Morgunblaðið - 26.10.1984, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Töfin á afgreiðslu olíuskipsins:
Biðdagagjald
telst til flutn-
ingskostnaðar
— leggst því á innkaupsverð og kemur fram í verði
til neytenda, segja forráðamenn olíufélaganna
„BIÐDAGAGJALD telst til flutn-
ingskostnaðar og fellur því á inn-
kaupsverð á olíunni. Við hjá olíufé-
lögunum getum ekkert gert við því,
þó verkfall BSRB hafi tafið af-
greiðslu þessa oiíuskips. Við gerðum
allt sem við gátum til að koma í veg
fyrir tafir, en allt kom fyrir ekki.
I*ess vegna hlýtur þessi kostnaður
að leggjast á útsöluverð olíunnar,**
sagði Arni Lárusson, framkvsemda-
stjóri fjármálasviðs Skeljungs, í
samtali við Morgunblaðið.
Eins og fram hefur komið i
fréttum Morgunblaðsins hefur af-
greiðsla umrædds olíuskips tafizt
vegna verkfalls BSRB og mun
kostnaðurinn af töfinni, um
100.000 krónur á dag, leggjast á
útsöluverð olíunnar. Árni Lárus-
son sagði ennfremur, að álagning
á olíu væri föst og gæfi ekki svig-
rúm til þess, að olíufélögin tækju
sjálf á sig einhvern hluta kostnað-
arins. Þar að auki væri olía nú
seld undir því verði, sem kostaði
að koma henni til neytenda eins og
neikvæð staða innkaupajöfnunar-
reiknings sýndi. Ofan á það kæmi
svo mikil hækkun dollars og þar
með innkaupsverðs olíu án þess að
viðhlítandi verðhækkanir hefðu
fengizt á útsöluverði.
í sama streng tóku forstjórar
hinna olíufélaganna, þeir Vil-
hjálmur Jónsson og Þórður Ás-
geirsson. Þeir sögðu það venju alls
staðar i heiminum, að allur flutn-
ingskostnaður legðist á innikaups-
verð og eins og staða olíufélag-
anna væri í dag og verðlagningu
olíu háttað, hefðu þau ekkert svig-
rúm til að taka á sig þennan
kostnað.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Selfoss
Stóra Flórídanamótið, sem
jafnframt er minningamót um
Einar Þorfinnsson, verður hald-
ið í Selfossbíói næstkomandi
laugardag 27.10 kl. 10.00 stund-
víslega og lýkur um kl. 23.00. Að
minnsta kosti 36 pör taka þátt f
keppninni, þar á meðal margir
af sterkustu bridgespilurum
landsins. Vegleg peningaverð-
laun verða í boði fyrir þrjú efstu
sætin, 20 þúsund á par fyrir
fyrsta sætið, 15 þúsund fyrir
annað sætið og 10 þúsund fyrir
þriðja sætið.
íslandsmót í ein-
menningi — Firma-
keppni Bridgesam-
bands íslands 1984
Bridgesamband íslands hefur
ákveðið að endurvekja fslands-
mótið í einmenningi, sem jafn-
framt verður Firmakeppni þess.
í því skyni fer undirritaður þess
á leit við yður, að þér aðstoðið
Bridgesambandið við söfnun
fyrirtækja og stofnana. Þátt-
tökugjald á fyrirtæki (stofnun)
er kr. 3.600.
Söfnun fer þannig fram að
þessum blöðum er dreift til spil-
ara og þeir síðan útvega þau
fyrirtæki sem tök eru á og komi
þessum listum siðan til Ólafs
Lárussonar, sem annast mun
framkvæmd mótsins.
Rætt hefur verið um að keppni
þessi verði spiluð öðru hvoru
megin við jólin 1984. Listum
þessum má koma til allra félag-
anna í sept., okt., nóv., þar sem
þeir munu síðan berast skrif-
stofu BSÍ eða beint ti) BSÍ, póst-
hólf 156, Garðabæ c/o Bridge-
samband fslands.
Meginhluti þess sem inn mun
koma mun renna óskiptur i
húsakaupssjóð Bridgesambands
íslands, sem í samstarfi við
Bridgesamb. Reykjavíkur,
TBK— Reykjavík, B. kvenna
Reykjavík og BR, áformar húsa-
kaup.
Sighvatur Bjarnason á leið inn meó nær fullfermi loðnu.
Loðnu
landað
í Eyjum
MIKIÐ líf hefur verið í Eyjum
eftir að hjól atvinnulífsins fóru
að snúast af krafti með tilkomu
loðnu og síldar og vinnu á ný i
fiskvinnslustöðvunum. Meðfylgj-
andi myndir tók ljósmyndari
Morgunblaðsins i Vestmanna-
eyjum, Sigurgeir Jónasson, er
Sighvatur Bjarnason var að
koma til heimahafnar með nær
fullfermi af loðnu. Þá var einnig
verið að landa úr Sigurði RE,
sem kom til Eyja með um 1.100
lestir og rifna nót.
Skipverjar á Sigurði bæta nótina.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
STANGA-
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
Vinkiljárn I— Ferkantað járn ■
Flatjárn _ Sívalt járn •
SINDRA. ^STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222
Hesturinn okkar kominn
Fyrir um það bil hálfum mánuði
kom út þrirtja tölublað af Hestinum
okkar, málgagni Landsambanda
hcstamanna. Meðal efnis f blaðinu að
þessu sinni má nefna greinar um
kynbótahross sem sýnd voru á þeim
tveim fjórðungsmótum sem haldin
voru sl. sumar. Einnig er fjallað Ift-
ilsháttar um gæðinga- og unglinga-
keppni á þcssum sömu mótum.
I miðopnu er svo litmyndaopna
frá fjórðungsmótunum og tvær
svart/hvítar myndaopnur frá ís-
landsmótinu á Vindheimamelum í
sumar.
Berglind Hilmarsdóttir á Rann-
sóknastofu landbúnaðarins segir
frá beitarrannsóknum sem gerðar
hafa verið með hross og i föstum
þætti sem kallast básinn er fjallað
um rafmagnsgirðingar. Halldór
Pjetursson skrifar grein sem ber
yfirskriftina Samfélag manns og
hests.
Alls koma fjögur tölublöð út ár
hvert og er stefnt að þvf að fjórða
tölublaðið verði komið til lesenda
fyrir næstu áramót.
Þar sem þetta er 25. árgangur
blaðsins hefur verið ákveðið að
gefa ættbókina sem ávallt hefur
verið í fjórða tölublaðinu út í sér
blaði og verður eigendum kynbóta-
hrossa gefinn þar kostur á að aug-
lýsa kynbótahross sem til sölu eru
og eins stóðhesta sem falir eru til
útleigu. Verður ættbókarblaðið i
sama broti og Hesturinn okkar
með litmynd á forsíðu og er áætlað
að hver stóðhestur fái hálfa síðu og
að sjálfsögðu mynd af hverjum
þeirra. Einnig er stefnt að þvi að
hafa mynd af öllum fyrstu verð-
launahryssum sem fjallað er um í
blaðinu.
Ritstjóri Hestsins okkar er Al-
bert Jóhannsson, Skógum en rit-
stjórnarfulltrúi Valdimar Krist-
insson.