Morgunblaðið - 02.12.1984, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
Nota Reykjanessalt við gærusöltun
Vogin, 26. BÓTember.
TILRAUNIR sem gerðar hafa verið í
slátairhósi Kaupfélags Suðurnesja
með notkun Reykjanessalts við
gærusöltun lofa góðu um að með
notkun Reykjanessalts verði verð-
nuetaaukning, miðað við það sem
áður var. Á síðastliðnu hausti var I
fyrsta skipti eingöngu notað Reykja-
nessalt, en við mat á gærum varð
hlutfallslega mikil hækkun f 1.
flokki, miðað við írin á undan. Talið
er að ástæðan sé saltið.
í haust var slátrað alls 10.220 i
sláturhúsinu, en voru 9.742 á sfð-
asta ári. Meðalþungi dilka var í
ári 14,56 kg, en á síðasta ári var
meðalþungi dilka 13,14 kg. Að
þessu sinni var slátrað frá 18.
september til 12. október og 29.
október til 2. nóvember. Slátrað er
fé úr landnámi Ingólfs, sem er frá
Hvalfjarðarbotni að ölfusá.
E.G.
Sýnum
SNORRAHUS
um helgina
að Hverafold 70. Grafan/ogi
HÚSASMIÐJAN HF
SÚÐARVOGI 3—5, REYKJAVÍK SÍMI: 687700
Foreldrar vilja
hraðahindran-
ir í Hlíðahverfi
„Foreldrar barna í Hlíðahverfi
eru mjög áhyggjufullir vegna vax-
andi umferðar um hverfið og í kring-
um Hlíðaskóla," sagði Kristín Ragn-
arsdóttir, formaður foreldrafélags
Hlíðaskóla, í samtali við Mbl.
En Foreldra- og kennarafélag
Hlíðaskóla hefur skrifað bréf til
umferðarnefndar Reykjavíkur-
borgar, þar sem þeim tilmælum er
beint til nefndarinnar, að hún
beiti sér fyrir því að komið verði
fyrir hraðahindrandi upphækkun-
um í Eskihlíð og Hamrahlið.
í bréfinu segir m.a. að þessi
aukna umferð stafi af nálægð við
hraðbrautir sem liggja frá ná-
grannabyggðarlögunum.
„Mikill fjöldi gamals fólks býr
við þessar götur,“ sagði Kristín.
„Og börnum hefur lika fjölgað þar
Tvær nýjar
Sígildar
skemmtisögur
Tvær bækur eru nýkomnar út I
endurútgáfu hjá Sögusafni heimil-
anna í bókaflokknum „Sígildar
skemmtisögur, 2. flokkur'*.
Eru það skáldsögurnar Sirkus-
stúlkan eftir Rudy M. Ayres og
Grænahafseyjan eftir Victor Brid-
ges.
Á bókarkápu segir að i þessum
flokki skáldsagna séu gamlar,
vinsælar skáldsögur, sem verið
hafa ófáanlegar árum saman, en
mikið hafi verið spurt um.
í þessum 2. flokki sígildra
skemmtisagna eru með þessum
bókum alls komnar út 16 sögur.
til muna. Umferð um Eskihlfö og
Hamrahlíð hefur aukist mjög und-
anfarið, m.a. vegna þess að tvær
götur, Háaleiti og Bústaðavegur,
hafa verið tengdar inn á Kringlu-
mýrarbraut, sunnan Hamrahlið-
ar. Umferðarljós á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar hafa ekki annað þessari
umferðaraukningu og þvi beinist
umferðin i auknu mæli gegnum
Hliðahverfið, fyrst og fremst eftir
Hamrahlið og Eskihlíð."
Þá kvað Kristín Foreldra- og
kennarafélagið hafa beint þeim
tilmælum til umferðarnefndar að
komið yrði upp fleiri gönguljósum
á þessum slóðum og að gengið yrði
endanlega fra tengingu Suður-
hlíðahverfisins við Hliðahverfi
með gangandi vegfarendur i huga
og þá sérstaklega vegna skóla-
sóknar barna i Hlfðaskóla.
„Ég bý í Hörgshliðinni og mér
er meinilla við að þurfa að láta
dóttur mfna, sem er níu ára, fara
yfir Hamrahlíðina," sagði Kristín.
„Mér er aldrei rótt að vita af
henni á ferli á þessum götum og
svo er um fleiri foreldra i hverf-
inu.“ ______ _ ______
Basar hjá Guð-
spekifélaginu
BASAR Þjónustureglu Guðspeki-
félagsins verður haldinn i dag,
sunnudaginn 2. desember, klukkan
14 í húsi félagsins að Ingólfsstræti
22, Reykjavík.
í frétt frá reglunni segir, að á
boðstólum verði m.a. kökur, grasa-
vendir, handavinna, fatnaður og
bækur.
HANS PETERSEN HF
Umboósmenn um land allt
Nú geturöu komió vinum og vandamönnum
skemmtilega á óvart með jólakorti sem skartar
þinni eigin Ijósmynd og sparaó um leiö dágóöa
upphæó.
Taktu mynd sem fyrst eóa veldu eina góða úr
safninu og vió sjáum um aö gera úr henni kort
sem stendur upp úr jólakortaflóöinu I ár.
Allt sem viö þurfum er filman þfn.
* Kort með umslagi. Minnsta pöntun er 10 stk. eftir sömu mynd.