Morgunblaðið - 12.08.1984, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 12.08.1984, Qupperneq 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984 t Astkær eiginkona mín, móðir, tengdamóöir og amma, ANNA HULDA SÍMONARDÓTTIR, Þinghólabraut 41, Kópavogi, lést föstudaginn 10. ágúst. Jaröarförin auglýst síöar. Sigurpóll A. lafjörö, Ólafur V. Sigurpólaaon, Arndfa Þoratainadóttir, Aóalateinn C Sigurpólaaon, Unnur Sigfúadóttir, Gylfi Þ. Sigurpólaaon, Árni A. Sigurpólaaon, Baldey Póturadóttir, Hólmfrföur Á. Sigurpóladóttir, Ingi B. Erlingaaon, Símon S. Sigurpóleaon, Karitaa Póturadóttir, og barnabörn. t Sonur minn og bróðir okkar, RAGNAR VILHELM JÓHANNSSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu, þriöjudaginn 14. ágúst kl. 13.30. Jóhann Kr. Hanneaaon og ayatkini. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, JÓN S. ÓLAFSSON, akrifatofuatjóri, Hóvallagötu 3, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, þriöjudaginn 14. ágúst kl. 13.30. Erna Óakaradóttir, Ólöf S. Jónadóttir, Kjartan Gíalaaon, Óakar G. Jónaaon, Þórunn H. Matthíaadóttir, Herdía Þ. Jónadóttir, Ingi Sverriaaon, Halla G. Jónadóttir og afabörn. t Eiginmaöur minn, JÓN STEINAR MARINÓSSON, ratvirkjameiatari, sem lést þ. 5. þessa mánaöar veröur jarösettur frá Akureyrar- kirkju, þriöjudaglnn 14. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Borghildur Ólafadóttir. t Útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu, HELGU SVEINSDÓTTUR, Sæbóli, Foaavogi, sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö í Kópavogi, fer fram frá Kópavogskirkju, mánudaginn 13. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sunnuhlíö. Fyrir hönd vandamanna, Sveinn Þóröaraon. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vegna andláts og jarðarfarar ÞURÍDAR GÍSLADÓTTUR, Reynihlfö. Jón Ármann Péturaaon, Hólmfrföur Péturadóttir, Sverrir Tryggvaaon, Snæbjörn Péturaaon, Guðný Halldóradóttir, Helga Valborg Péturadóttir, Arnþór Björnaaon og fjölakyldur. t Hjartans þakklæti færum viö ykkur öllum, sem meö hlýjum vinar- hug vottuöu okkur samúö viö fráfall og útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu, GUORÚNAR HELGU RÖGNVALDSDÓTTUR, Álfalandi 8, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala sem annaöist hana í veikindum hennar. Drottinn blessi ykkur öll. Gfali Kriatinn Skúlaaon, Skúli Kriatinn Gíalaaon, Kriatfn G. Gunnaradóttir, Guörún Helga Skúladóttir, Gíali Kriatinn Skúlaaon yngri, Skúii Bergmann Skúlaaon. Solveig Kolbeins- dóttir — Minning Fædd 23. mars 1927 Dáin 5. ágúst 1984 Solveig fæddist á Skriðulandi i Kolbeinsdal í Skagafirði. Hún var dóttir hins kunna fræðimanns Kolbeins Kristinssonar og konu hans Kristínar Guðmundsdóttur, en þau eru bæði látin. Solveig taldi sjálf, að hún hefði átt góða æsku. Hún var alin upp á menn- ingarheimili, þar sem nákvæmni og virðing fyrir islenskri tungu sátu í fyrirrúmi. Skriðuland var ekki stórt býli og sveitin afskekkt, og Solveig varð að leggja hart að sér til að menntast. Foreldrar hennar studdu hana eins og þau gátu, en hún vann alltaf með nám- inu og varð að gera hlé á þvi einn vetur til að afla sér fjár, svo að hún gæti haldið náminu áfram. Hún lauk stúdentsprófi frá MA vorið 1951, og kennari hennar f ís- lensku hvatti hana eindregið til frekara náms í þeirri grein, og lauk hún kandidatsprófi í íslensk- um fræðum frá Háskóla íslands 1959 og kenndi við ýmsa skóla samhliða náminu. Solveig giftist dr. Hafþóri Guð- mundssyni lögfræðingi 17. ágúst 1963 og eignuðust þau þrjú börn. Anna Benedikta er fædd 31. maí 1964, Kristín Ragnheiður 15. júlí 1965 og Sigurður Kolbeinn er fæddur 1. nóvember 1969. Solveig hóf kennslu við Kvenna- skólann í Reykjavík haustið 1959, hlaut setningu sem kennari við skólann árið eftir og skipun haust- ið 1962. Solveig sagði stöðu sinni lausri haustið 1966, en þá höfðu þau hjónin eignast tvær dætur. Solveig kenndi sögu og íslensku. Hún var ekki stjórnsöm að eðlis- fari og lítið fyrir að trana skoðun- um sínum fram, en nemendur hennar fundu brátt, að hún bjó yfir staðgóðri þekkingu og mikilli kunnáttu í íslenskum fræðum ásamt einlægum vilja að verða öðrum að liði, og þeir eiginleikar hjálpuðu henni yfir hlédrægnina og öfluðu henni virðingar og vin- sælda. Þegar Solveig lét af kennslu sinni við Kvennaskólann, missti skólinn ekki aðeins traustan kenn- ara, sem vann öll sín störf af natni og samviskusemi, heldur var Sol- veigar einnig saknað sem góðs samstarfsfélaga. Það var gott að vinna með Solveigu. Hún var glað- lynd og sá oft hið spaugilega í hversdagslegum hlutum, var létt í skapi að eðlisfari þrátt fyrir alla nákvæmnina og skylduræknina. Snögg tilsvör í gamansömum tón voru eitt af einkennum hennar og bros kom oft fram af litlu tilefni. Solveig lét ekki að öllu leyti af kennslustörfum, þótt hún segði starfi sínu lausu vegna anna heima fyrir. Hún tók nemendur i kennslu og gat á ótrúlega stuttum tima kennt þeim undirstöðuatriði i íslenskri málfræði og bókmennt- um og gert þeim kleift að fylgjast með jafnöldrum sinum í námi. Oft voru þetta nemendur, sem dvalist höfðu erlendis mörg ár og ekki fengið sama undirbúning og aðrir. Gott var að leita til hennar í þess- um efnum. Hún hafði næman skilning á þessum vanda nemenda sinna, hafði gott yfirlit yfir kennsluefnið og kunni að draga fram aðalatriðin. Áttu margir nemendur Solveigu það að þakka að dragast ekki aftur úr i námi, og hlaut hún fyrir þessa góðu aðstoð mikið lof og þakklæti. Áhugi Solveigar á islenskum fræðum kom margoft fram. Hún hafði yndi af lestri góðra bóka og fylgdist vel með á bókmenntasvið- inu. Frá árinu 1974 vann hún í ígripum við skráningu á bréfa- safni i Handritadeild Landsbóka- safns og var þar sett í stöðu að tveimur þriðju 1. janúar 1978 og gegndi því starfi um tveggja ára skeið, en þá tók heilsu hennar að hraka. Þar kom nákvæmni og natni í góðar þarfir ásamt með- fæddri lipurð, léttleika og hjálp- semi. Solveig átti við erfið veikindi að stríða siðustu árin og kom þá vel í ljós, að hún bjó yfir óvanalegum sálarstyrk. Hún reyndi að gera sem minnst úr veikindum sínum og veita öðrum styrk. „Þetta lag- ast“ var stundum viðkvæðið, þegar spurt var um heilsu hennar. Eitt sinn, þegar henni leið betur um tíma, sagðist hún vera „á hraðri leið til lifsins aftur." Til er gömul sögn um það, að landi okkar hafi rekið röggsam- lega erindi sín fyrir konungi og kropið á annað kné og mælt á þá leið, að hann hafi lotið hátigninni, en staðið á rétti sínum. Þetta ein- kennilega sambland af eðli íslend- ingsins að beygja aðeins annað kné sitt, en standa á rétti sínum, minnir á sumt í skapgerð Solveig- ar, og þessir eiginleikar hafa gert þessari fíngerðu og næmu konu kleift að horfast í augu við veru- leikann. Hún beygði aðeins annað kné sitt fyrir erfiðleikunum án þess að brotna, en stóð jafnframt á þeim rétti sínum að láta ekki bugast og vera hún sjálf til hinstu stundar. Ég vil votta eiginmanni Solveig- ar og börnum þeirra innilega sam- úð mína og þakka Solveigu góða samfylgd á liðnum árum. Guðrún P. Helgadóttir Skarphéðinn Magn- ússon — Minning Fæddur 16. febrúar 1921 Diinn 26. júlí 1984 Leikmenn ÍBÍ og alla aðstand- endur og velunnara ísfirskrar knattspyrnu setti hljóða þegar fréttin um andlát Skarphéðins Magnússonr barst skyndilega og óvænt þann 26. júlí sl. Einn besti og dyggasti stuðn- ingsmaður ísfirskrar knattspyrnu var allt í einu horfinn af sjónar- sviðinu. Skarphéðinn hafði um margra ára bil verið sérstakur heiðursfé- lagi og velunnari knattspyrnu- fólks á ísafirði og lagði hann íþróttinni lið á margvíslegan hátt sem of Iangt yrði upp að telja í fátæklegri minningargrein. Allt knattspyrnufólk, stjórn- armenn og aðrir aðstandendur knattspyrnu á ísafirði, sakna nú góðs vinar og velunnara og vilja færa honum alúðarþakkir fyrir t Innilegar þakkir fyrir auösynda samúö og hlýhug viö andlát og útför sonar míns, JÓNS VILBERGS JÓNSSONAR, Barmahliö 52, sérstakar þakkir til starfsmanna Stálsmíöjunnar. Jónína Margrét Jónsdóttir. t Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför sambýlis- konu minnar, móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, HULDU ÁGÚSTSDÓTTUR, Engihjalla 3, Kópavogi. Aiúöar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks deild 14-G Landspítalanum. Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna, barnabarnabarna. og systkina hinna látnu. Jón Meyvantsson. ómetanlegan stuðning og vináttu á liðnum árum og votta um leið eiginkonu og öllum aðstandendum einlæga samúð við fráfall hans. Ég sem þessar fátæklegu lfnur rita um minn góða vin og sam- herja þar sem Skarphéðinn var, er þess fullviss að IBÍ-liðin munu lengi heiðra minninguna um hann með dugmikilli og drengilegri bar- áttu á völlum landsins og láta ekki deigan síga þó stundum blási á móti „því að það kemur leikur eft- ir þennan leik“, eins og Skarp- héðni varð oft að orði þá er miður gekk. Ég vil að leiðarlokum þakka góðum vini ágæta samfylgd og vináttu um leið og ég votta eigin- konu og aðstandendum samúð og bið þeim blessunar Guðs í sorg þeirra. Fái kær vinur minn góða heimferð. Blessuð sé minning hans. Pétur Geir Helgason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.