir spurðir
spjörunum úr og leitað ráða. Á nr.
52 voru Jón Hannesson múraram-
eistari, sonur hans Jón Vilberg og
Þorgeir Þorleifsson bifreiðastj.
tengdasonur Jóns Hannesssonar.
Á nr. 53 voru Gunnar Elíasson
trésmiður og Þórður Þórðarson
járnsmiður. Á nr. 55 voru Guð-
mundur Brynjólfsson og Konráð
Ingimundarson lögreglumenn, og
svo Benedikt Kristjánsson, sem
vann hjá Eimskip.
Engan þessara manna þekktum
við, er við komum í hverfið, en
brátt myndaðist góður kunn-
ingsskapur og allir hjálpuðust að
á tímum efnisskorts og annarra
erfiðleika. Húsin komust upp og í
þau flutt, og þá hófust einnig
kynni við fjölskyldur þeirra. Sam-
félag þetta hefur haldist síðan
með furðu litlum breytingum.
Af þeim mönnum, sem hér hafa
verið nefndir eru tveir fallnir frá,
það eru feðgarnir í Barmahlíð 52.
Jón Hannesson lést árið 1975 eftir
margra ára heilsuleysi og erfiða
sjúkdómslegu síðustu árin. Jón
Vilberg sonur hans, Beggi, eins og
hann var ávallt kallaður, lést 12.
júlí sl. og verður jarðsettur mánu-
daginn 23. júli.
Beggi var fæddur 22. desember
1922 í Reykjavík, sonur hjónanna
Jónínu Margrétar Jónsdóttur og
Jóns Hannessonar. Systkinin voru
fjögur, þrjár systur, en Beggi eini
bróðirinn. Fjölskyldan var ákaf-
lega samrýnd og bjó lengi vel öll í
sama húsinu, enda eru íbúðirnar
fjórar. Allar systurnar eru fyrir
löngu giftar, tvær þeirra fluttar á
brott, en ein þeirra býr enn í
Barmahlíðinni ásamt eiginmanni
sínum. Beggi kvæntist ekki, en bjó
alltaf heima hjá foreldrum sinum
meðan þeirra naut beggja við, og
nú siðast með móður sinni, sem
komin er á tíræðisaldur.
Hér verður lítt rakin æfisaga
Begga. Þess skal þó getið, að á
unglingsárum sínurn vann hann
við garð- og blómarækt. Átti það
starf mjög vel við hann, enda naut
hann þess að hirða um og rækta
garðinn heima í Barmahlíðinni.
Síðan fór hann að vinna við
járnsmíðar í Vélsmiðjunni Héðinn
og seinna í Stálsmiðjunni. Tileink-
aði hann sér sérstaklega raf-
suðuiðn og aflaði sér fullra rétt-
inda á þvi sviði. Má því segja, að
það hafi verið hans megin lifsstarf
utan heimilis. Beggi hafði mikið
yndi af ferðalögum, innan lands
sem utan, og hafði kynnt sér sögu
og sögustaði eigin þjóðar og ann-
arra. Hin síðari ár notaði hann
yfirleitt sumarfriið til sólarlanda-
ferða. Hann hafði nú dvalið i tvær
+ Eiginmaöur minn, BRYNJÓLFUR ÞORSTEINSSON, •klpstjúrl, er látinn. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Innilega þakka ég Jóni Friðgeiri og þeim sem réttu mér hjálpar- hönd viö útförina. Einnig þakka ég öllum þeim sem sendu mér blóm og minnlngarkort. Guö blessi ykkur öll. Halldóra Backmann Jónsdóttir, Tómasarhaga 42.
t Eiginmaöur mlnn og faöir okkar, GUNNAR TRYGGVASON fró Skrauthólum, Teigaseli 5, Raykjavík, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju miövikudaginn 25. júlf kl. 13.30. Hallfrföur Ásmundsdóttir, Halldór Gunnarsson, Tryggvi Gunnarsson.
+ Móöursystir mín, KRISTBJÖRG KRISTJANSDÓTTIR fró Jódfsarstöóum, andaöist á heimili sínu Höskuidsstööum sunnudaginn 15. júlí. Jaröarförin fer fram frá Munkaþverárkirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 14.00. Rósa Árnadóttir.
+ Faöir okkar, tengdafaöir og afí, EVALD CHRISTENSEN, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24. júli kl. 10.30. Gair Christensen, Guórún Eóvaldsdóttir, Elsa Christensen, Svavar Lórusson og barnabórn.
vikur á Spáni, en veiktist daginn
áður en haldið var heim. Heim
kom hann fársjúkur og var látinn
daginn eftir.
En það er þetta samfélag i
Barmahlíðinni. í þessi nærri
fjörutíu ár er mér ekki kunnugt
um nokkra árekstra á milli þessa
fólks, sem í upphafi þessa máls
var nefnt og þar hefur lengst búið.
Samgangur var ekki sérstaklega
mikill, en þegar hist var, hvort
heldur utan dyra eða innan, vakti
það alltaf þægindakennd og hlýjar
tilfinningar. Fjölskyldurnar í
Barmahlið 52 voru og eru okkar
næstu nágrannar. Alltaf þótti mér
vænt um að hitta þar einhvern, er
ég var úti við, eða var að koma eða
fara. Það var á sinum tima oftast
Jón Hannesson, og tel ég að við
höfum mátt kallast góðir vinir.
Svo var það Beggi, er ég oftast sá
og átti orðaskipti við. Nú er hann
líka horfinn. Mér þykir því vera
orðin nokkur eyða í samfélaginu
og sakna þess verulega að sjá
hann ekki lengur. Beggi var ekki
orðmargur og ekki var hann af-
skiptasamur um annarra hagi,
þótt hann léti sér þá við koma.
Það var eitthvað fast og traust,
sem fylgdi honum; góðvild og um-
hyggja, sem ekki kom svo mikið
fram í orðum, heldur persónugerð-
inni sjálfri. En nú er Beggi dáinn.
Hann hafði verið veiU fvrir hjarta
í nokkur ár og þurfti því að gæta
nokkurra varfærni, mun þó ekki
hafa liðirð mikið fyrir það. Hvort
það varð honum að aldurtila eða
ekki, er mér ekki kunnugt. En það
varð brátt um hann; aðeins veikur
í þrjá daga. Það er gott að fá að
deyja á þann hátt. En nú hefur
móðir hans ekki lengur stuðning-
inn frá hans hendi, það er mikill
missir. Hennar er söknuðurinn
líka mestur. Góður sonur, sem
aldrei brást, er horfinn. Við Lára
vottum henni og öðrum aðstand-
endum Begga okkar dýpstu sam-
úð, en erum þakklát fyrir þau
kynni, er við höfum haft af okkar
góðu nágrönnum.
Haukur Eggertsson
„Því að enginn af oss lifir sjálfum
sér og enginn deyr sjálfum sér.“
(Róm. 14.7.)
Á morgun fer fram útför Jóns
Vilbergs Jónssonar en hann lést
snögglega þann 12. júlí sl. Jón
Vilberg eða Beggi eins og hann var
kallaður af fjölskyldunni, fæddist
í Reykjavík 22. desember 1922 og
var hann elstur fjögurra systkina.
Foreldrar hans voru hjónin Jón
Diðrik Hannesson múrari sem lést
1975 og kona hans Jónina Margrét
Jónsdóttir sem lifir son sinn en
hún er á tíræðisaldri.
Beggi átti sitt æskuheimili að
óðinsgötu 28 þar sem han ólst upp
ásamt systrum sínum, þeim Þor-
gerði, Auði og Jóhönnu. Jón Diðrik
og Jónina Margrét höfðu af mikl-
um dugnaði og eljusemi eignast
eigið húsnæði og bjuggu börnum
sínum fallegt heimili þar sem
ráðdeildarsemi, heiðarleiki og
fórnfýsi voru einkennandi þættir.
Beggi, sem var elstur systkinanna,
mótaðist í anda þessara viðhorfa.
Hann átti góða æsku á heilbrigðu
og reglusömu heimili en þó var
eitt sem háði honum frá fyrstu tfð,