Morgunblaðið - 26.10.1984, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
21
Afsögn Barzels áfall
fyrir stjórnina í Bonn
Bonn.25. október AP.
RAINER Barzel, sem nú hefur
sagt af sér sem forseti vesturþýzka
sambandsþingsins, hefur um langt
skeið verið í röð fremstu stjórn-
málamanna í Bonn. Hann náði þó
aldrei svo langt að komast til
æðstu valda í Vestur-Þýzkalandi á
35 ára stjórnmálaferli sínum.
Hann var kanslaraefni kristilegra
demókrata (CDU/CSU) í þing-
kosningunum 1972 og var þá tal-
inn eiga mikla möguleika á að
sigra í þeim kosningum. Raunin
varð þó önnur og hann og flokkur
hans biðu mikinn ósigur fyrir jafn-
aðarmönnum undir forystu Willy
Brandts.
Árið þar á eftir sagði Barzel af
sér bæði sem leiðtogi kristilegra
demókrata og sem formaður
þingflokks þeirra á Sambands-
þinginu. Það bar síðan ekki mik-
ið á honum í heilan áratug, á
meðan CDU/CSU var í stjórnar-
andstöðu.
Er kristilegir demókratar
komust aftur til valda haustið
1982, fór stjarna Barzels hækk-
andi á nýjan leik. Hann var kos-
inn forseti Sambandsþingsins í
marz 1983, en sú staða jók bæði
á virðingu hans sem stjórnmála-
manns og gaf honum tækifæri
til þess að hafa veruleg áhrif á
stjórnarstefnuna.
Barzel fæddist I borginni
Braunsberg í Austur-Prússlandi,
sem nú er hluti af Póllandi.
Mestan hluta æsku sinnar dvald-
ist hann þó í Berlín. Árið 1941, er
veldi Adolfs Hitlers stóð sem
hæst eftir skyndisigra í Póllandi
og Vestur-Evrópu, gerðist Barz-
el, sem þá var 17 ára gamall,
sjálfboðaliði í þýzka flughernum
og var þar, unz síðari heimstyrj-
öldinni lauk. Var hann þá orðinn
lautinant og hafði verið sæmdur
járkrossinum, en starf hans i
flughernum var einkum fótgið í
kennslu í flugtækni.
Eftir stríð lagði Barzel stund á
hagfræði og lögfræði við háskól-
ann í Köln og lauk þaðan dokt-
orsprófi. Hann hóf síðan þátt-
töku í stjórnmálum 1949 og
gegndi fyrst stöðu sem fulltrúi í
ráðuneyti því, sem fór með sam-
þýzk málefni, fyrst í Frankfurt
en siðan i Bonn. Hann gekk í
kristilega demókrataflokkinn
1954 og varð þingmaður á Sam-
bandsþinginu þremur árum síð-
ar. Árið 1962, er hann var 38 ára
gamall, varð hann ráðherra i
stjórn Konrads Adenauers
kanslara og fór þar með sam-
þýzk málefni, það er þau mál-
efni, sem varða samskipti
Vestur-Þýzkalands og Austur-
Þýzkalands.
Árið 1964 varð Barzel leiðtogi
þingflokks kristilegra demó-
X
krata á Sambandsþinginu og
gegndi því embætti i 9 ár, en tók
síðan við af Kurt Georg Kiesing-
er sem leiðtogi kristilegra demó-
krata 1971. Hann gerði síðan
djarflega tilraun til þess að kom-
ast til valda með því að bera
fram vantrauststillögu á Willy
Brandt og stjórn hans á Sam-
bandsþinginu, sem litlu munaði
að tækist.
Barzel beið hins vegar mikinn
ósigur fyrir Willy Brandt í bar-
áttunni um kanslaraembættið í
þingkosningum, sem fram fóru í
nóvember 1972. Eftir þennan
ósigur tókst honum ekki að varð-
veita eininguna innan flokksins
og varð að segja af sér bæði sem
leiðtogi flokksins og formaður
þingflokksins.
Helmut Kohl tók síðan við
sem leiðtogi kristilegra demó-
krata, en fram að því hafði hann
verið tiltölulega óþekktur sem
stjórnmálamaður. Er Kohl varð
kanslari við stjórnarskiptin i
Vestur-Þýzkalandi 1982, óx veg-
ur Barzels á ný og hann fékk
sæti í hinni nýju stjórn sem ráð-
herra fyrir samþýzk málefni.
Vegur Barzels óx svo enn, er
hann var kjörinn forseti Sam-
bandsþingsins 29. marz 1983.
Afsögn Barzels nú er vafalítið
mikið áfall fyrir stjórn Helmuts
Kohls kanslara, en Barzel er
annar háttsetti embættismaður-
inn í stjórn hans, sem neyðist til
þess að segja af sér vegna Flick-
málsins svonefnda. Áður hafði
Otto Lambsdorff orðið að láta af
embætti efnahagsmálaráðherra,
eftir að honum hafði verið gefið
að sök að taka við fé frá Flick-
samsteypuni.
Sudur-Kórea:
Noregur:
Yamani til
viðræðna
við norska
ráðamenn
— um olíumálefni
Osló, 25. október. AP.
AHMED Zaki Yami, olíu-
ráðherra Saudi-Arabíu,
mun eiga viðræður við
norska embættismenn á
föstudag, að því er tals-
menn stjórnarinnar sögðu í
dag.
Lögregla leysir upp mótmæli námsmanna
Seoul, 25. október. AP.
Hópur námsmanna hróp-
aði slagyrði gegn stjórn-
völdum og söng mótmæla-
söngva við mótmælaaðgerð-
ir á lóð þjóðarháskólans í
Seoul þrátt fyrir gífurlegan
lögregluvörð. Kom eigi til
átaka, en heimildir hermdu
að lögregla hefði fjarlægt
fjölda stúdenta.
Rúmlega sexþúsund einkenn-
is- og óeinkennisklæddir lög-
regluþjónar fóru inn á lóð há-
skólans að beiðni háskólayfir-
valda, sem ekki treystu sér til að
hemja ringulreið á háskólalóð-
inni. í rúma viku hefur hópur
námsmanna efnt til aðgerða til
að mótmæla brottvikningu fyrr-
um forsprakka sinna.
Talið er að um 2.000 náms-
menn hafi komið við sögu að-
gerðanna, sem stóðu í h álfa
aðra klukkustund, áður en lög-
regla dreifði mannfjöldanum.
Lögreglan hefur ekki blandað
sér í aðgerðir stúdenta á skóla-
lóð frá því í marz, er skólum var
veitt aukið sjálfsforræði.
Egil Helle, upplýsingafulltrúi
olíu- og orkuráðuneytisins,
sagði, að Yami kæmi til Noregs
á fimmtudagskvöld. Á föstu-
dagsmorgun ræddi hann við
Kaare Kristiansen, ráðherra
olíu- og orkumála, Arve John-
sen, forstjóra Statoil, norska
ríkisolíufélagsins, og Sven
Stray, utanríkisráðherra.
„Engin ákveðin dagskrá ligg-
ur fyrir fundinum," sagði Helle,
„en á föstudagskvöld verður
ráðherrann gestur Kaare Will-
Veður
víöa um heim
Amsterdam 13 skýiaó
Aþena 25 heiOakirt
Berlín 15 rigning
Brussel 1« skýjaO
Chicago 13 rigning
Dublm 15 akýjað
Frankturt 15 rigning
Gent 20 skýjaO
Helsinkí 6 rigning
Hong Kong 27 heiöskírt
Jerusalem 23 hetóskirt
Kaupmannahöfn 12 rígning
Lissabon 25 hsiðsklrt
London 15 skýjað
Los Angelas 27 hetóakirt
Miamí 27 skýjað
Montreai 11 hoiðskirt
Moskva 13 skýjað
New York 14 skýjað
Ostó 9 rigning
Paris 16 akýjað
Pofcing 17 skýjað
Rio de Janairo 29 akýjað
Rómaborg 22 haiðskfrt
Stokkhóimur vantar
Sydney vantar
TOkýó 20 tkýjað
Vínarborg 15 j>oka
och forsætisráðherra."
N \ '
Veriö <©A®
viobuin
vetrinum
Látið fagmenn okkar undirbúa
bílinn fyrir veturinn.
VETRARSKOÐUN INNIHELDUR:
□ Sklpt um kerti og platínur, athugaöir
kertaþræöir, kveikjulok og hamar.
□ Forhitun athuguð og bensínsía
endumýjuð.
□ Stillt kveikja og blöndungur.
□ Stillt reim á rafal.
□ Loftsía athuguð.
□ Mæld olía á vél.
□ Mæld hleðsla og bætt á rafgeymi.
□ ceymaskór athugaðir.
□ stiilt kúpling.
□ Athugað hvort leki sé á kæiikerfi.
□ Frostlögur mæidur
□ Rúðusprautur athugaðar og bætt á ef
með þarf.
□ Rúðuþurrkur athugaðar.
□ Ljós athuguð og stillt.
Gildir til 15. desember 1984
IhIHEKIAHF
J Laugavegi 170-172 Sími 21240
Verð með sölusk.: Kr. 1.900 fyrir 4ra strokka vél
Innifalið í verði: Kerti, platínur, bensínsía og rúðuvökvi.