Morgunblaðið - 02.11.1984, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1984
61
Brassar ekki
til Englands
Frá Bob Honrwuy, fréttamanni
Morgunblaðsim í Englandi.
• Fyrirhugað var aö Engiend-
ingar léku landsleik í knatt-
spyrnu viö Brasilíumenn á
Wembley-leikvanginum i marz
næstkomandi, og var raunar
búiö aö semja um þaö — en nú
er Ijóst aö ekkert verður af
leiknum.
í staö þess munu Englend-
ingar mæta írum — írska lýö-
veldinu — á Wembley 26. marz <
í vináttuleik. Liöin mættust síö-
ast á Wembley í febrúar 1980
og þá sigruöu Englendingar
2:0. Kevin Keegan geröi þá
bæöi mörk þeirra.
• Graham Taylor, fram-
kvæmdastjóri Watford, reyndi i
vikunni að fá Steve Perryman,
fyrirliöa Tottenham, til liðsins.
„Hann er sá leikmaöur sem mig
vantar til aö binda liö mitt sam-
an. Viö þörfnumst reynslu
hans," sagöi Taylor. Peter
Shreeves, framkvæmdastjóri
Spurs, var ekki lengi aö ákveöa
sig. „Nei," sagöi hann einfald-
lega. „Þaö kemur ekki til greina
aö selja Perryman. Hann hefur
sjaldan leikið betur en nú.“
Perryman veröur 33 ára í des-
ember.
• Stan Cummins er kominn til
Sunderland á ný. Félagiö seldi
hann til Crystal Palace í fyrra
— en kappinn kunni engan
veginn viö sig í London; og Pal-
ace seldi hann aftur á dögun-
um.
félegt fés
u
á laugardagskvöldum kl. 23- í
AUSTURBÆJARBÍÓI
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR
Markvarðameiðsli hjá Arsenal:
Óvíst hver stendur
í markinu í kvöld
Fré Bob Honnouy, tréttamonni Morgunbtoboino I Englondi.
ÓVÍST er hver leikur í marki Ars-
enal í deildarleiknum gegn
Mancheater United é Old Traft-
ord í kvöld. Báöir markveróir liös-
ins, Pat Jennings og John Lukic,
eru meiddir en feröuöust báðir
meö liðinu til Manchester í gasr.
Frá því hefur nú veriö skýrt aö
Jennings hafi veriö meiddur á
handlegg í leiknum gegn Oxford í
mjólkurbikarkeppninni í fyrrakvöld
— en hann fékk á sig tvö klaufa-
mörk í þeim leik. Sagt var aö hann
heföi alls ekki leikiö þá nema
vegna þess aö Lukic átti einnig viö
meiösli aö stríöa.
Rhys Wilmot, þriöji markvöröur
Arsenal, er í láni hjá Orient um
þessar mundir þannig aö ekki er
hægt aö grípa til hans fyrir leikinn i
kvöld.
Aöalfundur Hauka
ADALFUNDUR Knattspyrnufé-
lagsíns Hauka í Hafnarfiröi veröur
haldinn í félagsheimili Hauka 8.
nóvember kl. 20.30.
Góður árangur Lilju
í 5 km hlaupi kvenna
„Ég er ánægó meö þetta hlaup,
hef aldrei hlaupiö 5.000 metra á
braut áöur, svo þetta var hálfgerð
feró út í óvissuna," sagöi Lilja
Guömundsdóttir, hlaupakona úr
ÍR, sem dvelst í Svíþjóö, en hún
setti nýveriö íslandsmet í 5.000
metra hlaupi kvenna er hún hljóp
á 16:36,98 mínútum.
Hlaupið var liöur í sænska
meistaramótinu og var háö á
frjálsíþróttaleikvanginum fræga,
Stadion, í Stokkhólmi. Varö Lilja
þriöja í hlaupinu og hlaut því SM-
bronz, eins og sænskir kalla þaö.
Sigraöi stúlka aö nafni Evy Palm
frá Lidköping á 16:08,13 og önnur
varö Stokkhólmsstúlkan Jeanette
Nordgren á 16:20,05. Fimm stúlkur
hlupu undir 17 mínútum og 20
tóku þátt í hlaupinu.
Daginn eftir vann Lilja sigur í 10
kílómetra skógar- og götuhlaupi,
Östmilen, sem háö var í nágrenni
Norrköping, þar sem hún er bú-
sett. Hljóp Lilja vegalengdina á
35:56 mínútum og vann yfirburöa-
sigur, því næsta stúlka hljóp á
38:19.
Auk þessa hljóp Lilja þrjú skóg-
arhlaup síösumars og í haust og
vann sigur í |jeim öllum. Þá keppti
hún í hálfu maraþonhlaupi í Alt-
endorn i V-Þýzkalandi 2. septem-
ber sl. og varö þriöja á 1:30,56,
sem er bezti árangur íslenzkrar
konu á þeirri vegalengd, eftir því
sem best verður vitaö.
„Þetta var erfitt hlaup, langar
strembnar brekkur á leiðinni, en
leiðin var skemmtileg aö ööru leyti,
hlaupiö kringum stórt vatn," sagöi
Lilja í samtali viö Morgunblaöiö.
• Lilja Guömundsdóttir
Ásgeir ekki til Wales
— öll von úti um að fá hann — Óvíst um hina í Þýskalandi
NÚ ER endanlega Ijóst aö Ásgeir
Sigurvinsson leikur ekki meö ís-
lenska landslióinu gegn Wales i
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu i Cardiff þann 14. þessa
mánaöar. Ásgeir er að leika meö
Stuttgart sama kvöld í 1. deild-
inni þýsku, og tilraunir forráóa-
manna KSÍ til að fá hann lausan
þrátt fyrir þaö hafa engan árang-
ur boriö.
Enn er ekki Ijóst hvort Atll Eö-
valdsson og Magnús Bergs geta
leikið meö landsliöinu gegn Wales
— ekki hafa borist svör frá félög-
um þeirra hvort þeir fái frí i lands-
leikinn, þar sem Dusseldorf og
Braunschweig eru einnig aö leika í
deildinni — og liö Janusar Guö-
laugssonar er aö leika í 2. deild-
inni.
„Þaö er ekki Ijóst hvort Fortuna
vill sleppa mér í leikinn — viö erum
aö spila sama kvöld gegn Frank-
furt hér heima," sagði Atli Eö-
valdsson er Mbl. spjallaöi viö hann
í gær.
„KSÍ verður að
fara í hart“
„Mín skoöun er sú aö KSf veröi
aö fara i hart í þessu máli. Veröi aö
heimta þaö af þýska knattspyrnu-
sambandinu aö félögin sleppi leik-
mönnum sínum i landsleiki," sagöi
Atli.
„Þaö geröist á dögunum aö
sænska knattspyrnusambandiö
fór fram á aö Hans Holmquist, einn
leikmanna okkar hér hjá Diissel-
dorf, kæmi i landsleik og þó aö
forráöamenn liösins væru óhressir
með framvindu mála fór Hans i
leikinn, þar sem Dusseldorf heföi
annars þurft aö greiöa skaöabæt-
ur. Sænska sambandið hótaöi aö
aö fara til þjálfara og stjórnar-
manna hér og fara fram á það aö
fá aö fara i landsleikinn — útskýra
okkar sjónarmið. Þaö er þvi betra
aö komast eftir því sem fleiri af
íslensku leikmönnunum hér i
Þýskalandi fá aö fara — og þess
vegna er þaö mín skoðun aö KSÍ
veröi aö beita hörku í þessu máli,"
sagöi Atli Eövaldsson.
Þess má geta aö allir íslensku
atvinnumennirnir í Vestur-Þýska-
landi nema Asgeir Sigurvinsson
hafa klásúlu í sínum samningum
um aö félagiö veröi aö sleppa þeim
í landsleiki ef þeir óska þess.
• Atli Eövaldason
fara í mál viö Dusseldorf ef hann
kæmi ekki sex dögum fyrir leik —
eins og stendur í samningi hans
viö liðiö aö hann veröi aö gera, ef
þjálfari sænska liösins vilji fá hann.
Sænska landsliöiö var aö leika á
miövikudegi; viö áttum deildarleik
á laugardegi og Hans fór á föstu-
dagskvöldi. Daginn fyrir deildar-
leikinn!
Ég hef í mínum samningi aö
Dússeldorf veröi aö sleppa mér í
landsleiki ef KSl óskar eftir því —
en þaö er vitaö mál aö menn hér
veröa mjög fúlir ef ég fer. Þaö er
mjög erfitt fyrir okkur leikmennina