Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Afganistan:
Stjórnvöld reiðubúin
til að láta franska
fréttamanninn lausan
Strawborg, París og Monkvu, 25. október. AP.
í DAG ákvað þing Evrópubanda-
lagsins að senda nefnd þing-
manna til Afganistans til þess að
freista þess að fá franska sjón-
varpsfréttamanninn, Jacques
Abouchar, leystan úr haldi, en
hann var sem kunnugt er dæmd-
ur í 18 ára fangelsi fyrir að hafa
komið ólöglega inn í landið.
Öfgamaður
hengdur í
Tyrklandi
Ankara, 25. oklóber. AP.
Hryðjuverkamaðurinn Hidir
Aslan, sem var félagi í kommún-
istasamtökum er nefna sig „Bylt-
ingarvegurinn" (Devyol), var
hengdur í dag, en hann var nýlega
fundinn sekur um árásir og
mannrán og að hafa haft á prjón-
unum áætlanir um stofnun komm-
únistaríkis í Tyrklandi. Hafa þá
30 öfgamenn úr röðum hægri- eða
•vinstrimanna verið líflátnir þar í
landi frá byltingu hersins 1980.
Boris N. Ponomarev, sem á sæti
í stjórnmálaráði Sovétríkjanna,
sagði franskri þingmannanefnd,
sem er í heimsókn þar eystra, að
afgönsk stjórnvöld væru reiðubúin
til að leysa fréttamanninn úr
haldi „af mannúðarástæðum", en
franska þingið yrði að senda full-
trúa til Afganistans til þess að
taka við manninum og bera
ábyrgð á honum. Engin dagsetn-
ing var nefnd í sambandi við lausn
fangans, aðeins sagt að hún yrði
„fljótlega".
Louis Mermas, forseti franska
þingsins, sagði í París í dag vegna
orða Ponoomarevs, að hann hefði
skipað fulltrúa til að fara „þegar í
stað“ til Kabúl.
Ver afhendir lausnarbeiðni
Á myndinni sést Fabian C. Ver, yfirmaður herráðs Filippseyja, afhenda Ferdinand E. Marcos forseta beiðni sína
um tafarlausa lausn frá embetti. Gerðist þetta klukkutíma eftir að birt var álit meirihluta rannsóknarnefndar,
sem rannsakaði aðdraganda morðsins á stjórnarandstöðuleiðtoganum Benigno Aquino. Var hershöfðinginn þar
talinn viðriðinn málið.
56 mafíuglæpamenn
handteknir á Ítalíu
ERLENT
Palermo, 25. október. AP.
LÖGREGLA handtók í dag 56 meinta mafíufélaga, og má
rekja þessar aðgerðir til játninga mafíuforingja í síðasta mán-
uði. í hópi hinna handteknu eru bróðir og tveir frændur hins
alræmda „páfa“ mafíunnar, að sögn yfirvalda.
Handtökurnar í dag áttu sér
stað á Sikiley og miðhluta Ítalíu.
Jafnframt voru gefnar út hand-
tökutilskipanir á hendur 64
mönnum til viðbótar. Hinn 29.
september sl. handtók ítalska
lögreglan giska marga mafíufé-
laga í framhaldi af uppljóstrun-
Er eitt eldfímasta mál
aldarinnar í uppsiglingu?
í dag verður tekin afstaða til rannsóknarinnar á banatilræðinu við páfa
Róm. 25. oklóber. AP.
ÍTALSKUR dómari, sem í þrjú ár
befur rannsakað banatilræðið við
páfa og grunsemdir um að búlg-
arska leyniþjónustan hafi átt þátt I
því, mun skýra frá niðurstöðum
sínum á morgun, fóstudag.
Vegna þessa máls er einn
Búlgari í haldi hjá ítölsku lög-
reglunni og sagði verjandi hans í
dag að hann byggist við, að
skjólstæðingur sinn yrði ákærð-
ur fyrir aðild að morðtilræðinu
19. maí 1981. Þá reyndi Tyrkinn
Mehmet Ali Agca að skjóta Jó-
hannes Pál páfa til bana á Pét-
urstorginu i Róm.
Ilario Martella, dómari, sem
stjórnaði rannsókninni, mun
leggja niðurstöður sínar fyrir
réttinn í Assisi en fréttamðnn-
um verður aðeins sagt hver eða
hverjir, ef nokkrir, verða ákærð-
ir og hver ákæruatriðin eru. Að
svo stöddu verður ekki greint
nánar frá öðrum efnisatriðum.
Saksóknari, sem kannaði
málsskjölin 1 maí er leið, lagði
til, að þrir Búlgarar og fjórir
Tyrkir yrðu sóttir til saka vegna
banatilræðisins og segja sumir,
að ef svo fari, kunni réttarhöldin
að verða þau eldfimustu á síðari
tfmum.
Saksóknarinn fyrnefndi, Ant-
onio Albano, sagði við frétta-
mann AP-fréttastofunnar í júní
sl., að hann væri þess fullviss, að
búlgarska leyniþjónustan, trú-
lega með hjálp þeirrar sovésku,
hefði lagt á ráðin um morðtil-
ræðið í þeim tilgangi að lægja
þjóðfélagsólguna i Póllandi,
ættlandi páfa. Tilgátan er sú, að
Sovétmenn hafi viljað ráða Jó-
hannes Pál páfa af dögum vegna
stuðnings hans við Samstöðu i
Póllandi, fyrstu óháðu verka-
lýðssamtökin undir kommún-
isma. Búlgarar hafa margoft
Myndin var tekin á Péturstorginu í Róm 13. mái 1981. Pá/i ók um torgió f opnum bíl og fólkið þyrptist að til að
fagna honum. Lengst til vinstri sést hönd, sem beinir byssu að páfa. Einn vióstaddra var að uka kvikmynd af
páfa á 8 mm filmu þegar skotið reið af.
neitað þessum ásökunum og
segja þær aðeins óhróðursher-
ferð gegn hinum sósíölsku ríkj-
um.
Búlgararnir þrír, sem koma
við sögu, eru Antonov, fulltrúi
búlgarska ríkisflugfélagsins á
Rómarflugvelli, Todor Aivazov,
fyrrum gjaldkeri búlgarska
sendiráðsins í Róm, og Zhelyo
Kolev Vassilev, majór, fyrrum
aðstoðarmaður hermálafulltrúa
sendiráðsins. Antonov var hand-
tekinn 25. nóvember 1982 og
fyrst hafður í fangelsi en af
heilsufarsástæðum var hann síð-
an fluttur í íbúð í Róm þar sem
hans er strangiega gætt. Hinir
tveir komust áður til Búlgaríu.
Tyrkirnir fjórir eru Oral Cel-
ik, sem fer huldu höfði, Bekir
Celenk, sem sagður er æðsti
maður tyrknesku mafiunnar og
nú í haldi í Búlgaríu, og Omer
Bagci og Musa Sedar Celebi, sem
báðir eru í ítölsku fangelsi.
Ali Agca, Tyrkinn, sem reyndi að ráða páfa af dögum. Hann skýrði seinna
frá því hverjir hefðu fengið sig til verksins. Hér er hann í strangri gæslu
ítalskra lögrcglumanna.
um Tommaso Buscetta, sem átt
hefur aðild að gjörðum mafíunn-
ar.
1 Rómaborg var handtekinn í
dag Francesco Greco, fimmtugur
læknir, yngri bróðir Michele
Greco, sem fer huldu höfði, en að
sögn Buscetta er Michele Greco
„páfi“ glæpafélaganna. Stjórnar
hann gjörðum mafíunnar ásamt
„innri hring" 10 „kardinála".
Að sögn ítalska innanríkis-
ráðherrans, Oscar Luigi Scalfaro,
hefur lögreglunni orðið mjög
ágengt í tilraunum til að uppræta
mafíuna. Tjáði hann þingheimi
að samt væri þörf að stórefla
lögreglusveitir Sikileyjar.
Glæpamennirnir handteknu
hafa flestir verið sakaðir um sölu
á eiturlyfjum, en einnig um morð,
fjársvik og ýmsa glæpi aðra.
Chad:
Frakkar fresta
heimkvaðningu
herliðs sfns
Ndjamena, 25. oktðber. AP.
FRAKKAR hafa ákveðið, að
fresta brottkvaöningu her-
afla síns frá Afríkuríkinu
Tchad í a.m.k. fimm daga.
Segja þeir ástæðuna vera þá,
að Líbýumenn, sem einnig
hafa her í landinu, hafi ekki
virt samkomulag frá 16. sept-
ember um að kalla lið sitt
einnig heim.
Frakkar hófu brottflutning
hermanna sinna frá Tchad 25.
september og hafa um 500 þeirra
nú farið úr landi. Enn eru í land-
inu um 3000 hermenn, flestir
þeirra í höfuðborginni Ndjam-
ena. Líbýumenn, sem styðja upp-
reisnarstjórn Goukouni Oueddei
fyrrum forseta, sem aðsetur hef-
ur í norðurhluta landsins, hafa
þar um 5000 manna herlið og
virðist ekkert farasnið á þvi.
Starfsmenn AP
látnir lausir
Beirét, 25. oktéber. AP.
FJÓRIR starfsmenn AP-frétta-
stofunnar f Beirú* voru látnir
lausir í dag og eru allir við góða
heilsu, en þeim var rænt á götu
borgarinnar í gær. Enn liggur ekki
fyrir hverjir stóðu að ráninu né
hvers vegna.