Morgunblaðið - 09.01.1985, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
Galdur
Rúvaksins
Ég hlýddi á ágætis þátt í Ríkis-
útvarpinu í gær, rétt fyrir hádeg-
ismatinn. Þáttur þessi örvaði
samt ekki matarlystina, enda var
þar meðal annars gefin uppskrift
af brókum galdrakvenna, er mest-
anpart samanstóðu af mannshúð,
helst fleginni, af sprelllifandi
fórnardýri. Þáttur þessi var
hlekkur í þáttakeðju af Göldrum
og galdramönnum er Haraldur I.
Haraldsson dregur suður yfir
heiðar, alla leið frá Akureyri, í
eyru okkar sunnanmanna, og
raunar hvert á land sem er. Slíkur
er galdur útvarpsins, að skyndi-
lega eru allir landsmenn í miðri
rás viðburðanna þar nyrðra. Með
öðrum orðum þá færist nafli
heimsins um set í hvert skipti er
þeir hjá RÚVAK takast á flug á
öldum ljósvakans. Sannarlega
þarft framtak að stofnsetja út-
varpsstöð á Akureyri. Þar er
jarðstæði óvenju fagurt og tign yf-
ir staðnum, líkt og ýmsum menn-
ingarbæjum Noregs. Minnir Ak-
ureyri mig oftastnær á hina und-
urfögru norsku bæi, Lillehammer
og Hamar. Nú og svo eru Akureyr-
ingar frægir fyrir að eiga glæsi-
legasta bflaflota landsins, voldug-
ustu karlaklúbbana og fegursta
skíðalandið. Þar eru menn stétt-
vísir í betra lagi, að mér skilst.
Heiðríkja hugans
Hér í Reykjavík er hins vegar
allt á rúi og stúi og þessvegna gæti
öskukall lent á fylleríi með lækni.
Já, það er svo sannarlega nauð-
synlegt að fá útvarpsstöð á stað
þar sem heiðríkja hugans ríkir
ofar öðru og menn eru stéttvísir
að hætti Breta. Persónulega er ég
afskaplega ánægður með margt er
kemur frá RÚVAK. Það er oft
kærkomin hvíld frá æstum rödd-
um reykvískra fréttamanna að
sigla inná lygnan pollinn þar
nyrðra. Þar labba fréttamenn
gjarnan í rólegheitum niðrí trillur
og spyrja tíðinda.
Stundum finnst mér nú samt
hinir norðlensku fréttamenn
spyrja of ítarlega. Hef ég einstaka
sinnum bölvað þessum langlokum,
enda þola reykvískir stressgæjar
ekki annað en hin svokölluðu
fréttaskot er skjótast í hlustirnar,
inná milli munnbitanna. Þeir á
Akureyri þekkja ekki slíkt stress.
Þar stendur islenski fáninn graf-
kyrr í logninu á hátíðisdögum og
þegar stúdentarnir flykkjast að
vori með hvítar húfurnar framfyr-
ir hið aldna menntaskólahús
streyma í hugann ljóðlínur kvæðis
Frödings, Morgundraumur, i um-
sköpun Magnúsar Ásgeirssonar;
Hjá árinnar vogi,/ í víkinni efst,/
þar sem reykjanna togi/ af tjöld-
um hefst,/ þar unir smáfólksins
leik og leit/ að lífsins undrum í
þröngum reit/ hin ellisilfraða
sveit.
Það var œtlun mín
Það var annars ætlun mín í
þessu spjalli að fjalla sérstaklega
um þátt Haralds I. Haraldssonar
frá RÚVAK af Göldrum og galdra
mönnum, en minningin um höfuð-
stað Norðurlands, þaðan í maísól
og rjómalogni, bar mig af leið til
móts við þá anda er hvað hæst
hafa flogið í heimi skáldskaparins,
þá Gustaf Fröding og Magnús
Ásgeirsson. Ég fæ mig ekki til að
skemma þá fögru mynd með rausi
um galdra og galdramenn, en vil
benda áhugamönnum um svarta-
galdur að hlusta á þætti Haraldar
I. Haraldssonar á rás 1. Haraidur
hefir draugalega rödd er hæfir vel
efninu.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚT VARP / S JÓN VARP
Elísabet Erlingsdóttir syng-
ur m.a. í þættinum í dag.
íslensk tónlLst:
„Fimm
stykki“
og
„fjorir
söngvar“
■1 Þátturinn ís-
20 lensk tónlist er
á dagskrá út-
varps kl. 16.20 í dag.
Fyrst mun Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir leika
verkið „Fimm stykki"
fyrir píanó eftir John
Speight. Þá syngur Elísa-
bet Erlingsdóttir við
hljóðfæraundirleik lagið
„Fjórir söngvar“ eftir Pál
P. Pálsson.
Anna Málfríður Sigurð-
ardóttir leikur á píanó
verkið „Gloria“ eftir Atla
Heimi Sveinsson og loks
leika þeir Kristján Þ.
Stephensen og Sigurður I.
Snorrason saman á óbó og
klarinettu „Sónötu" eftir
Magnús Blöndal Jó-
hannsson.
MIÐVIKUDAGUR
9. janúar
7.00 Veöurtregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigrlðar G. Tómas-
dóttur frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir.
Morgunorð: — Steinunn
Arnprúður Björnsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Elsku barn." Andrés Ind-
riöason les sögu slna (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr).
10.45 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi Islenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
11A5 íslenskt mál. Endurtekinn
þáttur Jóns Aðalsteins
Jónssonar frá laugardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12J» Fréttir. 12.45 Veöur-
tregnir. Tilkynningr. Tónleik-
ar.
13.20 Barnagaman. Umsjón:
Heiödfs Norötjörö. (RÚVAK.)
13J0 Lög trá Rússlandi og
Suöur-Amerlku.
14.00 „Þættir af kristniboöum
um vlöa veröld" eftir Clar-
Hvað
viltu
verða?
■■■■i 1 kvöld er á
O A 20 dagskrá út-
U — varps starfs-
kynningarþátturinn
„Hvað viltu verða?“ í um-
sjá þeirra Ernu Arnar-
dóttur og Sigrúnar Hall-
dórsdóttur.
Að þessu sinni verða
tekin fyrir störf þjóna og
kokka, sem fæstir leiða
hugann að þegar setið er
undir borðum á t.d. veit-
ingastöðum og í veislum.
Þær stöllur fá til sín
Sigrún Halldórsdóttir og Erna Arnardóttir.
þrjá gesti sem allir tengj-
ast málinu hver á sinn
hátt. Annars vegar munu
þeir Gísli Thoroddsen,
matreiðslumaður á óðins-
véum, og Bergþór Pálma-
son, þjónn á Hótel Holti,
spjalla við 3tjórnendur
um starf sitt, sem þeir
hafa gegnt í tíu ár.
Þá mun Þórarinn Flyg-
enring, kennari í Hótel-
og veitingaskóla fslands,
skýra frá náminu þar og
þeim kröfum sem nem-
endur þurfa að uppfylla
til að geta orðið góðir
matreiðslumenn eða þjón-
ar. Á milli verður leikin
létt tónlist.
Meginland í mótun
■■ í kvöld hefst í
35 sjónvarpi nýr
“” breskur heim-
ildamyndaflokkur í þrem-
ur þáttum sem nefnist
„Meginland í mótun“.
Þættir þessir fjalla um
náttúru og jarðsögu vest-
urhluta Bandarfkjanna, í
víðasta skilningi; um
tengslin milli steina,
gróðurs og dýra, þ.m.t.
mannsins.
Dregin er upp mynd af
landrekskenningum, fjöll-
um á hreyfingu, eldgos-
um, jarðskjálftum o.fl.
með aðstoð tölvu og korta.
Einnig er leitast við að
svara ýmsum spurningum
svo sem: Hvernig mynd-
aðist Miklagljúfur? Hvers
vegna eru beinagrindur af
stórum sjávardýrum f
ÚTVARP
Nevada? Hvers vegna eru
fiskar í litlum saltpollum
í Death Valley? Hvers
vegna eru borgir byggðar
á svæðum þar sem mikil
hætta er á jarðskjálftum?
o.n.
f fyrsta þættinum í
kvöld er m.a. lesið ur jarð-
lögum Miklagljúfurs í
Colorado-ríki. Úr þeim
má sjá að fjöll hafa horf-
ið, sjór hefur hulið land og
þar hafa jafnvel verið
hitabeltisskógar og eyði-
merkur, allt á þessum
eina og sama stað.
Höfundur og framleið-
andi þáttanna er Michael
Andrews hjá bresku sjón-
varpsstöðinni BBC.
ence Hall. „ Llknarstörf I Bóli-
vlu“. Kristniboö doktors
Franks Beck. Ástráöur Sig-
ursteindórsson les þýöingu
slna (6).
14.30 Miödegistónleikar.
a. Forleikur að óperunni „Fi-
delio" eftir Ludwig van Beet-
hoven. Fllharmonlusveitin I
Vln leikur; Leonard Bernstein
stj.
b. „Espana", rapsódlsa ettir
Emanuel Chabrier. Fllharm-
ónlusveitin leikur; Riccardo
Muti stj.
14.45 Popphóltiö. — Bryndls
Jónsdóttir.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16J20 Islensk tónlist.
19.25 Aftanstund.
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni: Söguhornið
— Töfrakrukkan. Sögumað-
ur Sigurður Jón Ólafsson.
Myndir eru eftir Nlnu Dal.
Tobba, Litli sjóræninginn og
Högni Hinriks.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
a. „Fimm stykki” fyrir planó
eftir John Speight. Svein-
björg Vilhjálmsdóttir leikur.
,b. „Fjórir söngvar" eftir Pál
P. Pálsson. Ellsabet Erlings-
dóttir syngur við hljóðfæra-
undirleik.
c. „Gloria" eftir Atla Heimi
Sveinsson. Anna Málfrlöur
Sigurðardóttir leikur á planó.
d. Sónata eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson. Krist-
ján Þ. Stephensen og Sig-
uröur I. Snorrason leika á
óbó og klarinettu.
17.10 Slðdegisútvarp. Til-
kynningar.
18A5 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
20.35 Meginland I mótun.
1. Steinarnir tala. Breskur
heimildamyndaflokkur I
þrem þáttum um náttúru og
jarósögu vesturhluta Banda-
rlkjanna. I fyrsta þætti er
meöal annars lesiö úr jarð-
lögum Miklagljúfurs I
Coloradórlki og landreks-
kenningin höfö til hliösjónar.
Þýöandi Jón O. Edwald.
21.30 Saga um ást og vináttu.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
son les þýðingu Freysteins
Gunnarssonar (15).
20.20 Hvað viltu verða?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnarpóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 „Let the People Sing"
1984. Alþjóöleg kórakeppni
á vegum Evrópusambands
útvarpsstöðva. 6. þáttur.
Umsjón: Guðmundur Gils-
son. Keppni blandaðra kóra.
21.30 Að tafli. Guömundur
Arnlaugsson flytur skákþátt.
22.00 Horft I strauminn meö
Kristjáni frá Djúpalæk.
(RÚVAK.)
Annar þáttur. Italskur gam-
anmyndaflokkur I sex þátt-
um. Þýðandi Þurlður Magn-
úsdóttir.
22.30 Eþlópla — þjóö I þreng-
ingum.
Endursýning. Einar Sigurös-
son fréttamaður, sem var á
ferö I Eþlóplu fyrir röskum
mánuöi, lýsir neyðarástand-
inu I landinu.
22.55 Fréttir I dagskrárlok.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Tlmamót. Þáttur I tali og
tónum. Umsjón: Ævar Kjart-
ansson.
23.15 Nútlmatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristjén Sig-
urjónsson og Jón Ólafs-
son.
14.00—15.00 Eftirtvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Göjul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Vetrarbrautin
Stjórnandi: Júllus Einarsson.
17.00—18.00 Úr kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eða samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
9. janúar