Morgunblaðið - 12.08.1984, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1984
51
Helga Sveinsdóttir
Sœbóli —
Fædd 3. marz 1899
Dáin 23. júlí 1984
Helgu minnast eflaust fleiri en
ég, nú þegar hún hefur lokið veg-
ferð sinni á þessari jörð. Ættir
hennar get ég ekki rakið, veit að-
eins að hún var vestfirsk, fædd á
Rauðasandi. Lengstan hluta
ævinnar bjó Helga ásamt manni
sínum, Þórði Þorsteinssyni, fyrr-
um hreppsstjóra Kópavogshrepps
og garðyrkjubónda, á Sæbóli í
Kópavogi.
Ég á svo margar góðar minn-
ingar um þessa sérstæðu konu,
sem var nágranni minn í 42 ár, að
þær knýja mig til að skrifa þessar
fátæklegu línur, og eiga þær að
sýna þakklæti mitt fyrir þá liðnu
daga, sem Helga og fjölskylda
hennar voru okkar góðu nágrann-
ar. En nú heyra þessir dagar sög-
unni til — því tímans rás fær eng-
inn breytt, það sem var í gær var
horfið næsta dag, allt okkar líf er
breytingum háð og með þessum
straumi fljótum við áfram hvort
sem okkur þykir ljúft eða leitt —
þar til yfir lýkur.
f dag er Sæbólsland að byggjast
sem þéttbýliskjarni í Kópavogs-
kaupstað. Lagðir vegir, og hús að
rísa af grunni út um alla þá land-
areign þar sem þau Helga og mað-
ur hennar réðu ríkjum í nær hálfa
öld. Mér er minnisstætt fyrst þeg-
ar ég kom að Sæbóli til þeirra
hjóna hvað ég var hrifin af allri
blómadýrðinni, gróðurhúsunum
og öðru sem fyrir augun bar. Allt
bar vitni um atorku og dugnað
húsráðenda. Þau hjónin voru þá á
besta aldri, með fjögur börn sín á
aldrinum 5—12 ára, alls staðar líf
og fjör. Fannst mér þá Sæból vera
stórbýli. En hafa verður í huga, að
við fyrstu frumbyggjar Kópavogs
höfðum ekki efni á neinum stórum
salarkynnum, vorum hamingju-
söm að fá land til að byggja á og
gera okkur grænan blett þar sem
börn okkar gátu leikið sér frjáls
og glöð.
Nú þegar Helga vinkona mín er
til moldar borin í hlíðinni handan
Fossvogsins, má heita að býlið
hennar standi autt og yfirgefið og
hverfur sem í skugga glæstra ný-
bygginga. Helga elskaði Sæbóls-
land og sýndi því umhyggju með-
an kraftar leyfðu.
Fyrir tveimur árum setti hún
niður í kartöflugarðinn sinn í síð-
asta sinn, þá 83 ára, hlúði að,
reytti arfa um sumarið, tók upp og
gekk frá uppskerunni um haustið.
Þegar hún hafði lokið öðrum und-
irbúningi fyrir veturinn á heimili
sínu, fór hún í aðgerð á fæti og
hugðist dvelja stuttan tima á eftir
á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlið.
Þaðan átti hún ekki afturkvæmt.
Lífskraftur hennar dvínaði, og
þrek átti hún ekki lengur til að
yfirstíga þá margvislegu erfið-
leika sem ellin úthlutar. Sannar-
lega hefur hún skilað sínu dags-
verki með heiðri og sóma. Finnst
mér það vel við hæfi, að þessi kona
sem mestan hluta ævinnar hlúði
að blómum oggróðri skyldi kveðja
jarðlifið einmitt þegar allur jarð-
argróður er fegurstur. Þórður, eig-
inmaður Helgu, andaðist fyrir
rúmu ári. Hafði þá siðustu 3—4
árin stritt við veikindi á sjúkra-
húsum og hjúkrunarheimilum,
síðast í Sunnuhlíð. Allan þann
tíma sem Helga var ein heima á
Sæbóli, heimsótti hún mann sinn
daglega. Undraðist ég oft þann
dugnað sem þessi háaldraða kona
sýndi — því oftast notaði hún
strætisvagna til þessara ferða —
vetur sem sumur. Það veit ég, að
sambúð þeirra hjóna var ágæt. Þó
bygg ég, að það hafi ekki verið
vandalaust að vera eiginkona
Þórðar vinar míns, en Helga leysti
þetta hlutverk vel af hendi eins og
annað sem tilheyrði hennar verka-
hring. Hún var vel greind og allt
hennar fas bar vott um að hún
gætti ávallt að hvar hún steig
niður. Sorgir og áhyggjur sínar
lagði hún aldrei á annarra herðar.
Jafnréttishugsjónin var of sein á
ferð svo hún næði að móta lífs-
Minning
viðhorf hennar. Því bjó hún að
þeim arfi, sem hún hafði hlotið frá
sínum gengnu formæðrum, að eig-
inkonan ætti að standa að baki
manns síns í blíðu og stríðu, ávallt
tilbúin að laga allt sem bæta
mátti, en ábyrgð og mikilsverðar
ákvarðanir væru í hendi karla.
Þórður, maður Helgu, var dugn-
aðar ákafamaður, viljasterkur og
stórhuga, sigldi því oft beint af
augum og skeytti því lítt þótt gæfi
á bátinn. Á góðri stund var hann
hrókur alls fagnaðar, barnslega
glaður og skemmtilegur. Ekki skal
gleymt að ávallt var hann tilbúinn
að rétta hjálparhönd og því
ógleymanlegur nágranni.
Það vantaði þrjá mánuði á, að
Helga dveldi 2 ár á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð. Þar var vel
um hana hugsað og naut hún þar
virðingar og hlýju alls starfsfólks,
sem var allt samtaka um að veita
henni alla þá hjálp sem í mann-
legu valdi stendur. Það er sannar-
lega gleðigjafi, sérstaklega fyrir
okkur sem erum komin langleið-
ina, að vita að nú eru alls staðar
um land að rísa glæsileg hjúkrun-
arheimili sem veitt geta öldruðum
hjúkrun og aðhlynningu á meðan
þeir bíða eftir fari með ferjunni
sem flytur þá yfir síðasta álinn.
Einn sólbjartan dag í vor heim-
sótti ég Helgu, drakk með henni
kaffi í hinum glæsilega borðsal
Sunnuhlíðar — sem var fullsetinn.
Á eftir fórum við inn í hennar
herbergi, er var bjart og vistlegt.
Ég náði fyrir hana í kassa sem
stóð á borði úti í horni og sýndi
hún mér myndir af fjölskyldu
sinni. Ég gat ekki við það ráðið, að
í huga mínum fann ég sárt til við
að sjá þessa fyrrum nágranna-
konu mína sitja hér, bundna við
hjólastól, og þurfa að sækja alla
hjálp til annarra, vissi að það var
ekki að hennar skapi — því hún
var ætíð hörð við sjálfa sig, vildi
vera sjálfri sér nóg og leitaði ekki
hjálpar annarra fyrr en í nauðir
rak.
Börn hennar tvö eru búsett er-
lendis og því til fárra að leita. En
hún kvartaði aldrei um sína hagi,
svo dul var hún í skapi. Einkadótt-
ir, Halldóra, og hennar maður,
fluttu fyrir nokkrum árum til
Danmerkur. Sveinn sonur hennar
og hans kona hafa búið yfir 30 ár í
Ameríku, sonurinn Halldór hefur
ætíð búið í foreldrahúsum. Yngsta
son sinn, Þórð Helga, misstu þau
hjón fyrir mörgum árum — hann
andaðist innan við þrítugt frá
konu og þremur kornungum börn-
um — var hann þá búsettur og við
nám í Ameríku. Þar hafa börn
hans alist upp hjá móður sinni og
stjúpföður. Þá voru dimmir dagar
hjá þeim Sæbólshjónum.
Þakklæti er mér efst í huga nú
þegar ég kveð Helgu. Það er svo
ótalmargt sem þakka ber, og verð-
ur ekki upptalið í þessum kveðjum
mínum. Öll blómin sem hún og
maður hennar báru inn á heimili
okkar hjóna á Brúarósi — þau
ilma enn í minningarsjóði mínum.
Börnum hennar tengda- og barna-
börnum óskum við Eyjólfur allrar
blessunar í komandi tíð.
Guðnín Emilsdóttir
I bernskuminningunni frá
Lambavatni bregður fyrir í huga
mér ungri konu, kviklegri og kátri,
sem í barnshuganum skar sig úr
búkonum á Rauðasandi, sérstak-
lega í klæðaburði. Léttir sumar-
búningar með tilheyrandi höttum
voru ekki þeirra igangsklæði.
Svo hafði konan unga um hönd
merkileg tæki til að taka myndir
af fólki og umhverfi. Ljósmyndir
Helgu heitinnar, frá þessari dvöl í
afturbata eftir hælisvist, eru
besta heimildin um Lambavatn og
fólkið þar á efstu árum Sveins
Magnússonar, föður hennar og afa
míns.
Helga fæddist 3. mars 1899, og
hafði því hálfnað níunda áratug-
inn, þegar hún lést 23. fyrra mán-
aðar. Hún ólst mest upp hjá móð-
ur sinni, Guðríði Víglundsdóttur,
á Bolungavík, og þar kynntist hún
mannsefni sínu, Þórði Þorsteins-
syni úr Vigur. Frá því þau komu
að Lambavatni nýgift þangað til
ég hitti þau næst á heimilinu sem
þau bjuggu sér á Sæbóli í Fossvogi
leið á annan áratug, en ætíð var
náið samband á milli heimilanna
þar og í Neðribænum á Lamba-
vatni. Sérstaklega áttu þau tíðar
bréfaskriftir Helga og Magnús
hálfbróðir hennar, enda samrýnd
og skaplík. Hvorugt mátti neitt
aumt sjá án þess að leitast við að
líkna, og ekkert vissu þau sjálf-
sagðara en að brjóta sig í mola, ef
þurfa þótti til að uppfylla siðferði-
lega skyldu við náungann.
Áður en Helga og Þórður gerð-
ust fyrstu landnemar síns tíma í
byggðinni sem átti eftir að verða
Kópavogsbær og reistu Sæból
gamla, höfðu þau komið sér upp
smábýli í Sogamýri. Undanfari
þess var að Þórður hlaut að hætta
að stunda sjó á togurum eftir
slysfarir. En á þeim stað var
þrengra um hjón en svo, að unnt
væri að framfleyta vaxandi fjöl-
skyldu af garðrækt. Svo þegar
Þórður hafði loks náð aftur bæri-
legri heilsu 1936, tóku þau til
óspilltra málanna að reisa hús og
brjóta land á Sæbóli.
Þaðan var unnt að nýta mögu-
leika torgsölunnar í Reykjavík,
sem þau höfðu tekið upp á Soga-
mýrarárunum, og færa út kvíarn-
ar smátt og smátt með þeirri út-
sjónarsemi og iðni, sem einkenndi
allt þeirra starf. Blómaskálann á
Sæbóli ráku þau loks meðan kraft-
ar entust.
Af börnum Helgu og Þórðar eru
á lífi Halldóra blómasali í Kaup-
mannahöfn, Sveinn flugverkfræð-
ingur í Los Angeles og Halldór
búsettur í Kópavogi. Þórður Helgi
andaðist rúmlega hálfþrítugur ár-
ið 1963 frá konu og þrem börnum,
og hafði nýlokið námi í raffræði.
Alls eru afkomendur Helgu og
Þórðar orðnir hátt á þriðja tuginn.
Fyrir sex árum tók heilsu Þórð-
ar að hraka, og kom þá í hlut
Helgu að annast hann. 1 mínum
huga er ekki vafi á, að hún sleit
síðustu kröftum við að heimsækja
hann og hlúa að honum meðan
hann vistaðist á Vífilsstöðum.
Eftir að Sunnuhlíð reis í Kópa-
vogi urðu þau hjón meðal vist-
manna þar. Þórður lést fyrir rúmu
ári. Helga var þá farin að þreki, og
hrakaði heilsu hennar, þangað til
yfir lauk í kjölfar beinbrots.
Helga var ein af þessum heil-
steyptu manneskjum, sem fagna
því sem lífið hefur að færa, en lifa
þó ekki sjálfum sér, heldur þeim
sem á hverjum tíma þarfnast
mest aðhlynningar þeirra og um-
hyggju. Hennar er gott að minn-
ast.
Magnús T. Ólafsson
Vagga börnum og blómum,
borgin hjá vogunum tveimur,
risin einn árdag úr eyði, —
heill undrunar heimur!
Mér kemur Helga á Sæbóli í
hug, þegar ég heyri ljóðið „Kópa-
vogsbær" eftir Þorstein Valdi-
marsson.
Helga fæddist á Rauðasandi 3.
mars 1899. Foreldrar hennar voru
Sveinn Magnússon frá Lamba-
vatni á Rauðasandi og Guðríður
Víglundsdóttir frá Bolungarvík.
Ung að árum giftist Helga,
Þórði Þorsteinssyni, sjómanni frá
Vigur. Eftir að þau fluttust til
Reykjavíkur varð Þórður fyrir
slysi, sem gerði hann óvinnufæran
að mestu næstu þrjú árin. Það var
í byrjun „kreppunnar", sem þau
komu sér upp litlu húsi í Sogamýr-
inni og hófu þar garðrækt, því
sjálfsbjargarviðleitnin var mikil.
Þau tóku það ráð, að selja afurðir
sínar sjálf á torgum og gatnamót-
um í Reykjavík.
Árið 1936 gerast þau landnemar
í Kópavogi, þar fengu þau stórt
land og reistu sér íbúðarhús, sem
þau nefndu Sæból. Þórður var þá
kominn til heilsu og tók til við að
brjóta landið. Tún voru ræktuð og
kálgarðar og gróðurhús reist.
Fyrstu búskaparárin í Kópavogi
höfðu þau kýr, einnig dráttarhesta
til að flytja afurðirnar á útimark-
aðina. Síðar eignuðust þau bíl.
Helga keyrði þá blómin og
grænmetið til Reykjavíkur, en
kom með vatn í brúsum til baka,
því engin var vatnslögnin. Þá var
hvorki rafmagn né sími í Kópa-
vogi og vegir voru slæmir. Þegar
heim kom biðu húsmóðurstörfin.
Börnin voru fjögur: Halldóra, hús-
móðir í Kaupmannahöfn, Sveinn,
flugvélaverkfræðingur býr í Kali-
forníu, Halldór, býr í Kópavogi, og
Þórður Helgi bjó í Los Angeles,
hann andaðist 1963.
Þegar íbúum Kópavogs fjölgaði
verulega settu þau hjón á stofn
blómabúð, þá fyrstu í Kópavogi og
nefndu hana Blómaskálann. Torg-
sölunni var lokið, en blómabúð
opnuð við Laugaveg í Reykjavík.
Helga starfaði í Blómaskálanum
og hafði þar aðstöðu til kaffihit-
unar í herbergi inn af versluninni.
Það var á vordögum árið 1952
sem ég fluttist í Kópavog ásamt
fjölskyldu minni. Kópavogur var
þá hreppur og hreppstjórinn var
Þórður á Sæbóli. Fljótlega áttum
við erindi við hreppstjórann og
hann kom og heimsótti okkur. I
Blómaskálanum kynntist ég
hreppstjórafrúnni.
Helga á Sæbóli var prúð kona og
fögur. Hún var félagslynd. Þau
hjón voru í Alþýðuflokknum. Sjö
alþýðuflokkskonur tóku höndum
saman og stofnuðu „Sjöstjörn-
una“. Þær héldu kaffi- og spila-
kvöld, bögglauppboð ofl. Ágóðann
notuðu þær til að styrkja menn-
ingar- og líknarstarfsemi í
hreppnum. Þær gáfu kirkjumuni
svo hægt væri að messa á jólum og
fengu presta til að halda barna-
guðsþjónustur.
Árið 1950 var Kvenfélag Kópa-
vogs stofnað og var Helga ein af
stofnendunum. Henni var annt um
félagið, en gat lítið sótt fundi, því
Blómaskálinn var opinn öll kvöld.
Hún mundi samt eftir félaginu og
sýndi það í verki við ýmis tæki-
færi og ber að þakka það.
Á þessum árum voru heitir póli-
tískir fundir í Kópavogi og alltaf
var verið að kjósa. Hreppsbúar
fjölmenntu á framboðsfundi, því
þar var líf og fjör. Þórður á Sæbóli
kom þar mjög við sögu. Hann var í
framboði fyrir Alþýðuflokkinn.
Helga var ekki öfundsverð á þess-
um árum, en hún hélt ró sinni og
reisn á hverju sem gekk. Á kosn-
ingadögum sendu þau hjón fagra
blómvendi á allar kosningaskrif-
stofur hreppsins og síðar bæjar-
ins.
Oft fékk ég orðsendingu frá
Blómaskálanum um að ég ætti þar
peninga. Fyrst hélt ég að um mis-
skilning væri að ræða, en þetta
reyndist vera ágóði af blómasölu á
„Mæðradaginn". Fyrst átti ágóð-
inn að renna til Orlofs húsmæðra,
en ég var þá formaður þess, en
eftir að Mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs var stofnuð létu þau ágóðann
renna til hennar.
Stundum þegar ég kom í Blóma-
skálann rétti Helga mér rósavönd
og sagði: „Þessar rósir átt þú að
eiga sjálf." Tilefnið nefndi hún
ekki. Það kostaði mig oft mikil
heilabrot að finna ástæðuna, en
Helga gleymdi engu. Hún notaði
ekki mörg orð, en lét blómin tala.
Þegar ég lít til baka, er ég glöð
yfir því að við, vinir Helgu, héld-
um henni og fjölskyldu hennar
samsæti í Félagsheimili Kópavogs
á sjötíu ára afmæli hennar. Það
var reisn yfir henni þar sem hún
stóð í ræðustól á íslenska bún-
ingnum og flutti þakkarorð í lok-
in.
Þau Sæbólshjón ferðuðust mik-
ið og gaman var að hlusta á ferða-
sögur þeirra og sjá myndir frá
ókunnum löndum.
Ég hafði þá ánægju að hlynna
lítilsháttar að þeim hjónum í
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldr-
aðra í Kópavogi. Þórður var fyrsti
vistmaður Sunnuhlíðar, en Helga
kom þangað 26. október 1982.
Kópavogsbúar reistu Sunnuhlíð
einmitt á réttum tíma til að veita
frumbyggjum Kópavogs hjúkrun
og félagsþjónustu á ævikvöldinu.
Þegar ég hugsa um líf Helgu á
Sæbóli finnst mér það hafa verið
dans á rósum, fögrum ilmandi rós-
um og þyrnana vantaði ekki.
Helga var ánægð meðan Þórður
lifði. Hann var jafnan glaður og
hress og það var alltaf líflegt í
kringum hann.
Þórður andaðist í Sunnuhlið 10.
júní 1983. Helga saknaði hans
mjög. Hún talaði ekki mikið um
það, en ég sá hvað henni leið.
Helga andaðist í Sunnuhlíð 23. júlí
1984. Ég ætla að muna þau Sæ-
bólshjón, Helgu og Þórð, þar sem
þau sátu hlið við hlið í stofunni í
Sunnuhlíð og héldust í hendur.
Blessuð sé minning þeirra.
Soffía Eygió Jónsdóttir
+
Þökkum af alhug alla þá vináttu og hlýju sem okkur var sýnd viö
fráfall og útför eiginmanns míns, fööur og tengdafööur,
JÓNS PÁLSSONAR
Ægissíöu 86.
Kristtn Þóröardóttir,
Steinunn E. Jónsdóttir, Sigmundur M. Andrésson.
Legsteinar
granít — marmari
\'p0KinCt ó.f
Opiö kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar símar 620809 og 72818.
Legsteinar
Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fuslega upplýsingar og ráðgjöf
_______um gerð og val legsteina._
ÍB S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 4# <