Morgunblaðið - 06.11.1984, Page 62
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 1984
Fré Bob HwuMwy, Iréllamanni Morgun-
MaAaim f Englandi, og AP.
Á LAUGARDAG var lidíð ná-
kvæmlega eitt ár síöan áhang-
endur Everton dreiföu miöum
fyrir utan Goodison Park, leik-
vang féiagsins í Liverpooi, þar
sem þeir kröföust þess að How-
ard Kendall, framkvæmdastjöri
liösins, yröi rekinn ásamt Phil
Carter, formanni félagsins. Ever-
ton gekk ekki vel í þé daga — en
síöan hefur mikiö vatn runniö til
sjévar. Everton er nú é toppi 1.
deildarínnar — vann bikarinn í
vor og síöan Góögeröarskjöldinn
í vor, og um þessar mundir er
Kendall hetja allra Everton-
éhangenda. Liðið sigraöi Leicest-
er 3K> é heimavelli sínum é laug-
ardag og néöi efsta sætinu f
fyrsta skipti síöan í febrúar 1979.
Þé var liðiö aöeins þrjé daga í
efsta sæti — en allt útlit er fyjir
aö dvölin þar gæti orðið lengri
núl
Everton varö sjötta liöiö til aö
komast í efsta sæti 1. deildarinnar
í vetur — en þaö var ekki fyrr en í
siðari hálfleiknum aö leikmenn
liösins fóru almennilega í gang.
Vörn Leicester var gríöarlega sterk
í fyrri hálfleik — en á 55. mín. náði
Everton aö skora. Trevor Steven
var þar aö verki meö góöu skoti
sem fór i stöng og inn. Kevin
Sheedy bætti marki viö fimm min.
síöar og leikmenn Everton fengu
mörg góö tækifæri áöur en þriöja
Morgunblaöiö/Símamynd AP.
• Keith Jones (t.h.) skorar annað mark Chelsea í 6:2 sigrinum é Coventry é laugardag é „Brúnni“. Lloyd McGrath er aðeins of seinn til aö né fyrir
skotiö. Chelsea-leikmaöurinn liggjandi é vellinum er David Speedie.
Eitt ár síðan áhangendurn-
ir vildu Kendall burtu!
— nú er han'n hetja þeirra og Everton á toppi 1. deildar
markiö kom: Adrian Heath geröi
síöasta markiö tíu mín. fyrir leiks-
lok.
Howard Kendall, stjóri Everton,
var útnefndur framkvæmdastjóri
október-mánaöar af Bell’s viský-
fyrirtækinu og hlaut hann viöur-
kenningu sína fyrir leikinn á laug-
ardag — stóra viskýflösku. Áhorf-
endur: 27.784.
Peter Reid, sem leikiö hefur
frábærlega meö Everton í vetur,
sagöi eftir leikinn: „Sjálfstraust
okkar er gífurlegt eftir velgengnina
— þaö er aöalbreytingin á liöinu
síöan í fyrra."
Þrjú mörk Dixon
Kerry Dixon, markakóngur 3.
deildar í hittifyrra meö Reading, og
markakóngur 2. deildar á síðasta
keppnistímabili meö Chelsea,
skoraöi þrjú mörk gegn Coventry á
laugardag og er nú markahæstur i
1. deild meö ellefu mörk. „Ég
hlusta ekki þegar menn tala um
italíu — ég er nú markahæsti leik-
maöur í erfiöustu deildarkeppni í
veröldinni!" sagöi hann sæll og
glaöur eftir leikinn á laugardag.
Coventry komst í 2:0 meö mörk-
um Micky Gynn og Bob Latchford
— bæöi eftir undirbuning Peter
Barnes. Dixon skoraöi siöan þrjú
eins og áöur sagöi, David Speedie
geröi eitt og Keith Jones skoraöi
tvívegis. Áhorfendur á Stamford
Bridge voru 17.060.
Dalglish var með
Þrátt fyrir meiösli og hugsanleg-
an uppskurö framundan lék Kenny
Dalglish meö Liverpool í Stoke á
laugardag. 1:0-sigur meistaranna
var í minnsta lagi og segir lítiö um
gang leiksins. Liverpool sótti nær
allan tímani) en þaö var ekki fyrr
en á 86. mín. aö Ronnie Whelan
tókst aö skora sigurmarkiö. Hann
fékk sendingu frá Jan Mölby, sem
kom inn t liöiö á ný, út á hægri
kantinn — sneiddi framhjá varn-
armanni og skaut síöan bogabolta
í horniö fjær: svipaö mark og hann
geröi í úrslitaleik mjólkurbikar-
keppninnar gegn Manchester
United á Wembley fyrir tveimur ár-
um. Daninn Mölby kom inn í liöiö á
ný — búinn aö losa sig viö nokkur
kíló, og átti sinn langbesta leik síö-
an hann kom til Liverpool. John
Wark var varamaöur. Gary Gill-
espie var veikur þannig aö Lawr-
enson lék aö nýju í vörninni og á
miöjunni voru Johnston, Whelan,
Lee og Mölby. Dalglish og Rush
frammi. Áhorfendur í Stoke voru
17.000.
Stórleikur Shilton
Peter Shilton átti mjög góöan
leik meö Southampton gegn sínu
gamla félagi Nottingham Forest á
The Deel. Southampton sigraöi 1:0
og þaö var aöeins stórgóöri
markvörslu Shilton aö þakka aö sá
sigur náöist. Þaö var Davld Puck-
ett, 23 ára nýliöi, sem skoraöi eina
mark leiksins. Southampton hefur
nú leikiö niu leiki í röö án taps eftir
heldur slaka byrjun. Ivan Golac lék
meö líöinu aö nýju. Áhorfendur
voru 17.834.
Queens Park Rangers hitaöi
ekki vel upp fyrir Evrópuleikinn á
miövikudag í Júgóslavíu. Liöiö tap-
aöi 0:3 í Sunderland þar sem mörk
Roger Wylde og David Hodgson
og síöan sjálfsmark Steve Wicks,
tryggöu heimamönnum stigin þrjú.
Sunderland hefur leikiö mjög vel
aö undanförnu og er nú komiö upp
í 7. sæti deildarinnar. Áhorfendur
voru 16.408. Þess má geta aö QPR
hefur ekki unniö á útivelli í allan
vetur.
Leiðinlegt!
Leikur Aston Villa og West Ham
var mjög slakur. Didier Six lék á ný
meö Villa en þaö breytti engu. Paul
Kerr átti skot í þverslá West Ham-
marksins í fyrri hálfleik og var þaö
þaö næsta sem liðin komust aö
skora. Áhorfendur: 15.709.
Sheffield Wednesday tapaöi á
heimavelli fyrri Norwichl Óvænt úr-
slit. John Deehan skoraöi fyrra
mark Norwich á 22. mín. og níu
mín. síöar bætti Lou Donowa viö
marki. Chris Woods, enski vara-
landsliösmarkvöröurinn hjá Nor-
wich, átti frábæran leik en réö ekki
viö skot bakvaröarins Mel Ster-
land fjórum mín. fyrir leikslok.
Mark Sterland nægöi þó ekki til aö
næla í stig. Áhorfendur: 21.847.
Watford - Mörk
Watford hefur fengiö á sig 26
mörk í síöustu 5 leikjum — og þar
af 18 síöan Tony Coton fór aö leika
í marki liösins, eftir aö hann var
keyptur frá Birmingham á 300.000
pund! Þaö er því ekki aö furöa aö
Graham Taylor sé aö kaupa varn-
armann (noröur-írska landsliös-
manninn John McClelland frá
Rangers á 200.000 pund — samn-
ingur hefur tekist á milli félag-
anna). Luther Blissett skoraöi tví-
vegis í Ipswich og John Barnes
eitt, en mörk heimaliösins geröu
Mich D’Avrey, Terry Butcher og
Mark Brennan. Áhorfendur:
15.680.
Brian Stein jafnaöi fyrir Luton
gegn Newcastle er fáar mín. voru
eftir af leiknum. Peter Beardsley
skoraöi fyrst fyrir Newcastle á 14.
min. en Garry Parker náöi aö
jafna. Pat Heard náöi aftur forystu
fyrir Newcastle en Stein bjargaöi
stigi. Áhorfendur voru 10.009.
Sigur Albion þrátt
fyrir stórsókn Spurs
Frá Skúla Svwntiyni, fréMamanni Morgunblaúains, á Whits Hart Lana I London.
WEST Bromwich Albion hefur
nú ekki tapaö fyrir Tottenham
hér é White Hart Lane í fimm ér
í 1. deildinni og é laugardag
sigraöi Albion 3:2 þrétt fyrir nær
stanslausa aókn heímaliösins
og mýgrút gróöra marktæki-
færa.
Fyrstu 15 mín. sótti Tottenham
stanslaust en síöan skoraöi Alb-
ion. Gary Thompson var felldur
af Gray Stevens inni í teig eftir
skyndisókn og úr vítinu sem
dæmt var skoraöi Derek Stath-
am örugglega.
Mike Hazard náöi aö jafna á
18. mín. meö fallegu marki og
þannig var staöan í hálfleik. Eftir
mark hans fékk gamla kempan
David Cross gott færi viö mark
Spurs, en síöan gerðist allt hin-
um megin á vellinum. Perryman
fékk tvö góö færi, Clive Allen átti
skot bæöi í þverslá og stöng og
einu sinni var bjargaö á marklínu
Albion.
Strax í upphafi síöari hálfleiks
átti Perryman þrumuskot af 30 m
færi er Goddard varöi mjög vel
og síöan skallaöi Hazard fram-
hjá. Markið lá í loftinu og þaö
kom fljótlega, en öfugu megin!
David Cross skalfaöi þá í mark
Tottenham eftir fyrirgjöf og þar
var Tottenham-vörnin steinsof-
andi eins og svo oft í ieiknum.
Á 60. mín. var Glenn Hoodle
skipt inn á fyrir Gary Stevens.
Sókn Tottenham hélt áfram
stanslaust, en viti menn: Albion
skoraöi enn! Á 76. mín. lék Steve
McKenzie á Paul Miller úti viö
vítateig og var þá kominn á auö-
an sjó aö marki. Engin varadekk-
ing í Tottenham-vörninni eins og
oft íleiknum. Clemece markvörö-
ur kom æöandi út á móti en
McKenzie var sallarólegur og
vippaöi skemmtilega yfir út-
hlaupandi markvöröinn og í net-
iö. Glæsimark og staöan skyndi-
lega oröin 1:3. McKenzie fókk
knöttinn óvænt er hann skoraöi.
Eftir haröa baráttu á miöjunni
kom boltinn til Glenn Hoodle
sem tók hann á hælinn, ætlaöi aö
sýna „takta” en ekki vildi betur til
en svo aö boltinn hrökk beint
fyrir fætur McKenzie.
Á 84. mín. minnkaöi John Chi-
edozie muninn fyrir Spurs eftir
mikinn einleik. Hann lék á Stath-
am hægra megin á vellinum,
komst inn í teig og skoraöi meö
fallegu skoti.
Úrslitin voru ráöin en þau voru
í meira lagi ósanngjörn. Vörn
Spurs var þó mjög slök. Stevens,
Hughton, Miller og Roberts léku
mjög flatt. Hazard var besti maö-
ur llösins en varö minna áber-
andi eftir aö Hoodle kom inná.
Miövöröurinn Martin Bennett var
bestur hjá Albion ásamt Gary
Thompson.
Áhorfendur voru 24.494.