Morgunblaðið - 26.10.1984, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
35
Feröaþjónusta
bænda
Texti og myndir: Hildur Einarsdóttir
Holidays In lceland“ og
haldið námskeið ffyrir
ferðabændurna. Þessi
þjónusta er þó ekki al-
veg ný af nálinni, því
meðan Loftleiðir voru
og hétu þurftu þeir
stundum að útvega út-
lendingum gistingu á
sveitaheimilum og voru
þaö 10 bæir, sem tóku
það að sér. Þrír af þeim
eru nú meðlimir í
Ferðaþjónustu bænda.
Við heimsóttum fjóra
bæi, sem veita ferða-
mönnum gistingu, og
ræddum við heimilis-
fólkið um það hvernig
sumarið hefði gengið
fyrir sig hjá því.
„Ætli aðsóknin hafi ekki tvöfaldast víða í
sumar“„ sagði Oddný Björgvinsdóttir,
framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda,
þegar við spurðum hvernig gisting á
sveitaheimilum hefði nýst nú yffir
ferðamannatímann. Kvaðst hún hafa mikla
trú á því að ferðaþjónusta bænda ætti góða
framtíð ffyrir sér. Það eru 50 bæir á landinu,
sem bjóða ferðamönnum innlendum sem
útlendum gistingu, annað hvort í rúmi eða
svefnpokapláss. Það er ódýrt aö dvelja á
sveitaheimilum og kostar gisting og morg-
unverður í góðum herbergjum frá 300
krónum upp í 470 krónur. Gisting í rúmi
með hálfu fæði kostaði 650 krónur að sögn
Oddnýjar. Sveitaheimilin 50 eru dreifð um
landið og húsbændurnir eru allir í Lands-
samtökum ferðaþjónustu bænda, sem
stofnuð voru árið 1980. Hafa þau gengist
ffyrir kynningu á starfsemi sinni og meðal
annars gefið út bækling, sem nefnist „Farm
Rætt viö
fjóra
feröaþjónustu-
bændur
Aðsókn
víða
tvöfaldast
hjá Ferðaþjónustubændum í sumar
Kristín Bergsveinsdóttir
aö Arnarfelli, Arnarstapa:
Hef kynnst
svo mörgu
lífsglöðu
fólki
Fyrst lá leiöin út á Snæfellsnes, nánar
tiltekiö aö Arnarfelli á Arnarstapa. Þar
er afar fallegt um að lita. Ströndin viö
Arnarstapa er sérkennilega mótuö af
briminu og þar er fuglalíf mikiö. Sækja
erlendir fuglaskoöarar gjarnan á þessar
slóöir.
f baksýn rís svo Stapafell og bak viö
þaö sést í Snæfellsjökul. Viö heilsuöum
upp á húsfreyjuna á Arnarfelli, Kristínu
Bergsveinsdóttur, og ungan son henn-
ar, Friðrik aö nafni.
„Þiö verðiö bara aö koma í eldhúsiö,“
segir hún og þar tyllum viö okkur viö
eldhúsboröiö og fylgjumst meö því er
hún lagar fiskibollur ofan i 6 manna hóp
aö noröan, sem er í fæöi og húsnæöi
hjá henni um þessar mundir.
Þaö eru 3 ár síöan Kristín hóf aö
leigja feröamönnum herbergi. Þaö skal
tekiö fram þegar i upphafi, aö Arnarfell
er ekki bóndabær, heldur er húsiö aö-
eins notaö á sumrin þá eingöngu i
þessu skyni. Því fyrir nokkrum árum
ætlaöi Kristín aö flytjast til Arnarstapa
ásamt manni sínum og vinna þar viö
fiskverkunarstöö, sem þar átti aö rísa,
en aldrei varö úr þeim framkvæmdum.
Ekki var hægt aö selja húsiö svo þau
hjónin ákváöu aö reyna aö nýta það á
annan hátt, til aö hafa fyrir gjöldum af
húsinu og hitunarkostnaöi.
Fyrsta áriö var sama og ekkert að
gera í þessum viöskiptum, sagöi Kristin
okkur. Næsta ár kom heldur betur út og
þriöja áriö?
„Það er búiö aö vera mikiö aö gera
hjá mér í sumar sérstakiega í júli og
frameftir ágúst,“ sagöi Kristín. „Þaö eru
aöallega útlendingar, sem hingaö
koma. Ég held aö íslendingar viti lítiö af
þessari gistiaöstööu á sveitaheimilum.
Þaö þyrfti aö dreifa bæklingnum víöar,
ef til vill i búöir þar sem fólk kemur
daglega.
Venjulega gistir fólk hér 1—2 nætur,“
segir hún, þegar við ræðum um feröa-
háttu gesta hennar og hvaö þeir geti
haft fyrir stafni.
„Fólk skoöar náttúruna og á Gíslabæ
á Hellnum, sem er um 5 kílómetra hér
frá, er svo hægt aö fara á sjóstanga-
veiöi. Og sumir ganga á jökulinn.“ Hún
heldur áfram:
„Ég man eftir einum Þjóöverja, sem
vildi endilega skoöa jökulinn. Hann fór
af staö i þunnri blússu, ég held hann
hafi haldiö aö þaö væri sami híti hérna
niöri og upp á jöklinum. Hann villtist í
þoku, sem skall á og kom niöur aö vest-
anveröu.
Það er fremur hættulegt aö álpast
þarna niöur sérstaklega seinni hluta
sumars vegna sprungna í jöklinum. En
Þjóöverjinn slapp með skrekkinn en
ógurlega var honum kalt, þegar hann
kom niður. — Það veröur aö hafa gæt-
ur á útlendingunum, svo þeir fari sér
ekki aö voöa.“
Fyrst viö vorum farnar að tala um
jökulinn, þá spyr ég hvort hún hafi oröiö
vör viö aö útlendingar þekktu til jökuls-
ins.
„Sumir tala um “Umhverfis jörðina á
80 dögurn" eftir Jules Verne“.“
Hafa þeir talaö um aö þeir hafi fundiö
fyrir dularmögnum jökulsins líkt og
Þóröur frá Dagveröará og fleira gott
fólk?
„Sumir þykjast finna eitthvaö. Þaö
hefur þaö eins og þaö vill fólkiö.
Þaö eina sem ég finn er kuldlnn frá
jöklinum," segir þessi ágæta kona.
Og viö förum aftur aö tala um gisti-
þjónustuna og hún segir okkur aö til sín
komi allar árgeröir af fólki. Gesti sína fái
hún einkum í gegn um Samvinnuferöir-
Landsýn, Feröafélag fslands, Feröa-
skrifstofu ríkisins, Tour Office á Kefla-
víkurflugvelli eöa fólk hringir á undan
sér eöa bankar einfaldlega upp á og
biöur um gistingu.
„Aösóknin hefur veriö nokkuö jöfn í
sumar, alltaf einhverjir á hverjum sól-
arhring. Svo geta komiö dagar, sem allt
fyllist. Til dæmis ef kemur slæmt veö-
ur.“
Og þú sérö um allt ein?
„Já, því maöurinn minn vinnur sem
fiskmatsmaöur á Ólafsvík og kemur
hingaö aöeins um helgar.
Ég held hér öllu hrelnu, skipti á rúm-
um, sem eru 8—10 og 8 svefnpoka-
pláss. Hér hafa þó dvalið allt aö 50
manns í einu, þegar mest hefur veriö.
Hefur fólkiö sofiö á gólfinu eins og til
dæmis þegar Feröafélaglö hefur veriö
hér meö sinn mannskap. Þaö er ekkert
óánægt meö þrengslin, þetta á aö vera
svona. Þaö er ægilega gaman þegar
feröafélagsfólkiö kemur, þaö er svo
hresst og hefur frá mörgu aö segja.“