Morgunblaðið - 26.10.1984, Qupperneq 42
42______________
Iðnaðarráðherra:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1984
Leggur fram öll gögn um álviðræð-
urnar fyrir Alþingi 4.—11. nóvember
IÐNAÐARRÁÐHERRA, Sverrir Her-
mannsson, mnn leggja fram fyrir Al-
þingi öll gögn um samningaviðræður
íslenskra stjórnvalda og Alusuisse,
ekki síðar en i vikunni 4,—11. nóv-
ember næstkomandi. Þetta kom fram
í máli ráðherrans þegar hann svaraði
12 fyrirspurnum utan dagskrár frá
Hjörleifi Guttormssyni, Alþýðu
bandalagi. Ítrekaði ráðherra það
ákvaeði samningsins að aðilar eru
skuldbundnir til að birta ekki opin-
berlega einstök atriði samningsins,
nema báðir samþykki.
Hjörleifur Guttormsson gagn-
rýndi iðnaðarráðherra fyrir að
hafa ekki látið stjórnarandstöðuna
fylgjast með viðræðunum og síðar
tók Sigriður Dúna Kristmunds-
dóttir, Kvennalista, undir þessa
gagnrýni. Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðherra, tók fram að hann
hefði látið stjórnarandstöðuna
fylgjast eins vel með og kostur var
á, hins vegar játaði hann að hann
treysti ekki stærsta stjórnarand-
stöðuflokknum i þessu máli.
samninga að því er skattareglur
snertir, t.d. ákvæðum aðstoðar-
samnings um að Alusuisse sjái ÍS-
AL fyrir aðföngum á bestu fáan-
legum kjörum.
í svörum ráðherra kom fram að
raforkuverð til álversins í
Straumsvík í dag væri samkvæmt
samningsdrögunum rétt undir 13
mills, eða 100% hærra en í fimm
ára valdatíð Hjörleifs Guttorms-
sonar í sæti iðnaðarráðherra. Á
hinn bóginn er líklegt að meðalraf-
orkuverð næstu fimm árin verði
um 13,9 mills á verðlagi ársins
1984. Meðalraforkuverð, sem Alu-
suisse greiðir vegna álbræðslu víðs
vegar um heim, er 16,5 mills.
Þá benti iðnaðarráðherra, Sverr-
ir Hermannsson, á að frá 1. ágúst
1983 til jafnlengdar í ár hefði raf-
orkuverð til innlendra notenda
lækkað að raungildi um 15,7% og
ef verðlagsforsendur fjárlaga
halda er útlit fyrir að frá 1. ágúst
1984 til 1. ágúst 1985 lækki verðið
um 23,5%. Greiðsluafkoma Lands-
virkjunar verður hagstæð á næsta
ári um 100 milljónir króna.
Um ástæður þess að endurskoð-
un á skattareglum hefur ekki verið
framkvæmd samhliða samningum
um hækkun raforkuverðs sagði
ráðherra að orkuverðið væri mun
þýðingarmeiri þáttur en hið fyrr-
nefnda.
Kjartan Jóhannsson, formaðui
Alþýðuflokksins, átaldi iðnaðar-
ráðherra fyrir þau vinnubrögð, sem
höfð hafa verið. Opin umræða er
líklegri til að skila árangri, og hefði
verið ráðherra styrkur til að ná
betri samningum.
Gagnrýndi Kjartan Jóhannsson
einnig að orkuverðið skuli ekki
vera verðtryggt og að það skuli
miðað við heimsmarkaðsverð á áli,
en þar með tækju íslendingar
hlutdeild í áhættu af rekstri verk-
smiðjunnar, að mati Kjartans.
Umsvif erlendra sendi-
ráða verði takmörkuð
Um skattsvikamál Alusuisse
sagði iðnaðarráðherra að lögfræð-
ingar beggja aðila væru að vinna
að þvi að ná dómssátt. Þá svaraði
hann neitandi spurningu Hjörleifs
Guttormssonar um það hvort í
núgildandi samningsdrögum hafi
verið gefinn einhver ádráttur um
breytta túlkun á ákvæðum gildandi
LÖGÐ hefur verið fram tillaga til
þingsályktunar um takmörkun á um-
svifum erlendra sendiráða hér á
landi. Flutningsmaður, Hjörleifur
Guttormsson, Alþýðubandalaginu,
setti fram svipaða tillögu á síðasta
þingi.
I tillögunni er lagt til að ríkis-
stjórninni verði falið að setja regl-
Tilkynning
frá Fiskveiða-
sjóði íslands
Umsóknir um lán á árinu 1985 og
endurnýjun eldri umsókna
Um lánveitingar úr Fiskveiöasjóöi íslands á árinu
1985 hefur eftirfarandi veriö ákveðið:
1. Vegna framkvæmda á fisk-
iönaöi.
Engin lán veröa veitt til byggingarfram-
kvæmda nema hugsanleg viöbótarlán vegna
bygginga, sem áöur hafa verið veitt lánsloforö
til, eöa um sé aö ræöa sérstakar aöstæöur aö
mati sjóösstjórnar. Eftir því sem fjármagn
sjóösins þar meö taliö hagræöingarfé hrekkur
til, veröur lánaö til véla, tækja og breytinga,
sem hafa í för meö sér bætt gæöi og aukna
framleiöni. Framkvæmdir skulu ekki hafnar
fyrr en lánsloforö Fiskveiöasjóös liggur fyrir.
2. Vegna fiskiskipa.
Eftir því sem fjármagn sjóösins hrekkur til
veröur lánað til skipta á aflvél og til tækja-
kaupa og endurbóta, ef taliö er nauösynlegt
og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafn-
ar fyrr en lánsloforö Fiskveiöasjóös liggur fyrir.
3. Endurnýjun umsókna.
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf aö
endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir
hvernig þær framkvæmdir standa sem lánslof-
orö hefur veriö veitt til.
4. Umsóknarfrestur.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984.
5. Almennt.
Umsóknum um lán skal skila á þar til geröum
eyöublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýs-
ingum, sem þar er getið, aö öörum kosti verö-
ur umsókn ekki tekin til greina (eyöublöö fást
á skrifstofu Fiskveiðasjóös islands, Austur-
stræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum
og sparisjóöum utan Reykjavíkur). Umsóknir
er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest veröa
ekki teknar til greina viö lánveitingar á árinu
1985, nema um sé aö ræöa ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík, 16. október 1984.
Fiskveiöasjóöur íslands.
ur um takmarkanir á umsvifum
erlendra sendiráða á íslandi, með-
al annars varðandi fjölda sendi-
ráðsmanna og byggingu og kaup
fasteigna.
Geir Hallgrímsson, utanríkis-
ráðherra, sagði í umræðum um til-
löguna, að hann væri sammála því
að íslendingum bæri að fylgjast
mjög grannt með stærð og umsvif-
um sendiráða erlendra ríkja, eins
og sjálfstæðismenn hefðu oftsinn-
is bent á. Hins vegar sagðist utan-
ríkisráðherra ekki vera búinn að
gera upp hug sinn hvort setja ætti
almenna reglu um þetta eða ekki.
ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, varaði ein-
dregið við hugmyndum Hjörleifs
Guttormssonar, um að íslend-
ingar færu að dæmi sovéskra
stjórnvalda og takmörkuðu ferða-
frelsi sendimanna þeirra á ís-
landi. Benti ólafur á að vel mætti
vera að áróðurslega væri Hjörleifi
Guttormssyni nauðsyn að flytja
tillögu sem þessa, þó hann efaðist
um að flutningsmaður hefði hugs-
að hana til enda.
Þá tóku þingmennirnir Árni
Johnsen og Guðrún Helgadóttir
einnig til máls.
Þingnefnd vegna
rekstrarvanda
í sjávarútvegi
ÞINGMENN Alþýðubandalagsins
hafa lagt fram tillögu til þingsályktun-
ar um að kosin verði sjö manna þing-
nefnd er skilgreini rekstrarvanda ís-
lensks sjávarútvegs, safni saman upp-
lýsingum og bendi á leiðir til úrbóta.
Gert er ráð fyrir að nefndin geri
samanburð á rekstrarskilyrðum út-
gerðar og fiskvinnslu hér á landi og
í samkeppnislöndum tslendinga. Þá
á nefndin einnig að athuga skipulag
veiða og vinnslu og koma með til-
lögur um ráðstafanir, er tryggi eðli-
legt samræmi milli afkastagetu út-
gerðar og fiskvinnslu.
Álit nefndarinnar á að liggja
fyrir eigi síðar en við upphaf þings
1985.
Frá Skíðaskólanum í Kerlingafjöllum.
Kerlingafjalla-
hátíð á Sögu
Kerlingarfjailahátíð verður haldin í
kvöld í Súlnasal Hótels Sögu og hefst
hún með borðhaldi klukkan 19.00, en
auk þess geta gestir komið að borðh-
aldi loknu klukkan 21.00.
Má gera ráð fyrir líflegu borð-
haldi með söng og gríni, að því er
segir í fréttatilkynningu frá
skemmtinefnd. Auk þess verða
skemmtiatriði og Kerlingarfjalla-
söngvar að gömlum sið síðar um
kvöldið og stiginn dans fram til
klukkan 2.00 eftir miðnætti. Allir
gamlir og nýir nemendur skíða-
skólans og skíðafólk, svo og aðrir
velunnarar skólans, eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
(Úr frétUtilkynninjfu)
Kristín Ilalldórsdóttir
Nýr þingflokks-
formaður Kvenna-
listans
MORGUNBLAÐINU barst I gær
fréttatilkynning frá þingflokki
kvennalistans, þar sem tilkynnt var
um nýjan þingflokksformann, Krist-
ínu Halldórsdóttur. Þar segir:
„Svo sem tilkynnt var í upphafi
þessa kjörtímabils, munu þing-
menn Kvennalistans skipta með
sér formennsku þingflokksins, og
hefur Kristín Halldórsdóttir nú
tekið við því starfi af Guðrúnu
Agnarsdóttur. Slík verkaskipting
er í samræmi við hugmyndir og
stefnu Kvennalistans um vald-
dreifingu."
Punktar frá
bæjarstjórn
Akureyrar
Akureyri, 25. oklóber.
Enn minnkar
atvinnuleysi
Á fundi bæjarstjórnar Ak-
ureyrar á þriðjudag var lagt
fram bréf frá vinnumiðlun-
arskrifstofunni. Þar kemur
fram, að 28. september sl. voru
83 skráðir atvinnulausir, 32
karlar og 28 konur, og að í
mánuðinum voru skráðir 1193
heilir atvinnuleysisdagar, sem
svarar til þess að 60 manns
hafi verið atvinnulausir allan
mánuðinn.
Kjarasamningur
samþykktur
Bæjarstjórn samþykkti
fyrir sitt leyti á þriðjudag að-
alkjarasamning milli Akur-
eyrarkaupstaðar og Starfs-
mannafélags Akureyrarkaup-
staðar fyrir tímabilið 18. okt.
1984 til 31. des. 1985, með 10
samhljóða atkvæðum. Jón G.
Sólnes (S) sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Fjármálafulltrúi segir upp
Már Svavarsson, fjármála-
fulltrúi Hitaveitu Akureyrar,
hefur sagt starfi sínu lausu
frá og með 1. sept. og óskaði
jafnframt eftir því að upp-
sagnarfrestur yrði styttur um
einn mánuð. Stjórn Hitaveitu
Akureyrar samþykkti það
fyrir sitt leyti og verður stað-
an nú auglýst laus til umsókn-
ar.
Nýr héraðsskjalavörður
Aðalbjörg Sigmarsdóttir,
sem verið hefur bókavörður
' 'ð Glerárskóla, hefur verið
skípuð héraðsskjalavörður til
eins árs frá 1. okt. sl.
Áskorun til
umferðarncfndar
Umferðarnefnd Akureyrar
barst nýlega undirskriftar-
skjal frá 117 íbúum við
Heiðarlund, þar sem þeir
skora á umferðaryfirvöld að
banna stöður stórra bíla á
Skógarlundi, en þar munu
nokkur brögð vera að því að
slík tæki byrgi útsýn og valdi
slysahættu. Umferðarnefnd
taldi sig ekki geta orðið við er-
indi íbúanna, en telur þó orðið
tímabært að mörkuð sé stefna
um stöður „vinnuvéla og
stórra bifreiða" á götum í
íbúðarhverfum. G.Berg.