Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 Dóttir mln, ELMA BJÖRK nudd- og snyrtisértræóingur, andaðist þriöjudaginn 4. desember aö heimili sinu Lokastíg 18. Fyrir hönd barna, barnabarns, systkina og annarra vandamanna. Guöjón Sigurösson. t Eiginmaöur minn og faöir, ANDRÉS MARKÚSSON, Engjavegi 73, Selfossi, veröur jarösunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 8. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaöir en þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir. Jónína Kristjónsdóttir, Halldór Andrésson. t Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, REBEKKA PÁLSDÓTTIR, Bæjum, Snæfjallaströnd, veröur jarösungin frá isafjaröarkirkju laugardaginn 8. desember kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna á Vestfjörðum. Óskar Jóhannesson, Péll Jóhannesson, Rósa Jóhannesdóttir, Ingi Jóhannesson, Marfa Jóhannesdóttir, Felix Jóhannesson, Jóhanna Jóhannesdóttir, barnabörn Lydia Sigurlaugsdóttir, Anna Magnúsdóttir, Andrés Hjörleifsson, Gunnur Guömundsdóttir, Sigurvin Guöbjartsson, Guörún Stefónsdóttir, Rasmus Rasmussen, barnabarnabörn. t Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÁRNÝ ÓLAFSDÓTTIR, Borgarvegi 9, Njarövfk, veröur jarðsungin frá Ytri-Njarövikurklrkju laugardaginn 8. desember kl. 14.00. Eirfkur Þorsteinsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum af alhug auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og jaröarför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SJAFNAR INGADÓTTUR, Þórufelli 6, Jón Marfasson, Dagbjört Jónsdóttir, Lilja M. Jónsdóttir, Ingvar Sigurgeirsson, Arnheiöur Jónsdóttir, Gunnar Guömundsson, og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför GUDRÚNAR GUDMUNDSDÓTTUR, Hrfseyjargötu 14, Akureyri. Guömundur Bjarnason, Kristfn Kjartansdóttir, Gfsli Bjarnason, Mélfrföur Siguröardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegt þakklæti fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, PÁLÍNU VALGERÐAR ODDSDÓTTUR, Bettý Antonsdóttir, Péll Gestsson, Anton H. Antonsson, Sólrún Aradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Valdemar Gestur Kristinsson Fæddur 6. október 1921 Dáinn 30. september 1984 Þegar mér var sögð sú harma- fregn sunnudaginn 30. sept. að banaslys hefði orðið í Svínahrauni og Valdemar G. Kristinsson hefði látið lífið, trúði ég því ekki. Nei, það gat ekki verið satt. En því miður varð ég að trúa því. Við get- um endalaust spurt: Af hverju? Hvers vegna? En svörin verða ansi fá. Svörin eru í hendi Guðs. Við mennirnir höldum alltaf að við ráðum, en í raun erum við van- máttugir gagnvart vilja Guðs. Hann ræður. Hann gefur og hann tekur. Hann lætur okkur hafa verk sem við eigum að vinna. Valdemar var búinn að vinna sitt verk, og hann vann það vel. Ef við sem eftir lifum verðum þess umkomin að vinna okkar verk eins vel og hann gerði megum við vel við una. Valdemar var fæddur á Végeirs- stöðum í Fnjóskárdai, þann 6. okt. 1921, sonur hjónanna Sigrúnar Jó- hannesdóttur og Kristins Indriða- sonar, sem síðar fluttust að Höfða í Höfðahverfi. Sigrún og Kristinn eignuðust 15 börn og var Valde- mar fjórða elsta. Nú eru ellefu þeirra á lífi. Valdemar er fjórði sonurinn sem Sigrún missir og manninn sinn missti hún fyrir rúmum 30 árum. Á þessu má sjá að mörg höggin hefur gamla kon- an fengið í gegnum árin. Megi Guð styrkja hana og hugga. Sigrún býr enn að Höfða, þar sem hún nýtur umhyggju sonar síns og tengda- dóttur, 92 ára gömul. Þann 16. ágúst 1947 gekk Valde- mar að eiga eftirlifandi konu sína, Guðbjörgu Óskarsdóttur ljósmóð- ur frá Eyri í Gufudalssveit. Eign- uðust þau átta börn sem öll eru uppkomin: Sigrún Jóhanna er þeirra elst, fædd 14.3.’47, síðan Komu Ragna f. 12.12.'48, Guðrún Sigríður f. 2.4.’51, Kristinn f. 19.12’52, Sumarliði óskar f. 18.5.’54, Valdemar Héðinn f. 31.7/55, Jóhannes f. 3.12.’56 og loks Auður Elísabet f. 10.3.’64. Valdemari kynntist ég árið 1976 og reyndist hann mér sem besti faðir. Óhætt er mér að fullyrða að aldrei hafi ég borið meiri virðingu fyrir nokkrum manni. í fjórtán ár var Valdemar mjólkurbílstjóri milli Grenivíkur og Akureyrar. Ekki voru bílstjór- Guðbjörg Guðjóns- dóttir — Minning Fædd 2. ágúst 1917. Dáin 1. desember 1984. f dag er kvödd hinstu kveðju Guðbjörg Guðjónsdóttir, sem lést í Landspítalanum laugardaginn 1. desember sl. eftir tiltölulega stutta legu. Guðbjörg eða Bagga eins og hún var ávallt nefnd í vinahópi var fædd og uppalin í Hafnarfirði, dóttir hjónanna Guð- jóns Gunnarssonar framfærslu- fulltrúa og Arnfríðar Jónsdóttur. „Jæja, þá sofnaði hún Bagga mín sínum hinsta svefni í gær- kveldi“ var það fyrsta sem barst mér til eyrna sl. sunnudagsmorg- un. Enda þótt mér hafði verið ljóst að hverju stefndi, snart fréttin mig og fjölskyldu mína djúpt. Því er þó ekki að leyna, að með það í huga að öll von var úti um bata, örlaði í huga mínum á þakklæti til Drottins fyrir þá náð, að hafa kallað hana Böggu til sín á þann þægilega hátt, sem raun bar vitni og að hlífa henni við langri legu og þjáningum. Þegar samferðafólk og góðir vinir hverfa á braut kemur gjarnan í huga manns, hversu fallvalt þetta líf er og að allt tekur enda. A slíkri stundu kemur manni gjarnan til hugar, að það er ekki lífsgæðakapphlaupið sem veitir varanlega hamingju og veganesti til annars lífs. Maður tekur ekki með sér yfir móðuna miklu þá veraldlegu hluti, sem maður safnar að sér. Minningarn- ar um ánægjulegar og uppbyggj- andi samverustundir með góðum vinum og ánægjuna yfir því að geta þjónað öðrum hefi ég hins vegar trú á að taka megi með sér. Bagga sem með blíðu og hýru við- móti sínu treysti þau góðu vina- bönd, sem komust á með henni og okkur hjónum, lagði því upp í ferðina miklu með gott veganesti. Bagga átti því láni að fagna að berast aldrei út í straumiðju þess lífsgæðakapphlaups og þeirrar andlegu streitu, sem hrjáir líf allt of margra í dag. Hún var því ávallt í góðu andlegu jafnvægi og án efa hefur það hjálpað henni við að mæta þeirri andlegu áraun, sem óhjákvæmilega fylgir vitn- eskjunni um erfiðan sjúkdóm. Fyrir um það bil einu og hálfu ári kom í Ijós að Bagga var haldin alvarlegum sjúkdómi, sem flestir bera mikinn kvíðboga fyrir. Allt fram til hinstu stundar var aldrei að finna hjá henni nokkra breyt- ingu á lífsviðhorfinu. Aldrei talaði hún um veikindi sín og því síður kvartaði hún. Þess í stað reyndi hún að njóta þess sem notið varð og hélt fullri lífsgleði að því er best varð séð. Slík var afstaða Böggu til lífsins. Hið skynsamlega mat hennar á því, hvað væri lífs- hamingja, hefur sannarlega komið henni til góða á lokaskeiði æfinn- ar. Enda þótt Bagga hafi að eðlis- fari verið fremur hlédræg var hún Birting afmœlis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minn- ingargreinar verða að oerast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. ar á þeirri leið öfundsverðir af hlutskipti sínu gagnvart veður- guðum þessa lands. Á þeirri 45 km leið komst Valdemar iðulega í hann krappan og þá dugði ekkert annað en harkan, því á þeim tíma voru snjómoksturstæki ekki á hverju strái og þurftu bílstjórarn- ir sjálfir að moka þunga bíla sína upp úr fannferginu. Þannig kom það fyrir að þessa leið sem venju- lega tekur 30—40 mín. að aka að Valdemar barðist í sex daga við verðurofsann, áður en áfangastað var loks náð. í strjálbýlum byggðarlögum var mjólkurbílstjórinn oft eini erind- reki hreppsbúa. Ekki var það óal- gengt að heimasætur vanhagaði hrókur alls fagnaðar i vinahópi enda naut hún þess að eiga sam- verustundir með vinum sínum, hvort heldur var á heimili hennar og Níelsar eða hjá kunningjum. Þessi ánægja hennar lýsti vel trygglyndi hennar gagnvart vin- um sínum. Hún var hlý í viðmóti, glaðlynd en barst ekki mikið á. Aðeins 17 ára gömul réðst Bagga starfsstúlka til Árna Þor- steinssonar, sem stofnaði Hafnar- fjarðarbíó, og konu hans, Helgu Níelsdóttur. Þegar Árni dó árið 1956 fluttist hún inn á heimilið og tók síðar við húsmóðurstörfunum er Helga lést árið 1963. Hún hefur síðan haldið heimili með Níelsi, syni Árna og Helgu, sem rekið hefur Hafnarfjarðarbíó eftir (laga föður síns. Hafnarfjarðarbíói og þeim, sem það hafa rekið, hafði Bagga þjónað af trúfestu og sam- viskusemi í 50 ár þann 1. október sl. Hún átti drjúgan þátt í því að gera heimili þeirra Níelsar hlýlegt og vinalegt og er þar nú skarð fyrir skildi. Þær eru ekki fáar ánægjustundirnar, sem við hjónin höfum átt á heimili þeirra, og sem við minnumst með þakklæti og hlýhug. Bagga lætur eftir sig fjórar systur, sem nú sjá á bak systur sinni með sárum trega. Með djúpum söknuði og innilegu þakklæti fyrir ánægjulegar sam- verustundir kveð ég ástkæran vin. Ég og fjölskylda mín vottum Ní- elsi Árnasyni, systrum hinnar látnu og öðrum aðstandendum innilegustu samúð. Megi Drottinn blessa ykkur og varðveita um ókomna framtíð. Gísli Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.