Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 9

Morgunblaðið - 12.08.1984, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 9 HUGVEKJA eftir séra Guðmund Óskar Ólafsson 8. sunnud. e. þrenn. hátíð „Hverjum sem heyrir orð mín og breytir eftir þeim má líkja við mann er byggði hús sitt á bjargi og steypiregn kom ofan ... og stormar blésu, en það féll ekki ... og hverjum sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim má líkja við heimskan mann, sem byggði hús sitt á sandi ... og það féll og fall þess varð mikið." Mt. 7:24-27. Húsasmíðar eru eflaust ís- lendingum tamara umræðu- efni, en almennt gerist með öðrum þjóðum, svo sem það tíðkast hér að flestir reyni að eignast þak yfir höfuðið og taki virkan þátt í smíðinni með eigin höndum. Og margur mun þekkja það af eigin raun hversu miklu varðar að grunn- urinn sé góður í fleiri en einni merkingu, þegar hugað er að framkvæmdum. Það væri nægilegt efni í hugvekju að ræða um vanda húsbyggjenda, lánsfjárskortinn, áhyggjurnar lífs hennar, að sandurinn var vart merkjanlegur, því það er önnur útsýn að vera til að mynda fimm ára eða fimmtíu ára ... Hún Winnie á lítinn spegil og eitt sinn þegar hún er að snyrta sig, þá sér hún ofursmáan maur í speglinum. Maurinn er að bisa við eggja- skurn, sem er langtum stærri en hann sjálfur, hann bisar og bisar, en endalokin eru manns- auganu fyrirsjáanleg, hann mun aldri valda þessu hlassi, en þó er eins og ekkert geti að við munum eiga annað hús inni, sem eigi sé af höndum gjört og að þess vegna megum við syngja eins lengi og hefur verið gjört: „Við stöndum á bjargi, sem bifast ei má.“ Guð er þá möguleiki, þar sem eng- inn möguleiki er sjáanlegur, náð hans kletturinn, bjargið alda. Ef borin er stika hins veraldlega kvarða á líf kristins manns, þá er fátt, sem bendir til að hann byggi á einhverjum sérstökum grunni, sem óveðrin í veröldinni vinni ekki á. Hann hrapar og laskast í hverskyns flugi, sem annað fólk, já ekki síður og að lokum gengur það jafnt yfir alla að stundaglasið tæmist. Og það er í sviptingun- um öllum, sem sérhver verður fyrir í lífinu, í háska og sorg- og áralanga erfiðleika á ýms- um sviðum, ekki síst hjá unga fólkinu sem stundum byrjar að byggja með næstum því bjartsýna eina að efnum. Og það væri verðugt rannsóknar- efni að kanna hversu mörg heimili hafa farið í rúst og hjónabönd flosnað upp sökum fjárhagsörðugleika og vand- ræða sem hlutust af bygg- ingarframkvæmdum. En þó að Jesús ynni við smíðar á sinni tíð og væri ef- laust hnútum kunnugur á því sviði, þá er það ekki bygg- ingarverkfræði í bókstaflegri merkingu sem hann ávarpar okkur með í sögunni af húsun- um tveimur í guðspjalli dags- ins. Það mun fremur vera lífssmíðin, sem við er átt, hvernig og hverju varðar að þar sé vel hugað að efnum og undirstöðu. Margur notar glas með sandi í til að mæla tímann við eggjasuðu, tækið heitir reynd- ar stundaglas, en þau geta ver- ið með ýmsu lagi og einnig sem í dulinni líkingu. í einu leikrita Samuel Becketts má í upphafi leiks sjá stúlkuna Winnie, þar sem hún situr í miðri sand- hrúgu, sem nær henni upp undir hendur. Hún getur hreyft hendurnar og notar þær reyndar eftir mætti, eftir því sem aðstæður leyfa. Við hlið hennar er taskan hennar, þar sem hún geymir varalitinn sinn og fleiri snyrtiföng. Henni er í mun að nota tím- ann, halda sér ofurlítið til, brosa, gleðjast og hressa upp á sjálfa sig og aðra með ein- hverju skemmtilegu, sem henni dettur í hug að segja. Winnie veit vel af því að hún situr í sandhrúgu, sem sífellt er að stækka, hún er nefnilega í einskonar stundaglasi. Bing- urinn hækkar, en hún er samt ákveðin í að vera hugrökk, brosmild og bjartsýn, þó að hún viti vel að brátt geti hún ekki einu sinni hreyft hend- urnar. Sú var tíðin í upphafi stöðvað hann. Maurinn, sem berst við hið ómögulega eins og hann eigi lífið að leysa, hann verður eins og táknmynd af Winnie, því ef hann væri sjáandi á sama hátt og hún, þá myndi hann greina hversu hún er einnig að berjast við það sem ógjörlegt er, þar sem hún brosir og snyrtir sig á meðan sandurinn rennur hærra og hærra og mun hefta og lama að lokum allt. Þegar hendurnar eru úr leik hjá Winnie, þá er höfuðið enn- þá frjálst um stund svo hún getur haldið áfram að tala, brosa og uppörva og vera til þangað til glaskvikan rennur út. Síðustu orðin hennar Winnie deyja út um leið og tjaldið fellur og hennar sér ekki stað framar. Erum við ekki öll í stunda- glasinu? Lífsbyggingin er nú ekki traustari en svo. Er það nema von að svo sé mælt á vís- um stað: „Allt er hégómi, ein- ber hégómi." Húsið okkar er ekki sterkara en þetta, þegar allt kemur til alls, flóðbylgjan kemur og skolar á brott hverju orði og andartaki að lokum. Svo sem eins og hjá börnum sem byggja fegurstu kastala í fjöruborðinu, glæstar bygg- ingar, sem fljóta út í ekki neitt þegar aðfallið kemur, hverfa eins og spilaborg, sem andað er á, þannig fer líka um húsið mitt og þitt: „Dögum mínum fækkar ... I Engum vörnum fæ ég viðkomið gegn tíman- um.“ (Hannes Pétursson.) Þegar við stöndum frammi fyrir þessari staðreynd þá get- ur að finna margskyns viðhorf í mannsbarmi. Hvaða hugsun þá kviknar getur enginn í ann- ars brjósti greint, en ég hygg að það fari þá eftir því hvað hjartað hefur numið í liðinni tíð. Víst byggjum við á sandi, þá hugsað er til þess, sem verða hlýtur, en hinsvegar hef- ur það verið tekið trúanlegt í brjósti kristinnar manneskju að hið ómögulega sé mögulegt, um, sem gleði og unaði, sem það prófast hvað það var sem hjartað festi trúnað við. Krist- inn maður veit ekki hvað ger- ist að andartaki liðnu eða að morgni, en í allri óvissu með kvikan sandinn undir fótum dag hvern, þá veit hann þó það, sem segir í 139. sálmi: „Augu þín sáu mig er ég var ómyndað efni, þú veist hvernig mér líður og mér er ómögulegt að rata nokkra þá leið, sem þú ekki þekkir.“ Er það ekki þetta eina fasta og vísa, að einn er sá, sem veit um leiðina mína alla, jafnvel eftir að sandurinn hef- ur lukið mér um höfuð og hús- ið er horfið. Hann hefur einnig stigið inn í stundaglasið, farist í því, þjáðst og þolað, en um leið brotið hlekkina og greitt auga mínu leiðina frá dimm- unni til ljóssins. Og sem ég veit þetta, þá veit ég um leið að það er sama hvort húsið mitt er hátt eða lágt, þá er hvaðeina í efniviðnum sömu ættar og smæsta sandkornið og stendur ekki af sér nein veður, því rammgerða borgin eina sem ekki haggast heitir miskunn Guðs, sem sleppir aldrei tök- um af, fyrir líknarstaf Guðs, sem er Jesús Kristur. Að heyra heilagt orð og breyta eftir því er hyrn- ingarsteinn þess helga muster- is í mannlegu hjarta, sem Drottinn hefur fyrirheitið og gefið og sem varir þegar sand- kvikan hefur fært það hús undir svörð, sem augað grein- ir. Því „þótt við stigjum upp í himininn, þá er Drottinn þar og þótt vér gjörðum undir- heima að hvílu vorri, sjá hann er þar og þótt vér lyftum oss á vængjum morgunroðans og settumst við hið ysta haf, einnig þar mundi hönd hans leiða oss“. Og þess vegna meg- um við og getum við sagt, hvað sem allri okkar eigin tíman- legu byggingarlist líður í stundaglasinu: „Við stöndum á bjargi, sem bifast ei má.“ yMIÐSTÖD VERÐBREFA- VIDSKIPTANNA hamingju SPARIFJÁREIGENDUR! Enn styrkist staða sparifjáreigenda. Vegna aukinnar samkeppni um sparifé lands- manna bjóðast nú eftirfarandi kjör á verðbréfa- markaöi okkar: □ Eldri flokkar verðtryggðra spariskírteina rík- issjóðs. Lánstími frá 1 mánuði til allt að 4 árum. Vextir: 61/2% á ári og full verötrygging. □ Verötryggð veöskuldabréf. Lánstími 21/2 til 10 ár. Vextir: 14—14,87% á ári, sem gefur mögu- leika á aö tvöfalda höfuöstól aö raungildi á 5 árum. Kynnið ykkur nýjustu ávöxtunarkjörin á mark- aðnum í dag. Starfsfólk Verðbréfamarkaös Fjárfestingarfélagsins er ávallt reiöubúiö aö aðstoða viö val á hagkvæmustu fjárfestingu eftir óskum og þörfum hvers og eins. SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 13. ágúst 1984 Spariskírteini og happdrættislán ríkissjóði Ar-flokkur Sölugengi pr. kr. 100 Avöxtun-1 Dagafjöldi arkrafa | til innl.d. 1970-2 17.415,64 Innlv. i Seölab. 5.02.84 1971-1 16.028,01 6.50% 1 ár 32 d. 1972-1 14.492,44 6,50% 1 ár 162 d. 1972-2 11.614,42 6,50% 2 ár 32 d. 1973-1 8.670,66 6,50% 3 ár 32 d. 1973-2 8.377,44 6,50% 3 ár 162 d. 1974-1 5.383,47 6,50% 4 ár 32 d. 1975-1 4.334,58 6,50% 147 d. 1975-2 3.235,12 6,50% 162 d. 1976-1 2.982,42 6,50% 207 d. 1976-2 2.421,75 6,50% 162 d. 1977-1 2.122,16 Innlv. í Seölab. 25.03.84 1977-2 1.848,25 6,50% 27 d. 1978-1 1.438,89 Innlv. i Seölab. 25.03.84 1978-2 1.180,76 6,50% 27 d. 1979-1 991,47 6,50% 192 d. 1979-2 766,98 6,50% 32 d. 1980-1 657,32 6,50% 242 d. 1980-2 502,97 6,50% 1 ár 72 d. 1981-1 429,26 6,50% 1 ár 162 d. 1981-2 314,40 6,50% , 2 ár 62 d. 1982-1 302,80 6,50% 198 d. 1982-2' 222,88 6,50% 1 ár 48 d. 1983-1 171,01 6,50% 1 ár 198 d. 1983-2 111,14 6,50% 1 ár 108 d. 1974-D 5,319,50 Innlv. í Seðlab 1984 1974-E 3.886,00 8,00% 108 d. 1974-F 3.886,00 8,00% 108 d. 1975-G 2.484,49 8,00% 1 ár 108 d. 1976-H 2.289,62 8,00% 1 ár 227 d. 1976-1 1.742,62 8,00% 2 ár 107 d. 1977-J 1.555,43 8,00% 2 ár 228 d. 1981-1. fl. 334,56 8,00% 1 ár 258 d. Veðskuldabréf — verðtryggð Sölugengi m.v. 2 afb. á ári 1 ár 2 ár 3 ár 4 ár 5 ár 6 ár 7 ár 8 ár 9 ár 10 ár 11 ár 12 ár 13 ár 14 ár 15 ár 93,59 89,64 87.39 84,25 81,27 78,49 75,85 73.39 71,06 68,88 66,81 64,89 63,06 61,36 59,76 Nafnvextir (HLV) 4% 4% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% Avöxtun umfram verðtr. 13,75% 13,87% 14,00% 14,12% 14,25% 14,37% 14,50% 14,62% 14,75% 14,87% 15,00% 15,12% 15,25% 15,37% 15,49% Veðskuldabréf óverðtryggð Sölug.m/v 1 afb a ari 18% 20% (Hlv) 21% Þak 20% 1 ár 2 ár 3 ár 4 ár 5 ár 82 70 60 52 46 83 72 62 54 48 84 73 63 55 49 80 67 56 47 41 Sölug.m/v 2 afb. á ári 18% 20% p7) 21% Þak 20% 1 ár 88 87 90 89 85 2 ár 77 76 80 78 73 3 ar 68 66 70 69 62 4 ár 60 58 62 61 54 5 ár 54 52 56 55 47 Daglegur gengisútreikningur Vcrðbrcfamarkaður Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavík lónaóarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.