Morgunblaðið - 04.11.1984, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Kosningar
í Bandaríkjunum
á þriðjudag
HtíU húsiA í WaMhinglon, bústaður
forseta.
RonaM Reagan og George Bush.
Walter Mondale og Geraldine Ferraro.
Forsetakosningar.
Samkvæmt bandarísku
stjórnarskránni frá árinu
1787 skal efna til þing-
kosninga þar í landi ann-
að hvert ár og til forseta-
kosninga fjórða hvert ár.
Á fjögurra ára fresti fara
þessar tvennar kosningar
saman og þannig háttar
að þessu sinni.
Kosningadagurinn er
ákveðinn í lögum
„fyrsti þriðjudagur
eftir fyrsta mánu-
dag í nóvember" og
ganga því banda-
rískir kjósendur að
kjörborðinu nú á þriðjudag, 6. nóv-
ember.
Það eru kosningar forseta og vara-
forseta Bandaríkjanna, sem vekja án
efa mesta athygli, enda er forseti
Bandaríkjanna hverju sinni einn af
áhrifamestu mönnum á sviði alþjóða-
mála, ef ekki sá áhrifamesti. Þegar þau
rniklu áhrif eru höfð í huga má undar-
legt teljast hve lítil kosningaþátttaka
getur verið þar vestra. Sem dæmi má
nefna, að þegar Ronald Reagan var
kjörinn forseti fyrir fjórum árum,
greiddu aðeins 53,9% atkvæðabærra
manna atkvæði, með öðrum orðum,
nærri annar hver kjósandi sat heima.
1 forsetakosningunum eru forseta-
efnin sjálf ekki beinlínis I kjöri heldur
kjörmenn þeirra, sem eru alls 538. Til
að sigra þarf forsetaframbjóðandi að fá
meirihluta kjörmanna kosna, eða að
minnsta kosti 270. 1 hverju ríki eru
kosnir jafn margir kjörmenn og þing-
menn þess eru í báðum deildum banda-
ríska þingsins, eða frá þremur (i Al-
aska, Delaware, N-Dakota, S-Dakota,
Vermont og Wyoming) upp í 47 (Kali-
forníu). Auk þess eru kosnir þrír kjör-
menn fyrir höfuðborgarsvæðið, Dis-
trict of Columbia, sem enga fulltrúa
hefur á þingi.
Sá frambjóðandi, sem flest atkvæði
fær í hverju ríki, hlýtur alla kjörmenn
þess. Þar sem kjörmennirnir eru
bundnir forsetaframbjóðendunum, er
strax að talningu lokinni ljóst hver
verður forseti Bandaríkjanna næstu
fjögur árin. Eftirleikurinn er því aðeins
formsatriði í samræmi við stjórnar-
skrána og felst í því að kjörmennirnir
koma saman 17. desember hverjir í
sínu ríki og greiða atkvæði sin form-
lega. Atkvæðin eru svo innsigluð og
send forseta Öldungadeildar þingsins í
Washington. Atkvæði kjörmannanna
eru loks talin í þinginu 6. janúar að
viðstöddum þingmönnum beggja þing-
deilda, og hálfum mánuði síðar, 20.
janúar, sver nýkjörinn forseti embætt-
iseið sinn við hátíðlega athöfn.
Þar sem fjöldi kjörmanna en ekki
heildaratkvæðamagn ræður kjöri for-
seta, er fræðilegur möguleiki fyrir því
að frambjóðandi verði kjörinn þótt
hann hljóti færri atkvæði en mót-
frambjóðandinn. Þetta hefur þó ekki
gerzt síðan árið 1888. Þá var Benjamin
Harrison kjörinn forseti með 5.444.337
atkvæðum, en Grover Cleveland féll,
þótt hann hlyti 5.540.050 atkvæði. Það
réð þá úrslitum, að Harrison hlaut 233
kjörmenn kosna, en Cleveland 168. 1
næstu forsetakosningum, árið 1892,
áttust þessir tveir menn við á ný og
náði þá Cleveland kjöri, hlaut bæði
meirihluta atkvæða og kjörmanna.
Stundum hefur verið lítill munur á
atkvæðamagni frambjóðenda, eins og
til dæmis í kosningunum 1960, þegar
þeir kepptu um embættið John F.
Kennedy og Richard M. Nixon. Kenn-
edy var þá kjörinn, sem kunnugt er, en
hann hlaut 34.227.0% atkvæði og 303
kjörmenn, en Nixon 34.108.546 atkvæði
og 219 kjörmenn. Nixon kom svo á ný
við sögu átta árum síðar, þegar hann
var fyrst kjörinn forseti í sögulegum
kosningum. Þá var Hubert H. Humph-
rey forsetaefni demókrata, en annar
demókrati, George C. Wallace, fyrrum
ríkisstjóri i Alabama, stofnaði nýjan
flokk og bauð sig einnig fram. (Jrslit
urðu þau að Nixon sigraði með
31.785.480 atkvæðum og hlaut 301 kjör-
mann. Humphrey hlaut 31.275.166 at-
kvæði og 191 kjörmann, en Wallace
9.906.473 atkvæði og 46 kjörmenn.
Línurnar voru skýrari 1 síðustu for-
setakosningum þegar Ronald Reagan
var kjörinn forseti, þótt þá væri einnig
þriðji frambjóðandinn með í spilinu.
Frambjóðandi demókrata var þá
Jimmy Carter, fráfarandi forseti, en
John B. Anderson tók þátt í baráttunni
sem óháður frambjóðandi. Fóru leikar
svo að Reagan hlaut 43.899.248 at-
kvæði, Carter 35.481.435 atkvæði og 49
kjörmenn, en Anderson 5.719.437 at-
kvæði og engan kjörmann.
t kosningunum nú á þriðjudaginn
keppa um forsetaembættið þeir Ronald
Reagan núverandi forseti, frambjóð-
andi repúblikana, og Walter F. Mon-
dale, fyrrum varaforseti á forsetaárum
Jimmy Carters, frambjóðandi demó-
krata. Varaforsetaefni þeirra eru
George Bush, núverandi varaforseti og
Geraldine Ferraro, fulltrúadeildar-
þingmaður frá New York, fyrsta konan
sem verið hefur í framboði til þessa
næstæðsta embættis í Bandaríkjunum.
Nýjustu skoðanakannanir benda til
þess að þeir Reagan og Bush hafi
17—24 prósentustiga forskot fram yfir
mótframbjóðendurna og ættu að sigra
auðveldlega, en þau Mondale og Fer-
raro hafa síður en svo gefizt upp i bar-
áttunni. Heldur Mondale því fram, að
hann hafi enn möguleika á sigri og seg-
ir ekkert mark takandi á skoðana-
könnunum. Nokkrar sveiflur hafa verið
í niðurstöðum skoðanakannana á und-
anförnum mánuðum, og þau Mondale
og Ferraro stundum unnið talsvert á
forskot forsetans og varaforsetans, en
þó aldrei komizt upp fyrir þá.
Þeir Reagan og Mondale hafa tvíveg-
is setið saman fyrir svörum I sjónvarpi
þar sem kunnir blaðamenn lögðu fyrir
þá spurningar. í fyrri sjónvarpsþættin-
um var rætt um innanríkismál og taldi
þá meirihluti sjónvarpsáhorfenda að
Mondale hefði staðið sig betur en for-
setinn. f skoðanakönnun eftir þann
þátt kom fram, að Mondale hefði tekizt
að minnka að mun forskot forsetans, og
var því beðið með eftirvæntingu eftir
að sjá hvað gerðist í síðari þættinum,
sem fjallaði um utanríkismál. Þar var
það svo forsetinn, sem stóð sig betur,
þótt báðir hafi komið vel fyrir, og for-
skot Reagans jókst á ný.
Það vekur jafnan athygli vestra
hvaða frambjóðanda stórblöðin þar
styðja. Mörg þeirra hafa nú tekið af-
stöðu og meðal þeirra sem lýst hafa
stuðningi við Mondale eru tvö af þekkt-
ari blöðum Bandaríkjanna, Washing-
ton Post og New York Times, en bæði
þessi blöð studdu framboð Jimmy Cart-
ers fyrir fjórum árum. Meðal blaða sem
styðja framboð forsetans má hinsvegar
nefna Chicago Tribune, San Francisco
Examiner og New York Daily News.
(HeimiMir: AP, USIA o.n.)