Morgunblaðið - 07.12.1984, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1984
fclk í
fréttum
Eina vandamáliA er að for-
eldrarnir eru systkini.
Morgunbladid/Rax
KK og PK minnast
gulláranna
Þeir eru feðgar, mennirnir á myndinni, engir aðrir en KK sjálfur, Kristján Krist-
jánsson, og Pétur W. Kristjánsson. Báðir eru kunnir hljómlistarmenn og hafa
samanlagt í rúm 30 ár verið í fremstu sveit íslenskra dansmúsíkanta. Kristján stjórn-
aði KK-sextett sínum frá 1947 til ársloka 1961 og aðeins örfáum árum síðar hóf Pétur
sinn feril, sem varði í hálfan annan áratug.
Myndin var tekin þegar Pétur, sem nú er framkvæmdastjóri hljómplötuútgáfunnar
Steina hf., afhenti föður sínum fyrsta eintakið af tveggja platna albúmi með hljóðrit-
unum KK-sextettsins, sem hlotið hefur nafnið „Gullárin" og Steinar hf. gefur út til
ágóða fyrir Styrktar- og menningarsjóð KK. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja
ungt tónlistarfólk til náms.
A plötunum eru alls 33 lög, sem hljóðrituð voru á æfingum, dansleikjum og hljóm-
leikum KK-sextettsins á meðan hann var og hét. Flestar hljóðritanirnar gerði Kristján
Magnússon ljósmyndari og píanóleikari. Oft hefur komið til tals að gefa út eitthvað af
þeim lögum, sem þannig voru hljóðrituð, en ekki orðið af því fyrr en nú, að Pétur og
fleiri tóku sig til og fóru í gegnum það, sem til er. Af nógu var að taka og nóg er til enn.
Á annarri plötunni er KK-sextettinn í jazzskapi og flytur íslensk og erlend jazzlög en
á hinni eru lög úr ýmsum áttum flutt af KK og söngvurunum Ellý Vilhjálms, Díönu
Magnúsdóttur, Sigrúnu Jónsdóttur, Ragnari Bjarnasyni, óðni Valdimarssyni og Ha-
rald G. Haralds. Plötunum fylgir fjórblöðungur, þar sem Ólafur Gaukur, er lengi lék á
gítar með KK, rekur sögu sextettsins í máli og myndum. Fyrstu 1.000 eintökin eru
númeruð.
Hið íslenzka umdæmi Kiwanishreyfingarinnar samþykkti nýverið einróma að bjóða fram til
heimsstjórnar Kiwanishreyfingarinnar. Frambjóðandinn er Eyjólfur K. Sigurðsson fyrrverandi
Evrópuforseti hreyfingarinnar. Myndin hér að ofan var tekin á fyrsta umdæmisstjórnarfundi nýkjör-
inna fulltrúa, 3. nóvember sl. Eyjólfur er fimrati í röðinni hægra megin við borðið, talið frá
borðsendanum nær.
Foreldrarnir
eru
alsystkini
m
IFrakklandi býr Htil stúlka, sem er sex
mánaða gömul. Ásýndar er hún ósköp
venjulegt ungabarn sem á hamingjusama
foreldra, André og Jacqueline. En það er
einn galli á gjöf Njarðar. Lögin vilja ekki
viðurkenna André sem föður barnsins, því
foreldrarnir eru alsystkini.
Nýlega opinberuðu þau sögu sína, systk-
inin, í sjónvarpi. Hún byrjaði þannig að
André og Jacqueline voru aðskilin sem
smábörn. Þau sáust aldrei I barnæsku og
það var ekki fyrr en Jacqueline var orðin
fráskilin og einmana 22 ára að hún ákvað
að fara af stað og finna hina upprunalegu
fjölskyldumeðlimi áina. Fyrst fann hún
systur sina, Francoise, og eftir að hafa
skrifað bróður sínum ákváðu þau að hitt-
ast í jazzklúbbi í París. Þau vissu ekkert
hvernig þeim átti eftir að líka hvoru við
annað og gleymst hafði að segja hvernig
þau litu út, svo þau vissu ekkert hvernig
þau myndu þekkjast, það fór þó allt vel. En
frá fyrsta augnabliki, sagði Jacqueline,
fékk ég þarna vin sem ég gat talað við og
treyst. Það var I ágúst 1979 að þau upp-
HALLA HARALDSDÓTTIR
Vinnur að
steindum glugga
í Hveragerðiskirkju
Halla að vinna að Hveragerðisglugganum með starfsmönnum á verk-
stæði Oidtmans.
Halla Haraldsdóttir býr í
Keflavík. Hún hefur verið að
mála síðan hún var 16 ára gömul,
var í Handíðaskólanum hjá Erró
sem hún var ákaflega hrifin af,
og síðan í námi í Danmörku hjá
Sören Edsebeg í einn vetur og
hefur haldið margar málverka-
sýningar hér og erlendis. Nú er
hún að undirbúa sína fyrstu sýn-
ingu á steindum gluggum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Halla er í listiðnaðarverkstæði
Oidtmans í Þýskalandi. Þar hefur
hún verið af og til sl. fimm ár við
að læra og kynna sér slík vinnu-
brögð. Og hún hefur gert tillögu
um steinda glugga í verksmiðju í
Þýskalandi og í fleiri kirkjur á
(slandi. Sýningin sem talað er um
í þýska blaðinu verður helguð
Marteini Lúter og mun Halla eiga
þar steindan glugga og einnig
mynd í listaverkabók, sem kemur
út í Þýskalandi í sambandi við
sýninguna.
Myndinar sem hér fylgja eru úr
þýska blaðinu
w
Íþýsku blaði birtist nýlega
mynd af íslenskri listakonu,
Höllu Haraldsdóttur, þar sem
hún er að vinna að steindum
kirkjuglugga í verkstæði bræðr-
anna Oidtmans í Þýskalandi. Og í
greininni, sem ber fyrirsögnina:
Gluggar unnir fyrir Japan, Island
og Pólland (á við verkstæðið), er
sagt frá því að Haila sé þarna að
vinna að 20 m* steindum glugga í
kirkjuna í Hveragerði og að auki
sé hún að vinna steinda glugga á
sýningu sem Oidtmansbræður
séu að undirbúa. Halla var í fimm
vikur í haust í Þýskalandi við að
stækka kirkjugluggateikninguna,
raða niður litum og skyggja gler-
ið, því hún þurfti að mála í það.
Kirkjuglugginn verður upp af
altarinu í Hveragerðiskirkju og á
að setja hann í á árinu 1985.
Hann er að því leyti sérstæður að
í honum er kopalgler, sem sést út
um en ekki inn um. Þetta er
Kristsmynd, en Halla hefur tekið
mið af aðstæðum í Hveragerði og
koma þar fyrir steinar og gufa og
Halla að mála í lítinn, steindan glugga.
einnig stirndur íslenskur himinn.
Hugmyndina fékk Halla er hún
var að vinna í leyfi á Mallorca og
lagði fram þrjár hugmyndir.
Hvergerðingar völdu þessa með
atkvæðagreiðslu úr fleiri fram-
lögðum myndum.