Morgunblaðið - 09.01.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
KefcftAfífí
j, Hvab áttu viS „ ijalda&u mahur*
Úg es búinn o& \>v\! *
Ást er ...
... aö finna hvemig
hjartað slær
TM Reg U S Pat Otf all nghts reserved
e 1979 Los Angeles Times Syndicate
Þér báðuð um léttsteikUn flug-
fisk?
Með
morgunkaffinu
Þú hefðir heldur itt að stunda
söfnun uppstoppaðra fugla í frí-
stundum þínum, held ég!
HÖGNI HREKKVÍSI
BréfriUri er orðinn langþrejttur á eiturreyk frá þeim sem ekki geU án tóbaks verið.
Virðið lögin um tóbaksvarnir
Gúa skrifar:
Kæri Velvakandi.
Sem kunnugt er eru nú gengin í
gildi ný lög um tókbaksvarnir sem
fela m.a. það í sér að nú er óheim-
ilt að reykja í opinberum stofnun-
um og fyrirtækjum þar sem al-
menningur leitar eftir þjónustu.
Einnig ber veitinga- og skemmti-
stöðum skylda til að hafa afmark-
aðan fjölda veitingaborða fyrir
gesti sína, sem ekki má reykja við.
Olafur A. Kristjánsson skrifar:
Kæri Velvakandi.
Fjármálaráðherra neitaði sem
kunnugt er að samþykkja sátta-
tillögu sáttasemjara ríkisins um
6% kauphækkun til opinberra
starfsmanna, þegar samningar
voru á döfinni sl. haust.
Nú ætlar fjármálaráðherra og
þingmaður að greiða sjálfum sér
37% kauphækkun úr sama ríkis-
kassa og hann neitaði láglauna-
starfsfólki ríkisins um 6% hækk-
un úr. Þetta þykir mörgum vera
lítil vinátta við „litla manninn".
Það er lítil afsökun fyrir fjár-
Trausti Kristjánsson skrifar:
Kæri Velvakandi.
Hér á eftir fer svar mitt við um-
mælum Bjarna K. Helgasonar sem
birtust í Velvakanda sunnudaginn
6. janúar sl., vegna þáttar sem var
á dagskrá rásar 2 þann 20. des-
ember sl. Þáttur þessi, Jól á Þing-
stól, sem stjórnað var af Valdísi
Gunnarsdóttur og Júlíusi Einars-
syni, var að mínu mati með öllu
óaðfinnanlegur.
Bjarni segir í grein sinni að
málfar stjórnenda hafi verið mjög
slæmt en undirritaður, sem sat við
útvarpstæki sitt umrætt kvöld,
hefur ekkert út á málfarið að
setja, né þáttinn í heild sinni.
Hann var rás 2 til sóma, hug-
myndin góð og spurningarnar
hnitmiðaðar.
1 þættinum var sýnd hin hliðin
Þrátt fyrir gildistöku þessara
tímamótalaga virða flestir þau að
vettugi.
Lengi höfum við sem ekki reykj-
um mátt gjalda fyrir hina sjúk-
legu tóbaksásókn reykingamanna.
Mér verður iðulega illt eftir
skamma viðdvöl í húsakynnum
þar sem mikið er reykt og veit ég
að svo er um marga aðra. Svo ég
gleymi ekki niðurstöðum kannana
sem gerðar hafa verið í Bandaríkj-
málaráðherra að vitna í það að
svonefndur kjaradómur hafi úr-
skurðað þessa fjarstæðu til handa
hæst launuðu starfsmönnum
ríkisins. Ég hef áður bent á það í
blaðagrein að kjaradómur ætti að
vera skipaður af fulltrúum Al-
þýðusambandsins, Sjómannasam-
bandsins og fulltrúum atvinnurek-
enda, sem stæðu vörð gegn óhóf-
legum kaupkröfum æðstu starfs-
manna ríkisins.
Kjaradómur hefir sannað fyrr
og nú, að hann er óhæfur til að
sinna þessu verkefni, með þeim
mönnum sem hann skipa nú.
á þessum mikilsvirtu viðmælend-
um (ráðherrum þjóðarinnar), sem
við vitum öll að eru mannlegir og
halda sín jól á sama hátt og hinn
almenni borgari. I raun hefði ver-
ið óþarfi að spyrja viðmælendur
um trúarlega þætti jólahátíðar,
við vitum jú öll að íslendingar eru
flestir, ef ekki allir, sannkristið
fólk og hljóta ráðherrar að vera
þar meðtaldir.
Valdís Gunnarsdóttir, umsjón-
armaður umrædds þáttar, stóð sig
að mínu mati prýðilega og var rás
2 í alla staði til sóma. Því fæ ég
ekki séð ástæðuna fyrir ómjúkleg-
um ummælum Bjarna í téðri
grein. Hvaða máli skiptir það
hvort maðurinn sem við var rætt
skrallaði kartöflurnar eða skrældi
þær...“
unum og víðar og frá hefur verið
greint í Morgunblaðinu, en þær
leiða í ljós að óbeinar reykingar
geta verið afar skaðlegar
mönnum.
Hvernig væri nú að eigendur og
forráðamenn fyrirtækja og veit-
ingahúsa sæju sóma sinn í því að
gera vel við þá sem ekki kæra sig
um að eitra fyrir sér og öðrum og
færu að settum reglum, hengdu
upp skilti um að ekki megi reykja
þar sem við á og hefðu afmarkað
svæði á skemmtistöðum fyrir þá
sem ekki reykja?
Þeir eru ótaldir sem því yrðu
fegnir.
Góð hugmynd að
láta börn kynna
Sigga Dísa skrifar:
Kæri Velvakandi.
Ég er móðir fjögurra barna á
aldrinum 3 til 7 ára. Mér finnst
það góð hugmynd að láta börn
kynna í Stundinni okkar. En ég vil
gjarnan fá að sjá aftur börnin,
sem kynntu fyrst. Þau voru svo
skýrmælt og komu alveg sérstak-
lega vel fram. Börnin mín höfðu
sérstaklega gaman af litla strákn-
um. Mér fannst líka viðtalið við
Jón Orm mjög sniðugt. Ég bið því
um að fá að sjá þessa fjóra krakka
aftur á skjánum. Með von um að
Ása og Þorsteinn taki þessa ósk til
greina.
Varðandi Tópas
Athugasemd frá Nóa vegna
klausu í Velvakanda 28. desember
sl. um mismunandi magn í Tóp-
aspökkum.
Mikið álag hefur verið á pökk-
unarvélum okkar og starfsfólki
eftir að nýju Tópastegundirnar
komu á markað. Til að bæta úr
þessu munum við setja upp, á
næstu vikum, nýja pökkunarvél
sem m.a. hefur útbúnað til að inn-
sigla alla Tópaspakka og nema
burt þá sem kann að vanta í.
Við gerum ekki upp á milli lita á
Tópaspökkum, þeir eiga allir að
vega u.þ.b. 22 g sem er u.þ.b. 25
stk. Vonum við að þið systkinin
hafið jafnað þennan mun með
ykkur.
Virðingarfyllst,
Rúnar Ingibjartsson.
Lítil vinátta við
„litla manninn"
Þátturinn rás
2 til sóma