Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 46
118
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
fclk í
fréttum
HALLA LINKER
í HEIMSÓKN
HÉRLENDIS
■ „Er mikill
íslend-
ingur
/■ r cl
i mer
Líklega mun þorri íslendinga
kannast vió nöfnin Hal og
Halla Linker, gvo þekkt sem þau
hjón hafa lengi verid af frásögnum
sínum í máli og myndum af marg-
víslegum ferðum sínum. Eiginmað-
ur Hölhi er fallinn frá, en sjálf
hefur hún haldið dug sínum og
hugrekki til ferða og er nýlega
komin frá Afríku þar sem hún
dvaldi í fjórum borgum við
kennslu. Halla er nú stödd hér-
lendis og blm. hitti hana stundar-
korn.
Nú ert þú ræðismaður í Los
Angeles. Er það annasamt starf?
Já, það er óhætt að segja að
það hafi verið mjög annasamt,
allavega undanfarin ár. Ég held
jafnvel að mér sé óhætt að segja
að ég hafi meira að gera en
nokkur annar heiðurskonsúll
þarna. Starf mitt er aðallega
fólgið í landkynningu, þ.e.a.s. að
veita hinum ýmsu aðilum upp-
Halla ásamt syni sínum Davíð Þór.
lýsingar um Island og það eru
t.d. skólakrakkar að gera rit-
gerðir, sem vantar upplýsingar,
o.s.frv.
Það er einnig þáttur í starfi
mínu að hjálpa Islendingum sem
á þvi þurfa að halda og þá bæði
ferðafólki, námsmönnum og
þeim sem búa hér árið um kring.
Það hefur verið sérstaklega
annasamt hjá mér undanfarið
vegna þátttöku okkar í „Scand-
inavia Today" og einnig i sam-
bandi við Ólympíuleikana.
Hvernig finnst þér að koma
hingað í heimsókn svona að vetri
til?
Mér finnst alltaf gaman að
koma heim, ég er svo mikill Is-
lendingur í mér. Það eru nú orð-
in 34 ár síðan ég kom heim síðast
að vetri til, svo núna stílaði ég
upp á það til þess að geta farið 1
leikhús, séð norðurljósin, hitt
Hmlla Linker. HorgunbUAið/Július.
gamla skólafélaga sem hittast á
veturna og ég hef ekki séð suma
hverja i herrans háa tið. Þetta
hefur verið indælt. Við komum
nú oft við hérna á ferðum okkar
hérna áður fyrr og stönsuðum þá
gjarnan i viku eða tiu daga, en
það var eiginlega alltaf að sumri
til. Ég hef verið heppin með veð-
ur, fengið stillu og sólskin. Það
er svo gaman að rölta um bæinn,
sjá hús sem áður voru í niður-
níðslu vera orðin falleg, þvi ls-
lendingar virðast i dag setja
metnað sinn i að gera gömlu
húsin falleg.
Hvað gerir þú fleira en sinna
ræðismannsstarfinu?
Ég er ekki sest i helgan stein
þó orðin sé ekkja. 1 fyrra fór ég
til Afriku og kenndi þar í fjórum
löndum, Zaire, Ghana, Zambiu
og Kenýa, hvernig taka á heim-
ildarmyndir. Það var virkilega
gaman, en ég þurfti að sýna
hugrekki, þvi ég hef aldrei ferð-
ast svona alein og aldrei kennt á
ævinni. En það er eins og ég
sagði við vinkonu mina um dag-
inn, sem var að furða sig á að ég
byrjaði á að prjóna mér kjól þeg-
ar ég hefði ekki snert prjóna sið-
an í barnaskóla. Ef ég hefði ekki
alltaf verið bjartsýn þá hefði ég
aldrei getað gert það sem ég hef
gert um ævina.
Ég leigi út myndirnar okkar
lika. Ég á um 250 hálftíma þætti
sem búið er að sýna á 45 stöðum
i Bandaríkjunum og 10 öðrum
löndum. Einnig á ég um 10
sjálfstæða klukkutima þætti.
Allt eru þetta þættir viðsvegar
að úr heiminum sem við heim-
sóttum og meðal þessara 250
þátta eru 15 íslenskir.
Freistar það þín ekki að flytj-
ast heim?
Veistu það, ég er komin yfir
það. Á tímabili sagði ég alltaf að
ef eitthvað kæmi fyrir þá flytti
ég til Islands. En nú er svo kom-
ið að ég hef búið lengur i Banda-
ríkjunum en á fslandi og það er
of seint að snúa við. Ég get það
ekki lengur.
Nú átt þú einn son. Hvað gerir
hann?
Davíð Þór er hjartalæknir sem
sérhæfði sig í hjartalækningum
barna. Hann vinnur við rann-
sóknir og svo undarlega vill til
að núna i janúar flyst hann til
Þrándheims í tvö ár þar sem
hann ætlar að vinna að rann-
sóknum. Hann kemur alltaf öðru
hvoru við hérna, talar islensk-
una ágætlega og er mikill íslend-
ingur í sér.
LÍFVÖRÐUR
HANS HÁTIGNAR:
Michaels
Jackson
Þegar Michael Jackson hélt tónleika i borginni KnoxviIIe i Banda-
rikjunum á sl. sumri var gert ráð fyrir, að um 65.000 manns myndu
kaupa sig inn á þá en þegar til kom reyndust þeir 150.000 talsins.
Áður en til hljómleikanna kom bárust Michael mörg bréf þar sem
honum var hótað dauða og limlestingum og þess vegna fannst honum
rétt að hafa vaðið fyir neöan sig og réð í sína þjónustu næstum hálft
lögreglulið borgarinnar. Michael setti þeim aðeins það eina skilyrði, að
þeir væru með sams konar sólgleraugu og hann sjálfur. Á myndinni sést
þegar lífvörður Michaels gekk inn á leikvanginn þar sem hljómleikarnir
fóru fram og að sjálfsögðu var hann I broddi fylkingar.
COSPER
— Þú hefðir nú vel haft efni á að kaupa ramma.