Morgunblaðið - 09.01.1985, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
31
Frá aðventuhátíðinni. Forseti íslands, frú Vigdís Einn vistmanna i Sólheimum kveikir á kerti á að-
Finnbogadóttir, kveikir á kerti. ventuhátíðinni.
Aðventuhátíð á Sólheimum
SKÖMMU fyrir jól var haldin ár-
leg aðventuhátíð í vistheimilinu
Sólheimum í Grímsnesi og heim-
sótti frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti fslands, vistmenn og starfs-
fólk af því tilefni. Forsetinn fór í
skoðunarferð um húsakynni heim-
ilLsins, kynnti sér störf og aðstöðu
vistfólksins og tók þátt í aðventu-
hátíðinni sem einn gesta.
Á Sólheimum í Grímsnesi
dveljast nú um 30 vistmenn á
aldrinum 18 til 50 ára og stunda
þeir þar ýmsa iðju, svo sem vefn-
að og kertagerð.
Meðfylgjandi myndir tók Dav-
íð Þorsteinsson, fréttaritari
Morgunblaðsins á Laugarvatni,
sem staddur var á Sólheima-
heimilinu á umræddri aðventu-
hátíð.
Vistmenn og starfsfólk syngja jólasálma á aðventuhátíðinni.
gaBMHnji
Frá kertagerð vistmanna á Sólheimum.
Egilsstaðir:
Níu sækja um
starf sveitarstjóra
KgiLsNtöAum, 5. janúar.
UMSÓKNARFRESTUR um starf
sveitarstjóra Egilsstaðahrepps er nú
útrunninn og eru umsækjendur um
starfið níu.
Að sögn oddvita Egilsstaðahrepps,
Sveins Þórarinssonar, verður nýr
sveitarstjóri ráðinn í þessum mánuði
— en reiknað er með að hann taki
til starfa um miðjan marsmánuð
næstkomandi og starfi með núver-
andi sveitarstjóra fyrst um sinn.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Einar Rafn Haraldsson, fram-
kvæmdsastjóri, Egilsstöðum; Guð-
mundur Steingrímsson kennari,
Egilsstöðum; Helgi Halldórsson,
yfirkennari, Egilsstöðum; Jón
Gauti Jónsson, framkvæmda-
stjóri, Reykjavík; Sigurgeir Þórð-
arson, byggingatæknifræðingur,
Reykjavík; Þorsteinn Gunnarsson,
kennari, Akranesi; Þorvaldur Ingi
Jónsson, viðskiptafræðingur,
Reykjavík, og Þorvarður Hjalta-
son, kennari, Selfossi. Einn um-
sækjenda óskar nafnleyndar.
Guðmundur Magnússon hefur
gegnt sveitarstjórastarfinu allt
frá því að til þess var stofnað árið
1974 — en áður var hann oddviti
Egilsstaðahrepps og var sem slík-
ur starfsmaður sveitarfélagsins á
árunum 1972—74. Guðmundur er
nú kominn á eftirlaunaaldur.
Þrír stjórnmálaflokkar eiga
fulltrúa í hreppsnefnd Egilsstaða-
hrepps. Alþýðubandalag á 2 full-
trúa, Framsóknarflokkur 3 full-
trúa og Sjálfstæðisflokkur 2 full-
MorgunblaðiA/Olafur
Sveinn Þórarinsson, oddviti Eg-
ilsstaðahrepps.
trúa. Enginn formlegur meirihluti
er innan hreppsnefndarinnar.
Oddviti er framsóknarmaður —
en varaoddviti sjálfstæðismaður.
Að sögn oddvita verður enn-
fremur ráðið í starf tæknifræð-
ings hjá Egilsstaðahreppi nú inn-
an tíðar. Umsækjendur um starf
tæknifræðings eru fjórir: Gísli
Gíslason, Guðmundur Pálsson,
Hallfreður Símonarson og Sigur-
geir Þórðarson.
— Ólafur
Leikdeild Skallagríms í Borgamesi:
Æfingar hafnar á nýjum
gamanleik eftir Trausta
Borgarnewi, 6. jtnúar.
LEIKDEILD Skallagríms í Borgar-
nesi er að hefja æfingar á nýju leik-
riti eftir Trausta Jónsson veðurfræð-
ing. Ber verkið nafnið „Ingiríður
Oskarsdóttir — Geiri djók snýr aft-
ur heim eftir alllanga fjarveru".
Er þetta gamanleikur eins og
nafnið bendir til. Trausti er
Borgnesingur og er þetta annað
leikrit hans. Fyrra leikritið,
„Sveinbjörg Hallsdóttir", sýndi
leikdeildin við góðar undirtektir
árið 1976. Leikstjóri er Guðjón
Ingvi Sigurðsson. — HBj.
Borgames:
Bjarni Skarphéðinsson
ráðinn rafveitustjóri
Borgarnesi, 5. janúar.
BJARNI Skarphéðinsson, rafiðn-
fræðingur á Mel við Andakílsár-
virkjun, hefur verið ráðinn rafveitu-
stjóri Rafveitu Borgarness. Bjarni
var einn 7 umsækjenda um stöðuna,
sem auglýst var í vetur eftir fráfall
Jóns B. Björnssonar, sem lengi var
rafveitustjóri í Borgarnesi.
Bjarni er 58 ára að aldri, fædd-
ur á Þingeyri við Dýrafjörð. Hann
hefur verið rafgæslumaður við
Andakilsárvirkjun frá árinu 1962.
Bjarni er kvæntur Sigrúnu Elías-
dóttur sem ættuð er af ströndum.
Einn umsækjandi óskaði nafn-
leyndar, hinir eru auk Bjarna:
Ríkharður Már Pétursson, raf-
iðnfræðingur, Búðardal; Sigmund-
ur Þórisson, rafiðnfræðingur, Ak-
ureyri; Birgir Baldursson, tækni-
fræðingur, Reykjavík; Björn R.
Jónsson, rafvirkjameistari, Borg-
arnesi; og Gunnar Jón Árnason,
rafvirkjameistari, Reykjavík.
— HBj.
ÆRTU AHYGGJLIAUS
Sparibók með sérvöxtum aðlagast verðtryggingu.
Sama gildir um 18 mánaða sparireikninga.
BUNAÐARBANKIISLANDS
TRAUSTUR BANKI