Morgunblaðið - 30.10.1984, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1984
37
Félag Nýalssinna:
Fjarhrifafyrirbæri og hvernig
þau tengjast almennum vísindum
FUNDUR um fjarhrifafyrirbsri —
og hvernig þau tengjast almennum
vísindum var haldinn hjá Félagi ný-
alssinna þ. 8. sept. á Álfhólsvegi 121.
Gestir fundarins voru sex fræði-
menn í raungreinum, og héldu þeir
Þór Jakobsson veðurfrsóingur og
Þorsteinn Þorsteinsson lífefnafræó-
ingur inngangserindi, en síöan hóf-
ust umrsður.
Þorsteinn Þorsteinsson nefndi
upphaf lífsins á jörðunni sem hugs-
anlega eða líklega röksemd fyrir
fjarhrifum — því ógerningur er að
leiða hin fyrstu stig lífsins (eggja-
hvítuefni, kjarnasýrur) sjálfkrafa af
þeim efnisþáttum, sem áður voru.
Hann og Guðmundur Eggertsson
erfðafrsðingur minntust einnig á þá
tilgátu sumra vísindamanna, að íbú-
ar annarra stjarna hefðu á einhvern
hátt getað beint hingað lífsfrjóum
(„directed panspermia hypothesis**)
í öndverðu.
Sveinbjörn Björnsson jarðeðlis-
frsðingur tók fram, að með hinni
bsttu stjarnfrsðiaðstöðu úr geim-
förum muni á nsstu árum mega
skera úr því, hverjar af nsstu sól-
stjörnum geimsins hafa með sér
reikistjörnur. Fundarmenn tóku
undir það, að slík vitneskja gsti orð-
ið þýðingarmikil.
Að mestu snerust umræður þó
um fjarhrif, raunveruleika þeirra
og skýringar á þeim. Guðmundur
Eggertsson sagði: „Ég virði atvik-
ið, athugunina, observationina,
enda þótt ég geti ekki gefið full-
nægjandi skýringar á því, hvernig
þetta gerist," og „við getum ekki
látið eins og ekkert hafi gerzt.“
Sveinbjörn Björnsson tók líka af-
stöðu. Það væri meir út frá al-
mennri skynsemi og mannþekk-
ingu sem hann bæri ekki brigður á
slík fyrirbæri en af því að hann
sæi rök fyrir þeim í fræðikenning-
um og mælanleika. — Ævar Jó-
hannesson benti á, að þar sem um
er að ræða hin „fýsisku" miðlafyr-
irbæri (hlutaflutningar, hreyfifyr-
irbæri, málmbeygingar) megi vel
koma við mælitækni hinna al-
mennu vísinda. Þorsteinn Vil-
hjálmsson lét í ljósi, að enda þótt
ýmsar markverðar upplýsingar
komi stundum fram hjá miðlum,
mætti skýra það með fjarhrifum
frá viðstöddum, og þyrftu slíkar
upplýsingar ekki að stafa frá
Fjögurra ára barn kom
að móður sinni látinni
Stokkhólmi, 24. oktober. AP.
FJÖGURRA ára gamalt stúlkubarn
kom í gsrmorgun að móður sinni
látinni og hafði konan, sem var 28
ára gömul, verið myrt heima hjá
þeim msðgum, að því er lögreglan
sagði í dag. Þegar telpan komst ekki
út um aðaldyrnar á íbúðinni, af því
að þsr voru Isstar, lét hún sig síga
niður úr glugga og notaði plastpoka-
lengju sem haldreipi.
Stúlkan sagði lögreglunni að
móðir hennar hefði fengið gest á
manudagskvöld. Hefði hún heyrt
hávært tal eftir að hún fór að
hátta, en sofnað siðan.
Morguninn eftir fann stúlkan
móður sína „sofandi á svo undar-
legan hátt“ á gólfinu í stofunni.
Þegar henni tókst ekki að vekja
hana reyndi hún að komast út, en
þá voru dyrnar læstar.
En litla telpan var ekki ráða-
laus. Hún notaði plastplokalengju
í reipis stað og lét sig síga um 5
metra niður í húsagarð. Þegar hún
var komin langleiðina niður slitn-
aði „reipið" og hún meiddi sig lít-
ils háttar. Þá kallaði hún á ná-
grannana sér til hjálpar^
Einn maður hefur verið hneppt-,
ur I gæsluvarðhald vegna máls
þessa.
framlífi eins og spíritistar (og
nýalssinnar b.v.) hafa talið.
Allir þessir gestir fundarins,
starfsmenn og kennarar í raunvís-
indum, lýstu áhuga sínum eða við-
urkenningu á hinum umræddu
fyrirbærum, en gengu misjafnlega
langt í að telja þau skýranleg að
svo stöddu. En Þorsteinn Þor-
steinsson sagði í sínu erindi frá
bók eftir Zukav, mikinn eðlisfræð-
ing („The Dancing of the Wu Lee
Masters“), sem leiðir möguleika
fjarhrifanna beint út frá eðlis-
fræðirökum, og telur Zukav að
þróunin sé svo ör í þessa átt, að á
næstunni megi búast við því, að
eðlisfræðingar verði farnir að tala
um fjarhrifin — hvort sem þeim
er það ljúft eða leitt. Þróun fræð-
anna muni knýja þá beinlínis til
þess.
Nokkrir nýalssinnar tóku til
máls og minnti Þorsteinn Guð-
jónsson á þau orð Aristótelesar,
að frumspekin væri „vísindin um
það sem er“ og í þeim skilningi
mætti vel kalla nýalssinna frum-
spekinga. Ræðumenn nýalssinna
tóku allir þá frumspekilegu af-
stöðu, að skýra frá staðreyndum
sem fyrir liggja, úr eigin reynslu
og annarra, og héldu þannig fjar-
hrifunum fram á persónulegan
hátt. — Nýalssinnar telja, að það
sé síðan hlutverk hinna einstöku
vísindagreina að laga sig eftir
staðreyndunum.
Fundurinn stóð um2D klukku-
tíma.
(Fréttatilkjnning frá Félagi nýalninna.)
i.‘GAfu fJD
ÞESSI Sigmund-teikning birtist hér í Dagbókinni á laugardaginn, en
textinn með henni féll þá niður, en hann er svohljóðandi:
Hverskonar skepnuskapur er þetta. — Eigum við bara ekki að fá túskilding
fyrir að koma þjóðinni á hausinn?
Greifinn af Kaos
Ný ljóðabók
eftir Stefán Snævarr
STEFÁN Snævarr hefur nýlega
sent frá sér ljóðabókina Greif-
inn af Kaos. Þetta er þriðja
Ijóðabók Stefáns en áður hafa
komið út Limbórokk árið 1973
og Sjálfssalinn árið 1981. Árið
1983 gaf Stefán út ritaskrá
ásamt Gunnari Harðarsyni, sem
nefnist Heimspekirit á íslandi
fram til 1900.
Gríllofn og brauðríst
frá General Electríc USA
Afar hentugt og notadrjúgt tækí sem
ættí a6 vera til í hverju eidhúsí
HEIMILIS- 0G RAFTÆKJADEILD
IhIhekiahf ,
|^__gjLAUGAVEGI170-172 SIMAR 11687 ■ 21240 VCrO kf
. 2.749.
_
1007. MEIRI LÝSING
OSRAM HALOGEN perur lýsa 100/ meira en
venjulegar perur og endast tvöfalt lengur.
OSRAM fæst hjá
HINN VELUPPLÝSTI MAÐUR
ER MEÐ PERUNAÍ LAGI
OSRAM