Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
fclk í
fréttum
SNÆÞÓR OG HLYNUR
Unnu ferð til Færeyja
Síðastliðiö vor efndu Æskan og Flugleiðir til verðlaunasamkeppni þar
sem fyrstu verðlaun voru ferð til Færeyja og dvöl þar. Það kom í hlut
Snæþórs Vernharðssonar frá Möðrudal á Fjöllum og Hlyns Þórs Svein-
björnssonar frá Reykjavík að fara. Þeir ferðuðust víða um Færeyjar, en
farið var í ágúst og komu þeir félagar m.a. fram í barnatíma í útvarpi
Færeyja.
REIÐHJÓLA-
TORFÆRUKEPPNI
350 börn tóku
þátt í keppninni
Hollt fyrir
ungabörn að synda
Flestum ungabörnum finnst
gaman í baði, það kumrar í
þeim af gleði er í vatnið kemur,
og reynist oft erfitt að fá þau
ógrátandi uppúr baðinu aftur. í
Ástralíu eru sundnámskeið hald-
in fyrir börn undir eins árs aldri.
Þýskur prófessor að nafni Lise-
lott Diem segir að því fyrr sem
börnin læri að synda því hraust-
ari verði þau. Alveg eins og barn
lærir aö borða, tala og ganga á
það að fá að læra að synda. Það
eru ósjálfráð viðbrögð hjá barn-
inu að loka munninum um leið
og andlitið fer undir vatn og eft-
ir fyrstu klukkustundirnar í
vatninu lærir barnið að láta sig
fljóta. Síðan kemur þetta smátt
og smátt og barnið á að geta orð-
ið synt um sex mánaða aldur.
Barnalæknar í Sidney segja við
foreldra astmabarna að gott sé
að láta börnin í vatn, það hjálpi
upp á öndun og hjálpi börnunum
aö komast yfir astmann.
Dionne sem er
fimm mánaða
getnr enn ekki
gengið, en hvern
dag fer hún í
sund með móður
sinni.
I>að skemmtiiegasta sem
Davíð veit er að synda.
w
Iupphafi vetrarstarfsins hjá
KFUM og K í Reykjavík var
efnt til reiðhjóla-torfærukeppni.
Keppnin fór fram á torfærubraut-
um við Holtaveg og Árbæ. Kepp-
endur voru um 350, þ.ám. úr
Garðabæ og Hafnarfirði. Við birt-
um hér nokkrar myndir frá
keppninni, en sigurvegarar urðu í
yngri flokki 8—9 ára Orri Péturs-
son númer eitt, Grímur Axelsson
númer tvö og Valdimar Guð-
björnsson númer þrjú. í eldri
flokki frá 10—12 ára sigraði Val-
geir Sigurðsson, númer tvö varð
Hjalti Egilsson og númer þrjú
Sigurður Kristjánsson.
Sigurvegarar í eldri ilokki:
Frá vinstri Valgeir Sigurðsson, Hjalti Egilsson
og Sigurður Kristjánsson.
Sigurvegarar íyngri flokki:
Frá vinstri Orri Pétursson, fírímur Axelsson
og Valdiihar fíuðbjörnsson.