Morgunblaðið - 02.11.1984, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984
Stjömubíó:
„Moskva við Hudsonfljót“
STJÖRNUBÍÓ hefur frumsýnt
kvikmyndina „Moskva við Hud-
son-fljót“, en það er nýjasta kvik-
mynd framleiöandans og leikstjór-
ans Paui Mazurskys. Hann hefur áð-
ur gert myndirnar An Unmarried
Woman, Harry & Tonti og Bob &
Carol, Ted & Alice.
Myndin fjallar um ungan rússn-
eskan saxófónleikara i fjölleika-
húsi, sem fer i sýningarferðalag
um Bandaríkin. Hann leggur leið
sína í bandaríska stórverslun og
fer þá atburðarásin að ganga
hratt fyrir sig. Upphaflega ætlaði
hann aðeins að kaupa gallabuxur
en þegar hann yfirgefur verslun-
ina hefur hann eignast kærustu,
kynnst kolgeggjuðum kúbönskum
lögfræðingi og lífstíðar vini.
Myndin er af aðalleikurunum
Robin Williams og Mariu Conch-
ita Alonson.
Biblíuhátíð í Reykja-
víkurprófastsdæmi
A SUNNUDAGINN kemur, þann 4.
nóvember, efnir Reykjavíkurpró-
fastsdæmi til sérstakrar hátíðar á
biblíu-árinu, sem nú er notað til þess
að minna á Biblíuna, sögu hennar og
boðskap. Er tilefnið vitanlega 400
ára afmæli Guðbrands-Biblíu, en
hún kom út 1584.
Verður annars vegar samkoma
kl. 16 í Langholtskirkju hinni nýju
og hins vegar sýning á öllum út-
gáfum Biblíunnar í safnaðarsölum
á eftir. Eru þarna komnar útgáfur
þær, sem þeir prestahöfðingjarnir
séra Sigurður Pálsson, vígslubisk-
up og séra Eiríkur J. Eiríksson,
prófastur, hafa safnað. Mun
Steingrímur Jónsson, bókavörður,
kvnna þessa fágætu sýningu, en
auk þess verður Hið íslenzka bibl-
íufélag með kynningu á nýjum út-
gáfum Biblíunnar.
Kvennalistinn:
Á samkomunni flytja þeir ávörp
biskupinn yfir íslandi, herra Pét-
ur Sigurgeirsson, og séra ólafur
Skúlason, dómprófastur, en ræðu-
maður verður dr. Björn Bjömsson,
prófessor, sem talar um Biblíuna
og siðfræðina. En frú Guðrún
Ásmundsdóttir les valda kafla úr
Biblíunni, frú Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir, óperusöngkona, syngur
við undirleik Jóns Stefánssonar,
sem einnig leiðir annan söng.
Ungt fólk flytur helgileik og guð-
fræðinemar flytja fornan tíða-
söng.
Allir eru hjartanlega velkomnir
til þessarar hátíðar í Langholts-
kirkju á ári Biblíunnar, en for-
maður undirbúningsnefndarinnar
var séra Halldór S. Gröndal.
(Frá dómprófasti.)
Tillaga um frystingu
kjarnorkuvopna
ÞINGMENN Kvennalista hafa lagt
fram tillögu til þingsályktunar um
frystingu kjarnorkuvopna. Fyrsti
flutningsmaður er Guðrún Agnars-
dóttir, en í framsöguræðu sagði hún
að nauðsynlegt væri að vilji Alþing-
is lægi fyrir þegar utanríkisráð-
herra tekur ákvarðanir á alþjóða-
vettvangi og vitnaði til þess þegar
ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um
. 1 tillögu Svíþjóðar, Mexíkó og fleiri
ríkja á vettvangi Sameinuðu þjóð-
Vörður varar
við stjórnleysi
og lögleysu
MORGUNBLAÐINU hefur borist
svohljóðandi ályktun frá Landsmála-
félaginu Verði:
Fundur haldinn í Landsmálafé-
laginu „Verði“ 30. október 1984
varar alvarlega við því stjórnleysi
og lögleysu, sem um of hefur við-
gengist í yfirstandandi verkfalli
opinberra starfsmanna, og telur
að með slíku háttalagi sé svo
gróflega vegið að undirstöðum
réttarfars í landinu, að ekki verði
við unað. Fundurinn telur sjálf-
■ sagt og eðlilegt, að lögum sé fram-
fylgt í hvívetna án tillits til hverj-
ir eigi hlut að máli.
anna, um frystingu kjarnorku-
vopna.
I tillögu Kvennalistans er skor-
að á ríkisstjórnina að beita sér
fyrir því á alþjóðavettvangi að
Sovétríkin og Bandaríkin lýsi yfir
tafarlausri frystingu kjarnorku-
vopna. Breytingartillaga frá
þingmönnum Alþýðubandalags
hefur verið lögð fram og er þar
lagt til að fulltrúar Islands á al-
þjóðavettvangi lýsi yfir eindregn-
um stuðningi við ýmsar aðgerðir í
afvopnunarmálum, s.s. að kjarn-
orkuveldin skuldbindi sig til að
beita ekki kjarnorkuvopnum að
fyrra bragði, vopn í himingeimn-
um verði bönnuð, Norðurlönd
verði kjarnorkuvopnalaust svæði
o.n.
í umræðum um tillögurnar síð-
astliðinn fimmtudag sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra,
að frysting kjarnavopna væri
ekki nóg heldur þyrftu menn að
komast að samkomulagi um af-
vopnun, en Atlantshafsbanda-
lagið hefur gert Varsjárbanda-
laginu tilboð um að öll
kjarnorkuvopn í Evrópu verði
tekin niður. Þá benti utnaríkis-
ráðherra á nauðsyn þess að huga
einnig að minnkun hins hefð-
bundna vopnabúnaðar.
Utanríkisnefnd Alþingis mun
fjalla um tillögurnar.
Sjálfstæðisflokkurinn á Austurlandi ályktar:
Framkvæmdir við Fljóts-
dalsvirkjun verði boðnar
út haustið 1985
^ilsstöAum, 31. oltlóber.
HINN 29. september sl. var aðal-
fundur kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi haldinn í
Valaskjálf á Egilsstöðum. Fundinn
sátu fjölmargir fulltrúar víðsvegar af
Austurlandi auk þingmannanna Eg-
ils Jónssonar og Sverris Hermanns-
sonar, iðnaðarráöherra. Hér á eftir
fer útdráttur úr stjórnmálaályktun
aðalfundarins.
„Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Austur-
landi lýsir yfir fyllsta stuðningi
sínum við núverandi ríkisstjórn.
Sérstaklega fagnar fundurinn
þeim árangri sem náðst hefur í
baráttunni við verðbólguna. Fund-
urinn vill þó benda á þann háska
sem nú steðjar að í sjávarútvegi,
sem er undirstöðuatvinnuvegur
Austfirðinga. Fundurinn leggur
áherslu á að þar verði brugðið við
hart svo að næg atvinna haldist í
kjördæminu og komist verði hjá
flótta fólks í aðra landshluta.
Jafnframt því sem undirstöðuat-
vinnuvegir verða treystir verði
leitað nýrra atvinnutækifæra svo
að byggðir víðs vegar um land
megi dafna. í því sambandi er lögð
áhersla á það að hraðað verði
byggingu kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði og hefjist framkvæmdir
við hana eigi síðar en á fyrri hluta
næsta árs og framkvæmdir við
Fljótsdalsvirkjun verði boðnar út
haustið 1985.
Aðalfundur kjördæmisráðsins
fagnar þeim árangri sem náðst
hefur í samningaviöræðum við
Alusuisse og þakkar iðnaðarráð-
herra giftudrjúga forystu í þeim
málum.
Fundurinn bendir sérstaklega á
þann árangur sem náðst hefur í
Uppselt í
ferðina á lands-
leikinn í Wales
FLUGLEIÐIR auglýstu nýlega viku-
ferð til London, en innifalið var ferð
til Cardiff í Wales, þar sem mönnum
Íafst kostur á að sjá landsleik milli
slendinga og Walesbúa. Um 100
sæti voru boðin til fararinnar. öll
sætin voru uppseld síðastliðinn
mánudag.
Þegar er ljóst var hve eftirspurn
var mikil var ákveðið að fara
aukaferð í sama tilgangi og voru
50 sæti í boði. öll þau sæti eru nú
upppöntuð, en óljóst mun enn
vera, hvort af aukaferðinni getur
orðið, þar sem eftir er að tryggja
mönnum hótelaðstöðu í London.
^NNLENT
Mbl./Ölafur.
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi var haldinn í
Valaskjálf á Egilsstöðum hinn 29. september sl. Um kvöldið var þar efnt til
veglegs mannfagnaðar, sem 160 manns sátu víðs vegar úr fjórðungi. Heiö-
ursgestir samkomunnar voru Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, og
kona hans, frú Brynhildur Jóhannsdóttir.
verðlagsmálum hvað tekur til
þjónustu Pósts og síma og raf-
orkuverðs, þar sem gjaldskrár
hafa ekki hækkað í heilt ár. Hins
vegar bendir fundurinn á að ekki
hefur enn náðst tilskilinn árangur
í jöfnun orkuverðs til húshitunar.
Fundurinn fagnar því sérstak-
lega að Sjálfstæðisflokkurinn
skuli nú hafa tekið við forræði 1
mennta- og menningarmálum
þjóðarinnar eftir hartnær 30 ára
hlé, og væntir mikils af störfum
núverandi menntamálaráðherra.
Fundurinn telur að endurskoða
þurfi grunnskólalög og endurskoð-
un þeirra sé jafnvel forsenda þess
að markmiðum þeirra verði náð.
Hverfa verður frá röðun nemenda
í námshópa eftir fæðingardegi og
ári, en raða nemendum þess i stað
í námshópa eftir hæfni þeirra,
áhuga og starfsgetu.
Fundurinn leggur áherslu á
mikilvægi mynd- og handmennta-
kennslu í grunnskólum, tón-
menntakennslu og kennslu hvers
konar verkmenntagreina í stað
þeirrar mötunar sem oft hefur
viljað bregða við og stundum
keyrt úr hófi.
Fundurinn vekur athygli á því
að öflugt æskulýðs- og tómstunda-
starf er grundvöllur þroska æsk-
unnar í landinu og því leggur
fundurinn áherslu á aðhlynningu
hverrar þeirrar viðleitni sem eflir
þau markmið.
Fundurinn minnir á skýrt
markaða stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins í Vegamálum og leggur áherslu
á það að hlutur Austurlands verði
bættur frá því sem verið hefur við
endurskoðun vegaáætlunar.
Fundurinn fagnar frumkvæði
núverandi samgönguráðherra um
áætlanagerð varðandi skipulega
uppbyggingu flugsamgangna, en
þar er tilgreind endurbygging Eg-
ilsstaðaflugvallar sem forgangs-
verkefni.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins á Austurlandi var
endurkjörin á aðalfundinum, en
hana skipa: Albert Kemp, Fá-
skrúðsfirði, formaður; Ragnar
Steinarsson, Egilsstöðum; Brynjar
Júlíusson, Neskaupstað; Unn-
steinn Guðmundsson, Höfn; Alex-
ander Árnason, Vopnafirði.
Ólafur.
Athugasemd
í FRÉTT sem birtist í Morgun-
blaðinu 29. okt., um umræður á
„fundi um fyrirbæri", hjá nýals-
sinnum, var sagt að einn fræði-
mannanna hefði vitnað í bók eftir
G. Zukav, „mikinn eðlisfræðing".
Hið rétta er að Zukav er rithöf-
undur um eðlisfræðileg efni, en
heimsfrægir eðlisfræðingar fóru
yfir handritið að bók hans The
Dancing Wu Li Masters (Hinir
dansandi Vú Lí meistarar), áður
en hún var birt.
Þetta leiðréttist hér með.
Þorsteinn Guðjónsson.
Hljómleikar í
Nýlistasafninu
LAUGARDAGINN 3. nóvember
verður hátíð í Nýlistasafninu. In-
ferno 5 heldur sína fyrstu opin-
beru hljómleika og einnig munu
koma fram og leika Hið afleita
þríhjól. Inferno 5 skipa fimm
kornungir menn um og innan tví-
tugs.
Húsið opnar kl. 21.30, en hljóm-
listin hefst upp úr kl. 22.
Rétturinn er
útvarpsins
ekki ríkisins
Sjávarútvegsráðuneytið:
Kannar viðbrögð og
reynslu af kvótakerfinu
NÚ STTENDUR yfir könnun sjávar
útvegsráðuneytisins á viðhorfum og
reynslu útgerðarmanna og skip-
stjórnarmanna af kvótakerfinu. Er
könnun þessi liður í heildarmati á
reynslunni af kerfinu.
I frétt frá ráðuneytinu segir, að
öllum útgerðarfyrirtækjum á
landinu, sem eigi skip er úthlutað
hafi verið kvóta, hafi verið sendar
tvær spurningaskrár, önnur ætluð
útgerðarmanni, hin stjórnar-
mönnum viðkomandi skips. Upp-
haflegi skilafresturinn í könnun
þessari var 8. október síðastliðinn,
en vegna verkfalla hefur hann
verið framlengdur til 8. nóvember
næstkomandi. Ráðuneytið hvetur
alla þá, sem enn hafa ekki svarað i
könnuninni, að gera það hið fyrsta
og senda svörin til ráðuneytisins.
VEGNA frétta í blöðum og útvarpi
nýlega um að hjá menntamálaráð-
herra vsru til umfjöllunar umsóknir
ýmissa aðila um leyfi til útvarps-
rekstrar vill menntamálaráðuneytið
taka fram:
Samkvæmt núgildandi út-
varpslögum nr. 19/1971 hefur
Ríkisútvarpið einkarétt til út-
varps á íslandi. Sá réttur var í
höndum ríkisstjórnar samkvæmt
eldri lögum. Ráðherra skortir því
lagaheimild nú til að veita undan-
þágu til útvarpsrekstrar. Þess
vegna hefur ráðherra ekki fallist á
umsóknirnar. Öllum umsóknum
sem ráðuneytinu hafa borist um
leyfi til rekstrar útvarps hefur
verið vísað til Rikisútvarpsins til
afgreiðslu.