Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 90 Kristján og Barbara dóttlr hans. Kristján í Sberborne. „Söngurinn er minn ferðafélagiu — Rætt við Kristján Jóhannsson, óperusöngvara um frumraun hans á bandarísku óperusviði og ýmislegt í óperuheiminum „Ég bíð þess með mikilli eftir- rcntingu að spreyta mig á óperu- sviði í Bandaríkjunum í næsta mán- uði — því þar eru tækifærin fyrir unga söngvara — og ég vona að ég standi mig og Bandaríkjamönnum líki það sem ég hef að bjóða þeim.“ Þetta sagði Kristján Jóhannsson óperusöngvari þegar hann var spurð- ur um næsta skrefið til frægðar og frama í óperuheiminum, í samtali sem blaðamaður Morgunblaðsins átti við hann í byrjun september. Samtalið fór fram í Sherborne, smá- bæ f Suður-Englandi, en þar var Kristján að syngja Don Carlos með „Dorset Opera“. En vegna prentara- verkfallsins birtist þetta samtal ekki fyrr en nú, þegar frumsýning Krist- jáns í Bandaríkjunum er afstaðin. Frumraun hans á bandarísku óperu- sviði var í hlutverki Riccardo í Grímudansleiknum eftir Verdi með „Opera Cohimbus" f samnefndri borg í Ohio. Frumsýningin var í byrj- un nóvember. óttökurnar voru stórkostlegar á frumsýningar- kvöldið og hér hefur mér verið tekið opnum örm- um af öllum við óperuna, ég hef það á tilfinningunni að fólkið vilji bera mig á höndum sér. Það er notalegt að finna fyrir slíkum hlý- hug,“ sagði Kristján í símtali við Morgunblaðið, daginn eftir frum- sýninguna. óperuhúsið í Columb- us tekur um 3.000 manns í sæti og það var fullskipað frumsýn- ingarkvöldið. Kvöldið eftir var haldinn „grímudansleikur" á veg- um óperunnar, þar sem Kristján var heiðursgestur. „Frumraunin á bandarísku óperusviði gekk upp, en björninn er ekki unninn þó fyrsta þætti sé lokið. Hér í Banda- ríkjunum bíða mín fleiri verkefni á næstu mánuðum, þannig að nú verð ég að taka á honum stóra mínum og sanna, að árangurinn í gærkvöldi var ekki tóm tilviljun,“ ði Kristján. samtalinu við Kristján í Sherborne kom fram, að hann lit- ur á frumraun sina á bandarísku óperusviði sem eitt mikilvægasta skrefið til frægðar og frama í óperuheiminum. Og skrefin á þeirri leið verða að vera samtvinn- uð og þaulhugsuð ef árangur á að nást; víxlgangur dugir ekki. Að baki liggur mikil vinna og mis- kunnarlaus er samkeppnin. Söngvaralífið er þá ekki bara leik- ur? „Nei, nei, ertu frá þér drengur," segir Kristján og hlær dátt. „En ég hef svo sem oft áður verið spurður þessarar spurningar og í sjálfu sér er það ekki óeðlilegt, þar sem fjölmiðlum er gjarnt að sýna glanshliðina á lífi listamanna. Sannleikurinn er hins vegar sá, að þetta er hörkuvinna, ef menn hafa á annað borð vilja og metnað til að gera vel. Það dygði ekki fyrir mig að stunda drykkjuskap, kvennafar og næturlíf stórborganna. Þá gæti ég allt eins pakkað saman og farið heim. Auðvitað slappar maður af og gerir sér dagamun af og til; ég hef mínar hvatir og þarfir til að láta undan þeim eins og hver ann- ar. Það er með söngvara eins og íþróttamann; það dugir ekki ann- að en reglusemi og ástundun ef árangur á að nást. Og ég ætla mér að ná árangri." — Þú ætlar þér að ná árangri; ertu að þessu til að öðlast frægð og frama? „Nei, nei, ertu frá þér, en sjálf- sagt eru til þeir listamenn sem þannig hugsa, ef það er þá raun- hæft að tala um listamenn i því sambandi. Ég tók hins vegar þá ákvörðun fyrir rúmum 8 árum, að leggja sönginn fyrir mig, gera hann að minni atvinnu, einfald- lega vegna þess að ég fann mig á þessu sviði; ég hafði og hef þörf fyrir að syngja og túlka þá tónlist sem tónsnillingar hafa skapað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.