Morgunblaðið - 07.12.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
5
Arkin, félagsvís-
indadeild Háskól-
ans og NATO
„UPPHAFLEGA ætlaði William Arkin að koma hingað í maí en þá missti hann
af flugvél frá Washington til New York. I»egar við fréttum svo af því aftur að
hann yrði hér í nokkra daga nú, endurnýjuðum við boðið til hans um að hann
talaði á vegum deildarinnar,“ sagði Svanur Kristjánsson, forseti félagsvísinda-
deildar Háskóla íslands, þegar Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá honum um
komu Williams Arkin hingað til lands, en hann segist búa yfir upplýsingum um
að kjarnorkuvopn verði flutt hingað á stríðstímum.
Svanur Kristjánsson sagði að
deildin byði mörgum að tala á sín-
um vegum eins og sjá mætti í Ár-
bók háskólans. Ólafur Ragnar
Grímsson hefði m.a. vakið athygli
deildarinnar á því að William Ark-
in kæmi til landsins. Deildin
greiddi mönnum 1.500 krónur fyrir
slíka fyrirlestra. Það kom fram í
samtalinu við Svan að Arkin hefði
nú verið að koma af ráðstefnu í
Hollandi sem tengdist NATO með
einhverjum hætti.
Morgunblaðið leitaði upplýsinga
um þessa ráðstefnu. Hún var haldin
á vegum hollenskrar friðarrann-
sóknarstofnunar og var þar rætt
um varnarstefnu NATO með hlið-
sjón af hefðbundnum vopnum. Upp-
lýsingadeild NATO veitti styrk til
ráðstefnunnar og til hennar var
boðið mönnum með ólík sjónarmið.
Að sögn eins þátttakenda í ráð-
stefnunni vakti William Arkin at-
hygli á ráðstefnunni vegna þess hve
málflutningur hans var öfgakennd-
ur og andstæður stefnu NATO.
Stóryrtar röksemdir Arkins hefðu
verið með þeim hætti að aðrir
ráðstefnugestir gátu ekki samsinnt
honum. Hann hefði verið sá eini
sem skar sig úr að þessu leyti.
William Árkin starfar hjá einka-
stofnun í Bandaríkjunum, Institute
for Policy Studies, sem er vinstra
megin við miðju. Hann er mjög
gagnrýninn á utanríkisstefnu Ron-
alds Reagan og sagði m.a. í blaða-
viðtali fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum: „Hefðu Banda-
ríkjamenn snefil af vitsmunum
myndu þeir sjá tengslin á milli
endurkjörs Reagans og vígbúnaðar-
kapphlaupsins. En þeir hafa hann
ekki.“
Veðurskeyti vantar frá Grfmsey:
Engar veður-
athuganir kl. 6
Hef hætt þeirri athugun vegna ófullnægjandi launa,
segir Vilborg Sigurðardóttir, veðurathugunarmadur
VEÐURSKEYTI frá Grímsey klukkan
6 á morgnana eru nú hætt að heyrast í
veðurfregnum og hefur svo verið frá
I. desember. Hefur athugunin klukk-
an 6 lagst niður vegna óánægju veður-
athugunarmanns með launakjör. Hins
vcgar berast enn veðurskeyti frá
Grímsey á öðrum athugunartímum
fram til miðnættis. Mun lausn þessa
máls ekki í sjónmáli, en sjómenn hafa
kvartað nokkuð vegna þessa.
Það er Vilborg Sigurðardóttir
sem annast veðurathuganir í
Grímsey og hefur gert það síðan 1.
desember 1950. Vilborg sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að þetta væri
neyðarúrræði hjá sér, hún teldi sig
ekki fá nægileg laun fyrir þessa
vinnu, sem stæði með hléum frá því
klukkan rúmlega fimm á morgnana
og fram yfir miðnætti. Veðurathug-
unarmenn væru ríkisstarfsmenn og
hefðu launin fyrir þetta verið 10.778
krónur á mánuði fyrir hækkun.
Ekki væri til hagsmunafélag veður-
athugunarmanna og því reyndist
þeim torvelt að fá leiðréttingu mála
sinna enda væru þeir taldir laus-
ráðnir ríkisstarfsmenn. Þegar hún
hefði óskað launahækkunar hefðu
svörin verið á þá leið, að það væri
ekki unnt nema hún bætti á sig átt-
undu athuguninni, klukkan 3 á
nóttunni og þá með 25% álagi á þau
laun, sem hún hefði haft fyrir. Við
það hefði hún að sjálfsögðu ekki
sætt sig við og því hefði það orðin
raunin að hún hætti veðurathugun-
um klukkan 6 á morgnana með til-
heyrandi launalækkun. Þetta þætti
henni miður vegna þess hve mikil-
væg veðurskeyti frá þessum tíma
væru sjómönnum, en önnur lausn
hefði ekki verið fyrir hendi.
Hlynur Sigtryggsson, veðurstofu-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að Vilborgu hefði ekki fund-
ist hún fá nægilega launahækkun
með síðustu kjarasamningum.
Hann teldi sig hins vegar ekki geta
veitt henni neina launahækkun um-
fram aðra veðurathugunarmenn.
Hann hefði því aðeins getað boðið
henni hækkun með því móti að hún
bætti á sig athugun klukkan þrjú að
nóttu. Það hefði hún ekki sætt sig
við og þannig stæðu málin. Þá gat
hann þess, að auðvitað væri þetta
bagalegt fyrir sjómenn, en engu síð-
ur fyrir veðurstofunar, þar sem
spár hennar væru meðal annars
byggðar á veðurathugunum.
Páll Magnússon, þing-
fréttaritari sjónvarps:
Kærir fulltrúa
í útvarpsráði
fyrir ærumeið-
andi ummæli
PÁLL Magnússon, þingfréttaritari
sjónvarps, hefur kært Ingibjörgu Haf-
stað, varafulltrúa Samtaka um kvenn-
alLsta í Útvarpsráði, fyrir æru-
meiðandi ummæli í Útvarpsráði þann
9. nóvember síðastliðinn. Páll telur
ummælin varða 108. grein almennra
hegningarlaga. Ummælin sem Ingi-
björg lét bóka í Útvarpsráði eru svo-
hljóðandi: „Ég vil halda því fram að 3.
gr. núgildandi útvarpslaga um hlut-
leysi hafi verið margbrotin af þing-
fréttamanni sjónvarps og æski þess að
gerð verði úttekt á umfjöllun sjón-
varps á þingstörfum mismunandi
flokka og samtaka frá apríl og maí sl.
og frá því að þing hófst í haust.“
Um þetta segir Páll í bréfi til rík-
issaksóknara: „Ég undirritaður
starfa sem þingfréttamaður sjón-
varps og hef gert þann tíma, sem
tiltekinn er í bókuninni. Ber mér í
starfi mínu að gæta sérstaklega 3.
greinar útvarpslaga um að gæta
fyllstu óhlutdrægni gagnvart öllum
flokkum og stefnum í opinberum
málum, stofnunum, félögum og ein-
staklingum. Á þetta hef ég reynt að
leggja sérstaka áherslu í starfi
mínu.“
KARNABÆR
Laugavegi 66 - Laugavegi 30 - Glæsibæ - Austurstræti 22.
Sími frá skiptiboröi 45800.
Umboösmenn:
Bakhúsið, Hafnarfirði — Fataval, Keflavík — Lindin, Selfossi — Báran,
Grindavík — Nína, Akranesi — ísbjörninn, Borgarnesi — Þórshamar,
Stykkishólmi — Eplið, ísafiröi — Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvamms-
tanga — Sparta, Sauðárkróki — Álfhóll, Siglufirði — Norðurfell, Akureyri
— Ram, Húsavík — Skógar, Egilsstöðum — Nesbær, Neskaupstað —
Hornabær, Höfn Hornafirði — Eyjabær, Vestmannaeyjum — Kaupfélag
Rangæinga, Hvolsvelli —