Morgunblaðið - 30.10.1984, Side 6

Morgunblaðið - 30.10.1984, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984 Mí 0 Verkfallsrerdir BSRB við hús Skýrsluvéla rfkisins í gær. Verkfallsvarsla við hús SKÝRR: Morgunblaðið/Júlíus. Prókúruhafar greiði laun með ávísunum — segja BSRB-menn um launagreiðslur í verkfaili „VIÐ SETTUM verkfalls- vörslu við húsakynni SKÝRR, eftir að úrskurður Kjaradeilunefndar lá fyrir, og munum halda þeirri vörslu áfram miðað við óbreyttar aðstæður,“ sagði Birgir Sveinbjörnsson, sem sæti á í verkfallsstjórn BSRB, er hann var spurður um viðbrögð BSRB manna við úrskurði Kjaradeilu- nefndar um að unnið skyldi við Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar að launaútskriftum til starfs- manna við heilsugæslu og öryggisgæslu, annarra en þeirra sem eru í BSRB. Vakt hefur verið við húsið síðan á sunnudag og er eng- um hleypt inn nema þeim, sem frá upphafi verkfalls hafa sinnt neyðarþjónustu. Vinna við launaútskriftir get- ur því ekki hafist að öllu óbreyttu né heldur vinna við út- skriftir lífeyrisgreiðslna sem kjaradeilunefnd úrskurðaði um á laugardag. Verkfallsstjórn BSRB telur, að kjaradeilunefnd hafi farið út fyrir verksvið sitt með því að úrskurða menn til vinnu hjá SKÝRR til að ganga frá launa- og lífeyrisgreiðslum. Verkfallsstjórnin kveðst hins vegar vera reiðubúin að taka málið til athugunar berist beiðni frá forstjóra SKÝRR. „Við bíð- um eftir formlegu erindi frá þeim, en það virðist ríkja ein- hver tregða hjá þeim að leita til okkar," sagði Birgir Svein- björnsson. Höskuldur Frímannsson, yfir- maður SKÝRR, mótmælti í gær með bréfi til BSRB, verkfalls- vörslu við hús stofnunarinnar og vísaði hann til úrskurðar kjara- deilunefndar. Stjóm starfs- mannafélags Reykjavíkurborg- ar, samþykkti í gærmorgun ályktun um að hún væri mótfall- in verkfallsvörslu við hús SKÝRR og lagði til að henni yrði hætt. Verkfallsstjórn BSRB ályktaði fyrir nokkrum dögum að í opinberum stofnunum skuli launagreiðslum hagað þannig, að prókúruhafar í viðkomandi stofnun greiði áætluð laun með ávísunum. Var sú skoðun BSRB manna ítrekuð á fundi með fréttamönnum í gær. Haraldur Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri og varaformaður BSRB var að því spurður, hvern- ig það samræmdist kröfu BSRB um að menn fái greitt fyrirfram þegar ljóst er að þeir ætli í verk- fall, að standa síðan gegn því að þeir fái laun sem vinna í verk- falli. Svaraði hann því til að hér væri um gerólík sjónarmið að ræða. Annars vegar væru það lög sem kveða á um fyrirfram- greiðslu hinn 1. hvers mánaðar en hins vegar væri um það að ræða að koma í veg fyrir verk- fallsbrot, en launagreiðslur þess- arar væru samningsmál milli BSRB og fjármálaráðuneytisins. Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra hefur ítrekað lýst þeim vilja sínum, að laun þessi verði greidd um næstu mánaðamót. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar: Verkfallsvörslu hætt við hús SKÝRR STTJÓRN Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar samþykkti í gærmorgun ályktun um að hún væri mótfallin verkfallsvörslu við hús Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar. Var í álykt- uninni lagt til að verkfalls- vörslu yrði hætt og hætti verk- fallsnefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar þátttöku í henni. í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg um þetta mál segir m.a.: „Kjaradeilunefnd hefur ákveðið, m.a. fyrir atbeina BSRB, að laun skuli ekki greiða þeim félögum BSRB, sem gert hefur verið að vinna í verkfalli opinberra starfs- manna. Jafnframt hefur Kjaradeilunefnd ákveðið að öðrum en félögum í BSRB sem gert hefur verið að vinna í verkfalli skuli greiða laun hinn 1. nóvember nk. Verk- fallsnefnd Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar hefur lát- ið af ólögmætri verfkalls- vörslu við Skýrsluvélar ríkis- ins og Reykjavíkurborgar, en verkfallstjórn BSRB hefur á hinn bóginn haldiö henni áfram. Af framangreindum ástæð- um munu óhjákvæmilega verða allmikil brögð að því, að Reykjavíkurborg muni verða gert ókleift að greiða að fullu þeim starfsmönnum sín- um laun, sem nú eru í vinnu og borginni ber að greiða í samræmi við samninga eða úrskurði Kjaradeilunefndar. Allt sem hægt er verður þó gert til að efna þær skyldur, sem á borginni hvíla í þessum efnum. Endurgjald fyrir vinnu í þágu borgarinnar, sem henni verður nú gert ómögulegt að greiða að fullu verður innt af hendi um leið og skilyrði skapast til þess.“ Símamál við ísafjarðardjúp: Símamenn mót- mæla yfirheyrslum HJÁ bæjarfógetaembættinu á ísafirði er haldið áfram yfirheyrslum yfir starfsfólki símstöðvarinnar á ísafirði vegna brota þess á úrskurði Kjaradeilu- nefndar við afgreiðslu símtala við íbúa sveitahreppanna við ísafjarðardjúp. Pétur Kr. Hafstein bæjarfóteti sagði í samtali við Mbl. í gær að búið væri að yfirheyra fimm af þeim sex starfsmönnum sem hlut ættu að máli. Sagði hann að einhvern næstu daga, þegar yrfirheyrslum lyki, yrði málið skoðað í heild og reynt að gera sér grein fyrir hvað hægt væri að gera frekar í málinu. Á sunnudaginn var samþykkt á fundi í Félagi íslenskra síma- manna að mótmæla harðlega þeim aðgerðum sem hafnar væru gegn FÍS-félögum á Isafirði. Segir í samþykktinni að útilokað sé að nokkrar undanþágur til vinnu eða viðgerða verði veittar hjá stofnun- inni á meðan slíkt ástand vari. Símamenn hafa þrátt fyrir þessa samþykkt sína gert við allar al- varlegustu bilanirnar á símakerf- inu að sögn Þorvarðar Jónssonar yfirverkfræðings hjá Pósti og síma. Sagði hann að um helgina hefði verið gert við bilun á fjöl- símanum út frá Selfossi, sjálf- virku langlínumiðstöðinni i Kefla- vík og telexstöðinni í Reykjavík sem stöðvaðst hefði alveg um hélgina vegna bilunar. Póstur og sími hefur enn sem komið er ekki kært aðra starfs- menn sína fyrir brot á úrskurðum Kjaradeilunefndar þrátt fyrir að símamenn neiti víðar að fara eftir úrskurðum nefndarinnar. í lögun- um um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja frá 29. maí 1976, en með þeim lögum fékk BSRB verkfallsrétt, segir í 45. gr.: „Brot á lögum þessum varða stöðumissi, sektum eða varð- haldi.“ Kjaradeilunefnd sam- þykkti í gær að gert yrði við bilan- ir á símakerfinu á Suðurlandi þannig að símasamband komist á við Austur-Eyjafjallahrepp. Þá var einnig samþykkt að gert verði við fjölsímalínur út frá Selfossi, en það er raunar ítrekun á fyrri samþykkt nefndarinnar. Morgunblaðiö/Friðþjófur. Unnið við losun salts úr írafossi í Hafnarfjarðarhöfn I gær. Lögbannsmálið vegna írafoss: Verkfallsvörslu hætt þegar mállutningur átti að hefjast í GÆRMORGUN hættu verkfallsverðir BSRB verkfallsvörslu við MS írafoss í Hafnarfjarðarhöfn þar sem þeir höfðu hindrað lo.sun skipsins síðan fyrir helgi. f gærmorgun átti einmitt að taka fyrir hjá bæjarfógetanum í llafnarfirði lög- bannsmál Eimskips gegn BSRB vegna aðgerðanna en ekki kemur til þess að úrskurður falli í málinu þar sem hinar kærðu aðgerðir voru ekki lengur fram- kvæmdar. Hófst losun saltsins úr írafossi í gærmorgun. Eins og komið hefur fram hér í blaðinu kom írafoss til Rifshafnar sl. miðvikudag með saltfarm sem að hluta átti að losa þar. Var skipið tollafgreidd á Rifi en verkfallsverð- ir BSRB stöðvuðu losun þess í miðj- um klíðum. Skipinu var þá siglt til Hafnarfjarðar en verkfallsverðir komu í veg fyrir losun þess þar til í gærmorgun. í fréttatilkynningu frá Eimskip um mál þetta segir m.a.: „Með þvi að koma sér hjá því að mæta f'"‘ ■ dómstóla til að verja aðgerðir slnar, hefur BSRB viðurkennt ólögmæti þeirra aðgerða sem þeir höfðu uppi gagnvart starfsmönnum Eimskips fyrir helgína. Eimskip skorar á verkfallsverði BSRB að láta nú þeg- ar af ólögmætri verkfallsvörslu við önnur skip félagsins, þannig að starfsmenn Eimskips fái þar vinnu- frið.“ Forsvarsmenn verkfalls- stjórnar BSRB sögðu í gær, þegar þeir voru spurðir af hverju látið hefði verið af verkfallsvörslu við írafoss, að BSRB hefði fengið nýjar upplýsingar um málið. Komið hefði í ljós að skipið hefði verið löglega tollafgreitt og því ekki talið rétt að standa gegn losun þess. Hinsvegar töldu þeir að um verkfallsbrot hefði eigi að síður verið að ræða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.