Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 15
Trölla-
líf
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Tröllabókin
Saga eftir Jan Lööf meö myndum
eftir Rolf Lidberg.
horsteinn frá Hamri þýddi.
Iðunn Reykjavík 1984.
Tröllabókin er lítið ævintýri
sem Iðunn gefur út handa ung-
um lesendum. Höfundi veit ég
engin deili á.
Hér segir frá tröllafjölskyldu
og daglegu lífi hennar. Það er
ekki ólíkt lífi mannanna eins og
það var áður í kyrrð og ró nátt-
úrunnar, þegar allir ættliðir
deildu lífsbaráttunni saman.
Höfðu tíma til að gleðjast sam-
an yfir litlu blómi er vaknaði til
vorsins og stjörnubjörtum
himni í fegurð vetrarins. Þegar
lítill fugl leitaði að æti i lófa
tröllapabba.
Á sumrin tíndi tröllafjöl-
skyldan ber og sveppi, ræktaði
kartöflur og næpur. Veiddi fisk í
Miklavatni, saltaði hann, herti
og reykti. Allt til vetrarins.
Dýrin í skóginum lifðu í friði
fyrir henni. Þau komu aðeins við
sögu þegar tröllabörnin frædd-
ust um lifnaðarhætti þeirra hjá
fullorðnu tröllunum.
Dýrð sumarsins var sameign
tröllanna. Þegar harður vetur
kom með snjóa og ís á Mikla-
vatni voru vetrarfötin hlýju not-
uð. Þau voru unnin úr snjóhvítri
fífu, sem týnd var um sumarið.
Þau komu sér vel þegar setið var
á ísnum á vatninu og dorgað
gegnum götin sem höggvin voru
á hann. Eða í skóginum þegar
stóru trén voru felld.
Tröllin áttu líka skíði og
skauta sem voru óspart notuð.
Eitt kvöld í desember eldaði
amma hrisgrjónagraut. Sá siður
hafði borist frá mannfólkinu.
Einhverju tröllabarninu datt í
hug að gaman væri að fá pakka
líka. Og af því að tröllafjöl-
skyldu þykir bæði gaman að
gefa og fá gjafir ætlaði amma að
hugsa málið.
Þetta er sérlega skemmtilegt
ævintýri á lipru og góðu máli,
enda er Þorsteinn frá Hamri
þýðandinn. Ekki trúi ég öðru en
ungir lesendur staldri lengi við
myndirnar, svo skemmtilegar og
lifandi eru þær. En — hafa
tröllin hala í vitund okkar?
GAMMAR
3GCSMR
G(to PIJOAGULLIBLTRI