Morgunblaðið - 26.10.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Póllandsheimsókn Papandreuous lokið:
Hétu að virða
mannréttindi
Varajá, 25. okláber. AP.
ANDREAS Papandreou, forsætis-
ráðherra Grikkja, lauk í dag þriggja
daga heimsókn sinni í Póllandi. í
ferðinni gagnrýndi hann ákaflega
efnahagslegar refsiaðgerðir Vestur-
veldanna gegn pólsku stjórninni en
hvatti jafnframt til, að mannréttindi
væru virt og réttur verkalýðsfélaga.
Jaruzelski, hershöfðingi, kvaddi
Papendreou á flugvellinum í
Varsjá og um svipað leyti létu þeir
frá sér fara sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem segir, að stjórnir
beggja þjóðanna séu andvígar
efnahagslegum refsiaðgerðum í
samskiptum þjóða og ennfremur
heita þær því, gríska stjórnin og
sú pólska, „að virða grundvallar-
mannréttindi".
í heimsókninni bauð Papandr-
eou Jaruzelski að koma til sín í
Aþenu og segir í yfirlýsingunni, að
boðið hafi verið „þegið með þökk-
um“.
Tefur þyrluslysið
friðarviðræðurnar?
San Salvador, 25. október. AP.
SKÆRULIÐAR vinstri manna í E!
Salvador halda því fram, að þeir hafi
skotið niður þyrlu stjórnarhersins,
sem hrapaði á yfirráðasvæði þeirra í
Joateca, um 200 km norðaustan við
höfuðborg landsins. Fjórir háttsettir
herforingjar og tíu aðrir létu lífið;
átta hermenn, kaþólskur prestur og
aðstoðarmaður hans. Yfirvöld halda
því fram að bilun í vél þyrlunnar
hafi valdið því, að hún hrapaði.
Duarte, forseti E1 Salvador,
sagði í gær, að atburður þessi
mundi engin áhrif hafa á friðar-
viðleitni stjórnvalda. Hann kvað
aukin hernaðarumsvif skæruliða
undanfarna daga og fullyrðingu
þeirra um árás á þyrluna hins veg-
ar benda til þess, að þeir hefðu
ekki áhuga á því, að koma á friði í
landinu.
Embættismaður í utanríkis-
ráðuneytinu í San Salvador, sem
óskaði nafnleyndar, kvaðst telja
líklegt að þyrlumálið yrði til þess
að tefja fyrir friðarviðræðum. Du-
arte segir aftur á móti, að þeim
verði haldið áfram og Guillermo
Ungo, helsti leiðtogi skæruliða,
hefur tekið í sama streng.
„Hvaða heimsvaldastefnu heyra þeir til, sem nú drottna yfir landslýðnum** spyr næstæðsti maður kirkjunnar f
Nicaragua. Myndin var tekin á ársafmæli byltingarinnar.
Biskup í Nicaragua:
„Eftir blekkingarvímu
og sársaukafull svik
er Nicaragua víti til varnaðar“
Dönsk smáflugvél
í Brædstrup á Suður-Jótlandi er verið að ljúka undirbúningi að fram-
leiðslu aldanskrar smáflugvélar og styðja sveitarfélagið og peninga-
stofnanir á staðnum framtakið. Reiknað er með, að framleiddar verði
um 100 flugvélar á ári og mun starfsemin skapa nokkur ný atvinnu-
tækifæri.
Framleiðslu vélarinnar stjórnar Bent Nielsen, deildarverkfræðingur
hjá Jósku tæknistofnuninni.
Managua, 25. oklóber. AP.
Einn af æðstu mönnum kaþólsku
kirkjunnar í Nicaragua hefur gagnrýnt
stjórn sandinista harðlega og segir
hana beita ofbeldi og kúgun og virða í
engu grundvallarmannréttindi.
Að sögn bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar ABC er nú verið að
skipa upp úr búlgörsku flutninga-
skipi í höfninni í E1 Bluff í Nicar-
agua og hefur hún það eftir
ónafngreindum heimildamönnum,
að í farminum séu m.a. fullkomnar
orrustuþotur. Sagði ennfremur, að
óvanaleg ströng gæsla væri um
hafnarsvæðið. Sendiráð Nicaragua í
Washington hefur látið frá sér fara
sérstaka yfirlýsingu þar sem fullyrt
er, að engar „MiG-orrustuþotur“ séu
Ort vaxandi físk-
stofnar við Noreg
Hafrannsóknir gefa nú tilefni til
vaxandi bjartsýni varðandi ástand
fiskistofna við Noreg, er líður að
lokum þessa áratugs. Ný skýrsla
þykir staðfesta það, að þorsk-, ýsu-
og loðnustofn fari nú ört vaxandi.
Skýrði Arvid Hylen, yfirmaður
þessara rannsókna frá þessu fyrir
skömmu.
Vöxtur ýmissa helztu fiski-
stofna hefur fengizt staðfestur í
rannsóknaleiðangri, sem fram
fór nýlega á Barentshafi á veg-
um Norðmanna og Rússa. Til-
gangurinn með þessum leiðangri
var að kanna, hvaða árangri
hrygning síðustu ára hefði skilað
af sér. Hrygning þorsks á þessu
ári virðist lofa mjög góðu, en
samt er of snemmt að segja til
um, hvort árgangurinn nú verði
stærri eða minni en árgangurinn
frá í fyrra, sem var mjög stór. Á
því leikur þó vart vafi, að nú
hafa komið tvö mjög góð ár í röð,
að því er varðar hrygningu
þorsks og sama máli gegnir með
tilliti til ýsu.
Ungfiskurinn í Barentshafi
býr þó við hættur á marga vegu,
sem spillt gætu fyrir horfum á
stórum fiskistofnum í lok þessa
áratugs. Þar má einkum nefna
rækjuveiðar, sem oft leiða til
mikilla veiða á smáfiski.
Rannsóknir á Barentshafi nú
hafa einnig leitt í ljós, að vor-
síldarstofninn við Noreg hefur
stækkað verulega. Árgangurinn
nú virðist þó ekki jafn stór og
frá árinu 1983, en stofninn virð-
ist þó greinilega hafa farið vax-
andi tvö ár í röð, að því er haft er
eftir Arvid Hylen.
í búlgarska skipinu, og hefur það
vakið nokkra athygli, því að ABC-
stöðin minntist ekki á MiG-þotur í
fréttinni.
Pablo Antonio Vega, yfirmaður
biskuparáðsins í Nicaragua og næst •
æðsti yfirmaður kirkjunnar, segir í
16 síðna yfirlýsingu, að „eftir fimm
ára blekkingavímu, byltingargoð-
sagnir og sársaukafull svik er Nic-
aragua öllu meginlandinu víti til
varnaðar. Enn einu sinni hefur það
sannast, að kreddukenningin og efn-
ishyggjan stoða manninn ekki neitt.
Þær eru aðeins tæki til að ná völd-
unum og virða í engu grundvallar-
mannréttindi." Vega sagði, að helsta
slagorð sandinistastjórnarinnar,
„völdin til verkamanna", væri
hræsnisfull blekking. „Hvaða
heimsvaldastefnu heyra þeir til,
sem nú drottna yfir landslýðnum,
ræna hann, fangelsa og kveða menn
til vopna hvern einasta dag?“ spurði
hann.
4.156 bandarískir
ríkisborgarar
fæddust á íslandi
Wjwhinjpon, 22. október. AP.
MILLJÓNIR bandarískra ríkisborg-
ara fæddust þar alls ekki, enda hefur
hin öra mannfjölgun í Bandarikjunum
síðustu tvo áratugina ekki síst stafað
af miklum fjölda innfiytjenda. í fyrstu
komu þeir einkum frá Norður- og
Vestur-Evrópu. Síðar komu þeir víðar
að og nú orðið eru það einkum
Mexíkóbúar sem flytjast búferlum
þrátt fyrir strangt útlendingaeftirlit og
hömlur sem settar hafa verið.
Þrátt fyrir umræddar hömlur,
fæddust 2.199.221 bandarískir ríkis-
borgarar í Mexíkó. 849.384 fæddust
í Þýskalandi, 842.859 fæddust í
Kanada og 831.922 á Ítalíu. Næstu
lönd eru dálitið á eftir, en þau eru
Bretland, Kúba, Fiiippseyjar, Pól-
land og Sovétríkin. 155 þjóðir eða
lönd eiga fulltrúa í hinni miklu
súpu þjóðarbrota sem í Bandarikj-
unum búa, þar á meðal ísland, en
ísland er í 99. sæti með 4.156 banda-
ríska ríkisborgara fædda hér á
landi.
27 af umræddum 155 ríkjum og
löndum eiga fleiri en 100.000, en
þau eru í réttri röð, Mexíkó, Þýska-
land, Kanada, Italía, Bretland,
Kúba, Filippseyjar, Pólland, Sov-
étríkin, Kórea, Kína, Víetnam, Jap-
an, Portúgal, Grikkland, Indland,
írland, Jamaíka, Dóminikanska
lýðveldið, Júgóslavía, Austurríki,
Ungverjaland, Kólombía, íran,
Frakkland, Tékkoslóvakía og Hol-
land.
Samkvæmt þessari könnun voru
skráðir fæðingarstaðir 14.079.906
bandarískra ríkisborgara annars
staðar en i Bandaríkjunum sjálfum.
Þessar tölur eru þó ekki fyllilega
tæmandi þar sem mikið er talið
vera um Mexíkana í Bandaríkjun-
um sem flust hafa þangað með
ólöglegum hætti. Eitthvað mun
vera um slíkt fólk af öðrum þjóð-
ernum að auki.