Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1984 37 DRAMMEN SENDIR STYKKISHÓLMI JÓLATRÉ Islenski sendiherrann í Noregi í skógarhöggi í Konnerudskógi Stykkishólmur mun á næstunni fá senda gjöf frá Drammen, vinabæ sínum í Noregi. Um er að ræða jólatré, sem fellt var í Konnerudskógi fyrir u.þ.b. viku. Þetta er í fyrsta skipti sem Stykk- ishólmur fær slíka gjöf, en fjögur ár eru síðan komið var á vina- bæjasambandi milli þessara bæja. Að sögn Sigríðar Wilhelmsen, fyrsta formanns tslensk-norska vinafélagsins í Drammen og ná- grenni, tóku bæjaryfirvöld í Drammen vel þeirri hugmynd fé- lagsins að Drammen sendi Stykk- ishólmi jólatré að gjöf. Sendiherra tslands f Noregi, Páll Ásgeir Tryggvason, kom frá Osló til þess að velja tréð. Fór hann ásamt borgarstjóra Dramm- en, Einari Haflan, Atle Björnli, vararæðismanni Íslands, Arne Kildebo skógarverði og félögum úr íslensk-norska vinafélaginu í Konnerudskóg. Þar var drukkið skógarkaffi og fólk gæddi sér á Páll Ásgeir Tryggvason fellir tróð með aðstoð Arne Kildebo skóg- arvaröar. í Konnerud-skógi. A myndinni má sjá Pál Ásgeir Tryggvason, sendiherra, ásamt Einari Haflan, borgarstjóra I Drammen. Á milli þeirra sést Magnús Magnússon, lormaöur íslensk-norska vinafélagsins, I Drammen og nágrenni. vínarbrauði o.fl. og var sfðan haf- ist handa við að fella tréð. Það gerði sendiherrann með dyggri að- stoð skógarvarðarins. Sendiherr- ann valdi 14 metra hátt tré, u.þ.b 80 ára gamalt. Þess má geta að Páll Ásgeir Tryggvason, sendiherra, er nú á förum til Moskvu og var þetta eitt af hans siðustu embættisverkum. Svo skemmtilega vill til að með fyrstu embættisverkum hans var að taka þátt f stofnun Islensk- norska vinafélagsins í Drammen og nágrenni fyrir fimm árum. Sendum um' Vallan heim! Núeru jólasveinar komnir í glugganum okkar... til að minna ykkur á, að óðum styttist til jóla og að betra er aö hafa tímann fyrir sér ef jólagjafirnar til vina og kunningja erlendis eiga að ná fram í tima ... frTjr Við göngum frá og sendum — jólapakkana um allan heim. Allar sendingar eru fulltryggöar yður að kostnaðarlausu. RAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 e' pU OD tavo gia MÖfO Minnum á okkar frábæru húsgögn í barnaherbergiö. Húsgagnasýning um helgina Opiö í dag, laugardag kl. 10—16. Opiö sunnudag kl. 14—16. Mikið úrval furusófasetta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.