Morgunblaðið - 02.12.1984, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
Aðventu-
skreytingar
í dag hefst jólafastan og þar meö
starfsár kirkjunnar. Jólafastan hef-
ur einnig veriö nefnd aöventa og hér
áöur fyrr voru vikurnar fram aö jól-
um einhver annasamasti tími ársins.
Var aöallega keppst viö ullarvinnu
og tóskap, síöasta vika fyrir jól var
nefnd staurvika, og sátu menn þá
gjarnan meö vökustaura í augutn til
aö þeir sofnuöu ekki út af. í ís-
lenskum þjóöháttum segir svo:
„Staurarnir eöa augnteprurnar voru
geröar ur smáspýtum, ámóta stór-
um og eldspýtur gerast nú á dögum.
Stundum var og notaö baulubein úr
þorskhöföi eöa eyruggabein. Var
skoriö inn í beiniö eöa spýtuna til
hálfs, en haft heilt hinumegin, og
gerö á lítil brotalöm og skinninu á
augnalokinu smeygt inn í lömina.
Stóöu þá endarnir í skinniö, og var
þá mjög sárt aö láta aftur augun.“
Að launum fyrir þessa vinnu-
semi var oft gefinn matarglaðning-
ur í vökulokin sem nefndist staur-
biti, en einnig var siður að gefa
svonefndan kvöldskatt f upphafi
jólaföstu og jólaundirbúnings.
Árni Björnsson lýsir þessu svo f
bók sinni „Jól á Islandi":
„ ... eitthvert kvöldið fór hús-
freyja fram og tók að skammta
heimilisfólkinu ýmislegt góðgæti á
stór föt eða diska. Átti allt að fara
fram með hinni mestu leynd, svo
að enginn vissi, fyrr en hrokuð
matarílátin kæmu inn úr baðstofu-
dyrunum. Voru þá tóvinnuverkfæri
lögð til hliðar hið bráðasta en tekið
ósleitilega til matar síns. Þótti það
illa útlátinn kvöldskattur, ef menn
gátu lokið honum fyrsta kvöldið.
Hitt var oftar, að menn gátu treint
sér hann nokkra daga og nartað í
hann við og við. Siður þessi mun
hafa viðgengist a.m.k. fram um síð-
ustu aldamót."
Guðrún Þórðardóttir í Btómum ogÁvöxtum bfrtilbinn hefðbundna aðventu-
krans.
Aðventuskreytingar í Borgarbtómi.
Aðventuskreytingar fri btómabúðinni Borgarbtóm.
í versluninni Btómaval var Bjarni
önnum kafinn við að búa til greniað-
ventukransa.
Uttí, danski btómaskreytingamaður-
inn íBtómavali, að störfum.
Ftóknari útgifa í höndum Unnar Gunnarsdóttur íBlómum og Ávöxtum.