Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.11.1984, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 17. NÓVEMBER 1984 • Hilmar Gíalason svífur innaf línunni og skorar. Hannes Leifsson kemur engum vörnum viö. Botninn datt úr leik Víkinga Stjarnan vann upp 6 marka forskot Ef leikur Víkings og Stjörnunn- ar er fyrirboöi þess sem koma skal í fyrstu deiid handknattleiks- ins í vetur, stefnir í skemmtilegt og spennandi mót, þar sem hart veröur barist um hvert stig. Eins og fram kom í Mbl. í g»r lauk leiknum meö jafntefli, 22—22, eft- ir aö Stjarnan haföi unniö upp sex marka forskot Víkings, 19—13, í seinni hálfleik. j hálfleik höföu Víkingar tveggja marka forskot, 12—10. Fyrri hálfleikurinn var góöur og léku bæöi liöin vel. Leikmenn Stjörnunnar skoruöu tvö fyrstu mörkin en þá geröu Víkingar þrjú í röö. Komust Víkingar síöan í 6—3, en Stjarnan seig á og munaöi lengst af einu marki, 8—7, 9—8, 10—9, 11 — 10, en Víkingar höfðu tvö mörk yfir í hléi, 12—10. Víkingar voru betri aöilinn í fyrri hálfleik og áttu Þorbergur og Kristján markvöröur mestan þátt í því. Vörnin var einnig góö og þaö þétt aö leikmenn Stjörnunnar virt- ust á köflum ragir viö aö reyna skot. i upphafi seinni hálfleiks virtust Víkingar ætla aö fara meö auö- veldan sigur af hólmi. Þeir komust í 14—11 og síöan 19—13, fyrst og fremst vegna ráðleysis hjá leik- mönnum Stjörnunnar og góörar markvörslu Kristjáns. Þegar hér var komiö sögu voru um 15 mínút- ur til leiksloka. i staö þess aö halda fengnum hlut datt botninn úr leik Víkinga, vörnin gisnaöi og skot úr góöu færi geiguöu eöa þau voru varin. Á sama tima geröust leikmenn Stjörnunnar grimmari í vörninni og Höskuldur lokaöi markinu. Tók nú aö saxast á forskot Víkinga, fyrst minnkaöi Stjarnan muninn í 19—16 og síöan 20—19. Jafnaöi Stjarnan 21—21 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Síöustu tvö mörkin voru skoruö úr vita- skotum, Víkingar hiö fyrra, en Guömundur Þóröarson jafnaöi enn á ný þegar mínúta var eftir. Var góö stemmning í höllinni lokamín- úturnar. Þaö segir sína sögu um hvaö leikmenn Stjörnunnar tóku sig á undir lokin aö þeir unnu siöasta kortériö meö níu mörkum gegn þremur. Hjá Víkingi voru Kristján mark- vöröur, Þorbergur og Viggó beztir, og ýmsir aðrir þokkalegir, einkum Steinar og Hilmar Sigurgísia. Kari Þráins var haröur í horn aö taka í vörninni. Hjá Stjörnunni átti Hös- kuldur markvöröur góöan leik, einkum er á leiö, þegar hann varöi nær hvert einasta skot. Magnús Teits var í strangri gæzlu á línunni en skoraöi tvö góö mörk og mikil- væg á lokamínútunum. Guömund- ur Þóröarson var góöur, en heföi mátt vera óragari á stundum aö skjóta, og í vörninni stóö Her- mundur sig vel. Hannes var góöur í fyrri hálfleik, en Eyjólfur Braga var ólíkur sjálfum sér. Mörk Víkings: Viggó 8 (3v), Þorbergur 5, Guömundur, Steinar, Hilmar og Karl tvö hver og Einar 1. Mörk Stjörnunnar: Guömundur 9 (7v), Hannes 5, Magnús 3, Sigur- jón 3, Hermundur 1 og Ingimar 1. Handknattielkur V... ................V „Leikurinn lofar góðu“ — segir Geir Hallsteinsson „Ég held þessi leikur lofi góöu, strákarnir eru farnir að spila ag- aðra en þeir hafa gert áöur,“ sagði Geir Hallsteinsson þjálfari Stjörnunnar að leik loknum. „Það var gott að ná upp sex marka mun Víkinga. Þegar stað- an var 19—13 um miðjan seinni hálfleik lokuðu strákarnir vörn- inni og markinu og áttu mjög góðan kafla. Þaö var synd aö viö skyldum missa Brynjar úr leikhópnum vegna meiösla. Hann hefur staöiö sig mjög vel í markinu. En Hös- kuldur leysti hann af meö ágætum, stóö sig betur og betur eftir því sem á leiö. Mér sýnist stefna í geysilega baráttu um fjögur efstu sætin í deildinni, og líklega veröur þetta mót miklu jafnara en í fyrra. Ég tel að fimm félög muni berjast um fjögur efstu sætin, FH, Víkingur, Valur, KR og Stjarnan. Veturinn veröur spennandi og viö erum ákveönir í aö láta ekki sigra okkur á okkar heimavelli," sagöi Geir. „Getum verid ánægðir“ — segir Guðmundur Þórðarson „Við getum verið ánægöir með þessi úrslit, því þarna vorum viö sama sem aö leika við landsliöið, þar sem þeir eru með sex til sjö landsliösmenn innanborðs," sagöi Guðmundur Þórðarson leikmaður Stjörnunnar eftir leik- inn. Guömundur stóö sig vel í leikn- um, skoraöi níu mörk, þar af sjö úr vítaskotum, en í þeim bregst hann sjaldan. Skoraöi Guömundur sex mörk í röö þegar Stjarnan var aö saxa á forskot Víkinga og jöfnun- armark leiksins skoraöi hann er um ein mínúta var til leiksloka. „Þaö var bölvaöur klaufaskapur aö missa leikinn niöur í seinni hálf- leik og vera sex mörkum undir, og þess vegna getum viö verið ánægöir meö aö hljóta annaö stig- ið. Viö komum vel undirbúnir til þessa islandsmóts og veturinn leggst vel í okkur. Við erum sáttir við byrjunina og vonumst til aö fylgja þessu vel eftir," sagöi Guö- mundur. íslandsmútið í. delld IjAUKUK A blUNla 1 AKS Jdaq, íauqardaq 17. nóvemBer, 6yijum við tneð HÁTIÐAR- HÁDEGISVERÐI kí. 11-14. Siáan Loíam við aðeins miííi kí. 15 og 18. Pá er f>að HATIÐARKVÖLDVERÐURINN frá kí. 18-21. En um kvöídið (eika jassistamir BJÖRN THORODDSEN OG FELAGAR. Svo mceta þev RÚNAR GEORGS og ÞORIR BALDURS, aiá þess sem JASSGAUK.-VRNIR sváfla sér á stonginni. Við byrjum svo sunnudaqinn 18. nóvember með HÁTÍÐARHÁDEGISVERÐI kí. 11-14. Síðan kí. 15 býður GAUKURINN bömunum í puísupartí og foreídxamir koma auðvitað með, frví HÁTÍÐARKAFFIÐ og -KÖK URNAR eru d sínum stað. HÁTÍÐARKVÖLDVERÐURINN er d síttum stað k(. 18-21. Létt tónlist um kvöídið. Pá (eika frau fynr okkur HÁLFT I HVORU, HRÍM og BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR. Afmæushátíð í HEILA VlKU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.