Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
Hungrið í Afríku:
Rauði krossinn fer
fram á aukna aðstoð
Bandaríkjastjórn hefur lagt fram helm-
ing beinna fjárframlaga til Eþíópíu
(íenf, 6. nóvember. Al*.
AI.I'JOÐA RAUÐI krossinn skoraði í dag á aðildarríkin að gefa 66 milljónir
dollara á næsta ári til að lina þjáningar fólks á þurrkasvæðunum í Afríku.
Hefur stofnunin aldrei fyrr farið fram á jafn mikla aðstoð.
Talsmaður Rauða krossins sagði
að nú strax þyrfti að veita rúmar
50 milljónor dollara til hjálpar-
starfsins í 14 Afríkuríkjum,
Taiwan:
33 dánir í
námuslysinu
Taipei, 6. desember. AP.
BJÖRGUNARMENN vinna stanzlaust
að björgun 60 námumanna, sem lokazt
hafa niðri í námugöngum fullum af
hættulegu gasi í grennd við Taipei á
Taiwan. I»egar hafa 33 menn beðið
bana í þessu námuslvsi og er óttazt, að
sú tala eigi mjög eftir að hækka.
Möguleikarnir á því að ná nokkr-
um af námumönnunum upp lifandi
eru taldar litlar, þar sem margir
dagar muni líða, þar til björgunar-
menn hafa náð að grafa sig niður til
þeirra. Mennirnir eru lokaðir inni í
um 2.000 metra fjarlægð frá aðal-
innganginum að námunni. Eini nám-
umaðurinn, sem tekizt hefur að ná
upp, er enn svo þungt haldinn, að
honum er vart hugað líf. Liggur
hann enn meðvitunarlaus af völdum
kolsýringseitrunar.
Námaslys hafa verið tíð á Taiwan
að undanförnu. I júlí sl. biðu 103
námumenn bana, er eldur kom upp í
annarri námu í grennd við Taipei.
Eþiópíu, Chad, Kenya, Malí,
Máritaníu, Mósambik, Niger, Ru-
anda, Senegal, Súdan, Tanzaníu,
Uganda, Burkina Faso og Græn-
höfðaeyjum. Annarra 15 milljóna
dollara er svo þörf á Sahel-svæð-
inu þar sem ástandið fer hríð-
versnandi.
„Ég tel að nú eigi Sameinuðu
þjóðirnar að láta málið til sín taka
og leggja svo hart að öllum þjóð-
um, að þær þori ekki annað en
leggja eitthvað af mörkum. Um
þetta mál þarf að verða meiri
samstaða en þjóðunum hefur
hingað til tekist að sýna,“ sagði
Norðmaðurinn Hans Hoegh,
framkvæmdastjóri Alþjóða Rauða
krossins. „Hungrið má ekki verða
að 15 daga uppákomu í vestrænum
fjölmiðlum því að hér er um að
ræða 15 mánaða neyðaraðstoð og
síðan 15 ára stuðning við fólkið á
hungursvæðunum."
Odette Mengin, talsmaður
hjálparstofnana SÞ, skýrði frá því
í dag, að bein fjárframlög til
hjálparstarfsins í Eþiópíu næmu
nú 200 milljónum dollara og að
þar af hefðu Bandaríkjamenn lagt
fram rúmlega helminginn, 103
milljónir. Sagði hún að raunveru-
lega væri aðstoðin miklu meiri.
Flutningar matvæla og lyfja og
annað starf væri ekki talið hér
með enda erfitt að meta það til
fjár.
Muzeyyen Agca, móðir tilræðismanns páfa, Mehmet Ali Agca, vill hitta son sinn í Róm samkvæmt viðtölum við
hana í blöðum. Myndin var tekin við húsleit á heimili hennar.
Noregur:
Styrkir við útgerðina
tæpir 6,2 milliarðar
OmIó, 6. desember. Frá Jan Erik Laure, frélUritar* Mbl.
í MORGUN varð samkomulag milli
ríkisins og samtaka sjávarútvegsins
um styrki til útgerðarinnar á næsta
ári. Eftir 18 stunda samningalotu
urðu menn sammála um að styrkur-
inn skyldi nema tæpum 6,2 milljörð-
Rússland:
99
Úr vöggunni í vökina“
MoNkvu, 6. nóvember. AP.
í RÍJSSLANDI hefur sá sidur tíðkast öldum saman aÓ baöa sig upp úr
ísköldu vatni að vetrarlagi, gera vök á ísinn á einhverju vatninu og steypa
sér ofan í hana. Þessi íþrótt hefur ekki þótt neitt barnagaman fyrr en nú,
að bópur foreldra í Leningrad er farinn að taka hvítvoðungana með sér
ofan í krapað vatnið. Börnunum hefur heldur ekki orðið meint af, þvert á
móti hafa þau sem þjáðust af ofnæmi og sprungum í húð, algerlega
læknast af þeim kvillum.
í grein í blaðinu „Sovéska
Hvíta-Rússland“, sem heitir „Or
vöggunni í vökina" segir að árið
1980 hafi verkfræðingur í Len-
ingrad brotið ísinn að þessu leyti
en þá tók hann þriggja mánaða
gamla dóttur sína með sér ofan í
vökina. Nú er hann formaður
„Kópaklúbbsins", sem er félags-
skapur foreldra og barna, sem
stunda ísböðin. Ekírnunum er
raunar ekki att út í vatnið óund-
irbúnum því að fyrst eru þau
vanin við kuldann með því að
hella yfir þau köldu vatni heima.
Barnalæknar sem hafa fylgst
sérstaklega með 50 börnum og
þeim áhrifum, sem böðin hafa á
þau, segja að enn sé of snemmt
að kveða upp endanlegan úr-
skurð, en þó sé alveg ljóst að
köldu böðin hafi mjög góð áhrif
á krakkana og geri þau heilsu-
hraustari. T.d. hafi ofnæmi og
sprungin húð alveg horfið og
háræðakerfi húðarinnar miklu
heilbrigðara en annars væri.
um ísl.króna (1.375 milljónum n.kr.),
en það er 1,2 milljarða ísl.kr. (275
milljón n.kr.) hækkun milli ára.
Samtök sjávarútvegsins kröfð-
ust upphaflega tæplega 9 millj-
arða ísl.kr. (tæpra 2000 milljóna
n.kr.) í styrki, en lækkuðu sig um
tæplega 2,6 milljarða ísl.kr. (575
milljónir n.kr.) í viðræðunum.
Hækkaði ríkið fyrsta tilboð sitt
um sömu upphæð.
I næstu viku hefjast fundir
sömu aðila um það, hvernig skipta
skuli styrkupphæðinni. Er búist
við, að þær samningaumleitanir
verði ekki síður harðar en hinar
fyrri. Vill ríkið að sem mestu af
fénu verði varið til afkastahvetj-
andi aðgerða í sjávarútveginum.
Sjómenn vilja hins vegar nota
þessa fjármuni til fiskverðsupp-
bóta, svo að unnt sé að tryggja
þeim viðunandi laun.
Samningurinn sem tekist hefur
er hinn fyrsti sinnar tegundar sem
tekst með ríkisstjórn Willochs og
samtökum sjávarútvegsins. Tvö
undanfarin ár hafa samningarnir
farið í strand og Stórþingið orðið
að ákveða styrkupphæðina ein-
hliða.
ERLENT
Noregur:
Treholt afhjúpaður
sovétnjósnari 1980
að sögn fyrrverandi starfsmanns í sænsku leyniþjónustunni
Ósló, 6. desember. Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Mbl.
ARNE Treholt haföi þegar veriö afhjúpaöur sem sovét-
njósnari áriÖ 1980. Var þaö suöur-afríska leyniþjónustan
sem gerði það í samvinnu viö ísraelsku leyniþjónustuna,
Mossad.
Frá þessu greinir fyrrverandi
starfsmaður sænsku leyniþjón-
ustunnar. Hann hitti suður-
afrískan njósnara á hóteli í Jó-
hannesarborg í september 1980.
Sagði Suður-Afríkumaðurinn
Svíanum, að Treholt gegndi
mikilvægu hlutverki sem njósn-
ari í Skandinavíu og ynni fyrir
sovésku leyniþjónustuna, KGB.
Upplýsingum þessum kom
sænski leyniþjónustumaðurinn
til yfirvalda í Svíþjóð, en óvíst
er um, hvort norsk yfirvöld hafa
verið látin vita. Á þéssum tíma
höfðu þau aðeins veikan grun
um að ekki væri allt með felldu
og höfðu nýlega beðið banda-
rísku leyniþjónustuna, CIA, um
að skyggnast eftir Treholt, sem
þá var fulltrúi í norsku sendi-
nefndinni hjá Sameinuðu þjóð-
unum í New York.
Margir spyrja nú þeirrar
spurningar, hvers vegna það
hafi tekið þrjú ár að afhjúpa
Treholt, ef haldbærar upplýs-
ingar lágu fyrir um hann þegar
1980. Létu Svíarnir félögum sín-
um í Noregi engar upplýsingar í
té? Eða er ástæðan e.t.v. hrein
mistök norsku leyniþjónustunn-
ar?
Treholt-málið mun að öllum
líkindum koma fyrir rétt í sið-
ustu viku febrúarmánaðar á
næsta ári. Óvíst er, hvort rétt-
arhöldin verða látin fara fram í
venjulegum réttarsal eða hvort
þau verða að eiga sér stað þar
sem unnt er að koma við víðtæk-
um öryggisráðstöfunum. Enn
fremur er óljóst, að hve miklu
leyti réttarhöldin fara fram
Arne Treholt
fyrir luktum dyrum, þ.e. án þess
að fulltrúar fjölmiðla og al-
menningur fái að fylgjast með.
Hluti réttarhaldanna mun
áreiðanlega verða „lokaður"
vegna þeirra leynilegu upplýs-
inga sem lagðar verða fram í
málinu.
Veður
víða um heim
Akureyri
Amiterdam
Aþena
Barcelona
Berlin
Brusael
Chicago
Dublin
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Loa Angeles
Luxemburg
Malaga
MaHorca
Miami
Montreal
Moskva
Now York
Osló
Parfa
Peking
Reykjavík
Rio de Janeiro
Rómaborg
Stokkhölmur
Sydney
Tókíö
Vínarborg
Þórshöfn
1 léltskýjsö
7 heiöskirt
13 skýfaó
14 mistur
5 skýjaó
10 heiósktrt
+2 skýjsö
11 skýjsó
7 þokumóóa
5 skýjað
6 skýjaó
4 skýjaó
21 heióekirt
12 heióskirt
5 skýjaó
20 skýjaó
14 rignfng
10 skýjaó
18 skýjað
2 þoka
17 skýjað
17 lóttakýjaó
26 heióskírt
+3 snjókoma
+2 snjókoma
4 heiðskírt
6 skýjað
11 skýjaó
5 heiðskirt
1 slydduél
33 skýjað
20 heiðskirt
4 skýjaó
25 akýjað
17 akýjað
4 ekýjað
6 léttskýjað