Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984 HEIMASMÍÐAÐUR KAFBÁTUR Ned Jago, sem býr í Axmouth á Englandi, er mikill völundur í höndunum og hefur smíðað margan góðan gripinn um dagana. Það nýjasta hjá honum er kafbátur, sem hann teiknaði og smíðaði heima hjá sér. Er hann tæplega 230 sm á lengd, rúmlcga 150 sm á breidd og vegur eitt tonn. Ned reyndi nýlega bátinn, sem er rafdrifinn, í höfninni í Axmouth og gekk allt að óskum. „Hann er eins og hugur manns, þægilegur, stöðugur og enginn leki,“ sagði Ned. AP Beirut: Svarti september boðar hryðjuverk Beirut, 6. nóvember. AP. í YFIRLÝSINGU frá hryðjuverkasamtökunum Svarta september, sem segj- ast bera ábyrgð á morði jórdansks sendimanns í Rúmeníu fyrir tveimur dögum, segir, að ákveðið hafi verið að taka upp aftur „byltingaraðgerðir". Mun með því vera átt við hryðjuverk og morð. Yfirlýsingin var birt í blaði í Beirut í Líbanon og sagði þar m.a., að „fullnægt hefði verið dauða- dómnum yfir útsendaranum Asmi Al-Mufti, ritara við sendiráð Kon- unglegu glæpastjórnarinnar". Er þá átt við Jórdaníustjórn en Svarti september var stofnaður eftir að Hussein, Jórdaníukonung- ur, rak úr landi fylgismenn PLO í september 1970. Salah Khalaf, náinn samstarfs- maður Yasser Arafats og fyrrum forystumaður í Svarta september, lýsti því yfir árið 1975, að samtök- in hefðu verið lögð niður en 1979 var annar forystumaður þeirra, Ali Hassan Salameh, ráðinn af dögum í Beirut. Er talið, að Mossad, ísraelska leyniþjónustan, hafi verið þar að verki. í yfirlýsingunni nú er Arafat sagður svikari við málstað Palest- ínumanna en hann hefur að und- anförnu átt í samningaviðræðum við Hussein, Jórdaníukonung. Gengislækk- un í Mexíkó Mexikóborg 6. des. AP. MEXÍ KÓSTJÓRN gerði kunnugt í dag að ákveðin hefði verið gengis- lækkun á peso, gjaldmiðli landsins um allt að sautján prósent. Væri þetta ekki hvað sízt gert til að laða ferðamenn til landsins og ekki þá sízt frá Evrópu. Eftir þessa breyt- ingu er staðan gagnvart Banda- ríkjadollar um 204,80. Síðustu tólf mánuði hefur pesoinn þá verið felldur sem svarar um þrjátíu pró- sentum. Bretland: Karlmannsrödd í símaklukkunni — í fyrsta sinn London, 6. desember. AP. BRÁIT getur í fyrsta skipti að heyra karlmannsrödd í símaklukkunni í Bretlandi. Brian Cobby, sem er 55 ára gamall, frétti í gær, miðvikudag, að hann hefði verið valinn úr hópi 5000 umsækjenda til að segja þjóðinni — á 10 sekúndna fresti allt árið — hvað klukkan er, en lesningin er spiluð af seglubandi. Breska símafélagið, sem er einkaleyfishafi símaþjónustu í Bretlandi, tilkynnti það í sjón- varpsþætti, hver hreppt hefði hnossið. Þar var Cobby viðstaddur ásamt 10 öðrum umsækjendum sem komust í úrslit og allir voru konur. Sýndu umsækjendurnir hæfni sína í upplestri. Aðeins tvær raddir hafa áður heyrst í símaklukkunni frá því að þessi þjónusta var tekin upp árið 1936 og voru báðar kvenraddir. Hina fyrri átti Ethel Cain, sem hætti 1963 eftir 28 ára starf. Á eftir henni kom Pat Simmons. Cobby fær 5.000 punda verðlaun (yfir 240.000 ísl. kr.) fyrir viðvikið. Þegar Simmons vann 1963 fékk hún 500 pund. En þegar Cain var valin 1936 fékk hún aðeins 10 'Æ pund. Símamynd/AP Borgarstjóri tekur við embætti Sir Alan Traill, nýr borgarstjóri í Lundúnum, tók formlega við embætt- inu í fyrra mánuði. Var þá að venju efnt til íburðarmikillar skrautsýn- ingar eða skrúðgöngu þar sem borgarstjórinn fór fremstur í gylltum vagni ásamt konu sinni, lafði Sarah, sem reið gráum gæðingi. Yfirborg- arstjórastaðan f Lundúnum er virðingarmikið embætti en því fylgja lítil raunveruleg völd. Pólland: Heimabruggun eykst Varsiá, 6. desember. AP. HEIMABRUGGUN vodka hefur vaxið jafnt og þétt í Póllandi síðustu árin, að sögn blaðsins Tribuna Ludu, hins opinbera málgagns, fyrir skömmu. Telur blaðið, að bruggun hafi aukist um 60% frá því í fyrra. Lögreglan hefur fundið og lagt hald á 12.000 eimingartæki, sem notuð voru með leynd, auk þess sem um 5.500 sprúttsalar hafa verið staðnir að verki, eða um þrisvar sinnum fleiri en í fyrra. Eftir þessu að dæma þykir Pól- verjum dropinn dýr. Hálfpotts- flaska af vodka kostar sem svarar u.þ.b. 180 kr. ísl. Tekjur af vínsölu færðu pólska ríkinu jafngildi rúmlega 135 milljarða króna og voru það um 15% af skattatekjun- um. Alkóhólismi er alvarlegt þjóð- félagslegt mein og heilbrigðisvandamál í Póllandi. jiosiarany Sænsk glerlist með handverk og hönnun í fararbroddi. Póstsendum Bankastræti 10. Sími 13122 KOSTA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.