Morgunblaðið - 30.10.1984, Side 28

Morgunblaðið - 30.10.1984, Side 28
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984 Ríkisstjórnina skortir heildarstefnu Ræöa Jóns Magnússonar á flokksráðs- og formannafundi sjálfstæðismanna Jón Magnúfison hdl. í Reykjavík sendi ritstjóra Morgunblaðsins eftir- farandi bréf dagsett 26. október 1984: „Vegna frásagnar Morgunblaðs- ins í dag af ræðum mínum á flokksr- áðsfundi Sjálfstæðisflokksins þ. 13. október sl. sem mér finnst ekki nákvæmur bið ég yður, herra rit- stjóri, að birta fyrri ræðu mína á flokkráðsfundinum svo að lesendur blaðsins geti sjálfir dæmt ræðuna skv. efni bennar, en ekki ónákvæm- um lýsingum blaðamannsins sem skrifar um flokksráðsfundinn. Til leiðréttingar á grein blaða- mannsins varðandi síðari ræðu mína á flokksráðsfundinum vil ég taka fram, að þar dró ég engin ummæli úr fyrri ræðu til baka. Meginefni þeirr- ar ræðu var að svara þeim sem sett höfðu fram önnur sjónarmið, leið- rétta misskilning og hvetja til sam- stöðu um meginmarkmið." Morgunblaðið birtir hér með um- rædda ræðu Jóns Magnússonar að ósk hans. 1 stjórnmálum skiptir máli að horfast í augu við raunveruleik- ann og leita þeirra bestu úrræða sem tök eru á hverju sinni. Stjórnmálaflokkur verður jafn- an að gaumgæfa vel hvenær er lag til að koma fram stefnu sinni og gera það þegar færi gefst í jafn- ríkum mæli og unnt er. í þeim efn- um skipta ráðherrastólar minna máli en þau málefni sem tengja fólk saman i einum flokki. Við sjálfstæðismenn höfum átt þess kost í rúmt ár að vera í ríkis- stjórn og það er okkur hollt að skoða með gagnrýnum augum hvernig til hefur tekist. Hvað hafi áunnist og hvað miður hafi farið. Ég ætla ekki að rekja þá að- komu sem blasti við þegar ríkis- stjórnin tók við völdum. Það hefur verið tíundað á þessum fundi sem og öðrum íundum flokksins í seinni tíð. Það sem skiptir máli í dag er að ríkisstjórninni tókst með meiri ágætum en nokkur hafði búist við að draga úr verðbólgunni og skapa skilyrði fyrir nýrri framfararsókn þjóðarinnar. Bjartsýni jókst þrátt fyrir kjararýrnun og erfitt ár- ferði. Þetta er árangur sem ber að meta og taka tillit til. En meira þurfti til að koma. Þegar ríkisstjórninni er þakkað, hve vel tókst að stýra þjóðarskút- unni undan brotsjóum og leita lags til að komast á lygnan sjó, vill það oft gleymast að ræðararnir, sem sátu í fyrirrúmi og svöruðu svo vel þeirri skipan stjórnend- anna sem þokaði fleyinu framhjá boðaföllum og blindskerjum, voru launþegarnir í landinu. Þeir voru tilbúnir að færa fórnir, þeir voru tilbúnir að róa þann lifróður sem þurfti til að fjörtjóni yrði forðað. Til þess að landi yrði náð og á nýjan leik yrði hægt að ýta úr vör og sækja á fengsæl mið. Landi var náð en það gleymdist eitthvað. Getur það verið að stjórnendur hafi hnýtt landfestar svo laust að skútuna hafi borið frá landi? Getur verið að stjórnend- urnir hafi vegna sundrungar inn- byrðis hrundið fleyinu á flot og nái því ekki i var á nýjan leik? Getur verið að stjórnendurnir hafi verið harla glaðir með það að ná landi og ekki sinnt því kalli háset- anna að að nýju yrði ýtt úr vör og leitað á ný mið sem gæfu þann afla sem þyrfti til þess að búsifj- um yrði forðað? Nú er því þannig varið að flestir eru reiðubúnir til þess að leggja hart að sér ef stefnt er markvisst að ákveðnu takmarki. Þegar því er náð þarf að setja ný markmið. Markmið sem sýna að baráttan var ekki háð til einskis heldur til þess að ná fótfestu svo að áfram megi halda í framfarasókn. Þegar greitt var um það atkvæði á flokksráðsfundi í fyrra hvort þingflokki okkar skyldi heimilað að ganga til stjórnarsamstarfs við Framsóknarflokkinn greiddi ég atkvæði gegn því. Vegna þess að ég taldi og tel að með Framsókn- arflokknum sé e.t.v. hægt að ná tímabundnum árangri en aldrei árangri til frambúðar. Framsóknarflokkurinn nærist á og er svo bundinn þeim sérhags- munum sem að minu viti eru hindrun á veginum til frjálsara þjóðlífs og nýsköpunar íslenskra atvinnumála að fyrr frekar en síð- ar hlaut að koma til mikilla árekstra og myndast óbrúanlegt bil milli þeirra flokka sem nú sitja í ríkisstjórn, þ.e. ef Sjálfstæðis- flokkurinn er stefnu sinni trúr. Árangur náðist vegna fórna launafólks í landinu. Þegar til átti að taka var ekki nægur skilningur fyrir hendi hjá ríkisstjórninni að það þyrfti meira til. Verðhækkan- ir á búvörum voru óheftar. Milli- liðirnir fengu sitt. Haldið er áfram að tjasla upp i óarðbæra hluti til lands og sjávar. Vanrækt var að gefa gaum að þeim vaxt- arbroddi íslensks atvinnulífs sem í bráð og lengi getur skapað vinnu- fúsum höndum arðgefandi störf. Ríkisbákninu var ekki tekið það tak sem þurfti. Opinberar þjón- ustustofnanir fengu að velta kostnaðarhækkununum óstjórnað yfir á herðar neytenda. Það er í sjálfu sér merkilegt hjá þjóð, sem á sér þá sögu að hafa lifað undir áþján einokunarversl- unar í margar aldir, þar sem skólabörnum er kennt að einokun- in hafi verið eitt mesta skaðræði sem yfir þjóðina hafi dunið, skuli að fengnu frelsi telja það hagfelld- ast að setja á stofn hverja einok- unarstofnunina á fætur annarri í innflutningsverslun, útflutnings- verslun og sem opinber þjónustu- fyrirtæki. Hér nægir að nefna al- gert einokunarkerfi á framleiðslu mikilvægustu matvæla, sem leitt hefur af sér hærra vöruverð til neytenda og í ýmsu lélegri vöru- gæði en tiðkast í allri Vestur- Evrópu. Einokun í fjölmiðlun sem veldur því nú að á því herrans ári 1984 er Rannsóknarlögreglan hlaupandi um bæinn með úrskurði um húsleitarheimild og til að gera upptæk þau tæki sem notuð eru til að koma upplýsingum á framfæri til þjóðarinnar. Ég er hræddur um að þeir ótrauðu baráttumenn frjáls og fullvalda ríkis á íslandi sem í raun lyftu því oki af þjóð- inni, sem eríend áþján olli, hafi ekki ætlað að slík yrðu örlög þjóð- arinnar — að hún lögleiddi einok- unarverslanir og sölu- og þjón- ustutakmarkanir. Nú er það svo með þá ríkisstjórn sem nú situr að ýmsir ráðherrar okkar hafa staðið sig mjög vel og komið fram góðum hlutum. En það er ekki nóg að einstakir ráð- herrar standi sig vel og geri góða hluti í sínum ráðuneytum. Það skortir þá heildarstefnu, sem er nauðsynleg og á það skortir að flokksleg forysta innan ríkis- stjórnarinnar sé tiltæk til að standa vörð um þau mál sem tengja okkur saman í einum flokki. Það gerist ekki nema þeir sem til þess eru kjörnir á landsfundi. Formaður og varaformaður sitji í ríkisstjórn, beri ábyrgð og ráði ferðinni. Annað er tímaskekkja og í andstöðu við þau úrslit sem urðu á síðasta landsfundi þ.e.a.s. ef menn ætla þessari ríkisstjórn líf- daga til loka kjörtímabilsins. Én í fullri hreinskilni sé ég ekki þessa ríkisstjórn halda velli mikið lengur ef ekki kemur til verulegra breytinga á henni vegna þess, að ríkisstjórnin er nú þessa dagana að glata trausti meirihluta þjóðar- innar og ég fæ ekki séð að að traust verði unnið aftur með óbreyttri stjórn. Það kemur ýmis- !egt til, ég nefni það helsta: Skattbyröin hefur aukist, og bitnar nú af meiri hörku en fyrr vegna kjararýrnunar. Þar brást Jón Magnússon ríkisstjórnin. Hún þyrfti að sýna sama aðhald í ríkisrekstrinum og sparnað og launþegum i landinu var gert að gera. Fyrirheit um úrbætur í húsnæð- ismálum hafa verið svikin. Greiðsludráttur á lánum til hús- byggjenda valda nú fjölmörgum einstaklingum og byggingarfyrir- tækjum ómældu tjóni. Mikilvægustu neysluvörurnar hafa hækkað allt að þrisvar sinn- um meira en laun, vegna úrelts kerfis í vinnslu og sölumálum landbúnaðarins, en á því hefur ekki verið tekið þó engum geti dul- ist að það dæmi getur ekki gengið upp. Einokunarstofnun landbúnað- arins með sölu á kartöflum gerði sig bera að þvílíku hneyksli í vor sem leið, að rökrétt hefði verið að leggja hana niður. Það var ekki gert. En þrátt fyrir þvergirðings- hátt þess ráðherra sem með þau mál fer í ríkisstjórninni tókst vegna kröfu fólksins og samstöðu þess að hnika einokunarvilja stjórnvalda. Um nokkra hríð hefur það verið ljóst að þjóðin krefst aukins frels- is í fjölmiðlum. Því hefur ekki ver- ið sinnt. En síðast en ekki sfst, það mátti öllum vera það ljóst á sl. vori að óveðursský hrönnuðust upp og þá þegar þurfti að taka á vandanum af festu, hefja viðræður við sam- tök launafólks og taka á vanda at- vinnurekstursins. En þá lögðust ráðherrarnir í ferðalög og nú stöndum við frammi fyrir því að óveðrið er skollið á. Ég tel fráleitt að halda þvi fram að þær kjaradeilur sem nú standa séu af flokkspólitískum toga spunnar. Að sjálfsögðu reynir stjórnarandstaðan að fiska í gruggugu vatni, en það hafa fleiri gert á öðrum tímum. Þessi kjara- barátta og verkföll eru fyrst og fremst vegna þess að ríkisstjórnin brást ekki við með nægjanlega skjótum hætti fyrirfram. Síðan er það að mínu mati rangt að hella olíu á eldinn með því að fara ekki að lögum og greiða út laun til opinberra starfsmanna. í öðru lagi var það rangt að fella sáttatillögu ríkissáttasemjara. í þriðja lagi er það rangt að halda því fram að forustumenn launþega stjórnist af einhverjum annarlegum hvötum en beri ekki hag sinna umbjóð- enda fyrir brjósti. Mér er ljóst að kröfugerð BSRB er með öllu óraunhæf en miðað við þá þróun sem orðin er í landinu er rangt að standa gegn eðlilegum launahækkunum til stórs hóps fé- laga í BSRB. Það vita það allir að nokkuð launaskrið hefur verið á sl. ári, sérstaklega í vor og í sumar. Verðhækkanir hafa orðið meiri en launahækkanir sem af- leiðing af því að ekki var tekið á vandræðabörnum íslensks at- vinnulífs. Fólkið krefst þess að það sitji ekki eitt uppi með óbætt tjón. Það er staðreynd þessa máls. Af þessum sökum sem ég hef nú rakið hefur ríkisstjórnin og er rík- isstjórnin að glata trausti. Og enn eitt, hvar var Sjálfstæð- isflokkurinn þegar fólkið krafðist aukins frelsis í sölumálum grænmetis? Hvar er Sjálfstæðis- flokkurinn þegar RLR ræðst til atlögu við neyðarstöðvum sem settar eru upp til upplýsingar og fréttamiðlunar. Eftir að út- varpsmenn lokuðu fjölmiðlum i landinu hófu nokkrar stöðvar út- sendingar. Stuðningsyfirlýsingar bárust hvaðanæva frá fólkinu. Gamalt fólk og sjúklingar sem höfðu margir verið algerlega sam- bandslausir fögnuðu þessu fram- taki sem og aðrir. Það kom í Ijós að gæði þessara stöðva byggðra á vanefnum voru síst lakari en ríkisfjölmiðilsins. Hvað gerðist þá? Jú, ákveðið var að ríkisfjöl- miðillinn skyldi útvarpa fréttum tvisvar á sólarhring. Hvað þýddi þessi ákvörðun í raun? Ekkert annað en viðurkenningu á því, að það væri öryggisatriði að fjölmið- ill væri starfandi. Með þessari ákvörðun var því í raun lýst yfir að það neyðarástand sem ríkti í þjóðfélaginu gerði kröfu til fjöl- miðlunar. Þá um leið var staðfest að um eðlilega og löglega starf- semi frjálsu útvarpsstöðvanna væri að ræða. En daginn eftir var tveimur af frjálsu stöðvunum lok- að með lögregluaðgerðum og þeirri þriðju í gær. Hvað gerði Sjálfstæðisflokkurinn í því? Ágætu ráðherrar, þessa starfsemi áttuð þið að standa vörð um. Það var skylda ykkar og þið gátuð það vel. Það var skylda ykkar að standa vörð um tjáningafrelsið í landinu. Ég hef bent á nokkur dæmi og fullyrði að það er og hefur verið frelsislag í þjóðfélaginu. Fólkið krefst breytinga. Afnám úrelts kerfis hafta, einokunar og tak- markana. í því efni er Sjálf- stæðisflokkurinn ekki i farar- broddi heldur aðskiljanleg áhuga- mannafélög sem hafa haft meiri áhrif til að vekja fólk til meðvit- undar um gildi frjálsara mannlífs en sá flokkur sem til þess er stofn- aður að ryðja þeim málum á braut. Séu þær þversagnir í Sjálfstæð- isflokknum að hann sé ekki fær um að halda fram og koma fram stefnumálum sínum stenst hann aldrei til langframa sem einn flokkur. Slfkt væri mikill skaði fyrir borgaraleg lýðræðisöfl í landinu. í stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokkinn eru hendur okkar bundnar að mörgu leyti, en við getum ekki haldið slfku stjórn- arsamstarfi áfram ef við um leið vegum að þeim hræringum og þeim vilja i frjálsræðisátt sem meirihluti þjóðarinnar krefst. Meirihluti, sem við sjálfstæðis- menn eigum alla möguleika á að fá til liðs við okkur ef rétt er að málum staðið. Góðir áheyrendur. Það eru engin vandamál svo erf- ið að ekki sé hægt að leysa þau. ( dag þarf að móta stefnu framtíð- arinnar. Þjóðin nærist ekki á harðlífisumræðum um efna- hagsmál ein saman. Ný markmið verður að setja. Með djörfung verður að höggva á þá Gordions- hnúta staðnaðs kerfis í stjórnun og atvinnumálum sem hamlar framþróun í landinu. Það verður að segja skilið við hugmyndir sem þær að skattgreiðendur og neyt- endur fjármagni óarðbæran at- vinnurekstur. Það verður með markvissum hætti að skera niður eyðslu ríkisins. Það verður að skapa skilyrði þess að hugmynda- ríkir, dugandi, djarfir einstakl- ingar fái eðlilegt svigrúm í þessu landi. Slíka stefnu, stefnu fram- tíðarinnar, verðum við að móta. Það gera ekki aðrir. En það er ekki nóg að móta slíka stefnu. Hún verður að komast í framkvæmd. Það verður að nýta það lag sem hverju sinni er fyrir hendi. Margt hefur verið vel gert, ým- islegt hefur farið á annan veg en við framvarðasveit þessa flokks eigum við og verðum að standa saman um og gera þá kröfu til sjálfra okkar að grjótgarðar stöðnunar verði rifnir niður en ný markmið, ný sjónarmið nái að koma þeim þjóðfélagsbreytingum í framkvæmd, að af nýju verði ýtt úr vör og að nýju verði sótt á fengsæl mið og að nýju verði skip- uð skilyrði velmegunar og vel- sældar hjá íslensku þjóðinni. Athugasemd blaðamanns: Þar sem ég er borinn þeim sök- um að hafa farið ónákvæmt með ræður Jóns Magnússonar á for- manns- og flokksráðsfundi sjálf- stæðismanna, vil ég, í tilefni af því að fyrri ræða hans hefur birst hér í heild, endurbirta frásögn mína, sem hafði ekki að geyma beinan útdrátt heldur endursögn mína á ræðu Jóns, sem ég skildi sem stjórnarandstöðu með sama hætti og þeir sem lýstu áliti sínu á henni á fundinum: „Jón Magnússon, hér- aðsdómslögmaður, kvaddi sér hljóðs og lagði út af því meginstefi að hann hefði á flokksráðsfundi vorið 1983 verið andvígur því að taka upp stjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn. Flutti Jón Magnússon stjónarandstöðuræðu og fann forystu flokksins og þó sérstaklega ráðherrum hans flest til foráttu. Taldi Jón ríkisstjórn- ina öllu trausti rúna, gagnrýndi hann sérstaklega að ráðherrar flokksins hefðu ekki staðið vörð um tjáningarfrelsi með því að koma í veg fyrir lokun frjálsu út- varpsstöðvanna. Sjálfstæðisflokk- urinn stæði ekki vörð um frelsi einstaklingsins gegn ofstjórn og áþján. Segja má að Jón Magnússon hafi verið eini ræðumaðurinn á þessum fundi sem lýsti einarðri andstöðu við ríkisstjórnina. En svo bar við að undir lok fyrri fund- ardagsins, síðdegis á laugar- deginum, eftir að margir ræðu- menn höfðu gagnrýnt Jón og mál- flutning hans, að hann stóð upp að nýju og breytti töluvert um tón- tegund þegar hann sagði, að hann vildi ekki rjúfa stjónarsamstarfið núna strax, hins vegar bæri að huga að þvi hvort ekki væri rétt að efna til kosninga eftir eitt til eitt og hálft ár, en þangað til bæri að standa að stjórninni áfram. Þess- ari ræðu sinni lauk Jón Magnús- son með því að hvetja fundarmenn til þess að standa við bakið á „okkar fólki" eins og hann orðaði það, en hann vildi minna forystu- mennina á að það væri betra að láta hugsjónir ráða en ráðherra- stólana." Eins og menn sjá segi ég hvergi að Jón Magnússon hafi „dregið ummæli til baka“ í seinni ræðu sinni heldur að hann hafi „breytt töluvert um tóntegund" sem er sannleikanum samkvæmt. Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.