Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 54
126
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
LW fiCI/HI f\VII\MyNDANN/i
YENTL
Ný mynd með Barböru Streisand í Bíóhöllinni
Barbra Streisand í hlutverki Yentl.
Yentl fórnar hárinu.
Þegar “Yentl“ birtist í Bíóhöll-
inni innan skamms verða sjálfsagt
einverjir til að halda að Yentl sé
stæling á hinni vinsælu mynd
Dustin Hoffmans, Tootsie, þvi
þannig vill til að sagan fjallar um
unga konu af gyðingaættum sem
langar óskaplega til að mennta
sig, en þar sem heimspeki gyðinga
bannar kvenmönnum slíkt dulbýr
hún sig sem karlmann og lendir
þar af leiðandi í mörgum undar-
legum uppákomum. En þeim, sem
þannig hugsa, er bent á að sagan
„Jeshíva-drengurinn Yentl“ kom
út á prenti fyrir mörgum árum, en
Tootsie er ekki nema tveggja ára
gömul mynd. Höfundurinn Isaac
Bashevis Singer hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 1978.
Þegar „Yentl" var frumsýnd í
Bandaríkjunum skömmu fyrir síð-
ustu jól vakti myndin feikna at-
hygli og menn voru ekki sparir á
jákvæðu lýsingarorðin. En þegar
kom að Óskarsverðlaunaútnefn-
ingum var sem Yentl hefði ger-
samlega gleymst; ef mig minnir
rétt hlaut hún ekki neina útnefn-
ingu. Barbra Streisand ku hafa
orðið feikivond, en Steven Spiel-
berg, vinur hennar með meiru,
huggaði hana með þessum orðum,
og kannski sjálfan sig í leiðinni:
„Þeir, sem eiga Óskarsverðlaun-
in skilið, fá þau ekki alltaf."
HJÓ
Leið Yentl frá ritvél nóbelskálds-
ins Isaac Bashevis Singer til leik-
konunnar / söngkonu nnar/ leikstjór-
ans/framleiðandans Barböru Streis-
and er enn eitt dæmið um kvikmynd
sem enginn vildi gera. Streisand,
sem á gífurlega erfitt með að hafa
taumhald á tilfinningum sínum,
rakst á smásöguna „Jeshíva-dreng-
urinn Yentl fyrir tæpum tuttugu ár-
um, en þá var hún aðeins óbreytt
leikkona meðal milljóna að berjast
til frama. Það var ekki fyrr en 1980
að hún réðst í það ærna verkefni að
breyta orðum Isaac Bashevis Singer
í sellulósa.
I
án þess að vera umkringd að-
dáendum.
Plötur með Barböru Streisand
tóku að seljast í Tékkó, en þar-
lendir sættu sig ekki við hennar
stutta og laggóða nafn. Þeir vildu
að hún héti Barbara Streizandova.
III
Barbra Streisand hefur leikið í
mörgum frægum og góðum og lé-
legum kvikmyndum um dagana.
Með frægari myndum hennar eru
„A Star Is Born“ (1976), „The Way
We Were“ (1973) og „What’s Up,
Það kom engum á óvart að
Barböru langaði til að stjórna
mynd, allra síst þeim sem ein-
hverju sinni höfðu reynt að leik-
stýra henni. En augabrúnir ófárra
risu upp í hársvörð þegar spurðist
að hún ætlaði að fjármagna
myndina sjálf, semja handritið,
leikstýra, leika titilhlutverkið og
semja einhver lögin ( myndinni,
allt í senn. Ekki höfðu allir trú á
að slíkt væri hægt, en Barbra lét
öll ókvæðisorð sem vind um eyru
þjóta. Barböru tókst ætlunarverk
sitt og er það einsdæmi í kvik-
myndabransanum. Það er því ekki
langt frá lagi þegar fullyrt er að
hún sé hæfileikaríkasta konan í
bransanum, þótt ekki séu allir
hrifnir af henni, en þannig gengur
lífið fyrir sig.
Barböru tókst að útvega nægi-
legt fjármagn til að hefja tökur.
En hún þurfti að sætta sig við ým-
iss konar skilyrði fyrir láninu.
Hún varð að bæta söngvum inn í
myndina, því auðvitað yrði platan
arðvænleg. Þá setti dreifingaraðil-
inn þak á fjárlögin, hann sagði að
ef hún færi fram úr 15 milljónum
dollara, þá yrði frúin að borga
hvert einasta sent, sem fram úr
færi, úr eigin vasa.
II
Barbra ákvað að filma megnið
af myndinni í Tékkóslóvakíu. Það
var aðallega tvennt sem henni
fannst spennandi við þann afkima
heimsins: í fyrsta lagi fyrirfinnast
þar margar byggingar sem hafa
andrúmslofti aldamótanna og í
öðru lagi er tékkneska þjóðin ekki
menguð auglýsingaskrumi auð-
valdsríkjanna, eins og austan-
tjaldslöndin myndu sjálfsagt
segja. í fyrsta skipti í langan tíma
gat Barbra þrammað meðal fólks
Þaö eru ýmiss konar smáatriði sem
Yentl þarf að huga að þegar hún
dulbýr sig sem karlmann.
Doc?“ sem undanfarið hefur verið
endursýnd í Austurbæjarbíói.
Meðleikendur Barböru Streis-
and í Yentl eru ekki sömu súp-
erstjörnurnar, en virtir leikendur
eru þeir engu að síður. Mandy Pat-
inkin leikur stærsta karlhlut-
verkið, en Mandy þessi sló í gegn
fyrir allmörgum árum þegar hann
lék Che Guevara í „Evítu“ þeirra
Andrew Lloyd Webbers og Tim
Rice á Broadway. Mandy lék einn-
ig í hinni rómuðu mynd Ragtime,
sem ekki hefur verið sýnd hér-
lendis, hvernig svo sem á því
stendur. Annað stórt hlutverk er í
höndum Amy Irving, sem varð
enn frægari úti í hinum litla heimi
þegar það fréttist að henni hefði
tekist að draga Steven Spielberg
upp að altarinu.
FRÉTTAPUNKTAR...
Kunningi okkar frá síðustu
kvikmyndahátíð, Richard Farns-
worth (The Gray Fox), er að slá í
gegn á efri árum. Þessi 64 ára
gamli leikari hefur nú komið fram
í u.þ.b. 300 myndum, oftast sem
„stuntmaður". Hann sérhæfði sig í
áhættuleik i vestrum og var tvífari
margra frægra leikara, einsog Roy
Rogers, Henry Fonda, Montgomery
Clift og Kirk Douglas.
Fyrsta „feita“ hlutverkið fékk
hann svo f myndinni The Cowboys,
með þeim John Wayne og Bruce
Dern. Síðan, eftir 40 ár í Holly-
wood, var Farnsworth tilnefndur
til óskarsverðlaunanna fyrir best-
an leik í aukahlutverki í myndinni
Comes a Horseman. Hann hlaut
góða dóma og mikla eftirtekt fyrir
sterkan og yfirvegaðan leik í The
Gray Fox, þar sem hann skyggði á
meðleikara sína, en myndin sú var
tvímælalaust með þeim betri á síð-
ustu kvikmyndahátíð, ekki síst
fyrir þátt Farnsworths.
Nú standa karli allar dyr opnar.
Hann fer með stórt hlutverk í
fyrstu mynd Roberts Redford í ein
Þeir félagarnir Sherlock Holmes og
Dr. Watson eru ódauðlegir á hvíta
tjaldinu. Hér er nýjasta útgáfan: Þeir
Peter Cushing sem Holmes og Sir
John Mills sem Watson. Með þeim
leikur Anne Baxter.
þrjú ár, The Natural, og er að ljúka
við aðra „stórmynd", Sylvester.
„Vestra“-áhugi virðist vera að
glæöast í kvikmyndaborginni við
Kyrrahafið á nýjan leik. (Sem bet-
ur fer.) Walter Hill (J,S Hours) er
að undirbúa einn stóran í sniðum
og Clint Eastwood er sestur í
hnakkinn aftur. Hann er að leik-
stýra Pale Rider, sem er hans
fyrsti vestri síðan The Outlaw Jos-
ey Wales, 1976. Clint til fulltingis
verða leikararnir Carrie Snod-
grass, Michael Moriarty og Richard
Kiel (stálkjaftur).
National Lampoon-hópurinn,
sem m.a. stóð að nokkuð lúnkinni
gamanmynd sem sýnd var I Aust-
urbæjarbíói í sumar, Vacation, er
nú að undirbúa myndina National
Lampoon European Vacation. Sem
fyrr verða þau Chevy Chase og
Beverly D’Angelo í aðalhlutverk-
um.
Robert Mitchum og Deborah
Kerr léku saman I nokkrum mynd-
um hérna á árum áður, með mikl-
um ágætum. Þær voru Heaven
Knows, Mr. AUison, The Sundown-
ers og síðasta mynd þeirra var The
Grass is Greener, gerð 1961.
Hin nýja mynd þessara ágætis-
leikara nefnist Reunion at Fairbor-
ouyh og segir frá því er Mitchum,
sem fer með hlutverk fyrrverandi
flugmanns á sprengiflugvél í
seinna stríði, rifjar upp gömul
kynni frá stríðsárunum og hittir þá
æskuástina sína, Deborah Kerr. Og
eftir fjörutíu ára viðskilnað kemur
margt nýtt uppá yfirborðið ...
Michael Cimino er kominn vel á
veg með Year of the Drayon, með
Mickey Rourke í aðalhlutverki.
Verið er að leggja síðustu hönd á
nýjustu stórmynd Sir Davids Lean,
Passage to India, m.a. er Maurice
Jarre að semja við hana tónlistina.
Jarre hefur tvisvar hlotið Óskars-
verðlaunin fyrir hlut sinn í mynd-
um Leans, þeim Doctor Zhivago og
Lawrence of Arabia.
Passage to India átti að frum-
sýna i kvikmyndahúsum viða um
jarðkringluna um jólin, m.a. i
Regnboganum, en fyrirsjáanlegt er
að af þvi verður ekki og myndin
kemur að líkindum ekki fram á
sjónarsviðið fyrr en snemma á
næsta ári.