Morgunblaðið - 26.10.1984, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
37
Róaa Pálmadóttir
Venjulega ekki, en gerum þó undan-
tekningu ef bústaöurínn er i leigu.
Frúin segir okkur aö flest sé þaö ís-
lenskt fjölskyldufólk, sem þar dvelji.
Sagöist hún hafa tekiö þaö fram viö
sumardvalargestina aö ekki mættu vera
fleiri en 4—6 í bústaönum í senn, en
oftast væru fleiri og væru þau ekkert
ströng á því.
Hvernig gengur fólkiö um?
.Ég er yfirleitt ánægö meö umgengn-
ina,“ segir Rósa.
Hefur þú mikil afskipti af fólkinu?
„Nei, ég hef ekki tíma til þess, því þaö
er svo mikiö aö gera úti viö á sumrin,
því ég er á vélunum á móti manni mín-
um. En ég segi fólkinu aö þaö geti leitaö
til mín ef eitthvaö er.“
Þiö hafiö haft eitthvaö af útlending-
um hjá ykkur líka?
„Ætli útlendingar hafi ekki veriö um
einn fjóröu gestanna.“
Finnst þér einhver munur á íslensk-
um og útlendum feröalöngum?
„Útlendingarnir skoöa meira hérna í
kring og eru því meira útiviö."
Hvernig gengur jsér aö ræöa viö þá?
„Ég get því miöur ekki talaö erlend
tungumál, en maðurinn minn og 14 ára
barnabarn geta talaö svolitla ensku,“
segir Rósa.
Þaö er fallegt þarna í Fljótunum og
ýmislegt hægt aö gera sér til dundurs.
Meö bústaönum fylgir eitt veiöileyfi á
sólarhring. Þá er hægt aö kaupa fleiri
leyfi i Miklavatni aö Ketilási, sem er úti-
bú Kaupfélags Skagfiröinga. Þar er
bleikju aö fá. Margir fara líka í Sól-
garóalaug, sem er skammt frá. Þá er
hægt aö fá leigöa hesta aö Hraunum en
aö sögn húsráöenda hefur veriö lítil
ásókn í þá í sumar.
Húsfreyjan aö Hraunum kvaö fólgna
ákveöna tilbreytingu í aö hafa svo
margt fólk í kringum sig auk þess sem
af þessu hlytust nokkrar aukatekjur.
„Viö leigjum bústaöinn á 4 þúsund
krónur á sólarhring. En viö höfum kost-
aö heilmiklu til, þannig aö viö erum ekki
ennþá búin aö fá upp í þann kostnaö.
Svo beinn hagnaöur er ennþá enginn."
Telur þú, aó Feröaþjónusta bænda
eigi framtíö fyrir sér?
„Tvímælalaust og þaö er aö aukast
aö bændur fari út í þessa aukabúgrein."
Hjónin Helena Dejak og
Vilhjálmur Ingi Arnason
að Pétursborg í
Glæsibæjarhreppi:
Leggjum
mikið upp úr
persónulegu
sambandi
við gestina
Frúin á Pétursborg, Helena Dejak,
sem er júgóslavnesk aö uppruna, var
nýkomin úr 10 daga bakpokaferöalagi
kringum landiö, þegar okkur bar aö
garöi. Haföi hún á ferö sinni gist á bæj-
um, sem bjóöa gistingu eins og hún og
maöur hennar, Vilhjálmur Ingi Árnason
menntaskólakennari, hafa boöiö upp á
undanfarin 2 ár að Pétursborg. En til
Pétursborgar er fimm mínútna akstur
frá Akureyri.
Sagöist Helena vera mjög hrifin af
þeirri gistiþjónustu sem hún kynntist á
bæjunum.
„Þaö mætti þó lengja feröamanna-
tímabiliö,“ segir hún. „Venjulega byrja
feröamennirnir aö koma til okkar um
miöjan júní og síöustu gestirnir fara i
lok ágúst. Til aö örva feröamenn til aö
koma fyrir og eftir þennan tíma mætti
auglýsa ódýrari þjónustu líkt og flugfó-
lögin gera. Þaö væri til dæmis sniöugt
fyrir íslenskar fjölskyldur aö skapa sér
tilbreytingu meö því aö koma hingaö
yfir vetrartímann og fara ef til vill á
gönguskíöi, en hér eru víöa fallegar
gönguleiöir. Fólkiö getur líka fariö upp i
Hlíöarfjall, sem er hér skammt frá. Þá er
hægt aö fara í sundlaugina aö Þelamörk
eöa á hestbak hjá Reyni Hjartarsyni,
sem er meö hestaleigu hér á næsta bæ.
Svo er hægt aö sækja ýmsa skemmtan
til Akureyrar eins og leikhús, veitinga-
og skemmtistaöi.
A haustin gæti fólk dvaliö í nokkra
daga til aö fylgjast meö göngum og
réttum, svo og sauöburöinum á vorin,
en þetta á þá fremur viö um sveitaheim-
ili, sem eru meö eínhvern búskap."
Hafa íslendingar komiö í einhverjum
mæli til ykkar í sumar?
„Nei, mestur hluti okkar gesta er út-
lendingar.“
Skýringin á þessu?
„Ef til vill finnst þeim nálægöin viö
fólkiö á heimilunum of mikil, þeir vilja
vera út af fyrir sig. Svo er ég hrædd um
aö þeir líti á íslensk sveitaheimili sem
„second class“,“ segir Helena, „óttast
jafnvel óþrifnaö."
En viö höfum átt mjög góö samskipti
viö Islendingana, sem hér hafa dvaliö.
Viö leggjum mikið upp úr persónu-
legu sambandi viö gesti okkar. Viö sitj-
um gjarnan klukkutímum saman hérna
uppi hjá okkur og ræöum málin viö
gestina," segir Vilhjálmur Ingi.
„Enda þótt þaö sé eldhús niöri þá
víröist fólk kjósa þaö heldur aö boröa
uppi hjá okkur, en yfirleitt eru útlend-
ingarnir ekki með mat með sér. Ég reyni
aó gefa þeim íslenskan mat.
Viö erum með bát, sem við keyptum
í vor og þaö er afar vinsælt aö róa
hérna út á sjóinn og fiska í soöiö. Koma
heim og matreiöa fiskinn glænýjan.
Ég rækta líka mitt grænmeti sjálf og
kaupi aldrei dósamat, því ég hugsa mik-
iö um að fæöiö sé heilsusamlegt. Ég
baka líka alls konar gróft brauö, en fólki
finnst afar gott aö fá nýtt brauð," segir
Helena.
Já, þaö er óneitanlega gaman aö
sitja í eldhúshorninu hjá þeim hjónum
og ræöa um heima og geima, því þau
eru vel að sér og skemmtileg. Þaö er
iíka boöiö upp á heimabakaöa epla-
böku og júgóslavneskt kaffi og te úr
laufblööum, sem Helena og fjölskylda
hennar hafa safnaö sjálf.
„Auövitaö krefst þetta mikillar
vinnu," segja þau, en verkaskipting milli
þeirra hjóna er sú aö Helena sér aö
mestu um heimilishaldiö en Vilhjálmur
Ingi sér um aö fiska í matinn og vera
fólkinu innan handar, ef þaö þarf aö
fara eitthvert eða þarf aö gera því
eitthvaö til dægrastyttingar.
„Þetta er svo skemmtilegt aö þaö
gefur mér aukakraft," segir húsmóöirin.
Pétursborg er upprunalega gamall
bær, sem þau hjón hafa standsett aö
nýju á skemmtilegan hátt. Vllhjálmur
Ingi hefur smíöaö flestar innréttlngar {
Halana Dajak
húsiö. Á veggjum heimilisins eru svo
myndverk eftir Helenu, bæöi útsaums-
verk, málverk og vefnaöur.
Þau hjón leigja út 3 tveggja manna
herbergi ásamt eldhúsi, setustofu, baöi
sem er meö sturtu og er sér inngangur
inn í þessar vistarverur.
„Áöur en viö settumst hér aö vorum
viö fararstjórar í Júgóslavíuferöum. En
þaö er ekki hægt aö vera í því starfi
meö tvö ung börn. Ég á erfitt meö að
vera án félagsskapar," segir Helena,
„svo fyrst ég gat ekki fariö til fólksins þá
ákváöum viö aö fá þaö til okkar," segir
Helena.
Þaö er sama sagan á Pétursborg og
öörum stööum, sem viö komum til, aö
aösóknin hefur aukist mjög í sumar.
Þau segjast einkum fá gesti sína í gegn
um Hótel Varöborg á Akureyri, og frá
Eddu-hótelunum og af veginum.
Okkur finnst þó, aö þaö mætti vera
betra samband á milli feróabænda og
feröaskrifstofanna og hótelanna," segja
þau.
„Þaö þarf lika aö bjóöa upp á fjöl-
þættari afþreyingu fyrir feröamenn. Þaö
hefur til dæmis komiö til tals aö bjóöa
upp á feröir á hraöbát út í eyjarnar
hérna í kring. Viö útveguöum itala, sem
dvaldi hjá okkur, slíka ferö til Flateyjar.
Hann fór til aö skoöa og mynda fuglalíf-
iö þar.
Viö viljum gera sem mest fyrir fólkið
og viljum aö þaö finni, aö viö erum ekki
aö þessu bara vegna peninganna, viö
viljum gefa líka. Viö lítum á okkur sem
eins konar sendiherra þessa lands og
leggjum okkur fram um að landkynn-
ingin verði sem best. Viö förum meö
fólkiö okkar á sjóstangaveiöi og í styttri
og lengri skoöunarferöir, eins og aö
Mývatni eöa annaö sem þaö þarf aö
fara.
Þaö komu til okkar Vestur-lslend-
ingar í sumar, sem voru aö leita aö
skyldfólki sínu hér á landi. Viö fundum
út aö þaö átti rætur sínar aö rekja til
bóndabæjar hér í sveitinni. Viö hringd-
um á bæinn og spuröum, hvort viö
mættum ekki koma meö fólkið í heim-
sókn. Þetta vestur-íslenska fólk haföi
mikinn áhuga á blómarækt og þaö kom
í Ijós, aö skyldfólk þess á bænum átti
sama áhugamál. Voru allir mjög
ánægóir meö þessa samfundi.
Viö fórum víöar meö fólkiö og eftir
þessa ferö var þaö stórum fróöara um
Vilhjálmur Ingi Árnaaon
uppruna sinn og þau fóru glöö og
ánægö heim til sin.
Já, viö fáum oft skemmtilega gesti. I
sumar komu til dæmis til okkar fatlaöur
maöur ásamt eiginkonu sinni. Hann er
bandarískur prófessor í mannfræöum
viö háskólann i Los Angeles.
Þessi maður, sem þjáist af vööva-
rýrnun, hefur feröast um allan heim og
er í heimsmetabók Guinness sem sá
fatlaöi maöur, sem feröast hefur mest
um heiminn, en hann hefur komiö til yflr
100 landa. Hann kom hingaö til aö fylgj-
ast meö „karnivalnum" á Akureyri, en
hans sérsviö í mannfræöinni er einmitt
„karnivalar".
Þegar hann kom til Pétursborgar
uröu tröppurnar hér honum til hindrun-
ar. Viö buöumst til aö bera hann upp
tröppurnar en hann mátti ekki heyra
þaö nefnt og vildi bjarga sér sjálfur.
Hann skrifaöi í gestabókina okkar
eitthvaö á þessa leiö: Sir Edmund Hlll-
ary kleif Mount Everest en ég fór upp
tröppurnar á Pétursborg"!