Morgunblaðið - 26.10.1984, Page 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Þegar ég var á leið til
Magnúsar Þórs Jónssonar,
alias Megas, í þeim erinda- j
gjörðum aö taka við hann
viðtal fyrir Morgunblaöið,
rifjaðist upp fyrir mór aö
eitt af því fyrsta sem ég
vann fyrir dagblað var að |
skrifa dóm um plötu hans
„Á bleikum náttkjólum“
sem út kom 1977. Án þess
dómurinn bæri mikilli
pennafærni vitni, olli hann I
talsverðri æsingu. Klapp
og þakkir fékk ég svosem
frá öörum Megasaraðdá-
endum, en þó voru fleiri
alveg klossbit og gáttaöir
á unglingnum sem leyfði
sér svo ófyrirleitna hyll-
ingu á verkum þessa
manns. Mér var kunnugt
um að skömmum og upp-
sögnum rigndi yfir Þjóö-
viljann þar sem greinin
birtist, henni voru fórnaðir |
dálksentimetrar í a.m.k.
þremur öörum blöðum, en I
mest veöur gerði þó
Morgunblaöið sem spand-1
eraði hluta sjálfs Reykja-
víkurbréfsins undir vamm-1
ir og hæðni um þetta
greinarkorn úr kommún-
istablaöinu. Best að segja
ekki meira um það; maður
verður kjánalegur á svip-
inn af aö hugsa um þá
órannsakanlegu vegi sem
leitt hafa til þess að nú
borgar Mogginn mér ffyrir
að útbúa breiðsíðuspjall
við sama listamann og
skelmi.
Maöur heyröi aldrei
sagt um Megas að hann
væri bara ágætur, býsna
glúrinn, efnispiltur, eða
eitthvaö álíka hálfvelgju-
hrós. Annaðhvort áttu
menn ekki orð til að lýsa
hrifningu sinni eða
hneykslun. Ef það voru
ekki textar hans, raddbeit-
ing eða tónlist sem gekk
fram af fólki, þá var það
útlitið og lifnaðarhættir,
enda var hann ansi nálægt
því um nokkurt skeiö aö
slá út marga fræga úti-
gangsmenn sem litríkasti
sukkari bæjarins. Og það
var jafnvel svo að slarkið
skelfdi okkur aðdáendur
hans, sem gleyptum í okk-
ur hverja nýja hljómplötu
og settum okkur aldrei úr
færi að komast á tónleik-
ana sem hann hélt fjölda-
marga á árunum ’72—’78.
Einn af stærstu viðburö-
unum var konsert í nóv-
ember ’78 sem hljóöritaöur
var og gefinn út á plötunni
„Drög að sjálfsmoröi". En
uppúr því hvarf Megas af
sjónarsviðinu. Hann hætti
ekki bara að sjást ráfandi
á götunum með sitt fræga
glott, hann hélt heldur
ekki fleiri tónleika og síö-
an þá hefur engin ný sóló-
plata komið frá honum.
Hann kvaddi algerlega
sviðsljósiö, og þegar ég
hringdi í hann fyrst í vor til
aö ámálga við hann viðtal
bað hann mig um að bíða
með það, enn væri hann
ekki tilbúinn að rjúfa
þögnina.
En núna er hann það
semsé. Þá var eftir að
finna tíma til að vinna í
þessu spjalli, því að Magn-
ús Þór er upptekinn maö-
ur. Hann er fjölskyldufyr-
irvinna og í allt sumar hef-
ur hann unnið á eyrinni,
oft fram á kvöld. Auk þess
stundar hann myndlist-
arnám, hann var að undir-
búa fyrstu sólóhljómleik-
ana í sex ár, þar að auki
sýndist mér hann vera á
kafi í félagsmálum. En
tíma fundum viö, um kvöld
og helgar, til að kompón-
era þetta rabb.
— Og fyrsta spurningin er hvort
platan „Drög að ajólfsmorði“ hafi
veriö hugsuð sem slútt af hans
hálfu.
— Nei, hún var ekki hugsuö sem
neitt slíkt. Strax uppúr ’72 veröur til
ákveöiö prógramm sem síðar fer aö
kallast „Drög aö sjálfsmorði". Þetta
er ákveðinn þráöur laga sem ég
raöa upp og fer aö kalla þessu
nafni. Seinna bættust örfá lög viö
og þaö var alveg Ijóst aö þetta
kæmist ekki fyrir nema á tvöföldu
albúmi. Dobbúlalbúm tekur kannski
300 klukkutíma í stúdíói og þaö
kostar einhver skelfileg ósköp, svo
þaö er ekki auövelt aö selja útgef-
endum slíkar hugmyndir. Meöfram
er ég aö gefa út aörar plötur, en hef
alltaf þetta dobbúlalbúm í bakhönd-
inni. En þaö var ekki hugsaö sem
neitt endanlegt.
— Hvers vegna var það þá sem
þú kvaddir sviðsljósíð og sjóbissn-
essinn?
— Þaö var ekkert annaö aö
gera. Ég sagöi bara bless viö yfir-
leitt allt sem ég haföi fengist viö.
Eftir þessa tónleika í nóv. '78 geri ég
ekki neitt af viti, er bara á fylleríi og
einhverntíma hlaut þessu aö slútta.
Og aö lokum er ég bara kominn
inná stofnun, sem ég átti náttúrlega
aö vera kominn inná fyrir löngu.
Reyna aö horfast í augu viö hlutina
einsog þeir voru, ekki einhverja
ímyndaöa glansmynd af þeim. En ég
tók enga ákvöröun um aö hætta í
músík. Þaö bara dróst aö ég byrjaöi
aftur.
— Hvernig geröist það að þú
lentir inná stofnun?
— Vindurinn blés mér þangaö.
Ég vaknaöi upp í djeilinu og þá kom
tii mín fangavöröur sem sagöist
þekkja af eigin raun aö hægt væri
aö hætta aö drekka brennivín. Þaö
hélt ég aö væri ekki hægt. Ég hélt
aö brennivín fylgdi manni alla ævi.
Og svo var ég aö ímynda mér aö ég
væri ennþá aktívur í einhverju og ef
ég hætti aö drekka brennivín þá
myndi sú aksjón vera búin. Skil-
uröu? Þjóösagan um listamanninn.
En þarna var ég alveg búinn, þannig
aö þegar þessi maöur i Hverfissteini
bauöst einfaldlega til aö koma mér í
meöferö þá þáöi ég þaö. Ég fór uppí
Reykjadal, eftir aö hafa dúsaö í viku
á tíunni inná Kleppi.
Athugaöu þaö aö áöur haföi mér
alltaf fundist þaö aö lenda á Kleppi
vera alger endapúnktur. En þarna
hefur eitthvaö gerst og mér finnst
ekkert athugavert viö aö bíöa þar.
Ég hugsaöi afskaplega lítiö i
þessari meöferö. Ég kom þangaö
kolruglaöur, búinn aö vera á víxl
vímandi mig á amfetamíni og
brennivíni, nonstop síöan í nóvem-
ber. Þrjá mánuöi. Og náttúrlega
miklu lengur þar á undan, bara ekki
eins heví. Og um miöjan febrúar
hugsa ég ekki margt. Fimmtíu kíló
og afskaplega tæpur allur. Ég
gengst bara inná þaö sem minir
leiöbeinendur segja, aö ég sé ein-
faldlega búinn meö kvótann. Sé mér
lífiö kært, þá veröi ég aö stoppa.
— Þannig að það var ekki part-
ur af terapíunni að hætta í múafk?
— Neineineinei. Þaö var enginn
sem nefndi þaö.
Eitt af þvi sem ég notaöi þegar ég
var í þessu rugli öllu saman var þaö
aö þótt einhver segöi aö ég væri aö
drepa mig á þessu sukki, þá skipti
þaö mig engu máli. Mér fannst betra
aö hafa ævina stutta og göfuga,
eins og einhversstaöar segir. En (
meöferðinni kynntist ég ýmsu fólki,
misútbrunnu af eiturlyf jaátí og
drykkju, og þá fer ég rólega aö feisa
það aö ég verö aö breyta eitthvaö
mínum aöferöum í tilverunni, vilji ég
ekki brenna út sjálfur. Ég tók þá
vondu áhættu aö lifa kannski af. Og
ég gekkst alveg inná þaö meö
brennivíniö, aö ég væri búinn aö
klára þá deild. En ég var ennþá
húkkaöur á aö spíttiö þyrfti ég aö
nota sem hækju. Og út úr meöferö-
inni kem ég meö þá hugmynd enn í
koHinum.