Morgunblaðið - 26.10.1984, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
39
Leikfélag Reykjavíkur:
Félegt fés
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýndi nýlega fyrsta verkefni sitt á
þessu leikári, skopleikinn Fólegt fés eftir ítalska höfundinn Dario Fo.
Leikritiö veröur sýnt á miönætursýningum í Austurbæjarbíói á laug-
ardögum kl. 23.30. Uppistaöa verksins er misskilningur, sem hefst á
því aö forstjóra Fiat-verksmiðjanna er rænt. í kjölfar ránsins slasast
forstjórinn svo, aö græða veröur á hann nýtt andtit. Fyrir misskilning
er nýja andlitiö gert eftir mynd af einum starfsmanna hans í verk-
smiöjunni og eru þvi tvær persónur meö sama andlitiö. Veidur þetta
aö vonum miklum misskilningi. Leikstjóri Félegs fés er Gísli Rúnar
Jónsson en leikarar eru: Aöalsteinn Bergdal, Bríet Héöinsdóttir,
Hanna María Karlsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Kjartan Ragnars-
son, Guömundur Pálsson, Kjartan Bjargmundsson, Guömundur Ól-
afsson, Viöar Eggertsson, Lilja Þórisdóttir og Karl Guömundsson.
Leikmynd geröi Jón Þórisson en þýöandi er Þórarinn Eldjárn.
Listasafn ASÍ:
Jakob Jónsson
JAKOB Jónsson, listmálari,
heldur nú sýningu í Listasafni
ASÍ viö Grensásveg. Á sýning-
unni eru 53 verk, þar af 48
oiíumálverk og 5 teikningar.
Jakob stundaöi myndlistar-
nám í Kaupmannahöfn frá
1965—1971. Sýning Jakobs nú
er helguö minningu bróöur
hans, Björns Jónssonar, flug-
manns, er lást á síöasta ári.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14—22, en henni lýkur á
sunnudag.
SAMKOMUR
KFUM og KFUK:
Haustátak
Haustátak er yfirskrift á sam-
komum sem haldnar veröa í kvöld,
annaö kvöld, sunnudag og mánu-
dag í húsi KFUM og KFUK aö
Amtmannsstíg 2b í Reykjavík.
Samkomurnar hefjast kl. 20.30 og
ræðumaöur öll kvöldin veröur Anf-
in Skaaheim, framkvæmdastjóri
kristilegu skólahreyfingarinnar í
Noregl. í kvöld veröur fjallaö um
bænina og mikilvægi hennar, á
laugardag um Biblíuna og á
sunnudag um brot brauösins og
bræðrasamfélagiö. Barnasam-
koma veröur í húsinu öll kvöldin og
á mánudagskvöld talar kristniboö-
inn David Adeney.
Hótel Borg:
Líf og land
Samtökin Líf og iand standa
fyrir ráöstefnu um stööu atvinnu-
veganna aö Hótel Borg á morgun.
Á ráöstefnu þessari munu 17 sór-
fræöingar flytja stutt erindi og
veröa þau gefin út i bókarformi.
Ráöstefnan er 11. þing samtak-
anna frá stofnun þeirra fyrir 6 ár-
um. Hún er öllum opin.
Bingó í
Garöinum
Björgunarsveitin Ægir í Garöin-
um veröur meö bingó í Samkomu-
húsinu á sunnudagskvöld kl.
20.30.
FERÐIR
Útivist:
Út í buskann
Feröaféiagiö Útivist ætlar aö
halda í helgarferö út í buskann um
þessa helgi. Á sunnudag veröur
gönguferö kl. 13. Fariö veröur aö
ísólfsskála og gengiö aö Selatöng-
um.
Ferðafélag íslands:
Leggjabrjótur
Á sunnudag eru tvær göngu-
feröir á vegum Feröafélags fs-
lands. Sú fyrri er kl. 10.30 og er þá
gengiö frá Hvalfiröi til Þingvalla um
Leggjabrjót, sem er gömul þjóö-
leiö. Gengiö verður á Búrfell í
Þingvallasveit kl. 13 á sunnudag.
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
KARTÖFLUR
í MATINN
Heimsins bestu kartöflur eru þær íslensku, þaö er alveg áreið-
anlegt, og bestar eru þær soönar eins og þær koma fyrir. Nú
þegar uppskera er meiri en venjulega, reyndar metuppskera,
þyrftum viö eiginlega aö sýna þann þegnskap að matbúa
kartöflur á fleiri vegu en vant er, búa til úr þeim sjálfstæöa rétti,
súpur, baka úr þeim o.s.frv.
Kartöflusúpa
Vi kg kartöflur,
1 gulrót,
1 lítil púrra,
1 laukur,
1 Vz I vatn,
1 súputeningur,
2 matsk. smjör eða smjörllki,
1 — 1 '/2 tsk. salt,
V« tsk. þurrkaður kerfill,
V* tsk. pipar,
1 eggjarauöa,
1 dl rjómabland eöa kaffirjómi,
steinselja.
Kartöflurnar afhýddar, skornar i teninga
og eru ásamt niðursneiddu grænmetinu
settar 1 pott meö sjóðandi vatni og súpu-
teningi I. Allt soöið i 20—25 m(n., kryddað
að smekk. Eggjarauðu og rjóma hrært
saman, potturinn tekinn af og hrærunni
bætt (. Steinselju stráð yfir um leið og borið
er fram. Gott gróft brauð nauðsynlegt
með.
Kartöflubuff
'/2 kg soðnar kartöflur,
1 egg,
2 matsk. hveiti,
salt og pipar.
Afhýddar kartöflur eru skornar smátt.
Hveiti, eggi og kryddi er blandað saman
við. Hrært vel saman. Mótaðar eru flatar
kökur sem velt er upp úr eggjahvltu og
brauðmylsnu. Steiktar á pönnu. Gott er að
hafa grænmetisjafning með.
Kartöfluvöfflur
750 gr soðnar kartöflur,
1V2 tsk. salt,
3 matsk. brætt smjör eöa smjörllki,
6 dl hveiti,
1 Vz tsk. lyftiduft,
71/2 dl mjólk.
Kartöflurnar eru stappaðar, salti og
hveiti meö lyftiduftinu bætt saman við og
þynnt út með mjólkinni. Vöfflurnar eru bak-
aöar á venjulegan máta og boröaðar með
smjöri og osti eöa sultu.
Heitt kartöflusalat
1V2 kg kartöflur,
1 stór laukur,
3V2 dl vatn,
3 matsk. smjör eða smjörlíki,
2—3 matsk. borðedik,
2 matsk. sykur,
1 — 1V2 tsk. salt,
V2 tsk. nýmalaður pipar,
steinselja.
Kartöflurnar soönar meö hýöi á, afhýdd-
ar og skornar ( þunnar sneiðar. Laukurinn
skorinn ( sneiðar og soöinn I vatni með
smjörlfki í ca. 10 mínútur. Út ( er bætt
ediki, sykri, salti og pipar og slöast
kartöflusneiöunum. Látiö hitna I gegn I
5—10 min. en gæta þarf þess að kartöfl-
urnar fari ekki ( sundur. Salatið er bragö-
bætt að smekk. Gott með pylsum eöa
öðru, bragðið er súrsætt.
Kartöflu- og græn-
metisbakstur
1V2 kg kartöflur,
4—5 litlar gulrætur,
1 púrra,
3 dl mjólk,
1V2 dl rjómi,
1 rif hvltlaukur,
2—2V2 tsk. salt,
1 '/2 tsk. pipar,
1 —2 tsk. paprikuduft,
3 tsk. hveiti,
1 dl rifinn ostur,
1—2 matsk. brytjaöur graslaukur.
Með er haft gróft brauð og hrásalat.
Kartöflurnar afhýddar og skornar I
sneiöar, gulrætur og púrra sömuleiöis.
Kartöflur og grænmeti lagt I lög, til skiptis,
I ofnfasta skál, kryddi stráð yfir hvert lag.
Mjólk, rjóma, hveiti og hvltlauk blandað
saman og hellt yfir grænmetið og kartöfl-
urnar, osti og graslauk blandað saman og
stráð yfir matinn. Bakað f ofni viö 190°C I
um það bil 1 klst.