Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
107
Samantekt:
Helgi Jónsson
Óskar, hitabeltisjurtin i mannsmynd. Lífsstefna Óskars var: „A thing of
beauty is a joy forever."
tilfinningar manna og að verða
dugandi gagnrýnandi.
Léttlyndi hans bar stundum
góðvildina ofurliði. Um bókmennt-
irnar (uppáhaldið) sagði hann:
„Þær eru aðeins dægradvöl and-
legra iðjuleysingja." Aðalerfið-
leikarnir við vinnu rithöfunda um
þær mundir voru, sagði hann: „ef
þeir taka ekki þátt í samkvæmis-
lífinu, eru bækur þeirra ólesandi,
ef þær gera það, hafa þeir engan
tíma til þess að skrifa."
Hann sagði um Swinburne,
átrúnaðargoð æskunnar þá: „Orð-
in drottna yfir honum, stafrímið
kúgar hann ... Hann er svo
mælskur að allt, sem hann minn-
ist á, verður óeðlilegt."
Aðdáun Óskars á háskólakenn-
urum hafði ekki vaxið með árun-
um, og í grein er hann reit lagði
hann til að nokkrar málsgreinar
yrðu felldar úr bók um ítalskar
bókmenntir: „Þær bera vitni um
þekkingarskort, sem hlýtur að
vera árangur margra ára rann-
sókna.“
Dorian Gray
„Aðeins miðlungsmönnum fer
fram. Ferill listamannsins er sam-
felld hringferð milli listaverka, og
hið fyrsta þeirra er jafn fullkomið
og hið síðasta," reit óskar í blaða-
grein í september 1894. Þrátt fyrir
þessa kynlegu fullyrðingu, impr-
aði enginn á því við hann, hvort
hann teldi Veru eða The Duchess
of Padua (fyrstu verk hans) jafn-
ast á við Salomé eða Lady Wind-
ermere’s Fan að listrænu gildi.
Meðan hann var ritstjóri The
Woman's World og gagnrýndi
bækur fyrir The PaU Mall Gazette
og önnur blöð, samdi hann smá-
sögur, ævintýri, ritgerðir og eina
skáldsögu. Mörg þessara verka
birtust í tímaritum áður en þau
komu út í bókarformi. Fyrsta sag-
an hans, The CanterviUe Ghost,
(Kantervilledraugurinn), birtist
1887. Hugmyndir að flestum sögu-
num fékk hann þegar hann ræddi
við kunningja sína eða var í kvöld-
boði.
Óskari var það óskiljanlegt
hvernig menn gátu setið dag eftir
dag og unnið að sömu bókinni,
jafnvel árum saman. „Þegar ég
byrja á einhverju, verð ég að
skrifa nótt sem nýtan dag, uns
verkinu er lokið. Annars missi ég
áhugann á því, og fyrsti strætis-
vagninn, sem fer framhjá, dregur
athyglina burt.“
Myndin af Dorian Gray er
sennilega hið eina sem hann vann
að lengur en fáeinar vikur. I
fyrstu var Dorian aðeins smásaga.
Við hana bætti hann síðan ann-
arri smásögu um leikkonu, sem
verður ástfangin og missir við það
leikhæfileikana. Svo þeirri þriðju
um fund líkama Jesú i grafhelli
nálægt Jerúsalem. Sagan birtist
fyrst árið 1891.
Óskar sagði: „Ég verð lítillátur
við hrós, en þegar mér er úthúðað,
veit ég að ég hef snert stjörnurn-
ar.“ Ef hann meinti þetta, hlýtur
hann að hafa verið í stjörnuþyrp-
ingu eftir að gagnrýnendurnir
höfðu hellt úr skálum reiði sinnar:
Dulspekikláði, — heimskuleg og
ruddaleg, — fjörlaus og klúr, —
viðbjóðsleg, — ýldufýla, — fágað-
ur dónaskapur, — óhreinkar alla
unga hugi sem snerta hana.
Nú mundu ritdómar sem þessir
þykja ákjósanlegir. Mörg upplög
mundu seljast eins og heitar
lummur. En á Viktoriutímanum
var siðavendni skilyrði þess að
bækur seldust.
Óskar svaraði fyrir sig: „Ég
skrifa þvi ég hef yndi af því. Ef
verk min er hinum fáu geðþekk,
fagna ég þvi, en ef þau eru það
ekki, harma ég það. Hvað skrílinn
snertir, þá langar mig ekki til að
vera skemmtisagnahöfundur. Það
er alltof auðvelt."
Dorian Gray varð Óskari mikill
hnekkir í augum almennings, og
honum skaðlegur er fram liðu
stundir. Menn hötuðu bókina,
einkum þeir sem ekki höfðu lesið
hana, og lögðu jafnframt fæð á
höfundinn. Sagan var sfðar notuð
sem vitnisburður gegn honum i
Queensberry-réttarhöldunum.
Villtur maður, Óskar
Yeats taldi hann óttalausa goð-
veru frá horfinni öld. Hann var
hár maður og þrekvaxinn, fremur
feitlaginn, með fölt og mikið and-
lit, gróft hörund, vellagað nef,
dimmrauðar varir. Við fyrstu
kynni kom hann mönnum mis-
jafnlega fyrir sjónir, sumir gátu
tæpast varist hlátri, aðrir fengu
andúð á honum og enn öðrum leið
ónotalega i návist hans. En svo
voru aðrir sem kunnu að meta
þennan mælska og villta mann.
Samfara leti hans fór ást á
munaði. Flest það, sem hann naut,
var dýrt, enda sagði hann: „Við
lifum á tfmum þegar munaðurinn
er einu nauðsynjarnar." Manna
vandlátastur var hann á vín, en
sætti sig við fábrotna málsverði.
Óætur fannst honum þó einn rétt-
ur. „Þorskurinn er vafalaust ágæt-
ur til sunds, en ekki til matar.“
Dálæti hans á sögufrægum
nöfnum, hóglífi, siðfágun, varð til
þess að ýmsir töldu hann fara i
manngreinarálit. Allt sem hann
tók sér fyrir hendur varð eftir-
minnilegt, allt nema hlutverk
heimilisföðurins. Það átti ekki við
hann, síst af öllu heimilislíf Vikt-
oríutímans. En hann tók miklu
ástfóstri við börn sín og skemmti
þeim með undarlegum sögum.
Óskar og Konstansa eignuðust tvo
syni, Cyril (1885) og Vyvyan
(1886).
Sjálfsálit hans fór langt fram úr
öllu er kallað verður mont. („Þetta
er dapurlegt. Helmingur mann-
kynsins trúir ekki á guð, en hinn
helmingurinn trúir ekki á mig.“)
Óskar var svo sérstæður persónu-
leiki, að það var fátt sem hann
sagði, sem ekki varð að taka án
fyrirvara. Fyndnin og glettnin
voru alltaf í fyrirrúmi.
Yfirburðir hans í samræðusn-
illd voru óvefengjanlegir. Carson,
harðsnúnasti saksóknari Eng-
lands um þær mundir, stóðst hon-
um ekki snúning í rökræðum.
Hann reyndi samt að forðast deil-
ur og kappræður og undi sér best f
iðjuleysi. „Aðeins andlega glataðir
menn kappræða," var hann vanur
að segja. Einnig átti hann til að
segja: „Rökfestan er síðasta
skjólshús hinna hugmynda-
snauðu.“
Óskar Wilde gat talað af slfkri
andagift, að menn gleymdu stað
og stund, en hlustuðu hugfangnir
á hann þrjár til fjórar stundir
samfleytt, og báðu hann að halda
áfram, þegar hann gerði sig likleg-
an til að hætta. Því miður hafa
aðeins fáein brot varðveist úr
þessari „glitrandi, rauðlogandi
orðakeðju."
Fyndni hans varð enn áhrifarík-
ari fyrir það hve vel hann sam-
ræmdi látbragð sitt við frásögn-
ina. Stundum byrjaði hann að tala
af alvöruþunga, og hann þagnaði
oft líkt og honum veittist erfitt að
finna rétt orð yfir hugsanir sinar,
— en svo allt i einu gerbreyttist
framkoma hans í glens og gaman.
Til allrar hamingju hafa varð-
veist nokkrar sögur eða frásagnir
eftir Óskar, og hér eru tvær þar
sem Kristur er þungamiðjan:
Kristur kom til borgar einnar
og hávaði frá miklum gleðilátum
barst til eyrna honum. Hann gekk
inn í vistarveru og sá mann er lá
drukkinn á legubekk. Hann snerti
öxl hans og sagði: Hvers vegna
glatar þú sál þinni i víni? Maður-
inn leit upp og svarað: „Ég var
einu sinni holdsveikur og þú lækn-
aðir mig.“ Hann hélt áfram inn í
borgina og sá ungling fara á eftir
skækju, og hann sagði við hann:
Hvi lítur þú konu þessa girndar-
auga? Unglingurinn þekkti hann
og svaraði: „Ég var blindur og þú
gafst mér sýn.“ Þá talaði hann til
konunnar: Hvi gengur þú veg
syndarinnar? Og konan svaraði:
„Þú fyrirgafst mér syndir mínar
og vegurinn er skemmtilegur." Og
hann fór út úr borginni og sá aldr-
aðan mann grátandi við vegbrún
og spurði hann þvi hann gréti.
Gamli maðurinn svaraði: „Herra,
ég var dauður og þú færðir mig
aftur til lífsins. Hvað get ég annað
en grátið?"
Önnur saga lýsir því hvernig
Jesús greri sára sinna eftir kross-
festinguna, slapp út úr gröfinni,
tók aftur upp iðn sína og lifði
mörg ár, eini maðurinn á jörðinni,
sem vissi deili á þeim þjóðsögum,
sem mynduðust um nafn hans.
Dag einn kom Páll postuli til bæj-
arins, þar sem Hann vann, og
Hann var eini maðurinn, sem ekki
fór til að hlusta á hann predika.
Síðar veittu meðsmiðir Hans því
eftirtekt, að Hann, af einhverjum
óskiljanlegum ástæðum, var aldr-
ei berhentur ...
HJÓ
nú verða af því að senda vinum um
víða veröld gjöf sem verður þeim
mjög kærkomin — fyrir aðeins kr. 770.
Innifalið sendingargjald um
allan heim.
Gjöf sem berst ekki bara einu sinni
— heldur aftur og aftur — og treystir
tengslin.
Er
Iceland Review ekki rétta gjöfin
fyrir ættingja og vini erlendis?
Iceland Review kemur út fjórum sinnum á ári
— stöðugur straumur af fróðleik
um land og þjóð, með glæsilegum myndum og fjöl-
breyttu efni.
GJAFAÁSKRIFT
□ Undirritaður kaupir gjafaáskrift(ir) aö lceland Review 1985 og
greiöir fyrir kr. 770 pr. áskrift. Sendingarkostnaður um allan
heim innifalinn.
□ Árgangur 1984 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn
greiösiu sendingarkostnaöar kr. 220 pr. áskrift.
Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1985. Áskrift öölast gildi
þegar greiösla berst.
Nafn áskrlfanda
Sánl Heimllisfang
Nafn möttakanda
Heimllisfang
Nöfn annarra móttakenda fylgja meó á öðru blaði.
Sendið til lceland Review, Höfðabakka 9, Reykjavík,
eöa hringið í sfma 84966.