Morgunblaðið - 17.11.1984, Síða 4
4
Ólafur Tómasson
Póstur og sími:
Ráðinn framkvstj.
tæknideildar
Ólafur Tómasson verkfræóingur
befur verið ráðinn framkvœmdastjóri
tæknideildar Pósts og síma frá og
með 1. desember nk.
Ólafur er 56 ára gamall. Hann
lauk stúdentsprófi frá stærðfræði-
deild MA árið 1948 og framhalds-
námi i verkfræði frá háskólanum f
Edinborg árið 1956. Strax að loknu
prófi hóf hann störf hjá símatækni-
deild Pósts og síma og 1961 var
hann skipaður deildartæknifræð-
ingur. 1966 var ólafur skipaður yf-
irverkfræðingur með umsjón með
innkaupum, efnisvali og fram-
kvæmdum með fjölsíma- og jarð-
símakerfum. Frá árinu 1979 hefur
Ólafur starfað sem yfirverkfræð-
ingur í sambandadeild Pósts og
síma.
Ólafur Tómasson er kvæntur
Stefaníu M. Pétursdóttur og eiga
þau fjögur börn.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1984
Kvennaathvarf starf-
rækt á Akureyri
„Vandinn er ekkert síður til staðar hér“:
Fjáröflun um allt Norðurland um helgina
Samtök um kvennaathvarf á
Norðurlandi munu standa fyrir fjár-
söfnun með sölu barmmerkja um
helgina, þ.e. dagana 17. og 18. nó-
vember. Merkin verða seld um nær
allt Norðurland og er tilgangurinn
að standa straum af rekstri kvenna-
athvarfsins, sem starfrækt hefur
verið á Akureyri síðan í sumar.
í Samtökum um kvennaathvarf
á Norðurlandi eru nú um 250 fé-
lagar, en meðal þeirra sem einnig
munu taka þátt í fjáröflunarátak-
inu um helgina eru félagar f
kvenfélögum nyrðra og Sinawik-
konur.
„Samtok um kvennaathvarf á
Norðurlandi voru stofnuð
snemma á þessu ári og 1. ágúst sl.
tók kvennaathvarf til starfa i hús-
næði sem Akureyrarbær lét okkur
í té,“ sagði Helga Guðmundsdótt-
ir, ein af aðstandendum athvarfs-
ins, í stuttu spjalli við blm. Mbl. f
vikunni.
„Fyrst í stað var aðeins um að
ræða símatíma, þar sem konur
gátu hringt og leitað ráða. En nú
er athvarfið opið konum til dvalar
og hafa nokkrar konur þegar nýtt
sér það og dvalið í athvarfinu um
lengri eða skemmri tíma,“ sagði
Helga. „En símaþjónustan er að
sjálfsögðu ennþá til staðar. Sími
athvarfsins er (96>-26910 og þang-
að geta konur hringt milli klukk-
an 14 og 16 og 20 og 22 alla daga
vikunnar og fengið ráðgjöf þar
sem vísað er til sérfræðinga ef
þörf krefur. f athvarfinu er einn
fastur starfsmaður, auk þess sem
félagar í samtökunum taka vakt-
ir. En allir sem starfa við athvarf-
ið hafa sótt námskeið, sem sam-
tökin hafa haldið i samvinnu við
námsflokka Akureyrar og eru að
sjálfsögðu bundnir þagnar-
skyldu.“
Aðspurð um þörfina á slfku at-
hvarfi á Norðurlandi, sagði Helga,
að miðað við þá reynslu sem feng-
ist hefði af rekstri kvennaat-
hvarfs í Reykjavfk, þar sem alltaf
væri fullt hús, ætti þörfin fyrir
slíka starfssemi einnig að vera til
staðar norðan heiða. „Mótrökin
hafa hins vegar verið þau, að Ak-
ureyri sé of lítill bær til þess að
athvarfið fái það næði, sem þarf
til þess að konur treysti sér til
þess að koma þangað. En Akur-
eyri er Norðlendingum það sem
Reykjavfk er Sunnlendingum. Þar
er hægt að bjóða upp á mikið til
sömu þjónustu og fyrir sunnan og
þaö hlýtur að vera þægilegra fyrir
konur sem á þurfa að halda að
koma hingað en að fara alla leiö
suður, eins og mörg dæmi eru um.
Enda höfum við ekki örðið vör við
annað í þessu starfi, en að vand-
inn sé sá sami hér og annars stað-
ar á landinu og þvf ekki siður þörf
fyrir kvennaathvarf á Akureyri
en í Reykjavík.
Eg held þó að fjölskylduböndin
séu oft sterkari hér en í Reykja-
vík, þar sem meira er um það að
fólk sé aðflutt. Við verðum varar
við að þegar konur hringja f at-
hvarfið, eru þær oft þegar farnar
að heiman og komnar heim til
mömmu eða annarra skyldmenna.
Hins vegar geta sterk fjölskyldu-
bönd verið tvíeggjuð, því þau geta
f sumum tilvikum heft konur sem
búa við ofbeldi og stöðvað tilraun-
ir þeirra til þess að breyta
ástandi, sem er orðið þeim óbæri-
legt.
En rekstur athvarfsins gengur
vel og við höfum notið mikils vel-
vilja frá fyrirtækjum, félagssam-
tökum og einstaklingum á Norð-
urlandi, auk þess sem Akureyrar-
bær og nálæg sveitarfélög hafa
verið okkur hjálpleg og aðstoðað á
ýmsa lund,“ sagði Helga. „Og ég
hef fulla trú á þvf að konur, sem
þolað hafa ofbeldi, muni geta not-
að þennan stað til þess að jafna
sig og vinna að sfnum málum.“
Karl Kvaran
Karl Kvaran
listmálari
sextugur í dag
KARL Kvaran listmálari er sextugur
í dag, 17. nóvember.
í tilefni afmælisins hefur dr.
Gunnlaugur Þórðarson opið hús
fyrir vini, velunnara og aðdáendur
Iistamannsins að Bergstaðastræti
74a í dag, milli kl. 16 og 18. Viðtal
við Karl Kvaran er í Morgunblað-
inu á morgun, sunnudag.
Sölusýning
HIN NÝJA listamiðstöð, Gallerí
Borg, verður með sölusýningu í
Safnahúsinu á Selfossi nk. laugar-
dag, þann 17. nóvember.
Sýningin verður opin frá kl.
14-18.
vp Daihatsusalurinn
Ármúla 23. Símar 81733 og 68570
Daihatsu Charade
xte Runabout arg 1980 km 24 ooo utur kœmgui- Þessir glæsilegu bílar eru til sölu hjá okkur núna,
ur verö 170.000.- eru g staðnum. og margt fleira á söluskrá.
Daihatsu Charade
Runabout XTE árg. 1980. km 45.000. Litur kremgul-
ur Verö 155.000,-
o
Daihatsu Charade
XTE 4ra gira árg. 1981. km 17.000 Liíur vmrauður.
Einn eigandi. Vetrardekk. Silabretn. hlifðarpanna.
Verö 200.000.-
Daihatsu Charade
XTE Runabout arg. 1981. km 42.000. Litur rauður.
Einn eigandi. Vetrardekk. Silsabretti. Verö 195.000,-
Daihatsu Charade
XTE 4ra dyra arg. 1982, km 37.000. Litur gullbrons.
Vetrardekk. Silsabretti Verð 225.000.-
Daihatsu Charade
Runabout XTE arg. 1982. km 27.000. Litur gullbrons-
aöur. Vetrardekk. Utvarp og segulband. Verð
235.000,-
Daihatsu Charade
XTE 4ra dyra sjalfskiptur árg. 1983, km 25.000. Litur
gullbrons. Verö 255.000.-
Daihatsu Charade
XTE Runabout 5 gíra árg. 1983, km 14.000. Litur
svartur. Verö 265.000.-
Daihatsu Charade
MMC Colt GL árgerö 1981, km 43.000. Litur beige. Útvarp. Framhjóladrif. Vel meö farinn. Verö 190.000,-
Subaru 4x4 WD 1600 station, árgerö 1980. Km 66.000. Verö Litur beige. Útvarp, vetrardekk, sílsalistar. 250.000,-
Suzuki Fox 4x4 WD jeppi, árgerö 1983. Km 22.000. Sem nýr. Litur hvítur. Útvarp og segulband. Verö 295.000.-
Galant GL 4ra dyra, árgerö 1979. Km aðeins 48.000. Verö Mjög góöur bíll. Litur dökkgrænn. 160.000,-
Toyota Hi-Luxe yfirbyggöur, 4x4 WD, árgerö 1981. Km 65.000. Litur rauöur/hvítur. Útvarp og segulband. Vetrardekk. Klæddur hjá Ragnari Vals. Bensínvél. Verö 500.000.-
MMC Lancer árgerö 1980, 4ra dyra. Km aöeins 38.000. Verö GL 1400 Litur silfurgrár. Vetrardekk. 190.000,-
VW Golf GL árgerö 1978. Km 64.000. Litur kopar- brúnn/svartur. Lituö gler. Útvarp. Vetrar- og sumardekk. Mjög fallegur bíll. Verö 170.000.-
SAAB 99 GL árgerö 1981. Mjög vel meö farinn. Km aöeins 21.000. Litur dökkblár. Verö 310.000.-
CX 4ra dyra 1984. km 900. Litur Ijósgrænn met. Verö
290.000-
Daihatsu Charade
Daihatsuumboðið
TS Turbo árg. 1984, km 12.000. Litur svartur. Utvarp
Segulband. Vetrardekk Verö 335.000,-
Armúla 23, símar 68570 og 81733.