Morgunblaðið - 30.10.1984, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 30.10.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984 5 ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur gert medfylgjandi línurit sem sýnir þróun kaupmáttar kauptaxta hjá ASÍ (heila línan) og opinberum starfsmönnum (brotna línan) miðað við vísitölu framfærslukostnaðar og eru vísitölur 100 á árinu 1980. Á árinu 1977 jókst kaupmáttur- inn mikið eftir gerð sólstöðusamn- inganna á almenna vinnumarkaðn- um í júní og samninganna við opinbera starfsmenn i október, en þá fór BSRB fyrst í verkfall á grundvelli nýsamþykktra laga. 1 ársbyrjun 1978 reyndi ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar að sporna við verðbólguvexti með því að gripa inn í kjarasamningana. Eftir kosn- ingar sumarið 1978 var skriðu enn hleypt af stað. Verðbólgan magnaðist jafnt og þétt og svo fór meðal annars fyrir tilverknað stjórnvalda að kaup- mátturinn hrapaði á síðustu mán- uðum stjórnar Gunnars Thorodd- sens þegar verðbólga var hömlu- laus, frá því síðla árs 1982 fram á þriðja ársfjórðung 1983, þegar að- gerðir núverandi ríkisstjórnar gegn verðbólgunni stöðvuðu kaup- máttarhrunið. Á því árabili sem hér er lýst hef- ur kaupmáttarstigi að verulega leyti verið haldið uppi með erlend- um lánum. Línuritið sýnir þá þróun sem orðið hefur í kaupmætti kauptaxta hjá opinberum starfsmönnum á þeim árum sem BSRB hefur haft verkfallsrétt. 1 athugasemd við línuritið segir Þjóðhagsstofnun að hér sé ein- göngu miðað við almennar um- samdar breytingar á kauptöxtum. Launaskrið og tilfærslur einstakl- inga innan launakerfisins vegna ýmissa sérákvæða komi hér ekki fram. Ók á brott af árekstursstað ÁRKKSTUR varð á Hringbraut, til móts við Gamla Garð, laust eftir klukkan þrjú á sunnudag. Ökumaður Mazda-bifreiðar, sem grunaður er um ölvun við akstur, ók vestur Hringbraut og hugðist beygja suður lláskolaveg, en ók í veg fyrir bifreið, sem ekið var austur Hringbraut og varð árekstri ekki forðað. Áreksturinn varð ekki harður, en ökumaður Mazda-bifreiðarinnár ók af vettvangi og sem leið lá að einni byggingu Háskóla Islands skammt frá. Lögreglan kom skömmu síðar á vettvang og hafði tal af ökumannin- um. Hann játaði að hafa valdið árekstrinum og var færður til blóð- rannsóknar. Skemmdir á bifreiðun- um eru ekki miklar og engin slys urðu á fólki. ÁTVR-þjófnaðurinn á Akranesi: Sjö menn í gæzluvarðhaldi SJÖ menn hafa verið úrskurðaðir í gæzluvarðhald að kröfu rannsóknar- lögreglu ríksins vegna rannsóknar á áfengisþjófnaðinum úr útsölu Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins. Sex mann- anna voru handteknir aðfaranótt laug- ardagsins og hinn sjöundi á laugardag. RLR gerði kröfu um að mennirnir yrðu úrskurðaðir í gæzlu til 7. nóvember. Fimm mannanna voru úrskurðaðir til 7. nóvember en gæzluvarðhald yfir ein- um rennur út í dag og öðrum á morg- un. Mennirnir eru allir af Reykjavik- ursvæðinu. Játningar liggja ekki fyrir. Tíu kössum af áfengi var stolið á Akra- nesi og auk þess talsverðu magni af tóbaki. Þjófnaður á 16 kössum úr gámi við Sundahöfn er enn óupplýst- ur, svo og þjófnaður á 10 kössum úr gámi í Keflavík. Miðaðu við IBMPC Skjár án auka- endurkasts. 0 Stórt minni. Hraðvirkur prentari. Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna: Ef þú ert að hugleiða kaup á tölvu, hagaðu þér þá eins og þeir sem reynsluna hafa. Flestir tölvuframleiðendur og nær allir framleiðendur hugbún- aðar miða við IBM PC.tölvuna, sem tók beint strik á toppinn hér- lendis eins og hvarvetna í heimin- um. Betri meðmæli eru vandfund- in. IBM PC er ekkert frekar tölva fyrir byrjendur þó að hún henti þeim mjög vel. Þú þarft heldur ekki eingöngu að ætla henni byrj- unarhlutverk. Verkefnasvið IBM PC er afar víðfeðmt hvort sem hún er sjálfstæð eða í tengslum við aðrar tölvur. Við að kynnast kostum IBM PC kemstu fljótt að raun um hve dýr- mæt hún er. Pantaðu kynningu á IBM PC strax hjá næsta söluum- boði. Gísli J. Johnsen Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8, Kópavogi, sími 73111 Skrifstofuvélar hf. Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33, Reykjavík, simi 20560 Örtölvutækni sf., Ármúla38. Reykjavik, simi 687220

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.