Morgunblaðið - 09.01.1985, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.01.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985 23 Verður skurð- hnífurinn óþarfur? DAVID Allison, yfirmaöur einnar deildar læknaskóla Hammersmith- sjúkrahússins í London og sérfræö- ingur í aö greina sjúkdóma eftir röntgenmyndum, sýnir hér tvær myndir, sem teknar voru af sjúkl- ingi, sem var meö góökynja æxli í vinstra fæti. Sýnir önnur myndin æxlið en hin þegar búið var að fjarlægja það með nýrri tækni, sem læknar segja, að muni gera skurðhnífinn óþarfan oft á tíðum. Er hún fólgin í því, að örmjóum leiðslum, sem búnar eru enn fínni tækjum, er þokað eftir æðunum til þess stað- ar í likamanum, sem óskað er, og aðgerðin unnin þar, þ.e.a.s. henni er fjarstýrt en með ðllu er fylgst í myndsjám. . „ Heilu hótelhæðirnar fyrir sjónvarpsfréttir Geif, 8. janúar. Fri önnu Bjamadóttur, fréttar. Mbl. „ÉG VEIT ekki hvaö viö gætum talað um, ef veðrið væri ekki svona vont,“ sagöi talsmaður bandarísku ABC-sjónvarpsstöövarinnar á Ililton-hótelinu í Genf aöfaranótt þriðjudags. Peter Jennings, aöal- fréttaritari sjónvarpsstöövarinnar, stóö úti í kuldanum klukkan hálf- eitt um nóttina og las fréttirnar. Þeim var sjónvarpað beint um gervihnött frá Genf til Bandaríkj- anna og sex klukkustunda tíma- munur olli þessum ókristilega vinnutíma. Dan Rather, fréttaþulur CBS-sjónvarpsstöðvarinnar, og Tom Brokaw, fréttaþulur NBC, höfðu báðir lokið fréttalestri sínum. Fréttirnar af fyrstu samningaviðræðum stórveld- anna um afvopnunarmál í rúmt ár þóttu ekki nógu bitastæðar til að bíða fram yfir miðnætti með að taka þær upp. Rather var víst farinn að sofa en Brokaw gekk um og drakk bjór úr flösku. Hann var að bíða eftir dómi yfir- manna sinna í New York um eig- in frammistöðu. Bandariskum ráðamönnum brá víst heldur en ekki í brún í desember þegar þeir heyrðu að þrjár stærstu sjónvarpsstöðv- arnar ætluðu að senda alla sína toppmenn til Genfar og sjón- varpa fréttunum þaðan dagana sem viðræður Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, og George P. Schultz, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, ættu sér stað. óttast var að of mikils yrði vænst af við- ræðunum og vonbrigði með út- komuna yrðu óumflýjanleg eftir spennuna sem sjónvarpsfrétta- menn byggja upp. Skoðana- könnun CBS hefur nú sýnt, að meirihluti fólks í Bandaríkjun- um hefur ekki mikla trú á við- ræðunum í Genf. Fréttaleysið af fyrstu fundun- um á mánudag varð til þess að snjókoman í Genf vakti athygli um öll Bandaríkin og George Will dálkahöfundur og Henry Kissinger, fv. utanríkisráðherra, fengu tækifæri til að tjá sig um sögulegar staðreyndir f afvopn- unarmálum og segja skoðanir sínar á þeim. ABC og NBC hafa lagt tvær heilar hæðir á Hilton-hótelinu undir sig og sjónvarpa morgun- og kvöldfréttum þaðan, en CBS notar aðstöðu evrópska sjón- varpsins hér í Genf. Talsmaður ABC sagðist vita hvað þetta fyrirtæki kostar sjónvarpsstöð- ina, en vildi ekki nefna ákveðna upphæð. „Þetta kostar ABC ekki heila milljón, en meira en hálfa,“ sagði hún. Yfir 70 manns komu til Sviss á vegum ABC og svipað- ur fjöldi fyrir hinar tvær banda- rísku stöðvarnar. Washington: Enn mótmælt við sendiráð S-Afríku WwAugtoa, 8. jinúar. AP. ENN taka margir þátt f mótmælaaö- geröum fyrir utan sendiráö Suöur- Afríku í Washington þar sem aö- skilnaðarstefnu stjórnvalda er harö- lega mótmælt Fjöldi þeirra sem standa meö skilti fyrir utan húsiö befur minnkað, en skipuleggjandi aögeröanna, Randall Robinson, sagði að aðgerðirnar væru aö færast af götunum og inn á þingið. „Stuðningur við málstaðinn fer vaxandi þar sem mest er um hann vert,“ sagði Randall í samtali við fréttamenn. Randall gekkst fyrir mótmælastöðu fyrir utan sendi- ráðið 21. nóvember á siðasta ári og varð það kveikurinn að um- fangsmikilli hreyfingu í þá veru að knýja stjórnvöld í Suður- Afrfku til að láta af kynþáttaað- skilnaði sínum f landinu. Suður-Afríka: Kennedy gagnrýnir aðskilnaðarstefnuna Pretorin, 8. ju. AP. BANDARÍSKI öldungadeildarþing- maöurinn Edward Kennedy hvatti til þess í dag á fundi í Suður-Afríku meö 600 forystumönnum úr viö- skiptalífi landsins, aö endir yröi bundinn á aöskilnaöarstefnuna þar. Aö öörum kosti værí sú hætta fyrir bendi, aö landiö einangraðist alger- lega með þeim afleiöingum, aö blómlegt efnahagslíf þess yröi lagt f rústir. Kennedy ræddi f gær í 90 mínútur við R.F. Botha, utanríkis- ráðherra Suður-Afríku. Eftir fundinn kvaðst sá síðarnefndi hafa varið stefnu stjórnar Suður- Afríku og hefðu hann og Kennedy ekki náð að verða sammála um neitt. „Það væri barnalegt að gera ráð fyrir því, að við Kennedy yrð- um samrnála. Hann getur ekki einu sinni orðið sammála repú- biikönum í Bandarfkjunum, en þeir eru til vinstri við okkur," sagði Botha við fréttamenn í dag. Kennedy, sem kom til Suður- Afríku á laugardag, vildi ekkert láta hafa eftir sér varðandi fund hans og Bothas. Kennedy er i Suður-Afríku í boði Desmond Tutu, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels í haust. Móttökur þær, sem Kennedy hefur hlotið í Suður- Afríku, hafa verið misjafnar. Er flugvél hans lenti á Jan Smuts- flugvellinum, beið þar hópur blökkumanna, sem hrópaði: „Farðu heim, Kennedy." Sögðu talsmenn hópsins, að heimsókn Kennedys yrði til þess, að gera baráttu þeirra gegn stjórn hvítra manna að forvitnisefni fyrir NUrnberg, Vestur ÞýskaUndi. 8. janúar. AP. FJÖLDI atvinnulausra í Vestur- Þýskalandi var slíkur á hinu nýliöna ári, að aðrar eins tölur hafa ekki sést sföan í lok sfðari heimsstyrjaldarinn- ar er Þýskaland var sigraö og f kalda kolum. Þó munaði sáralitlu á meðal- fjölda atvinnulausra áriö 1984 og 1983. Meðalfjöldi atvinnulausra 1984 var samkvæmt opinberum plögg- um 2,26 milljónir, en til saman- burðar voru árið á undan að með- altali 2,25 milljónir atvinnulausar. Ef litið er á prósentustig, þá er það óbreytt árin bæði, 9,1 prósent að meðaltali. Mesta atvinnuleysi ferðamenn og svipta hana stjórn- málalegu innihaldi sinu. Á heimili Tutus í Soweto, blökkumannaútborg Jóhannesar- borgar, beið aftur á móti hópur blökkumanna, sem fagnaði Kennedy innilega og hélt á lofti kertum við komu hans þangað. ársins var sem svo oft áður í des- ember, er prósentutalan var 9,4 prósent eða 2,32 milljónir. Minnsta atvinnuleysið var hins vegar í nóvember, er 8,8 prósent voru atvinnulausir, eða 2,18 millj- ónir. Miðað við árið 1983 voru þessar tölur allar hagstæðari þrátt fyrir að heildartalan væri sú mesta síðan eftir sfðara strfð. Heinrich Franke framkvæmda- stjóri samtaka verkalýðsfélaga f Vestur-Þýskalandi sagði að frá og með siðasta hausti hafi „hægur bati“ byrjað og hann héldi nú áfram þrátt fyrir hinar voveiflegu tðlur. Vestur-Þýskaland: Metatvinnuleysi Okkar dansar eru spes DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS <><><► TRYGGING FYRIR RÉTTRI TILSÖGN í DANSI Kennslustaöir Bolholt 6 Tónabær Geröuberg Þrekmiöstööin, Hafnarfiröi Innritun nýrra nemenda er í Bolholti 6, símar 687480 og 687580 daglega frá kl. 14—19. Afhending skírteina nýrra nem- enda er laugardaginn 12. janúar frá kl. 14—18. Laugardaginn 12. jan. veröa Henný, Unnur og Hermann Ragnar sérstak- lega til viötals í Bolholti 6, frá kl. 14—17, viö val á hóp. BARNADANSAR Hreyfileikir og dans fyrir börn 4 ára til 11 ára. Nýr flokkur á laugardögum í Tónabæ og í Gerðubergi á miövikudögum. ★ Gamlir og nýir samkvæmisdanear ★ Suður-amerískir dansar ★ Nýir hjóna- og paraflokkar byrja 15. jan. ★ Framhaldsflokkar fyrir hjón og pör ★ Jass-leikskóli fyrir 4—9 ára börn. ★ Guffi — Mikki mús og Jóakim. ★ Jass-dans, byrjendur og framhald. ★ Jass-ballet m.a. dansar úr „Fame“ ★ Step-Tap-dane, 6 ára og eldri. Þetta er dans fyrir stráka og stelpur, ungar stúlkur og herra og jass fyrir konur á besta aidri. Nýir flokkar taka til starfa í vikunni 14.—19. janúar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.