Morgunblaðið - 26.10.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
9
SÓLBAÐSSTOFA
ÁSTU B. VILHJÁLMSDÓTTUR
Grettisgötu 18, sími 28705.
Opið:
Virka daga frá
kl. 7—23.30
Laugardaga 9—19
Sunnudaga 9—19
Slakið á á sólbekknum láliö strelt-
una liða úr ykkur með Ijúfrl tónlist
úr headphone. Eftir sturtubaöiö
getiö þiö valiö úr fjölbreyttu úrvali
af snyrtivörum (Baölina) og haft
afnot af blásara og krullujárni. Er-
um meö extra breiöa sólbekki
meö sérstökum andlitsljósum. Og
enginn þarf aö liggja á hliöinni.
Ávallt heitt á könnunni
Veriö velkomin
Hugmyndasamkeppni
a) Nýtt merki fyrir Landsbankann.
b) Afmælismerki í tilefni 100 ára
afmælis bankans.
c) Minjagripur vegna afmælisins.
í tilefni af 100 ára afmæli Landsbanka íslands 1986 býður
bankinn til samkeppni um nýtt merki fyrir bankann,
afmælismerki og minjagrip vegna afmælisins.
Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum Félags íslenskra
teiknara og er öllum heimil þátttaka.
Fyrir verðlaunahæfar tillögur verða veitt þrenn verðlaun:
a) Fyrirnýtt merki kr. lOOþúsund.
b) Fyrir afmælismerki kr. 60 þúsund.
c) Fyrir minjagrip kr. 40 þúsund.
Afmælismerkið er ætlað á gögn Landsbankans á
afmælisárinu, svo sem umslög, bæklinga o.fl.
Minjagripinn ætlar bankinn til dreifingar til
viðskiptaaðilja o.fl.
Tillögum að merkjum skal skila í stærð 10-15 sm í
þvermál í svörtum lit á pappírsstærð A4.
Keppendur skulu gera grein fyrir merkjunum með texta
og litum.Tillögurnarskaleinkennameðsérstöku
kjörorði og skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með
í lokuðu ógagnsæju umslagi, merktu eins og tillögurnar.
Tillögum að minjagripum má skila sem teikningum eða
módeli af gripnum.
Hverjum þátttakanda er heimilt að senda fleiri en eina
tillögu. Skal hver tillaga hafa sér kjörorð og umslög með
nafni höfundar vera jafnmörg tillögunum.
Skilafrestur tillagnaertil kl. 17:00 fimmtudaginn
1. nóvember 1984. Skal skila þeim í póst eða til
einhverrar afgreiðslu Landsbankansmerktum:
Landsbanki íslands
Hugmyndasamkeppni
b/t Sigurbjörns Sigtryggssonar
aðstoðarbankastjóra
Austurstræti 11
101 Reykjavík.
Dómnefndin er þannig skipuð:
Fulltrúi afmælisnefndar Landsbankans.
Fulltrúi Félags starfsmanna Landsbankans.
Fulltrúi Félags íslenskra teiknara.
Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður aðilja er
Sigurbjörn Sigtryggsson. Keppendur geta snúið sér til hans í
aðalbanka í síma 91-27722, varðandi frekari upplýsingar um
samkeppnina. Dómnefndin skal skila niðurstöðum innan
eins mánaðar frá skiladegi. Efnt verður til sýningar á
tillögum og þær síðan endursendar.
Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfundar.
Landsbankinn hefur einkarétt á notkun þeirra tillagna sem
dómnefndin velur. Bankinn áskilur sér rétt til að kaupa
hvaða tillögu sem er samkvæmt verðskrá FIT.
LANDSBANKINN
„Þú gætir lent í
fangelsi sjálfur“______
BSRB setti skilyrði um
bensín fyrir verkfallsverði
■' ———i^—m
Á bak viö lás og slá
Ef marka má þær harðoröu yfirlýsingar, sem
ganga á milli manna í verkfalli opinberra
starfsmanna, gætu menn ætlað aö loka-
sáttafundir í deilunni fari fram á bak viö lás og
slá. I fyrradag geröist þaö í skrifstofu forstjóra
Skipaútgeröar ríkisins, aö Kristján Thorlacius,
formaöur BSRB, tók símann af forstjóranum
og sagöi viö ráöuneytisstjóra samgönguráöu-
neytisins: „Þaö er svo oft búiö aö hóta okkur
fangelsi, en þú skait bara vara þig góöi aö
fara ekki í fangelsi sjálfur."
Höndlað með
verkfalls-
bensín
Frá því var skýrt i bak-
síðu MorgunblaAsins í gær
að um það hefði tekist
samkomulag milli verk-
faUsnefndar BSRB og olíu-
félaganna að Urma metti
sovéskt olíuskip sem legið
befur fyrir utan Kngey síð-
an 16. október fyrir 100
þúsund krónur á dag á
kostnað BBRB-félaga og
annarra olíu og bensíneyt-
enda. Þetta samkomulag
BSRB og olíufélaganna var
gert með sérkennilegu skil-
yrði, svo að ekki sé meira
sagt Verkfallsnefnd BSKB
sagði við olíufélögin að þau
yrðu að sjá til þess að verk-
fallsverðir BSKB, nefndin
sjálf og fleiri, yrðu að hafa
nóg af bensíni, þótt aðrir
þyldu skort vegna bensín-
leysis í verkfallinu. Guðrún
Árnadóttir, formaður verk-
fallsnefndar BSRB, sagði í
Morgunblaðinu í gær „að
þetta hefði verið nokkurs
konar kaup kaups á milli
þeirra og olíufélaganna".
Og Arni Ól. Lárusson,
framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Skeljungs hf.,
lýsti því yfír að ekkert væri
sjálfsagðara fyrir olíufélög-
in en uppfylla þetta skUyrði
BSRB.
Auðvitað leitast olíufé-
lögin við að réttlæta það að
þau hafí höndlað með
verkfallsbeiisín til að fá að
tæma olíuskipið og Árni
ÓL Lárusson segir, að þeg-
ar bensínstöðvar lokist
vegna verltfalls sé vani að
báðir deiluaðilar fái að
kaupa bensín til eigin nota.
f því tilviki eru það olíufé-
lögin og viðsemjendur
þeirra sem koma beint við
sögu, en í deihi BSRB horf-
ir málið öðru vísi við. Olfu-
félögin eru ekki samnings-
aðilar við BSRB en þeim
fínnst hins vegar við hæfí
að blíðka verkfaUsnefnd
BSRB með þvi að lofa
henni að njóta sérréttinda
þegar skömmtunin hefst
Þetta dæmi sýnir f hnot-
skurn hve samskipti
óskyldra aðila taka fljótt
mið af sérréttindakröfum
og herrastéttar-sjónarmið-
um þegar eðlilegum og lýð-
ræðislegum vinnubrögðum
er ýtt til hliðar. Hvergi
þeltkist það frekar að
menn stundi „kaup kaups"
og skiptist á greiðum en f
ofstjórnarþjóðfélögum
sósíalismans, raunar full-
yrða þeir sem taldir eni
kunnugastir efnahagslífí
Sovétríkjanna að það bygg-
ist á því að þeir sem til-
heyra hinni nýju stétt noti
sérréttindi sín tU að hygla
hver öðrum.
íhugunarvert er að það
sovéska skip sem hér um
ræðir er að losa svartoliu
en eltki bensfn. Að því
kemur nú á næstu dögum
að bensínskip þurfí að losa.
Á baksiðu ÞjóðvUjans í
gær segir að menn hafí
óþarfar áhyggjur af bens-
ínskorti og bætt er við:
„Forráðamenn olíufélag-
anna segja bensínbirgðir
nægar fram yfír helgi en f
vikulokin kemur til lands-
ins fullhlaðið bensínskip
frá Sovétríkjunum. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
verður veitt undanþága til
að losa skipið og er því
engin hætta á bensínþurrð
í landinu."
Ekki skal dregið í efa
hér á þessum stað að Þjóð-
vUjinn hafí svo náið sam-
band við yfírvöld í landinu
að þar viti menn hvort sov-
ésk skip fást losuð eða
ekki. — En er æthinin að
skammta bensínið eftir
helgi svo að verkfallsnefnd
BSRB geti ekið á sérrétt-
indabensíninu sem ólrufé-
lögin hafa lofað henni?
Valdsvið
verkfalls-
nefndarinnar
Nú eru verkfallsverðir
BSRB mest með hugann
við höfnina og streyma
þangað í stórum hópum
þegar kallið kemur. f
BSRB-tíðindum var á dög-
unum birt Ijósrít af bréfi
þar sem Farmanna- og
fískimannasamband fs-
lands lýsti „fullrí samstöðu
með BSRB" og harmaði
„framkomu og viljaleysi
fjármálaráðherra f sam-
skiptum og samningum við
BSRB". llndir bréfínu birt-
ist síðan „frétt" undir
fyrirsögninni „ÖU skipin
sigla inn" og þar segir að
BSRB þurfí „tryggingu"
fyrir því að skip verði
hvorki losuð né lestuð. f
umræddu bréfí hvetur Far-
manna og fískiinannasam-
bandið félagsmenn sina
einmitt til að „virða verk-
faU BSRB". Var þarna
einnig um „kaup kaups"
að ræða til að sjómenn
gætu fengið að hafa eðlt-
legt samneyti við fjölskykt-
ur sinar?
Framganga verkfalls-
nefndar BSRB befúr allt
frá fyrsta degi verkfallsins
vakið mikla undrun og það
er síst af öUu til að efla
skUning á mikilvægi þess
að kjör hins almenna fé-
lagsmanns f BSRB séu
bætt að samninganefnd
BSRB, sem í eru 60 manns,
hvorki meira né minna,
gefí sér tæplega tíma til að
ná samningum um kjara-
málin vegna anna við verk-
falLsvörsluna.
Frá því var skýrt í Morg-
unblaðinu í gær að það
befðu fleiri en verkfalls-
nefnd BSRB veitt heimild
sína til þess að losa mætti
úr sovéska oiiuskipinu,
kjaradeihinefnd, sem lög-
um samkvæmt á að úr-
skurða í slíkum málum
veitti heimild sína og einn-
ig verkfallsnefnd Starfs-
mannafélags Reykjavíkur-
borgar. Þá hefur einnig
komið fram í biöðum að
hópar einstakra starfs-
manna innan BSRB telja
sig vera í aöstöðu til að
meta hvernig framkvæma
berí úrskurði kjaradeilu-
nefndar og hefur athyglin
einkum beinst að síma
mönnum í því sambandL
Þeir eiga þó fulltrúa f
kjaradeihinefnd og ættu
frekar en aðrir að sætta sig
við úrskurði hennar.
I*essar þrætur allar hafa
sett alltof mikinn svip á hið
opinbera verkfall og hljóta
að verða til þess að með
lögum sé tekið af skarið
um mörg þau takmarkatik
vik sem upp hafa komið,
þanníg að skýrar liggi fyrir
en nú þegar til verkfalls
kemur hvaða sUfrfsemi það
er sem tvímælalaust stödv-
ast
TS'damatkadutinn
lettisqötu 12-18
Toyota Toraol 4x4 1983
Sttfurgrér. ekinn 39 þua. (1500 cc). 6 gira,
útvarp o.fl. Verö 395 þús.
Mazda 323 1981
LJósblár, ekinn 58 þús. Verð 215 þús.
Toyota Cresaida 1981
LJósbrúnn, eklnn 57 þús. 5 gira, útvarp.
Verö 310 þús.
Range Rover 1984
Hvitur, ekinn 4 þusund, 5 gka. með sentral-
læslngum Verð 1240 þús
AMC Eagle 4x4 1981
Vinrauður, 6 cyl., sjálfskiptur powerstýri.
Verö 520 þús. Skipti.
Toyota Camry GL 1983
Rauöur, eklnn 51 þús. FramdrifsbOf. Verð
390 þús.
Toyota Corollas 1982
Gullsans, ekinn 20 þús., útvarp o.fl. Verö
280 þús.
Isusu Troopor Diesel 1982
Hvítur, ekinn 90 þús. km. Verð 530 þús.
Skipti ath.
Toyota Tercel 1980
3ja dyra, blár, eklnn 45 þús., 5 gfra, snjö-
dekk, sumardekk. Verð 195 þús.
BMW 525 11983
Gráblár. eklnn 18 þús., 6 cyl., 5 gfra, vökva-
stýrl. útvarp og segulband. Mlkiö af auka-
búnaði Verð 860 þús.
Honda Accord Sport 1983
Rauöur. ekinn 25 þús. Verð 410 þús.