Morgunblaðið - 09.01.1985, Side 21
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
21
Svíar kaupa
dvergkafbáta
Stokkhólmi. 8. janúar. Fri fréttaritara Mbl.
SÆNSKI sjóherinn hefur með
mestu leynd orðið sér úti um tvo
dvergkafbáta, sem hann ætlar að
nota við kennslu í kafbátsleit.
Opinberlega eru dvergkafbát-
arnir ekki nefndir því nafni
heldur kallaðir köfunartæki
enda verða þeir líka notaðir við
köfunarkennslu og eftirlit með
varnarvirkjum Svía neðansjáv-
ar. Kafbátarnir eru smíðaðir í
Júgóslavíu og komu til Svíþjóðar
skömmu fyrir jól. Þeir eru nú í
flotastöð fyrir utan Stokkhólm
Moskva:
Rætt um
viðskipti
Moskra, 8. janúar. AP.
Aðstoðarviðskiptaráðherra
Bandaríkjanna, Lionel Olmer,
og starfsbróðir hans sovéskur,
Vladimir Sushkov, hófu í dag
þriggja daga undirbúningsvið-
ræður fyrir fund viðskiptaráð-
herra þjóðanna, sem búist er
við, að verði haldinn í vor eða
sumar.
Fundur þeirra Olmers og
Sushkovs er fyrsti fundur
þjóðanna um viðskiptamál frá
því Bandaríkjamenn hættu
öllum viðskiptum við Sovét-
menn vegna innrásarinnar í
Afganistan. Sagði Olmer í
dag, að þeir Sushkov myndu
reyna að komast að því hvort
rétt væri að efna til fundar í
sameiginlegri viðskiptanefnd
þjóðanna og hvert umræðu-
efnið ætti þar að vera. Banda-
rískir embættismenn vilja, að
væntanlegur fundur við-
skiptaráðherranna, þeirra
Malcolms Baldrige og Nikolais
Patolichev, verði í Washing-
ton í mars en Sovétmenn vilja
hins vegar halda hann í
Moskvu í júni.
en þar úti fyrir var ákaft leitað
að kafbátum.
Dvergkafbátarnir eru af
tveimur ólíkum gerðum og raun-
ar taldir vera nákvæmlega eins
og þeir, sem vart varð við í upp-
hafi síðasta árs fyrir utan
Karlskrona. Er annar eins og
tundurskeyti að lögun og aðeins
fyrir einn mann, sem liggur þá
ofan á honum, en hinn er tveggja
manna far og mennirnir innan í
honum undir glerkúpli. Báðir
eru bátarnir knúðir rafvélum og
fara mjög hljóðlega og þar sem
þeir eru gerðir af áli og plasti
hafa þeir Iítil áhrif á segulmæl-
ingatæki sænska hersins. Mun
það vera ástæðan fyrir hve illa
gekk að finna bátana á sínum
tíma.
Vaxtalækkun
íFinnlandi
Helsingfont, 8. janúar. AP.
Finnlandsbanki lækkaði í
dag forvexti úr 9,5 í 9%. Þessi
vaxtalækkun kemur í kjölfar
þeirra ummæla Kalevi Sorsa,
forseta landsins, fyrir skömmu
þess efnis, að vaxtalækkun væri
nauðsynleg til þess að „flýta
fyrir frekari fjárfestingu og
efla efnahagslíf landsins á
þessu ári“. Ahti Pekkala fjár-
málaráðherra hefur látið hafa
eftir sér, að nauðsyn á vaxta-
lækkun hefði verið enn brýnni
vegna þess, að fjárfesting í
landinu hefði ekki aukist í árs-
lok 1984, eins og vonir höfðu þó
staðið til.
ERLENT
Koivisto í Stokkhólmi:
Vissi ekki um stýri-
flaugina er hann
flutti nýársræðuna
Stokkhólmi, 8. janúar. Fri fréllaritara Morgunblaónins.
MAUNO Koivisto, forseti Finn-
lands, neitaði því á fundi með frétta-
mönnum í Stokkhólmi í gær, að
hann hefði sínar eigin sérstöku
skoðanir varðandi ferðir sovézkra
kafbáta innan sænskrar landhelgi.
„Það eru engar forsendur fyrir
hendi, sem ættu að valda því, að
ég hefði aðrar skoðanir en sænska
stjórnin," sagði Koivisto og vísaði
því þar með óbeint á bug, sem haft
var eftir honum í London fyrir um
það bil mánuði, en þar vefengdi
hann mjög fullyrðingar Svía um
þá atburði, sem gerzt hafa í
sænsku landhelginni. 1 heild var
Koivisto mjög fáorður að því er
snerti málefni, sem vörðuðu sam-
skipti Svía og Sovétmanna.
Koivisto kvaðst ekki hafa vitað,
er hann flutti nýársræðu sína, um
sovézku stýriflaugina, sem fór inn
í finnska lofthelgi og féll þar til
jarðar fyrir rúmri viku. Kvaðst
hann fyrst hafa frétt um atburð-
inn síðar frá fjölmiðlum.
Koivisto kom til Stokkhólms á
mánudagsmorgun með ferjunni
Mauno Koivisto
frá Helsingfors í stutta óopinbera
heimsókn. í gær hitti hann m.a.
Olof Palme forsætisráðherra að
máli, auk þess ýmsa sænska emb-
ættismenn.
Eþíópskum gyðingum sem komið hafa að undanfornu til lsrael hefur fljótlega veríð kennt að meðhöndla skotvopn.
Munum bjarga „bræðr-
um okkar og systrum“
ierúsalem, 7. janúar. AP.
SHIMON Peres, forsætisráð-
herra ísrael, sagði í dag, að
„fsraelar myndu ekki una sér
hvíldar“ fyrr en lokið væri að-
gerðum þeirra til björgunar
„bræðrum okkar og systrum
frá Eþíópíu“.
Zvi Eyal, yfirmaður innflytj-
endaeftirlitsins í ísrael, sem
stjórnar þessum mannflutning-
um, hefur skýrt svo frá, að ýms
flugfélög hafi boðizt til að taka
að sér þessa flutninga, en endir
var bundinn á þá að sinni nú um
helgina. Eyal vildi hins ”egar
ekki skýra frá því, hvaða flugfé-
lög þetta væru.
Það var belgíska flugfélagið
Trans European Airways, sem
annazt hafði flutningana, en
ákvað að hætta þeim vegna allr-
ar þeirrar umræðu, sem þessir
flutningar komu af stað í fjöl-
miðlum alls staðar í heiminum.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að yfirvöld í Eþíópíu
og Súdan hyggist ekki ljá því
framar þegjandi liðsinni, að
þessum mannflutningum verði
haldið áfram. Enn eru um 4.000
gyðingar eftir í sérstökum búð-
um í Súdan en 10.000 i Eþíópíu.
Stjórnvöld í Eþíópíu hafa
gagnrýnt þessa mannflutninga
til ísraels og lýst þeim sem gróf-
um afskiptum af innanlandsmál-
um Eþíópíu.
Mikill fjöldi unglinga og barna
er í hópi eþíópskra gyðinga, sem
fluttir hafa verið til ísrael. Um
10% þeirra voru fluttir á undan
foreldrum sínum, en nú virðist
sem þau muni ekki sjá foreldr-
ana í bráð þar sem aðgerðin virð-
ist hafa lognazt útaf eftir að út
spurðist um hana.
D- Innritun er haffin alla
ANö daga kl. 10-12 og
■k | 1—6 í síma 46219.
Nýjung Kolla
Unglingar góöir — dansar beint frá Englandi og nú byrjum viö aö æfa
4—6 ára börn
Nýir barnadansar t.d. Rubert
and the Froc Chorus og Mr.
Bass Man.
Krakkar — Krakkar
7—9 ára og 10—12 ára og
nú lærið þiö
CARIBBEAN
QUEEN
AND SOUL
DEEP
Konur — Konur
Konur — Beat í Æfingastööinni Engihjalla.
AFHENDING
SKÍRTEINA ER í TÓNABÆ
laugardaginn 12. jan. og sunnudaginn 13. jan. kl. 2—5.
í Æfingamiðstöðinni Engihjalla 8, miðvikudaginn 16.
janúar og fimmtudaginn 17. janúar kl. 7—10.
Unglingar
af aö fara aö æfa.
MOSFELLSSVEIT
Kennt veröur í Hlégaröi en afhending skír
13 — 14 — 15 ára og nú veitir ekki teina veröur í félagsmiöstööinni Bó
fimmtudaginn 17. jan. k!. 3—6.
Verið velkomin, Kolla.