Morgunblaðið - 09.01.1985, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 1985
Litli
prinsinn í
Dior-fatnaöi
Kins og virt höfum skýrt
frá á þessari síðu áöur hef-
ur Stephanie prinsessa frá
Mónakó verirt art læra hjá
Dior-tískuhúsinu. Nú hefur
hún látið hanna og sauma
klærtnart fyrir litla soninn
hennar Karólínu systur
sinnar, Andrea. I'art er ekk-
ert slor art klærta þann
prins á morgnana í Dior-
kla-rtnað, þó ekki sé hann
nema nokkurra mánarta.
Edda Björgvinsdóttir leikkona:
„Það er ekki
leggjandi á nokkr-
ar manneskjur að
standa undir gríni
ársins“
Það hafa ef að líkum lætur flestir lands-
menn horft á áramótaskaupið svokallað síð-
astliðið gamlárskvöld. Að þessu sinni kom
þar mikið við sögu bæði hvað varrtar leik og
tilbúning Edda Björgvinsdóttir leikkona.
Blm. hafði samband við hana og spurrti um
virtbrögð fólks gagnvart skaupinu.
— Martur fékk allavega viðbrögð. Sumir
sögðu þetta vera hrortalegt, artrir ágætt, frá-
bært o.s.frv. Ég er i raun ánægð með undir-
tektir og það voru viss atriði sem ég sá sjálf
að betur hefrtu mátt fara.
í raun er það ekki leggjandi á nokkrar
manneskjur að standa undir „gríni ársins“.
Ríkisfjölmiðlarnir bjóða ekki upp á neitt ís-
len.sk t skemmtiefni árið um kring en svo er
það einu sinni á ári að maður á að bera
ábyrgð á klukkustundar þætti þar sem allir
íslendingar sitja límdir fyrir framan sjón-
varpirt og bíða eftir gríni og bollaleggja hvort
það sé betra en í fyrra. Þetta er hlutur sera
verður að breytasL Ég kem allavega ekki
nálægt skaupi aftur fyrr en eitthvart verður
gert í þessu. Það þarf að auka íslenskt
skemmtiefni í útvarpi og sjónvarpi og t.d.
ráða hóp af fóiki við þessar stofnanir til hálfs
árs í senn til að sjá um gerð slíkra þátta.
Hvað er framundan hjá þér núna?
— í augnablikinu er ég á fullri ferð að
vinna í sjónvarpsþáttum, sex að tölu, með
Ilelgu Thorberg. Þessi framhaldsmynda-
flokkur byggist á því art við tökum þrjár fjöl-
skyldur með ýktar „steriotypur“ og snúum
við hlutverkum, þ.e.a.s. karlmaðurinn er
heiraavinnandi en konan fyrirvinnan.
Þar að auki tek ég að mér í frístundum að
gera handrit að augíýsingum og hef nýsett á
stofn fyrirtækið „Henrietta og Kósamunda
hf.“ ásamt stallsystur minni, Helgu Thor-
berg. I»etta er einskonar hugmyndastofa.
Það cr ýmislegt fleira á döfinni en í raun of
fljótt að fara að skýra frá því að svo stöddu,
nema, að með vorinu mun ég leika í sjón-
varpsleikriti sem er eftir Steinunni Sigurð-
ardóttur.
Það er svo stefnan hjá mér í framtíðinni að
vera sem mest heima hjá mér með börnunum
og ég hef gott tækifæri til þess að vinna
mikið heima núna því húsið er svo stórt.
Cheryl Tiegs að alt-
arinu í þriðja skipti
Cheryl Tiegs sem er vel þekkt
fyrirsæta í dag mun vera á leið-
inni í hjónaband með syni Greg-
orys Peck, Anthony nokkrum.
Þetta er hans fyrsta hjónaband
en Cheryl á art baki sér tvö slík.
Það er aðeins 12 ára aldursmun-
ur á milli þeirra, Anthony er 24
ára en hún 36.
MICK JAGGER
OG
VICTORIA PRINCIPAL
Leika þau saman?
Það er búið að bjóða Mick Jagger hlutverk í framhaldsþátt-
um sem líkjast að sögn mjög Dynasty og Dallas-þáttunum. Ef
allt gengur art óskum mun Victoria Principal verða mótleikari
hans. Þetta er þó ekki ákveðið heldur aðeins í athugun.
Byggði kirkju úr
30.000 sykurmolum
Þessi mynd er af dómkirkjunni I
Stavanger. Þetta er þó ekki
kirkja búin til úr plastkubbum
eða öðru slíku. Þart er bakarinn
Torben Frandsen sem byggði
hana úr 30.000 sykurmolum. Að-
spurður sagði Torben að það
værí tómstundagaman sitt að
byggja kirkjur úr sykurmolum
og að þetta væri 15. kirkjan sem
hann byggði. í allt hefur hann
eytt 52,2 kiíóum í smíðarnar og
þessi kirkja er sést á myndinni
fékk bæði Ijós og hátalarakerfi.
Það er margt sem hægt er að
finna sér til dundurs ef ímynd-
unaraflið er notað.
Dudley Moore og
dvergarnir
Dudley Moore er ánægður með sig
þessa dagana. Eins og flestir vita er
hann lágur í loftinu, aðeins 1,57 sm,
en nýlega var hann hæstur af mótleik-
urum sínum sem voru 300 dvergar.
Myndin hét „Hanta Claus".
Morgunblaðið/Bjarni
Heimilisfólkið á
Oðinsgötunni, Edda
Björgvinsdóttir
leikkona, sonurinn
Björgvin Franz, læð-
an Gíslína og dóttir-
in Eva Dögg.
fclk í
fréttum