Morgunblaðið - 07.12.1984, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
9
Höfum fengiö
aftur
þessi vinsælu ítölsku
skinnfóöruöu kven-
leöurstígvél.
Litir: svört og dökk-
brún.
Verd kr.
1.499,00
Póstsendum.
AMERÍSK HEIMILISTÆKI
í SÉRFLOKKI
ÞVOTTAVEL
GÓÐIR
GREIÐSLUSKILMÁLAR
r~ Ommrtom
/_ yn*
miftyfcu-
Or
PJÓBMÁL
MENNING
tsiand
KJARN0RKUV0PN
Á STRÍÐSTÍMUM
William Arkin segir staðgódar heimildirfyrirþvíað yfirvöld i Bandaríkjunum hafi
veitt samþykkifyrir flutningi kjarnorkuvopna til Islands á stríðstímum. Arkin átti fund með
^^^^^^forsœtisráðherraígær^oghitti^GeirJIallgrimssonaðmáliída^^^^^^^
Bandarískt vandamál
Þaö er til marks um hve allt er þykir grunsamlegt og
snertir varnir og öryggi íslensku þjóðarinnar er í hávegum
haft hjá ríkisfjölmiölunum hvernig William Arkin hefur ver-
iö tekiö. Látiö er eins og leyniplaggið frá Washington sé
íslenskt vandamál. Það er mikill misskilningur. Stefna ís-
lenskra stjórnvalda er skýr: Bandaríkjamenn koma ekki
meö kjarnorkuvopn hingað nema með íslensku leyfi. Þá er
þaö vandamál bandarískra stjórnvalda ef trúnaðarskjöl
með fyrirmælum forseta til flota liggja á glámbekk. í
Staksteinum í dag er fjallað um fjölmiðlahlið Arkin-máls-
ins, sem er síður en svo óþekkt íslenskt vandamál.
Ný þjóðhetja?
KíkLsfjolmirtlarnir létu
þannig med William Arkin
á miAvikudaginn að menn
héldu aö til landsins hefrti
loksins arkað sá maður
sem gæti með vfirlvsingum
sínum tryggt „frið um vora
daga“. Plaggið sem hann
veifaði var að vísu illa
fengið og hann gat engum
sýnt það nema forsætis-
ráðherra og utanríkisráð-
herra íslands. I»ví var ekki
jafn mikið hampað af ríkis-
fjölmiðlunum að fyrir rúm-
um fjórum árum var þessi
sami Arkin til umræðu,
fyrir tilstuðlan fréttastofu
hljóðvarps rikisins, sem þá
fékk staðfestingu hjá hon-
um fyrir því að kjarnorku-
vopn væru hér á íandi. Nú
segist Arkin hafa farið vill-
ur vega þá, þaö séu engin
kjarnorvopn á íslandi og
hafí ekki heldur verið
1980, en hann hafi hins
vegar plagg undir höndum
(að vísu frá 1975) sem sýni
svart á hvítu að hingað eigi
að flytja kjarnorkuvopn á
stríðstímum.
William Arkin kom
hingað af ráðstefnu í Hol-
landi. I»ar tók hann til
máls og lýsti harðri and-
stöðu við stefnu Banda-
ríkjastjórnar í utanríkis-
málum og hallmælti varn-
arstefnu NATO. Var hann
svo gífuryrtur að enginn á
þessari ráðstefnu taldi sér
fært að taka undir með
honum. þvert á móti. I>að
hlýtur því að hafa verið
míkill léttir fyrir Arkin að
koma til íslands og vera
hafinn til skýjanna í ríkis-
fjölmiðlum, fá að tala við
þingmenn, ráðherra, emb-
ættismenn, öryggismála-
nefnd og flytja fyrirlestur í
háskólanum eins og sá
sem einn veit og hefur það
þar að auki skjalfest í illa
fengnu trúnaðarskjali.
Olafur R. Grímsson
skrifar hátíðarleiðara um
Arkin í l'jóðviljann í gær
og segir hann í „fremstu
röð fra'ðimanna á sviöi
kjarnorkuvopna". Aö
vanda þarf Olafur að fá
frægan mann sér til stuðn-
ings og vitnar að þessu
sinni í McGeorge Bundy
sem var ráðgjafl Kenn-
edys, Bandaríkjaforseta,
fyrir rúmum tveimur ára-
tugum og Olafur getur þess
einnig til marks um mikil
leika Arkins að hann hafl
hitt þá merku íslendinga
sem áður er getið og talað í
sjálfum háskólanum —
hringnum er sem sé lokað.
Og ætlar Ólafur alls ekki
að hafa erkibiskups-
boðskap að engu.
Hvar gæti
þetta gerst?
íslendingar taka yflrleitt
vel á móti útlendingum og
sýna þeim jafnan þá kurt-
eisi að veita þeim viðtöl
þegar eftir er lcitað. Sjald-
an er frá slíkum heimsókn-
um skýrt enda væri þaö til
að æra óstöðugan. Koma
Arkins hingað og það veð-
ur scm gert hefur verið út
af henni í ríkisfjölmiðlun-
um og með alls kyns
bægslagangi hlýtur hins
vegar að vekja menn til
umhugsunar um það, hvort
gestrisni af þessu tagi eigi
rétt á sér þegar hún er
beinlínis misnotuð. Hingað
kemur maður með illa
fengið skjal, sem staðinn
er að röngum fullyröingum
um kjarnorkuvopn á ís-
landi fyrir fjórum árum, og
honum er tekiö með slík-
um kostum og kynjum að
menn muna vart annaö
eins.
hjóðviljinn hóf frétta-
flutning af „uppljóstrun-
um“ Arkins á miðvikudag-
inn með því aö vitna í
Kastljós-þátt sem Ög-
mundur Jónasson stjórnaði
á þriðjudagskvöldið. Fyrsta
frétt hljóðvarps ríkisins
bæði í hádegi og um kvöld
á miðvikudag var um Ark-
in, ráðherrar voru auðvitað
kallaöir til og látnir svara
ábúðarmiklum spurning-
um. Knginn gat efast um
að frekar ætti að trúa Ark-
in en ráðherrunum. f gær
heldur Þjóðviljinn auðvitað
áfram með málið á forsíðu.
Ekkert blaðanna leggur
jafn mikla áherslu á Arkin
og Þjóðviljinn og ríkis-
fjölmiðlarnir. I'að er ekki
minnst á hann hvorki í Al-
þýöublaöinu né NT, Morg-
unblaöið segir frá málinu á
annarri síðu og Dagblaöið-
Vísir á þriðju síðu.
En Arkin-málið hefur
auðvitaö hinn hefðbundna
gang þeirra mála sem
ríkisfjölmiðlarnir og l>jóð-
viljinn taka upp á sína
arma, það var tekið fyrir
utan dagskrár á Alþingi í
gær að ósk alþýðubanda-
lagsmanna. Vfirlýsingar
Arkins hafa áður verið tí-
undaöar sem upphaflnn
sannleikur á þingi. l>ær
reyndust alrangar. Sjón-
varpið hljóp fyrir ári af stað
mcð stýriflaugaskýrslu og
ísland og málið var rætt á
þingi, þaö barst héðan til
Danmerkur og hefur af
blaðamönnum Politiken
verið talið til marks um
lygaherferð á vegum KGB.
Langdrægar kjarnorku-
sprengjuvélar og viðkoma
þeirra á íslandi var við-
fangsefni í Kastljósi sjón-
varpsins í janúar 1984.
Kinnig í því efni var um
órökstuddar getgátur að
ra’ða. Getur þetta allt gerst
annars staöar en hér þar
sem höföað er til reynslu-
og þekkingarleysis al-
mennt um þessi alvarlegu
mál?
Efnahagsstefnan
Æ-
I
Noregi
Thor Bang, aöstoöarbankastjóri og yfirhagfræðingur, Den Norske Creditbank,
flytur erindi á almennum félagsfundi Verzlunarráðs íslands í Kristalsal Hótels
Loftleiða, mánudaginn 10. desember nk., klukkan 16:00—18:00. Erindi hans
nefnist:
Efnahagsstefnan
í Noregi
Thor Bang er formaður Landsnefndar Alþjóða verzlunarráðsins í Noregi og
hann á sæti í framkvæmdastjórn Alþjóöa verzlunarráösins. Hann mun ræöa
sérstaklega um framtíðarhorfur norsks iönaöar, olíuvinnslu, álframleiöslu, fisk-
eldi; skattamál; þróun veröbréfamarkaöar og minnkun ríkisumsvifa.
Muniö aö tilkynna þátttöku í síma 83088.
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Hús verslunarinnar
108 Reykjavík, sími 83088