Morgunblaðið - 30.10.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGLR 30. OKTÓBER 1984
23
Samstarfsmenn Ferraro
í tengslum við mafíuna
GÖGN hafa verið dregin fram í
dagsljósið, sem þykja sýna, að
Geraldine Ferraro, varaforsetaefni
bandarískra demókrata, hefur
undanfarin sex ár staðið í nánum
tengslum við verkalýðsleiðtoga í
New York, sem dæmdir hafa verið
fyrir glæpi og eru taldir viðriðnir
skipulega glæpastarfsemi. Frá
þessu er greint í Lundúnablaðinu
The Sunday Times um síðustu
helgi.
Rannsókn blaðsins á sex ára
ferli Ferraro í fulltrúadeildinni,
þar sem hún hefur setið sem
þingmaður fyrir kjördæmi í New
York, hefur leitt í ljós, að á mik-
ilvægu tímabili reiddi hún sig
mjög á stuðning Dominick
Santiago, sem tekið hefur sér
nafnið Nicholas Sands, við að
afla fjár i kosningasjóð sinn.
Sands þessi er verkalýðsforingi,
sem dæmdur hefur verið fyrir að
svíkja tvívegis fé af félagi sínu
og er talinn í tengslum við mafí-
una. Sonur Sands starfaði að
auki um hríð á skrifstofu Fer-
raro í þinghúsinu í Washington.
Engar sannanir eru fyrir því,
að Ferraro hafi vitað um af-
brotaferil samstarfsmanna si-
nna. The Sunday Times bendir
hins vegar á, að upplýsingar um
afbrot þeirra hafi verið að finna
í opinberum gögnum og réttar-
skjölum, sem allir hafa aðgang
að, á meðan þeir störfuðu fyrir
Ferraro.
Athugun blaðsins hefur jafn-
framt leitt í ljós, að fyrsti kosn-
ingastjóri Ferraro, Carmine
Pasrisi, sem síðar veitti þing-
Geraldine Ferraro
skrifstofu hennar forstöðu, hafði
áður verið einn nánasti sam-
starfsmaður Anthony nokkurs
Scotto, fyrrum leiðtoga hafnar-
verkamanna í New York. Fyrir
rúmum hálfum mánuði var
Scotto þessi látinn laus eftir að
hafa setið í þrjú og hálft ár í
fangelsi, dæmdur fyrir mútur og
fjárkúgun. Faðir Parisi, Camillo,
hefur verið foringi mafíuhóps í
New York, sem nefndur er
„Genúa-fjölskyldan“.
Ennfremur hafa rannsókn-
armenn Lundúnablaðsins komist
að því, að Ferraro hefur ljáð
nafn sitt dularfullum góðgerð-
arsamtökum á Manhattan, sem
nefnast „Englar aldraðra", og
raunar tekið þátt í starfi sam-
takanna, en í hópi forstöðu-
manna og starfsmanna þeirra
eru margir menn, sem dæmdir
hafa verið fyrir glæpi. Virðist
góðgerðastarfið aðeins yfirskyn
og er í því sambandi bent á, að
„Englarnir" styrkja aðeins 10
ellilífeyrisþega með innan við 30
dala greiðslu til þeirra á viku, en
öfluðu á árinu 1982 tekna, sem
nema 160 þúsundum dala.
Spjótum hefur að auki verið
beint að Ferraro vegna fjár-
málaumsvifa eiginmanns henn-
ar, fasteignarekandans Johns
Zaccaro, og hefur því verið hald-
ið fram, að þau umsvif tengist
skipulagðri glæpastarfsemi. Er
bent á, að í húsi, sem hjónin
eiga, eru höfuðstöðvar eins aðal
klámdreifingarfyrirtækis mafí-
unnar og í öðru húsi, sem þau
eiga, í Kínahverfinu á Manhatt-
an, hefur verið starfrækt ólög-
legt spilavíti. Ferraro og eigin-
maður hennar hafa vísað þess-
um ásökunum algerlega á bug og
segjast ekki hafa vitað um
raunverulega starfsemi leigj-
enda sinna.
Geraldine Ferraro er af ftölsk-
um uppruna og á marga ætt-
ingja í Napólí á Ítalíu. Hafa ít-
ölsk blöð að undanförnu látið í
Ijósi áhyggjur af skrifunum um
tengsl varaforsetaefnisins við
mafíuna. Stærsta dagblað Róm-
ar II Messaggero hefur staðhæft
að þessar ásakanir séu til marks
um kynþáttafordóma. „Að vera
ítali þykir vera hið sama og að
vera mafíuglæpamaður," sagði
blaðið. Ferraro hefur sjálf sagt í
viðtölum við ítölsk blöð, að mafí-
uskrifin séu eingöngu komin til
vegna ítalsks uppruna síns.
Sovétmenn hafa gífurlegan ihuga i Svíþjóð, bæði til sjós og lands. Á
myndinni er sovéski kafbiturinn sem kom óvænt upp í harðaland í sænska
skerjagarðinum irið 1981.
Sovéskir útsendar-
ar afhjúpaðir í bók
— öryggislögreglan ánægð með árangurinn
SÆNSKA öryggislögreglan var hæstinægð i þriðjudag, þegar út kom bók um
njósnir Sovétmanna í Svíþjóð. Blöðin fylgdu útkomu hennar úr hlaði með þvf að
birta myndir af yfir 20 sovéskum borgurum, sem taldir eru vera útsendarar
Sovétríkjanna.
— Þá eru dagar þeirra taldir f
Svíþjóð, við þurfum ekki að sanna
neitt til að þeim verði vísað úr
landi, segir öryggislögreglan.
— Þeir eru einfaldlega búnir að
vera í Svíþjóð.
Bókin heitir „Iðnaðarnjósnir" og
er höfundur hennar Charlie
Nordblom, rithöfundur og blaða-
maður. Það er Erhvervslivets For-
lag sem gefur bókina út, en um
helmingur hennar fjallar um iðnað-
arnjósnir hvers konar.
Höfundur bókarinnar var i tiu ár
félagi í Kommúnistaflokki Svíþjóð-
ar og vinnur hjá fremur klám-
fengnu vikuriti, Lektyr.
Samkvæmt því sem fram kemur í
bókinni og öryggislögreglan hefur
veitt þegjandi samþykki sitt, starfa
um 30 sovéskir útsendarar í Sví-
þjóð. Meirihluti þeirra vinnur hjá
KGB, en nokkrir hjá GRU, systur-
fyrirtæki hins fyrrnefnda, sem er
undir stjórn hersins.
Flestir útsendaranna vinna hjá
sovéska sendiráðinu í Stokkhólmi.
Aðrir eru á launum hjá ræðismönn-
unum í Gautaborg og Stokkhólmi,
eru í sovésku verslunarsendinefnd-
inni, starfa á skrifstofum Aero-
flot-flugfélagsins eða hjá ferða-
skrifstofunni Intourist, ellegar eru í
dulargervum blaðamanna.
Hjá sovéska sendiráðinu f
Stokkhólmi starfa tveir hershöfð-
ingjar, að því er fram kemur í bók-
inni. Þeir eru titlaðir ráðgjafar f
starfsmannaskrá sendiráðsins.
Annar þeirra, Vladimir Batjkirov,
er yfirmaður KGB í Svíþjóð. Hinn,
Jurij Kiselev, er yfirmaður GRU í
landinu.
Sendiráðið hefur fram að þessu
þagað þunnu hljóði um málið. Ef til
vill er ástæðan sú, að starfsmenn
þeir sem sjá um samskipti við fjöl-
miðla fyrir hönd sovéksa sendiráðs-
ins, eru meðal þeirra sem nefndir
eru í bókinni sem útsendarar Sov-
étríkjanna.
LEIGJUM ÚT
VEISLUSALI FYRIR
ÁRSHÁTÍÐIR 0G ÖNNUR
EINKASAMKVÆMI