Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.10.1984, Blaðsíða 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984 GEISLANDI SKOPUNARGLEÐI einni fallegustu af minni höllunum í Mílanó — nánar tiltekiö í hinni glæstu verzlunargötu Via della Spiga — hefur Gianni Versace aösetur sitt. Hann telst vera hinn leynilegi tízkukóngur Ítalíu og hefur sem tízku- hönnuöur náö aö skapa sér á örfáum árum gífurlegt áhrifavald um allan heim. EFTIR ISABELLU BESSI-FEDRIGOTTI f farið er að tala um „heim" Giannis Vers- ace, verða menn víst einna helzt aö grípa til hugtaksins „heimsveldi", sem að vísu er miklu fremur við hæfi einhverrar glans- myndapersónunnar í Dallas heldur en venjulegs fólks í hinnl efnahags- lega marghrjáöu italiu og raunar í Evrópu allri. Þaö viöskipta-stórveldi, sem í gangi er undir nafni Giannis Ver- sace, er nánast risavaxiö í sniðum, bæði víðfeðmt og afar fjölþætt: Tízkufatnaöur handa karlmönnum og konum, þar meö teljast allir nauösynlegir fylgihlutir hinna fram- úrskarandi velklæddu — accessoir- es — eins og hanzkar, töskur, belti, hattar, slæöur, klútar og allt upp í ilmvatn. Sjálf ilmvatnsglösin, sem bera nafn Versace og eru hönnuö af honum, hafa hlotiö fjölmörg verö- laun fyrir sérstaka formfegurö. Þaö eru um áttatíu Versace-tízkuverzl- anir í fulium gangi víöa um heim, saumaverkstæöi, rúmlega sjö þús- und vinnustaöir handa föstum starfsmönnum fyrirtækisins svo og lausráönu aöstoöarfólki meö sér- þekkingu á hinum ýmsu sviöum framleiöslu og viöskipta. Svo ekki sé minnst á alla „aukaframleiösl- una" hjá fyrirtækjum Giannis Ver- sace, sem veröur aö teljast nánast tómstundaiöja hjá honum: Mynst- urteikningar á vefnaöarvöru, hönn- un keramikflísa, gerö leik- og ball- etbúninga og meira aö segja útlits- hönnun á bílgerö, sem bandaríska bifreiöaverksmiöjan Ford framleiöir undir nafninu „Versace Continental Mark VII". Sé meistari Versace spuröur um ársveltu stórveldisins svarar hann eins og annars hugar listamaöur eöa þá meö innilegu áhugaleysi hins tigna heimsmanns, aö þaö viti hann hreinlega ekki. Þaö eru aðrir aöilar, sem sjá um þá hliö mála fyrir hann, til dæmís bróöir hans, Santo, eöa aldavinur hans og meöeigandi, Claudio Luti. Míkil vinna undir- staða veigengninnar En þrátt fyrir alla hlédrægnina (eöa þagmælskuna), sem er svo áberandi þáttur í fari Versace, eru nokkrar tölur þó viöraðar aö lokum: Heildarumsetning fyrirtækja hans nemur eitthvaö um 416 milljónum Bandaríkjadala á ári. Á rúmlega fimm árum hefur þessi ungi „Cala- bríingur", sonur bráöflínks kven- tízkuhönnuöar í Reggio á Calabriu, slegiö rækilega i gegn sem fram- úrskarandi tízkuteiknari og tízku- framleiöandi. 38 ára aö aldri, þegar hann stendur á hápunkti velgengni sinnar, er nafn hans oröiö þekkt um allan heim; núna telst hann einn í hópi örfárra hinna alfrægustu tízku- hönnuöa veraldar. Öll þau verölaun og viöurkenn- ingarskjöl, sem honum hafa hlotn- ast aö undanförnu fyrir framleiðslu sina, færa ekki elnungis sönnur á hæfileika hans sem hönnuöar held- ur engu síður á listræna gáfu hans. Hvaöa áhrif hefur svo þessi feiknalega velgengni á þennan hlé- dræga, feimna, unga mann, sem tal- ar jafnan meö lágri röddu og iítur út eins og ungur Grikki aftan úr klass- ískum tímum fornaldar? „Þessi velgengni veitir mér ör- yggi, trú á sjálfan mig og framar öllu ööru — algert frjálsræöi og sjálf- Fyrirliggjandi í birgðastöð Galvaníserað plötujárn ST 02 Z DIN 17162 Plötuþykktir: Plötustærðir: og SINDRA 0.5-2mm 1000 x 2000 mm 1250 x 2500 mm STALHF Borgartúni 31 sími 27222 stæöi, en án þess myndi ég aö öll- um Itkíndum vera miklu afkastam- inni og fá færri skapandi hugmynd- ir.“ — „Hverjar voru eöa eru ennþá fyrirmyndirnar?" „Bæöi margar og um leiö engin sérstök; auövitaö gengur hver og einn með sinn sérstaka lista yfir eft- irlætisgoðin upp á vasann, nafna- skrá yfir ákjósanlegustu leiðina til frægöar og frama. Til dæmis hef ég alla tíö oröiö fyrir miklum áhrifum af persónuleikum eins og Elsu Schip- arelli, af hugmyndafiugi og frum- leika Poirets eöa af teikningum Ben- itos. En sé ég hins vegar spuröur aö því, hvort ég sé arftaki Coco Chan- els, verö ég aö svara því neitandi — þaö er ég alls ekki. Ég hefi leitast viö aö ná tökum á góöri hönnun og ég held aö mér hafi raunar tekizt þaö." — „Hvaöa leyndardómur liggur til grundvallar allri þessari velget.Tni og sístreymandi sköpunargáfu?" „Þar liggur enginn leyndardómur aö baki — einungis vinnal Auk þess trúi ég á þaö, sem ég er aö gera og treysti sérhæfileikum mínum. Þaö væri annars réttara aö tala um eöl- ishvöt mína fremur en sérhæfileika; eölisávísun, sem vinna veröur úr dag eftir dag og umskapa í áþreif- anlega hluti." Klassísk lína — „Hverju myndirðu annars vilja hrinda í framkvæmd til viöbótar og hvers iðrastu mest aö hafa ekki komiö í kring?" „Ég er meö ýmiss konar hug- myndir í kollinum, en þær veröa fyrst um sinn aö bíöa betri tíma, þar sem ég hef ekkert ráörúm til aö framkvæma þær eins og er.“ — „Þú ert einn hinna örfáu ít- ölsku tizkuhönnuöa, sem árætt hafa aö hasla sér völl innan leikhússins. Hvaö táknar þaö: Nýja leiö eöa ein- faldlega vissa ástríðu?" „Ég myndi segja hvort tveggja. Þarna er um ástriöu aö ræöa hjá mér, og hún víkkar sjóndeildarhring
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.