Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
87
Þetta var danslag. Sumir fróðir
menn sögðu það vera marsúkka en
samkvæmt takti var það vals — og
samkvæmt túlkun hergöngulag.
En hvað um það, þetta var fallegt
lag. „Hann kunni eitt iag og hann
söng það í bana,“ var sagt um
Kormák. Það nægði honum til
aldalangrar frægðar. Hví skyldi
ekki geta farið svo um fleiri undir
sömu kringumstæðum?
En okkar maður var fyrst og
fremst skytta og það meistara-
skytta. Hann lagði einkum fyrir
sig selaskytterí. En hingað til
hafði honum ekki tekist að ná
neinum selnum. Hann hitti, ekki
vantaði það. En eins og hann
sagði: Færið var alltaf of langt.
Allur slagkraftur var úr höglun-
um þegar þau náðu selshausnum.
„Sé sverð þitt stutt þá gakktu
feti framar,“ var einhverju sinni
sagt. Slíkt er hættulegt. Hins veg-
ar lærdómsríkt fyrir skyttu í
okkar tilfelli: Byssuna varð að
lengja til að stytta leiðina að fórn-
ardýrinu. Skyttan okkar tók
hlaupið af gömlu byssunni sinni
og rak víðari enda þess upp á
grennri enda hinnar, kaldabrasaði
svo hlaupin saman. Þar með var
komin helmingi lengri byssa. Sel-
urinn er skotharður. Á hann duga
aðeins högl í mesta stærðarflokki
og mikið púður. Meistaraskyttan
hlóð skot sem hæfðu nýendur-
bættri byssu. Hann setti tvöfaldan
púðurskammt í patrónuna og
hafði forhlaðið þunnt. Siðan eins
og tolldi af selahöglum og bræddi
tólg yfir kúfinn. Nú skyldi selur að
velli lagður.
Að komast í færi við sel er ekki
vandalaust en þeir sem þekkja
þessi dýr vita að þau eru mjög
músikölsk. Því skyldi nú fiólinið
haft með í næstu veiðiför. Lagið
eina myndi seiða dýrið nógu nærri
svo langri byssu. Og þá ...
En hér var i undirbúningi at-
burður sem enginn vildi missa af,
þeirra er um vissu. Allt heimilis-
fólkið ákvað að verða áhorfendur.
Það er mikil prósessía sem fetaði i
fótspor skyttunnar til sjávar. Sól-
in skein á hópinn og vindurinn
hélt niðri í sér andanum. Logn var
sjávar, eins og þar segir. Fólkið
raðaði sér bak við garðbrot á sjáv-
arbakkanum. Meistaraskyttan tók
fíólínið úr kassanum sfnum, bar
myrru á bogastrengina og byrjaði
að leika lagið eina. Hvílikt tóna-
flóð f kyrrð vordagsins!
Og sjá: Upp af lognöldunni hóf
sig mikið höfuð gamals brimils.
Hann hlustaði hugfanginn á þessa
ljúfu tóna og mjakaðist ósjálfrátt
nær og nær. Skyttan lagði fiólínið
frá sér, „skipti um hljóðfæri', var
seinna sagt. Hann tók löngu byss-
una, þrýsti skeftinu fast að við-
beininu, tók miöið og sigtaði vand-
lega.
Selurinn var nú kominn í dauða-
færi. Áhorfendur stóðu á öndinni
af eftirvæntingu. Skyttan naut
stundarinnar. Sigurinn var í nánd.
Svo reið skotið af. Og slikur hvell-
ur! Viðstaddir tóku fyrir eyrun og
kveinkuðu sér. Mikið að hljóð-
himna þoli slíkt. En byssan, hvað
hafði hún gjört? Hún hafði slegið:
Meistaraskyttan hentist aftur á
bak við höggið og lá nú sem dauð-
ur væri við fætur viðstaddra.
Byssan hékk á garðbrotinu og það
var ekki sjón að sjá. Nýja viðbót-
arhlaupið hafði slitnað af og þeyst
eitthvað langt, langt í burt — og
enginn veit hvurt því það hefur
aldrei sést síðan. En selurinn?
spyrja menn. Hann hafði ekki sak-
að svo séð yrði, nema hann mun
hafa fengið slæma hellu fyrir eyr-
un því einn úr hópi viðstaddra
uppástóð þá — og fullyrðir enn í
dag — að hann hafi heyrt selinn
tauta um leið og hann stakk sér I
ölduna: „Voðalegur hávaði."
Raunar má segja að allt hafi
farið vel. Meistaraskyttan raknaði
úr rotinu, hellan leið frá eyrum
fólksins (og vonandi selsins),
skyttan var ósködduð utan brotið
viðbein, en slík brot gróa á þremur
föstudögum. En það var hljóður
hópur er gekk heim frá sjónum
þennan minnisverða dag og öll eft-
irvænting á bak og burt. Þó var
fólkið þakklátt i hjarta. Það hafði
orðið sjónar- og heyrnarvottar
þegar meistaraskotið reið af.
Nei, þetta fólk bjó ekki við þögn.
NORDMENDE
VIDE01985 komið
Verð: 36.980 Stgr.
Þráðlaus fjarstýring fylgir með í verðinu
Nú einfaldast máliö fyrir þá, sem leita sér aö myndbandstæki, sem er í
senn hlaðið tækninýjungum árgeröar 1985, fjarstýrt, þráðlaust (engar
snúrur) og samt á hagstæöu veröi ásamt traustri þjónustu
★ 1985 árgerð hlaöin tækninýjungum.
★ Quarts stýrðir beindrifnir mótorar.
★ Quarts klukka.
★ 7 daga upptökuminni.
★ Fjögurra stafa teljari.
★ Myndleitari.
★ Hraðspólun meö mynd áfram.
★ Hraðspólun með mynd afturábak.
★ Kyrrmynd.
★ Myndskerpu stilling.
★ Myndminni.
★ Framhlaöiö 43 cm. breitt (passar í hljómtækjaskápa).
★ Sjálfspólun til baka þegar bandið er á enda.
★ Svona mætti lengi telja.
★ Sjón er sögu ríkari.
0$
40*
Skipholti 19, sími 29800