Morgunblaðið - 09.01.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
5
Harmljóð, Júpíter
og Vorblót á tón-
leikum Sinfóníunnar
— Hljómsveitin stækkuð í 90 manna
sveit vegna flutnings Vorblótsins
NÆSrrU áskriftartónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands verða í Há-
skólabíói á morgun, fimmtudag, og
hefjast þeir klukkan 20.30. Á efn-
isskrá verður: Elegie (Harmljóð) eft-
ir Szymon Kuran; sinfónía nr. 41 I
C-dúr, iúpersinfónían eftir Mozart
og Vorblót Stravinskys.
Harmljóð eftir Szymon Kuran,
annan konsertmeistara Sinfóníu-
hljómsveitar fslands, er samið í
Gdansk í Póllandi í desember 1982
og hefur verið flutt í Gdansk og
London.
Sinfóníuhljómsveit fslands hef-
ur verið stækkuð fyrir þessa tón-
leika vegna Vorblótsins eftir
Stravinsky. Ástæðan er sú, að
Stravinsky gerði ráð fyrir mjög
stórri hljómsveit við flutning
verksins. Alls munu um 90 hljóð-
færaleikarar taka þátt í flutn-
ingnum. Hljómsveitarstjóri er að-
alhljómsveitarstjóri Sinfóníunn-
ar, Jean-Pierre Jacquillat.
Fréttir um við-
vörunarmerk-
ingar vekja athygli
víða um heim
LÖGIN um að viðvörunarmiðar
verði settir á allar tóbaksvörur hér á
landi hafa vakið mikla athygli víða
um heim.
Meðfylgjandi klausa birtist í
International Herald Tribune 1.
janúar sl. Þar segir m.a. að ströng
reykingavarnalög skyldi framleið-
endur til þess að setja miða með
myndum, svo sem af svörtum
lungum eða sjúku hjarta, á allar
tóbaksvörur. Haft er eftir Árna
Johnsen formanni tóbaksvarna-
nefndar alþingis að þetta sé gert
til þess að upplýsa og fræða og til
þess að koma í veg fyrir að þeir
Cigarette Packs in Iceland
To Carry Visual Wamings
Thr tniaiiiM hru
REYKJAVIK —A lough anti-smoking law takeseffeci Tuesday in
lceland. forcmg manufacturers to put illustrations. such as a pair of
black lungs or a diseased heart. on all tobacco producls
The law also prohibits stores from displaying tobacco productv
make* u illegal lo smoke in govemment buildings or buses and
requirea restaurants to set aside no-smoking areas.
"What we are trying to do is to inform and to educate. lo rehese
nonsmokers of the fumes and pollution," said Ami Johnsen chair-
man of parbament's anti-smoking committee
The law specifies that all packages of cigarettes. cigars. pipe
tobacco and snuff must carry a printed waming and one of si\
illustranons: black lungs. a patient in bed. a pregnant mother. a
diseased heart and coronary systcm. an inflamed throat and nose. and
young children
There is a spccific health warning for each illustration For e\am-
ple, the figure of a pregnant mother wtll be accompamed by the
wammg "Smoking du'ing pregnancv threatens the health of mother
and child "
sem ekki reykja þurfi að þola
reykjarsvælu og -mengun.
Einnig eru í fréttinni taldar upp
sex gerðir af viðvörunarmiðum
sem verða í gangi og sérstaklega
lýst þeim sem segir að reykingar á
meðgöngu ógni heilbrigði móður
og barns.
Morgunbladið/Stefán Hjartarson
Gunnlaugur Konráðsson, t.v., skipstjóri á Sólrúnu, sem farið var á í
leiðangurinn og Heiðar Baldvinsson, t.h., skipstjóri á Þórunni.
Þórunni ÞH 255
verdur bjargað
TEKIST HEFUR að staðsetja Þórunni ÞH 255 sem sökk úti
fyrir Ólafsfirði þann 22. nóvember sl. Þrír menn voru um borð
og komust þeir í björgunarbát. Annar bátur, Stefán Rögn-
valdsson, var stutt frá og tók þá upp.
Fyrir skömmu fóru nokkr-
ir menn í leiðangur frá
Grenivík til að kanna hvar
Þórunn liggur.
Heiðar Baldvinsson skip-
stjóri á Þórunni var með í
förinni og sagði hann í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins
að þeir hafi verið nokkuð
vissir um hvar báturinn lægi
og alltaf leitað kringum svo
til sama punktinn. Þeir
fundu loks bátinn á þriðja
degi og liggur hann á um 130
metra dýpi. Heiðar sagðist
gera ráð fyrir að báturinn sé
nokkuð heill, þó ekki hafi
verið hægt að sjá það. Reynt
verður að bjarga Þórunni og
er búist við að hafist verði
handa við verkið nú í vor.
Iðnaðarbank-
inn lækkar
vexti af
gjaldeyris-
reikningum
„Við komum til með að lækka
þessa vexti á næstu dögum, en
við vildum láta hina bankana
hreyfa sig á undan. Okkur hefur
verið haldið utan við gjaldeyris-
viðskipti frá stofnun bankans
þar til nýlega. Við erum að
heimta okkar eðlilega hlut í
þessum viðskiptum og það kem-
ur ekki til greina að við ríðum á
vaðið og lækkum á undan öðr-
um,“ sagði Ragnar Önundarson
bankastjóri í Iðnaðarbankanum
aðspurður um vexti af gjald-
eyrisreikningum í Iðnaðarbank-
anunt, en Iðnaðarbankinn og Al-
þýðubankinn greiða hærri vexti
af þessum reikningum en aðrir
bankar.
Ragnar sagði að vextir af doll-
urum lækkuðu úr 9,5% niður í 8%,
af pundum úr 9,5% niður í 8,5%,
vextir af þýskum mörkum yrðu
áfram óbreyttir, 4%, og vextir af
dönskum krónum lækkuðu úr
9,5% í 8,5%.
Ragnar sagði að við ákvörðun
vaxta væri miðað við markaðs-
vexti í London, svonefnda Libor-
vexti, sem væru reiknaðir út þar.
„Ég geri ráð fyrir að eftir þessar
lækkanir ríkisbankanna á vöxtum
og núna okkar lækkun, sem er
gerð vegna lækkana á Libor, séu
véxtir svipaðir af gjaldeyri hér og
í öðrum löndum og alls ekki
óvenjulegir."
Mælar og stjórntækl sérhönnuð
fyrlr atvlnnubílstjórann.
L 300 4 W.d. — „TORFÆRUSENDIBÍLL" með
aldrif. Fæst einnig með sætum og gluggum
Níðsterkur undirvagn með
sérbyggqa grind.
MITSUBISH
SENDISVEINARNI
SEM ALLTAF ERU í STUÐI