Morgunblaðið - 09.01.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
25
Nige! Watson sem ein af 35 persónum í sýningu Taliesin.
öllu máli. Sjáðu Carmen-sýningu
Peters Brook í París, þar sem ekki
eru nema sex söngvarar og fimm-
tán manna hljómsveit. Líklega
hafa fáar eða engar Carmensýn-
ingar vakið jafn mikla hrifningu í
seinni tíð. Brook nær öllu sem
máli skiftir á sinn þaulhugsaða en
ofureinfalda hátt. Hann nær
nefnilega í kjarnann, sem oft vill
týnast í stóru búningasýningun-
um.
Hefur Brook haft áhrif á ykkur
í Taliesin-leikhúsinu?
— Já, auðvitað ... og Grot-
owsky og margir margir fleiri, en
við höfum reynt að þróa okkar eig-
in aðferðir upp úr okkar aðstæð-
um og ég held að við höfum fundið
okkar eigin leið. Það eru þessar
víxlverkanir í tímanum og staðn-
um, í stað og stund getum við sagt.
Við segjum sögu eða sögur, sagan
skiftir alltaf meginmáli, alls stað-
ar, í öllu leikhúsi. En það er sagan
á bakvið söguna, eða eins og I
Panchatantra, sagan inn í sög-
unni, aftan úr grárri forneskju í
forneskju sem kallast á við okkar
eigin sögu, sem er þá sagan utan
um söguna. Það er feikna spenn-
andi, skilurðu?
Já, ég held ég nái þessu og þá
man ég að ég hef í rauninni ekki
séð svo mikið af nýju leikhúsi i
seinni tíð og bara Peter Brook-
sýningar á filmu: Lé konung og
Marat-Sade.
Nú, og það eru reyndar sýn-
ingar sem Brook gerði fyrir margt
löngu og áður en hann hóf þessa
„sífelldu" leit að kjarna málsins,
þar sem allt er einfaldað og meitl-
að og engum óþarfa hleypt með í
spilið. En þú getur séð fullt af sýn-
ingum á Broadway og í West End
í London, þar sem áhrifin frá
gömlu Brook-sýningunum og jafn-
vel ekki síður Grotowsky eru
greinileg. Og nýju sýningarnar
hans í París hafa líka sín áhrif á
„verslunarleikhúsin". Ég er viss
um að óperan hérna á eftir að
læra margt af honum, þó síðar
verði.
Þetta er á nýársdag 1985 vestur
á Ránargötu og það er kominn
kvöldmatur. Á eftir er meiningin
að fara í nýársveislu hjá ungum
snillingi { austurbænum og þar
sem hún er viss með að standa
fram undir morgun skelli ég fram
lokaspurningu: Hver er tilgangur-
inn? sem er auðvitað ekki alltaf
gáfulegt en brennandi þó ...
... og Cox er snöggur að svara,
einsog Aristofanes 1 „Froskunum":
To advise and amuse .. að
skemmta og leiðbeina ... með
stóru S í Skemmta. LÞ
Morgunblaðið/Þórhallur Bjarnaaon.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ROBERT H. REID
Hussein konungur og Yasser Arafat fyrir einn viðræðufund sinn.
Hussein og Arafat
leggja sig í hættu
MORÐIÐ á einum helzta leiðtoga Palestínumanna ( Jórdaníu, Fahd
Kawasmeh, rétt fyrir áramótin sýnir að Hussein konungur og Yasser
Arafat, leiðtogi Frelsisfylkingar Palestínu (PLO), leggja sig í alvarlega,
persónulega hættu í tilraunum sínum til að mynda samfylkingu í því
augnamiði að vinna að friði við fsrael.
Kawasmeh, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Amman,
virðist hafa verið valinn fyrir skotmark vegna þess að hann hefur lengi
verið því fylgjandi að Jórdaníumenn og PLO sættist og stígi þar með
fyrsta skrefið í átt til lausnar Palestínumálsins og deilu araba og
ísraelsmanna.
ótt Sýrland og ísrael séu
erkióvinir hafa bæði ríkin
barizt hatrammlega gegn slíkum
sáttum Jórdaníumanna og PLO.
Sýrlenzk blöð hafa hvað eftir
annað hótað Hussein og Arafat
„hefndum”, ef samband þeirra
virðist ætla að leiða til einhvers
konar friðar við ríki gyðinga
fyrir milligöngu Bandaríkja-
manna.
Dauði Kawasmehs minnir
Arafat og Hussein á það í hvaða
mynd þessi „hefnd" gæti birzt.
ísraelska sjónvarpið hafði eft-
ir utanrikisráðherra ísraels,
Yitzhak Shamir, að Hussein
konungur ætti að láta sér tilræð-
ið við Kawasmeh að kenningu
verða og gera sér grein fyrir
þeim hættum, sem því væri sam-
fara að vingast við PLO. Israel
hefur boðizt til að gera tvíhliða
friðarsamning við Jórdaníu, en
neitar að ræða við PLO eða
nokkra jórdanska sendinefnd,
þar sem PLO á fulltrúa.
Jórdaníumenn og Egyptar
vona að samkomulag milli Huss-
eins og Arafats um sameiginlega
samningastefnu geri hófsömum
aröbum kleift að skora á Banda-
ríkjamenn að hefja nýjar frið-
artilraunir í Miðausturlöndum
og fá ísrael að samningaborðinu.
„Samsæri gegn byltingunni*
Maður nokkur, sem hringdi i
frönsku fréttastofuna AFP og
kynnti sig sem fulltrúa „Svarta
september", sagði að Kawasmeh,
sem var áður bæjarstjóri í Hebr-
on á Vesturbakkanum, hefði ver-
ið ráðinn af dögum vegna þess að
hann hefði „gert samsæri gegn
(palestínsku) byltingunni í þágu
Arafats og Husseins konungs".
Þetta er slagorð, sem róttækir
andstæðingar Arafats nota til
þess að spyrða saman PLO og
Jórdaníumenn.
Nokkrum dögum fyrir morðið
tilkynnti PLO að sprengja hefði
fundizt fyrir framan heimili
Hanni Al-Hassan, ráðunauts
Arafats, í Amman. Salan Khal-
ef, annar valdamesti maður
PLO, hélt því fram að ótilgreind-
ir hópar hefðu gert samsæri um
að ráða helztu leiðtoga PLO af
dögum.
Kawasmeh var kjörinn í fram-
kvæmdanefnd PLO á fundi Þjóð-
arráðs Palestínu, þings PLO, í
nóvember. Þar var skorað á Ara-
fat að kanna tilboð Husseins
konungs um samninga um lausn
við ísraelsstjórn í því skyni að
koma á fót Palestínuríki á vest-
urbakka Jórdanárinnar og á
Gazasvæðinu.
Þjóðarráðið kaus Kawasmeh
og Mohammed Nilhelm, fyrrver-
andi bæjarstjóra Halhul á Vest-
urbakkanum, í framkvæmda-
nefnd PLO. Kosning þeirra var
þá túlkuð sem tilraun af hálfu
Arafats til að treysta fylgi sitt
meðal Palestínumanna á her-
teknu svæðunum í uppgjöri hans
og róttækra Palestínumanna,
sem njóta stuðnings Sýrlendinga
og eru mótfallnir samvinnu við
Jórdaníumenn.
Síðan uppreisnin gegn for-
ystuhlutverki Arafats brauzt út
í maí 1983 hefur hann reynt að
sýna fram á að uppreisnarmenn-
irnir séu hækjur Sýrlendinga og
njóti ekki stuðnings meðal pal-
estínskrar alþýðu á herteknu
svæðunum.
Arafat hefur beinlínis sakað
Sýrlendinga um morðið á Kaw-
asmeh með því að halda því fram
að þeir hafi hjálpað „hönd Zion-
ismans".
Misheppnaðar viðræður
Hussein konungur hefur lagt
hart að Arafat árum saman að
ganga til samstarfs um að finna
einhverja aðferð til þess að
vinna að samningum um lausn
Palestínumálsins. Þeir áttu með
sér nokkra fundi í apríl 1983 um
hugsanlega, sameiginlega frið-
arleið.
En viðræðurnar fóru út um
þúfur, þar sem Arafat tókst ekki
að afla áætluninni stuðnings í
meginarmi PLO, Fatah — hans
eigin armi. Nokkrum klukku-
stundum áður en Hussein sleit
viðræðunum myrtu vopnaðir
menn í Portúgal Issan Sartawi,
einn hófsamasta leiðtoga PLO.
Þar sem Hussein óttaðist að
einn góðan veðurdag kynni ísra-
el að innlima herteknu svæðin
endurtók hann áskorunina til
Arafats meðan stóð á fundi
Þjóðarráðs Palestínumanna í
nóvember í von um að samkomu-
lag PLO og Jórdaníumanna gæti
rutt brautina til friðarviðræðna.
Vestrænir og arabískir stjórn-
arerindrekar í Kaíró telja að sú
ákvörðun Husseins í september
að koma aftur á tengslum við
Egypta, fjölmennustu araba-
þjóðina og þá einu sem hefur
samið frið við Israel, þjóni þeim
tilgangi að tryggja stuðning Eg-
ypta gegn Sýrlendingum.
Þessi ráðstöfun var einnig tal-
in miða að því að fá Egypta til að
beita áhrifum sínum gagnvart
Bandaríkjamönnum til þess að
draga úr andstöðu þeirra gegn
viðræðum við arm stuðnings-
manna Arafats í PLO.
Þetta jók aðeins ótta Sýrlend-
inga um að Bandaríkjamenn
kynnu að færa sér í nyt tengsl
Jórdaníumanna og PLO til að
knýja fram friðarsamninga hag-
stæða ísrael og óhagstæða Sýr-
lendingum.
Hussein og Arafat hafa lifað
af ótal tilraunir til að ráða þá af
dögum á liðnum árum. Á næstu
mánuðum kemur í ljós hvort
þeim finnst í kjölfar morðsins á
Kawasmeh að hugsanlegur
ávinningur af einhverju sam-
komulagi PLO og Jórdaníu-
manna í leit að friði vegi þyngra
á metunum en sú áhætta, sem
það hafi í för með sér.
Höíundnr þessarar greinar er
íréttamadur AP og sendi greinina
tri Kaíró.
Dorgað á NorAurá við brúna hjá Haugum.